Logo

Allt utan efnis

Höfundur
chubbo
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mið 08. Apr 2015 01:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Logo

Pósturaf chubbo » Sun 19. Jún 2016 16:26

Einhver hér sem getur tekið að sér að gera flott og vandað logo?, gæti borgað aðilanum sem tæki þetta að sér eitthvað smotterí.
sentu mér pm ef þú hefur áhuga.



Skjámynd

Baldurmar
FanBoy
Póstar: 780
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf Baldurmar » Sun 19. Jún 2016 18:41

flott og vandað logo

borgað [...] eitthvað smotterí


Frábært tilboð !


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb


Höfundur
chubbo
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mið 08. Apr 2015 01:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf chubbo » Sun 19. Jún 2016 18:46

@baldurmar þú ert frekar nettur gaur að reyna vera með einhverja neikvæðni á pósta, hefuru ekkert betra að gera?, flottur vinur.



Skjámynd

Baldurmar
FanBoy
Póstar: 780
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf Baldurmar » Sun 19. Jún 2016 19:00

Þú auglýsir eftir vönduðu logo-i, væntanlega frá listamanni eða grafískum hönnuði.
Svo tekur þú sérstaklega fram að þú ætlist til að borga næstum ekkert fyrir það og ert síðan hissa að fá gagnrýni og svarar henni með yfirlæti.

Gangi þér vel með þetta verkefni.


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2763
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 118
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf zedro » Sun 19. Jún 2016 20:06

Ég bara varð! Hafðu það í huga að þeir sem vinna við grafíska hönnun hafa eytt miklum tíma
í að læra og þjálfa upp sitt fag og að bjóða einhverjum "smotterí" fyrir "vandað og flott" logo
gæti túlkast sem argasti dónaskapur nema þá að smotterí fyrir þér sé 10-15þ.kr.

Mynd

If you're good at something never do it for free!

Getur prófað http://www.fiverr.com og fengið logo þá á smotterí.


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6278
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf worghal » Sun 19. Jún 2016 21:19

ætlaði einmitt að seja allt sem zedro sagði. fyrst að smotterí er verðmiðinn þá er fiverr.com málið.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1822
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf Snorrmund » Mán 20. Jún 2016 00:36

Smá forvitni varðandi þetta. Hann segir smotterí, það er ansi teygjanlegt hugtak og í hans huga er það kannski meira en þið haldið(eða öfugt..) Væri alveg til í að vita hvað OP finnst smotterí vera mikið, einnig væri ég til í að vita hvað sé "eðlilegt" verð að taka fyrir að græja eitt lógó, veit alveg að það er mjög misjafnt eftir verkefni væntanlega. En er 20þ eðlilegt? eða 100þ ? Ég geri mér bara enga grein fyrir þessu enda aldrei þurft að láta hanna lógó fyrir mig.



Skjámynd

Nitruz
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 13. Júl 2011 19:14
Reputation: 32
Staðsetning: milli steins og sleggju
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf Nitruz » Mán 20. Jún 2016 10:52

Þetta er svolítið einns og að spyrja hvað kostar að láta mála eitt málverk. En ætli það sé ekki frá $5 frá fiverr.com til $1.000.000 fyrir pepsi logo-ið.
Já gæti líka verið að hann sé að meina smotterí einns og Donald Trump sem fékk "a small loan" milljón dollara.




Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1822
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf Snorrmund » Fim 23. Jún 2016 00:43

Nitruz skrifaði:Þetta er svolítið einns og að spyrja hvað kostar að láta mála eitt málverk. En ætli það sé ekki frá $5 frá fiverr.com til $1.000.000 fyrir pepsi logo-ið.
Já gæti líka verið að hann sé að meina smotterí einns og Donald Trump sem fékk "a small loan" milljón dollara.


Já, ég skil það mjög vel. Var aðallega að spá hvort það væri einhver hérna inná sem væri í þessum bransa og gæti svalað forvitni minni. Segjum sem svo að ég sé með lítið fyrirtæki eða félagasamtök einhverskonar og mér vantar lógo. Ég geri mér alveg grein fyrir vinnunni sem liggur á bakvið svona, og finnst fullkomlega eðlilegt að borga svoldið fyrir svona vinnu. Er aðallega að farast úr forvitni yfir þessu! :)



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3093
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 442
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf hagur » Fim 23. Jún 2016 07:37

Oftast er svona bara unnið á tímagjaldi eða föstu verðtilboði m.v ákveðið tímamat. Hvað ætli klst hjá grafískum hönnuði kosti? 10-15 þús reikna ég með.

