Síða 1 af 1
Konuna Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Mið 17. Feb 2016 23:50
af worghal
Sælir.
Konunni minni vantar nýja vinnu þar sem henni langar að breyta aðeins til, hún er ekkert að fara að missa núverandi vinnuna, og okkur vantar uppástungur.
Málið er það að hún er Bandarísk en er með full vinnuréttindi gegnum mig.
Hún kann smá íslensku og er að leita að hluta-starfi, kanski 4 daga í viku og aðra hverja helgi þar sem hún er í námi í Háskóla Íslands.
Hún kemur með mjög góð meðmæli.
Erum að reyna að forðast eldhús störf þar sem hún er búin að prufa það.
Hún er með AS í Business management / Finance og hún er með gráðu/próf úr rafeindatækni frá NOCTI.
erum ekki viss hvort einhver taki mark á þessum gráðum hér
Einhverjar hugmyndir?
Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fim 18. Feb 2016 16:27
af nidur
Það hefur allavega verið mín reynsla að ef þú ert ekki innfæddur íslendingur þá skiptir einhver útlensk gráða engu máli, þrátt fyrir að hún eigi fullan rétt á sér. Svo er aftur á móti rosa flott að vera íslendingur með útlenska gráðu

Hefur hún áhuga á fjármálum og tæknimálum, eða langar henni að vinna við eitthvað annað?
Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fim 18. Feb 2016 18:03
af capteinninn
Hvað með að athuga með einhverjar vinnur út frá erlendum nemendum í HÍ eða jafnvel eitthvað í gegnum Bandaríska Sendiráðið ?
Verst að flestöll þjónustustörf eru ómöguleg því það þarf að kunna góða Íslensku yfirleitt en hvað með einhvern milliveg þarna á milli.
Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fim 18. Feb 2016 20:32
af jonsig
Mér sýnist nocti prófið vera fyrir fólk sem langar í rafmagnstengt framhaldsnám (collage?), tók próf á síðunni þeirra og þetta virkar eins og lokapróf úr grunndeild rafiðna .
Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fim 18. Feb 2016 20:48
af appel
Er ekki mikilvægast að vita hvað konunni LANGAR að vinna við?
Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fim 18. Feb 2016 22:25
af GuðjónR
appel skrifaði:Er ekki mikilvægast að vita hvað konunni LANGAR að vinna við?
Neinei, það er algjört aukaatriði!

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fim 18. Feb 2016 22:30
af worghal
appel skrifaði:Er ekki mikilvægast að vita hvað konunni LANGAR að vinna við?
Eins og stendur er markmiðið bara að finna nýja vinnu sem henntar henni betur. Hún er opin fyrir flestu. Bara ekki eldhússtörfum. Hún er komin með eitt atvinnu viðtal en langar að vinna með túristum.
Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fim 18. Feb 2016 22:49
af Moldvarpan
Bláa lónið? Það er starfsmanna rúta þar.
Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fös 19. Feb 2016 01:50
af rapport
Að vinna í "lundabúð" er líklega ekki það skemmtilegasta en það má líka reyna við 66norður, Cintamani o.þ.h. verslanir.
Flottasta verslun landsins, Geysir er að fara opna í Kringlunni.
Sendiráðin eru að fara taka inn fólk, sérstaklega fólk með gráður t.d. má búast við að kosningarnar í USA muni kalla á einhvern mannskap + ef herinn er að koma aftur.
En svo er spurning hvort að hún vilji ekki fara í einhverskonar frumkvöðlastarf að vinna að einhverri góðri hugmynd sem hún hefur og gera hana að raunveruleika.
Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Fös 19. Feb 2016 21:41
af Dazy crazy
Er ég sá eini sem læt titilinn fara í taugarnar á mér? Konuna*
Annars er ég búinn að vera að leita að vinnu og það er fáránlega mikið framboð af 100% starfi eða framtíðarstarfi, lítið sem ég hef fundið sem hentar mér með skólanum þar sem ég get ekki unnið um helgar. En tékkaðu á Alfreð appinu

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Lau 20. Feb 2016 19:13
af worghal
Dazy crazy skrifaði:Er ég sá eini sem læt titilinn fara í taugarnar á mér? Konuna*
Annars er ég búinn að vera að leita að vinnu og það er fáránlega mikið framboð af 100% starfi eða framtíðarstarfi, lítið sem ég hef fundið sem hentar mér með skólanum þar sem ég get ekki unnið um helgar. En tékkaðu á Alfreð appinu

afsakið titilinn en þetta var gert seint um kvöld í flýti.
erum búin að vera að skoða alfreð og það er einmitt eins og þú segir, svakalegt framboð af 100% störfum en það er bara ekki í boði með skóla.
Re: Konuna Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?
Sent: Mán 22. Feb 2016 18:47
af gunnji
Ég myndi tala við allar Bílaleigur. Skiptir engu máli hvort að þú talar íslensku eða ekki.