Forsetakosning 2016
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2303
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 391
- Staða: Ótengdur
Forsetakosning 2016
Smá forvitni, hvað við vaktarar veljum.
En höldum þessu á mottunni, vonandi kusu allir sem hafa rétt til þess.

Re: Forsetakosning 2016
Guðni pirrandi annskoti, bara útlitið hans fer í taugarnar á mér! En kaus ekki treysti bara engum lengur í stjórnmálum eða forseta.
Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR
-
- FanBoy
- Póstar: 736
- Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
- Reputation: 110
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
Kaus ekki sjálfur en það vita nú allir hvernig þetta fer.
B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.
Re: Forsetakosning 2016
Hvað sér fólk við þennan Guðna Ice Save gæja, hann vill fara í evrópu sambandið, meirihluti þjóðar vill ekki ESB samt er fólk að kjósa hann! Fólk er fíbbl
Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR
Re: Forsetakosning 2016
Ef ég hefði kosið hefði það klárlega verið Sturla, hann allavegna heldur með fólkinu
Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR
Re: Forsetakosning 2016
Guðni er maður sem RUV valdi, kjáni
RUV er spillt eins og 365.
RUV er spillt eins og 365.
Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR
Re: Forsetakosning 2016
Bara pirrandi hvað íslendingar eru miklir kjánar í þessum málum, kjósum alltaf eitthvað lið sem við mótmælum svo á austurvöllum, það sem við kjósum. Bara hætta að kjósa þetta lið, þeir lofa öllu og standa ekki við neitt.
Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2303
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 391
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
Hvað hefur þú gott að seigja um þetta lið, seigðu mér það?
Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR
-
- Vaktari
- Póstar: 2534
- Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
- Reputation: 379
- Staðsetning: 800
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
Heyrðu, þrátt fyrir að ég búi í 801, þá er ég með skráð lögheimilið í Breiðholtinu, svo ég þyrfti að gera mér sér ferð í Kópavoginn og nágreni til þess að kjósa.
FUCK, THAT!
Fer ekki að eyða einhverjum 5000kalli í bensín bara til þess að kjósa einhverja plebba sem enginn á heima á Bessastöðum. Væri reyndar heeeelvíti fyndið að sjá Ástþór á Bessastöðum. Guð minn almáttugur, værum við fokkt þá.
Fór samt heim til hans um daginn, fyrir svona einum og hálfum mánuði síðan, til Ástþórs þar að segja. Fékk að taka í hendina á kallinum. Djöfull er þetta skrítinn maður í persónu.
En svona seriously, þá myndi ég líklega kjósa myndarlegustu konuna sem bauð sig fram, því ég er svo mikil karlremba.

Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2303
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 391
- Staða: Ótengdur
-
- Vaktari
- Póstar: 2534
- Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
- Reputation: 379
- Staðsetning: 800
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
Moldvarpan skrifaði:Vá... ég er orðlaus.
Haha bara baffled yfir heimskuni í okkur hinum drengjunum? Að nýta ekki kosningarétt okkar? Já, ég skil þig alveg, ef það væri verið að kjósa eitthvað aðeins mikilvægara en þetta myndi ég líklegast gera mér ferð.
En svo lengi sem Davíð vinnur ekki, þá er ég sáttur. Ég þoli ekki þann mann.
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1725
- Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
- Reputation: 20
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
Moldvarpan skrifaði:Vá... ég er orðlaus.
Hvað gerðist eiginlega með þennan þráð ?
Annars setti ég á visir.is og ætlaði að horfa á live broadcast um kosninguna en fékk bara þessa fínu bíómynd í staðinn.
Prófið að opna playerinn
http://www.visir.is/forsetakosningar-20 ... 6160629207
Ég kaus annars Andra.
Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að hann vinnur örugglega ekki en mér líst best á hann af þeim frambjóðendum sem eru í boði. Það sem vegur sennilega þyngst er að mér finnst hann hafa einhverja framtíðarsýn og hugmyndir annað en hinir frambjóðendurnir. Hann hafði líka hárrétt fyrir sér varðandi virkjanir og álverin sem komu hér.