Now, you do the math :-)



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf kiddi » Fim 23. Jún 2016 10:26

Allra bestu merkjahönnuðurnir eru með ákveðið lágmarksgjald, þeir vilja ekki endilega selja 20 ára reynslu á einhverjum klukkutímaprís, því vinnan þeirra er þess eðlis að þeir geta ekki beint verið að hanna 8 merki á dag, og oft eru þeir marga daga að velta hugmyndum fyrir sér áður en þeir leggja pennann á blaðið. Algeng verð fyrir "ódýr" merki frá atvinnumönnum eru alveg frá 250-500þ+vsk, og stundum - ef mikið er í húfi fyrir t.d. stærstu fyrirtæki landsins þar sem er verið að hanna merki til næstu 50 ára, þá getur verðmiðinn orðið tífallt hærri en það, og ferlið getur tekið marga mánuði. Einn vinur minn er meðal fremstu merkjahönnuða landsins og hann segir réttilega; "Það tekur mig kannski 20 mínútur að koma með flott lógó, en það tók mig 20 ár að öðlast þessa færni.". Þetta er djöfull erfitt að verðleggja, því smekkur fólks er misjafn og maður getur lent í því ef maður ætlar að vera góður við kúnnann og hanna merki fyrir lítið, að kúnninn verði svo erfiður og haldi manni uppteknum við breytingar í marga daga. Ef markmiðið er að borga sem minnst, þá þarf viðkomandi að vera tilbúinn að sætta sig við að taka því merki sem hann fær fyrir peninginn, hvort sem það verði svo notað eða ekki.

Sennilega er málið að vonast til að einhver áhugamaður/fiktari taki sig til og búi til merki fyrir "smotterí" - kannski verður það frábært, kannski ekki :)




Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1822
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Logo

Pósturaf Snorrmund » Fim 23. Jún 2016 22:22

kiddi skrifaði:Allra bestu merkjahönnuðurnir eru með ákveðið lágmarksgjald, þeir vilja ekki endilega selja 20 ára reynslu á einhverjum klukkutímaprís, því vinnan þeirra er þess eðlis að þeir geta ekki beint verið að hanna 8 merki á dag, og oft eru þeir marga daga að velta hugmyndum fyrir sér áður en þeir leggja pennann á blaðið. Algeng verð fyrir "ódýr" merki frá atvinnumönnum eru alveg frá 250-500þ+vsk, og stundum - ef mikið er í húfi fyrir t.d. stærstu fyrirtæki landsins þar sem er verið að hanna merki til næstu 50 ára, þá getur verðmiðinn orðið tífallt hærri en það, og ferlið getur tekið marga mánuði. Einn vinur minn er meðal fremstu merkjahönnuða landsins og hann segir réttilega; "Það tekur mig kannski 20 mínútur að koma með flott lógó, en það tók mig 20 ár að öðlast þessa færni.". Þetta er djöfull erfitt að verðleggja, því smekkur fólks er misjafn og maður getur lent í því ef maður ætlar að vera góður við kúnnann og hanna merki fyrir lítið, að kúnninn verði svo erfiður og haldi manni uppteknum við breytingar í marga daga. Ef markmiðið er að borga sem minnst, þá þarf viðkomandi að vera tilbúinn að sætta sig við að taka því merki sem hann fær fyrir peninginn, hvort sem það verði svo notað eða ekki.

Sennilega er málið að vonast til að einhver áhugamaður/fiktari taki sig til og búi til merki fyrir "smotterí" - kannski verður það frábært, kannski ekki :)


Þetta er bara akkurat það sem ég var að fiska eftir! Takk fyrir þetta, annars skilur maður ágætlega að þetta kosti eitthvað, því eins og þú bendir á þá tekur minnstan tíma af öllu ferlinu að teikna þetta, pælingarnar á bakvið lógóin og hugmyndavinnan getur hinsvegar tekið sinn tíma.