Síða 1 af 1
Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Mið 25. Maí 2016 19:15
af Black
Er með tvöfaldan ísskáp sem sló út áðann þegar ég opnaði hann. Það kom hvellur og það sprungu 2perur af 4, með miklum hvelli
tók perurnar úr og skoðaði þær og þær líta alls ekki vel út.Tók bara og sló ísskápnum inn aftur og hann virkar eins og hann á að gera.
Hvað í ósköpunum gæti hafa átt sér stað þarna.



Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Mið 25. Maí 2016 19:24
af DJOli
Skrýtið. Möguleiki að einhversskonar raki hafi orsakað þetta.
En það að ísskápurinn hafi slegið út er alls ekki svo ólíklegt þar sem þræðir innan perunnar geta hafa leitt saman nánast viðnámslaust, og slegið þannig út örygginu fyrir ísskápinn.
Ég myndi útvega mér nýjum perum í ísskápinn og prufa að skipta um (með ísskápinn útsleginn auðvitað) og sjá hvað gerist.
Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Mið 25. Maí 2016 19:33
af hagur
Sammála rakatilgátunni. Líklega verið komin einhver bleyta í skrúfganginn sem perurnar fara í.
Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Mið 25. Maí 2016 19:38
af Hizzman
bara einhverjar krappí perur sem skammhleyptust þegar þær gáfu sig...
Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Mið 25. Maí 2016 19:56
af GuðjónR
Færð svona perur í Bónus, tvær í pakka og kosta klink.
Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Mið 25. Maí 2016 22:06
af lukkuláki
Er einhver að reyna að myrða þig .... konan þín?

Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Fim 26. Maí 2016 12:36
af Hizzman
GuðjónR skrifaði:Færð svona perur í Bónus, tvær í pakka og kosta klink.
ef þú vilt framhald á fjörinu...

Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Fim 26. Maí 2016 15:05
af Black
Hef ekkert gert í þessu ennþá, dálítið spes að hinar perurnar sprungu ekki, það eru 2 í öðru perustæði, og svo eru 4 perur í frystinum. Þetta voru orginal perurnar 7ára gamlar AEG kannski að þetta hafi verið komið á tíma :p
Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Fim 26. Maí 2016 18:04
af Hizzman
Black skrifaði:Hef ekkert gert í þessu ennþá, dálítið spes að hinar perurnar sprungu ekki, það eru 2 í öðru perustæði, og svo eru 4 perur í frystinum. Þetta voru orginal perurnar 7ára gamlar AEG kannski að þetta hafi verið komið á tíma :p
úff.. greinilega eineltismál sem hefur endað með tvöföldu sjálfsvígi!
Re: Ísskápur sló út með hvelli..
Sent: Fim 26. Maí 2016 18:43
af jonsig
kallast cascading failure og er þekkt fyrirbæri .