Re: Forsetakosning 2016
Nú spyr ég bara eins og vitleysingur, en er forseti íslands eithvað að fara stjórna því hvort við göngum í ESB eða ekki, eða stjórna bara einhverju yfir höfuð? Er þetta ekki bara einhver gæji/gella sem tekur í höndina á öðrum forsetum og fær alltof há laun fyrir það?
|-Evolv X-|-Asus Z370 Gaming-|-i7 8700k-|-Noctua NH D15-|-2x8GB Vengeance 3200MHz-|-SuperNova 750 B2-|-Asus GTX 1080 Strix-|
-
- Vaktari
- Póstar: 2534
- Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
- Reputation: 379
- Staðsetning: 800
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
Steinman skrifaði:Nú spyr ég bara eins og vitleysingur, en er forseti íslands eithvað að fara stjórna því hvort við göngum í ESB eða ekki, eða stjórna bara einhverju yfir höfuð? Er þetta ekki bara einhver gæji/gella sem tekur í höndina á öðrum forsetum og fær alltof há laun fyrir það?
Ég held að þessi hafi lent algjörlega á nefið með þetta. Ég sé allavegana ekki hvað forsetinn á að geta breytt eða ráðið yfir, öðru en að þrífa kattasandinum hjá kettinum í fjósinu á Bessastöðum.
Annars er ég sáttur með að Vaktarar séu ekki að sýna Davíð neinn stuðning í þessari skoðunarkönnun hjá þér, Moldvarpa!
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1725
- Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
- Reputation: 20
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
HalistaX skrifaði:Steinman skrifaði:Nú spyr ég bara eins og vitleysingur, en er forseti íslands eithvað að fara stjórna því hvort við göngum í ESB eða ekki, eða stjórna bara einhverju yfir höfuð? Er þetta ekki bara einhver gæji/gella sem tekur í höndina á öðrum forsetum og fær alltof há laun fyrir það?
Ég held að þessi hafi lent algjörlega á nefið með þetta. Ég sé allavegana ekki hvað forsetinn á að geta breytt eða ráðið yfir, öðru en að þrífa kattasandinum hjá kettinum í fjósinu á Bessastöðum.
Annars er ég sáttur með að Vaktarar séu ekki að sýna Davíð neinn stuðning í þessari skoðunarkönnun hjá þér, Moldvarpa!
Ja hann hefur alveg einhver völd en þau eru frekar takmörkuð, Ólafur Ragnar hefur hafið vinnu við að breyta embættinu í eitthvað sem hefur meiri völd og sumir frambjóðendur eins og t.d. Davíð hafa gefið það í skyn að þeir myndu líka breyta því.
Mig langar samt mikið til að vera fluga á vegg hjá framboðsskrifstofu Davíðs núna, sé strax fyrir mér atriðið í Der Untergang þegar Davíð fattar að hann er umkringdur já-mönnum sem héldu áfram að selja honum að hann væri kóngurinn og yrði kosinn.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1796
- Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
- Reputation: 123
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
Ég kaus Höllu.
En mér fannst vera of margir frambjóðendur. Þá meina ég að það eru of margir í loka kosningunum. Ég væri mikið frekar til í að taka einhverskonar forkosningar eða kosningarbaráttur þar sem yrði skorið úr hverjir geta haldið áfram og hverjir ekki og síðan þegar það er augljóst hverjir verða þeir sem munu berjast um að verða kosnir þeir einu sem eru eftir. 2 eða 3 frambjóðendur.
Mér fannst of mikið af verðmætum atkvæðum vera sóað í frambjóðendur sem var vitað mál löngu fyrir kosningar að myndu ekki vera einu sinni nálægt baráttunni. Einn af þeim sagði meira að segja fyrir talningu að hann yrði sáttur með 3,5% atkvæða. Þegar maður gerir sér ekki meiri vonir en það á maður ekkert að vera í baráttunni!

Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 976
- Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
- Reputation: 134
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
HalistaX skrifaði:Heyrðu, þrátt fyrir að ég búi í 801, þá er ég með skráð lögheimilið í Breiðholtinu, svo ég þyrfti að gera mér sér ferð í Kópavoginn og nágreni til þess að kjósa.
FUCK, THAT!
Fer ekki að eyða einhverjum 5000kalli í bensín bara til þess að kjósa einhverja plebba sem enginn á heima á Bessastöðum. Væri reyndar heeeelvíti fyndið að sjá Ástþór á Bessastöðum. Guð minn almáttugur, værum við fokkt þá.
