Síða 1 af 2

Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 03:40
af GullMoli
Mynd


Hafa einhverjir hérna verið að horfa á þessa þætti? Ég varð hooked frá fyrsta þættinum og var að klára seríuna.

Þetta eru sennilegast með betri þáttum sem ég hef horft á! Mæli algjörlega með því að horfa ekki á trailerinn eða lesa ykkur til heldur horfa bara á fyrsta þáttinn :D

Þetta er thriller með smá sci-fi ívafi.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 03:50
af HalistaX
Sótti þetta í síðustu viku, eða þessari, man það ekki.... Veit ekki hverju ég bíð eftir, mögulega bara rétta skapinu :P

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 05:55
af Póstkassi
Þetta eru klárlega bestu þættir sem ég hef séð, horfði á alla þættina á 2 dögum

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 06:26
af nidur
Mjög góðir, 2 dagar hérna líka :)

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 07:41
af audiophile
Er hálfnaður með þá. Frábærir þættir :)

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 07:55
af skrattinn
Þetta er fínir þættir, samt laaaangt frá því að vera bestu þættir sem hafa verið sýndir í sjónvarpi(eða Netflix).

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 08:39
af appel
Fínir þættir, ágætis tryllir.

Samt doldið svona formúlukenndir. Ég hugsaði að þetta væri doldið einsog sambræðingur af ýmsum myndum. En samt ágætlega vel útfært.
En ég samt skil ekki hvert Netflix eru að fara með þessu. Þetta er klárlega PG16 horror þættir, en samt eru þeir hálfpartinn einsog ævintýra/fjölskyldu.

[spoiler]
Svolítið einsog blanda af E.T. og Silent Hill
[/spoiler]

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 09:41
af GuðjónR
Búinn með seríuna og fannst hún góð.
Vona samt að þeir skemmi ekki stemninguna með fleiri seríum.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 11:19
af DJOli
Ég rétt sá eins og tvær mínútur úr einum þætti hjá frænda mínum í vikunni sem er að líða.
Ég fékk kjánahroll þegar ég gat lýst næstu 5 mínútum með ágiskunum þar sem ég hef séð alveg heilan helling af myndum.

Ég held mig við Mr. Robot (2. sería er byrjuð btw), Orange is the new black ofl.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 11:24
af Televisionary
Síðasta atriðið opnaði alveg á seríu 2, það verður að framleiða meira af þessu en þá er viðbúið að þetta endi í einhverri vitleysu.

GuðjónR skrifaði:Búinn með seríuna og fannst hún góð.
Vona samt að þeir skemmi ekki stemninguna með fleiri seríum.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 13:34
af AntiTrust
Fantagóðir þættir, með skemmtilegri og öðruvísi þáttum sem ég hef horft á undanfarin ár. Kom mér líklega hvað mest á óvart hvað ungu leikararnir voru góðir.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 18:30
af GunZi
Mér fannst þeir allt í lagi. Klárlega ekki á verri kantinum.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 20:38
af axyne
Byrjaði áðan, búinn með fyrstu 3, gott stuff.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 20:39
af EOS
Er á áttunda þætti, er það lokaþátturinn?

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 25. Júl 2016 22:10
af GullMoli
EOS skrifaði:Er á áttunda þætti, er það lokaþátturinn?


Já, ég einmitt hélt að þetta væri 10 þátta sería :(

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 22. Ágú 2016 12:24
af svanur08
Byrjaði á þessum þáttum í gær, maður verður alveg hooked, horfði á 5 þætti í röð, mjög góðir þættir. :)

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 22. Ágú 2016 13:01
af Moldvarpan
Ég náði ekki að detta inn í þetta.

Sennilega er þetta meira fyrir 1960-70 kynslóðina.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 22. Ágú 2016 14:01
af vesley
Moldvarpan skrifaði:Ég náði ekki að detta inn í þetta.

Sennilega er þetta meira fyrir 1960-70 kynslóðina.


Ég varð strax "hooked" á þessu, en það tók hinsvegar konuna um 3-4 þætti að detta alveg inn í þetta og byrja að fíla þá.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 22. Ágú 2016 14:18
af hagur
Við urðum hooked strax og kláruðum alla þættina frekar fljótt. Síðasti þátturinn olli okkur þó smá vonbrigðum, var svona svolítið eins og það væri verið að flýta sér að "wrappa þessu upp".

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 22. Ágú 2016 16:21
af berteh
AntiTrust skrifaði:Fantagóðir þættir, með skemmtilegri og öðruvísi þáttum sem ég hef horft á undanfarin ár. Kom mér líklega hvað mest á óvart hvað ungu leikararnir voru góðir.

Eleven hefur leikið í öðrum svona Mystery Thriller þáttum og var mjög góð þar þó þættirnir væru ekkert meira en meðal góðir :)
http://www.imdb.com/title/tt3552166/

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 22. Ágú 2016 18:47
af worghal
Var að taka eftir því að tveir þættirnir eru leikstýrðir af Shawn Levy, en hann er ábyrgur fyrir pink panther remakið, night at the museum og date night og helling af direct to tv ömurlegheitum. Ég veit ekki hvaða 2 þætti hann leikstýrði en ég á 2 eftir og hef mikklar áhyggjur af þeim núna. Sérstaklega miðað við það sem hagur sagði um síðasta þáttinn.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Mán 22. Ágú 2016 19:23
af svanur08
Þáttur 3,4 og 5 voru rosalegir.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Þri 23. Ágú 2016 00:08
af svanur08
hagur skrifaði:Við urðum hooked strax og kláruðum alla þættina frekar fljótt. Síðasti þátturinn olli okkur þó smá vonbrigðum, var svona svolítið eins og það væri verið að flýta sér að "wrappa þessu upp".


Var að klára seríuna, veit ekki alveg hvað þú átt við, mér fannst þetta einn besti þátturinn í seríunni.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Þri 23. Ágú 2016 07:42
af KermitTheFrog
hagur skrifaði:Við urðum hooked strax og kláruðum alla þættina frekar fljótt. Síðasti þátturinn olli okkur þó smá vonbrigðum, var svona svolítið eins og það væri verið að flýta sér að "wrappa þessu upp".


Algerlega sammála, endirinn var ekki á pari við restina af þáttunum.

En þrusu góðir þættir samt sem áður.

Re: Stranger Things - Þættir

Sent: Þri 20. Sep 2016 14:31
af HalistaX
Ein spurning með þessa þætti: Ég sé alltaf screen af einhverjum börnum þegar ég heyri minnst á þessa þætti, eru börnin stór partur af þáttunum? Er leikurinn þeirra alveg skítsæmilega áhorfandi? Finnst svo oft þegar börn eiga við svona leik þá er leikurinn hjá þeim alveg god awful. Fæ oftar en ekki bara kjánahroll þegar ég sé börn leika eitthvað svona, sérstaklega þegar þau eru major partur af allri þáttaröðinni.

Bara svona að pæla hvort þessir þættir séu í raun og veru fyrir mig, því ég nenni ekki að vera með kjánahroll út heila þátta seríu.

Eru þetta bara krakkar í þáttunum? Hvað mynduði segja að krakka screen time'ið væri á móti fullorðnu fólki í prósentum? Eða jafnvel stærðar kvarðanum sem mér finnst svo gaman að misnota... X:XX....