Konuna Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
worghal
Kóngur
Póstar: 6278
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Konuna Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf worghal » Mið 17. Feb 2016 23:50

Sælir.
Konunni minni vantar nýja vinnu þar sem henni langar að breyta aðeins til, hún er ekkert að fara að missa núverandi vinnuna, og okkur vantar uppástungur.

Málið er það að hún er Bandarísk en er með full vinnuréttindi gegnum mig.
Hún kann smá íslensku og er að leita að hluta-starfi, kanski 4 daga í viku og aðra hverja helgi þar sem hún er í námi í Háskóla Íslands.
Hún kemur með mjög góð meðmæli.
Erum að reyna að forðast eldhús störf þar sem hún er búin að prufa það.

Hún er með AS í Business management / Finance og hún er með gráðu/próf úr rafeindatækni frá NOCTI.
erum ekki viss hvort einhver taki mark á þessum gráðum hér :uhh1

Einhverjar hugmyndir?
Síðast breytt af worghal á Lau 20. Feb 2016 19:13, breytt samtals 1 sinni.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1355
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf nidur » Fim 18. Feb 2016 16:27

Það hefur allavega verið mín reynsla að ef þú ert ekki innfæddur íslendingur þá skiptir einhver útlensk gráða engu máli, þrátt fyrir að hún eigi fullan rétt á sér. Svo er aftur á móti rosa flott að vera íslendingur með útlenska gráðu :)

Hefur hún áhuga á fjármálum og tæknimálum, eða langar henni að vinna við eitthvað annað?




capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf capteinninn » Fim 18. Feb 2016 18:03

Hvað með að athuga með einhverjar vinnur út frá erlendum nemendum í HÍ eða jafnvel eitthvað í gegnum Bandaríska Sendiráðið ?

Verst að flestöll þjónustustörf eru ómöguleg því það þarf að kunna góða Íslensku yfirleitt en hvað með einhvern milliveg þarna á milli.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf jonsig » Fim 18. Feb 2016 20:32

Mér sýnist nocti prófið vera fyrir fólk sem langar í rafmagnstengt framhaldsnám (collage?), tók próf á síðunni þeirra og þetta virkar eins og lokapróf úr grunndeild rafiðna .



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf appel » Fim 18. Feb 2016 20:48

Er ekki mikilvægast að vita hvað konunni LANGAR að vinna við?


*-*

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf GuðjónR » Fim 18. Feb 2016 22:25

appel skrifaði:Er ekki mikilvægast að vita hvað konunni LANGAR að vinna við?

Neinei, það er algjört aukaatriði! :fly



Skjámynd

Höfundur
worghal
Kóngur
Póstar: 6278
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf worghal » Fim 18. Feb 2016 22:30

appel skrifaði:Er ekki mikilvægast að vita hvað konunni LANGAR að vinna við?

Eins og stendur er markmiðið bara að finna nýja vinnu sem henntar henni betur. Hún er opin fyrir flestu. Bara ekki eldhússtörfum. Hún er komin með eitt atvinnu viðtal en langar að vinna með túristum.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2236
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf Moldvarpan » Fim 18. Feb 2016 22:49

Bláa lónið? Það er starfsmanna rúta þar.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf rapport » Fös 19. Feb 2016 01:50

Að vinna í "lundabúð" er líklega ekki það skemmtilegasta en það má líka reyna við 66norður, Cintamani o.þ.h. verslanir.

Flottasta verslun landsins, Geysir er að fara opna í Kringlunni.

Sendiráðin eru að fara taka inn fólk, sérstaklega fólk með gráður t.d. má búast við að kosningarnar í USA muni kalla á einhvern mannskap + ef herinn er að koma aftur.

En svo er spurning hvort að hún vilji ekki fara í einhverskonar frumkvöðlastarf að vinna að einhverri góðri hugmynd sem hún hefur og gera hana að raunveruleika.




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf Dazy crazy » Fös 19. Feb 2016 21:41

Er ég sá eini sem læt titilinn fara í taugarnar á mér? Konuna*

Annars er ég búinn að vera að leita að vinnu og það er fáránlega mikið framboð af 100% starfi eða framtíðarstarfi, lítið sem ég hef fundið sem hentar mér með skólanum þar sem ég get ekki unnið um helgar. En tékkaðu á Alfreð appinu :)


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!

Skjámynd

Höfundur
worghal
Kóngur
Póstar: 6278
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Konunni Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf worghal » Lau 20. Feb 2016 19:13

Dazy crazy skrifaði:Er ég sá eini sem læt titilinn fara í taugarnar á mér? Konuna*

Annars er ég búinn að vera að leita að vinnu og það er fáránlega mikið framboð af 100% starfi eða framtíðarstarfi, lítið sem ég hef fundið sem hentar mér með skólanum þar sem ég get ekki unnið um helgar. En tékkaðu á Alfreð appinu :)

afsakið titilinn en þetta var gert seint um kvöld í flýti.
erum búin að vera að skoða alfreð og það er einmitt eins og þú segir, svakalegt framboð af 100% störfum en það er bara ekki í boði með skóla.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


gunnji
Nörd
Póstar: 125
Skráði sig: Sun 21. Des 2008 19:28
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Konuna Vantar Nýja Vinnu. Uppástungur?

Pósturaf gunnji » Mán 22. Feb 2016 18:47

Ég myndi tala við allar Bílaleigur. Skiptir engu máli hvort að þú talar íslensku eða ekki.