Fór samt heim til hans um daginn, fyrir svona einum og hálfum mánuði síðan, til Ástþórs þar að segja. Fékk að taka í hendina á kallinum. Djöfull er þetta skrítinn maður í persónu.
En svona seriously, þá myndi ég líklega kjósa myndarlegustu konuna sem bauð sig fram, því ég er svo mikil karlremba.
Það var hægt að kjósa í utankjörstaðakosningu, síðan í Maí........
-
- Vaktari
- Póstar: 2534
- Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
- Reputation: 379
- Staðsetning: 800
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
brain skrifaði:HalistaX skrifaði:Heyrðu, þrátt fyrir að ég búi í 801, þá er ég með skráð lögheimilið í Breiðholtinu, svo ég þyrfti að gera mér sér ferð í Kópavoginn og nágreni til þess að kjósa.
FUCK, THAT!
Fer ekki að eyða einhverjum 5000kalli í bensín bara til þess að kjósa einhverja plebba sem enginn á heima á Bessastöðum. Væri reyndar heeeelvíti fyndið að sjá Ástþór á Bessastöðum. Guð minn almáttugur, værum við fokkt þá.
Fór samt heim til hans um daginn, fyrir svona einum og hálfum mánuði síðan, til Ástþórs þar að segja. Fékk að taka í hendina á kallinum. Djöfull er þetta skrítinn maður í persónu.
En svona seriously, þá myndi ég líklega kjósa myndarlegustu konuna sem bauð sig fram, því ég er svo mikil karlremba.
Það var hægt að kjósa í utankjörstaðakosningu, síðan í Maí........
Hahahaha já, eitthvað var ég búinn að heyra af því. Ætli þetta sé ekki bara einhver leti í manni, ætli það sé ekki ein af afsökununum. Og svo náttúrulega það að mér leist bara ekki á neinn frambjóðanda. Á ég þá bara að skila inn auðu eins og eitthvað fífl í staðinn fyrir að kjósa ekki? Þá get ég nú alveg eins bara verið heima.
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
-
- has spoken...
- Póstar: 192
- Skráði sig: Sun 12. Jún 2016 19:38
- Reputation: 37
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
HalistaX skrifaði:brain skrifaði:HalistaX skrifaði:Heyrðu, þrátt fyrir að ég búi í 801, þá er ég með skráð lögheimilið í Breiðholtinu, svo ég þyrfti að gera mér sér ferð í Kópavoginn og nágreni til þess að kjósa.
FUCK, THAT!
Fer ekki að eyða einhverjum 5000kalli í bensín bara til þess að kjósa einhverja plebba sem enginn á heima á Bessastöðum. Væri reyndar heeeelvíti fyndið að sjá Ástþór á Bessastöðum. Guð minn almáttugur, værum við fokkt þá.
Fór samt heim til hans um daginn, fyrir svona einum og hálfum mánuði síðan, til Ástþórs þar að segja. Fékk að taka í hendina á kallinum. Djöfull er þetta skrítinn maður í persónu.
En svona seriously, þá myndi ég líklega kjósa myndarlegustu konuna sem bauð sig fram, því ég er svo mikil karlremba.
Það var hægt að kjósa í utankjörstaðakosningu, síðan í Maí........
Hahahaha já, eitthvað var ég búinn að heyra af því. Ætli þetta sé ekki bara einhver leti í manni, ætli það sé ekki ein af afsökununum. Og svo náttúrulega það að mér leist bara ekki á neinn frambjóðanda. Á ég þá bara að skila inn auðu eins og eitthvað fífl í staðinn fyrir að kjósa ekki? Þá get ég nú alveg eins bara verið heima.
Já. Með því að skila auðu ertu að senda skilaboð. Þeir sem nota ekki kosningarétt sinn eiga þá að hafa vit á því að halda sér saman næstu 4 árin.
Ég er ekki að skjóta á þig persónulega en almennt þoli ég ekki þegar fólk vælir yfir ríkisstjórn sem dæmi, en lætur svo aldrei sjá sig á kjörsstað.
