Fékk hugmyndina að þessum þræði bara ekki fyrr en núna, þegar ég var að skoða vaktina. Sá að IGN eða Gamerant voru með svipað á Facebook um daginn og kemur þessi hugmynd eiginlega þaðan.
Þetta virkar s.s. alveg eins og þessi þráður viewtopic.php?f=9&t=69471 . Bara með tölvuleiki í staðin fyrir kvikmyndir.
Ég persónulega vildi óska þess að ég ætti eftir að spila Metal Gear Solid 4: Guns of the Patriots á PS3. Ef hann yrði rebootaður fyrir PS4 þá fyrst myndi ég kaupa þá græju. Þetta er nefninlega minn uppáhalds leikur, vann ég hann í gamladaga án þess að drepa eina einustu lífveru, og það á efsta eða næst efsta erfiðleikastiginu, man það ekki alveg, en það var mun erfiðara en að segja það allavegana. Ætli það hafi ekki verið það hæsta, því ég var fastur á einum parti í margar vikur og þetta var á þeim tíma þegar ég átti við mikið reiði vandamál að stríða svo að það voru allir í húsinu hræddir við mig þegar gellurnar drápu mig trekk í trekk.....*
Svo veit ég ekki. Fallout leikirnir voru helvíti góðir first time around. GTA IV líka, minn uppáhalds GTA leikur. GTA V á ekki dick í hann, ef ég verð að segja eins og er.
Allavegana, stæling af kvikmyndaþræðinum, komið með ykkar leik sem þið vilduð að þið ættuð eftir að spila í fyrsta skiptið

Ps. Meigið endilega fljóta með ef ykkur finnst einhver leikur eiga skilið að vera endurgerður/reboot/remake /whatevs.
EDIT: *Man það núna, það var erfiðasta erfiðleikastigið, ég bara vann hann ekki með því að vera undetected eða óséður af óvininum allan leikinn. Það var eitthvað sem leit út fyrir að vera ómögulegt.