Turn: Intel i5 6500 - ASRock Z170M Pro4S - 16gb Kingston DDR4 HyperX Black Fury 2666 - Samsung Evo 850 250gb - EVGA GTX970SSC 4gb - CoolerMaster Silencio 352 - EVGA 500B 80+ Bronze - Windows 10
Skjár: AOC 27" LED 144Hz
Annað: Trust GXT 285 - Corsair M65 Pro RGB
Skjár: AOC 27" LED 144Hz
Annað: Trust GXT 285 - Corsair M65 Pro RGB
-
- Vaktari
- Póstar: 2534
- Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
- Reputation: 379
- Staðsetning: 800
- Staða: Ótengdur
Re: Forsetakosning 2016
EOS skrifaði:HalistaX skrifaði:brain skrifaði:HalistaX skrifaði:Heyrðu, þrátt fyrir að ég búi í 801, þá er ég með skráð lögheimilið í Breiðholtinu, svo ég þyrfti að gera mér sér ferð í Kópavoginn og nágreni til þess að kjósa.
FUCK, THAT!
Fer ekki að eyða einhverjum 5000kalli í bensín bara til þess að kjósa einhverja plebba sem enginn á heima á Bessastöðum. Væri reyndar heeeelvíti fyndið að sjá Ástþór á Bessastöðum. Guð minn almáttugur, værum við fokkt þá.
Fór samt heim til hans um daginn, fyrir svona einum og hálfum mánuði síðan, til Ástþórs þar að segja. Fékk að taka í hendina á kallinum. Djöfull er þetta skrítinn maður í persónu.
En svona seriously, þá myndi ég líklega kjósa myndarlegustu konuna sem bauð sig fram, því ég er svo mikil karlremba.
Það var hægt að kjósa í utankjörstaðakosningu, síðan í Maí........
Hahahaha já, eitthvað var ég búinn að heyra af því. Ætli þetta sé ekki bara einhver leti í manni, ætli það sé ekki ein af afsökununum. Og svo náttúrulega það að mér leist bara ekki á neinn frambjóðanda. Á ég þá bara að skila inn auðu eins og eitthvað fífl í staðinn fyrir að kjósa ekki? Þá get ég nú alveg eins bara verið heima.
Já. Með því að skila auðu ertu að senda skilaboð. Þeir sem nota ekki kosningarétt sinn eiga þá að hafa vit á því að halda sér saman næstu 4 árin.
Ég er ekki að skjóta á þig persónulega en almennt þoli ég ekki þegar fólk vælir yfir ríkisstjórn sem dæmi, en lætur svo aldrei sjá sig á kjörsstað.
Já ég skil þig, algjörlega. Það er alltaf hundleiðinlegt þegar fólkið sem vill breyta og bæta hvað mest gerir svo ekkert í því.
Annars ætla ég að vera laus við væl, og þó að Davíð hefði verið kosinn, þá hefði ég nú varla verið með væl. Í rauninni skiptir Forsetinn mig voða litlu máli þannig séð. Ekki er hann á alþingi, ekki getur hann breytt eða bætt nein lög eða neitt svoleiðis. Þannig að ég sé ekki almennilega fúttið í þessu. Jú kannski er fúttið í þessu að láta keyra sig um á Forseta bílnum næstu fjögur árin. Það hlýtur að vera það! Hahahaha
Eru svo ekki aðrar kosningar í haust? Hvað á að kjósa þá, vitið þið það? Ég var bara að frétta það í gær. Maður verður vonandi kominn til Reykjavíkur þá og getur gert sér einn örstuttann í Kópavoginn til þess að kjósa. Gera það að ísbíltúr, þessvegna, eftir að maður er búinn að kjósa.
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16272
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 1995
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Forsetakosning 2016
Ég sá komment á Facebook í gær sem fékk mig til að brosa:
Erfitt að fara á kjörstað og vita ekkert hvað skal kjósa..þetta er svona eins og fyrir kjötætu að fara á grænmetishlaðborð - allt svo sem ætt en ekkert sem er spennandi. á maður að kjósa helsnobbaðan auðkýfing? eða léttflippaðan bóhem?... útbrunninn rithöfund í tilvistarkreppu eða beiskan pólitíkus?... eða er það bara auður seðill...? maður bara spyr sig...
Re: Forsetakosning 2016
Mér finnst pínu magnað að það séu svona margir hérna sem segja: "Ég nýtti ekki kosningarréttinn minn afþví að ég vissi að Guðni myndi vinna og mér finnst asnalegt að hann vann" í stað þess að nýta réttin og reyna fá einhvern sem það vill fá sem forseta...