Síða 1 af 1

jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Mán 11. Jan 2016 19:48
af vatr9
Mig langaði til að deila jákvæðum viðskiptum sem ég átti á laugardaginn í Tölvutækni.
Þannig er mál með vexti að ég keypti turn í annarri verslun í sumar. Mér hafði alltaf fundist hún full hávær og sá að það voru ekki síður kassavifturnar sem heyrðist í. Þannig að mér datt í hug að hafa samband við verslunina og athuga hvað hægt væri að gera. Þar var nokkurra daga bið í að komast að nema að borga flýtigjald. Þeir mæltu með að skipta um örgjörvaviftuna sem er intel (stock).
Þá datt mér í hug að hafa tékka á Tölvutækni og sá á vefnum að þeir áttu viðnám til að lækka í kassaviftum.
Ég fer með tölvuna á laugardegi til þeirra og bið þá að skoða hvað hægt væri að gera til að lækka hávaðann. Starfsmaður Tölvutækni hringir í mig fyrir lokun og segir mér að tölvan sé tilbúin og að hann hafi bara sett viðnám á kassavifturnar og við það snarlækkaði hávaðinn. Það reyndist sem sagt ekki vera örgjörvaviftan sem olli mesta hávaðanum. Fyrir þetta borgaði ég sáralítið og ekkert flýtigjald.
Sem sagt kudos til Tölvutækni.

Re: jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Mán 11. Jan 2016 19:53
af Henjo
Tölvutækni er cool verslun.

Re: jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Mán 11. Jan 2016 19:55
af mercury
Undantekning ef eg versla annarstadar en i tölvutækni eda att.is
Frabærir stràkar sem vinna tharna, eru oftast nær med lægstu verdin og veita personulegri thjonustu.

Re: jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Mán 11. Jan 2016 20:45
af worghal
hef bara átt góð viðskipti þarna :happy
hef mælt með þessum stað við alla mína vini :D

Re: jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Mán 11. Jan 2016 20:58
af HalistaX
Mamma verslaði eitt sinn fartölvu við þá, sú vél var ekkert nema vandræðin. Þeir voru svo góðir að skipta um móðurborð en ekkert skánaði vélin svo þeir skiptu henni bara alveg út fyrir refurbished vél sem sama sagan var með. Við vorum ekkert að bögga þá neitt meira með þessu og notum hana enn í dag, 3,5 árum seinna. Hún bluescreenar samt og er enþá hæg og með leiðindi reglulega.

En topp þjónusta samt sem áður. :)

Re: jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Mán 11. Jan 2016 21:21
af Hrotti
Hahaha, ég las óvart "jákvæð reynsla í tölvuteki" og skildi ekkert hvað væri að gerast.

Re: jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Mán 11. Jan 2016 22:41
af Halli13
Reyni að versla hvergi annarstaðar en þarna, hef alltaf fengið topp þjónustu.

Móðurborð sem ég keypti hjá þeim bilaði og áttu þeir það ekki lengur til og fékk ég að velja mér annað móðurborð í staðin og gáfu þeir mér mismunin (um 5000 minnir mig) ekkert nema topp þjónusta :happy :happy :happy

Re: jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Mán 11. Jan 2016 23:26
af KrissiP
Hef ekkert nema gott að segja um Tölvutækni, versla hvergi annarsstaðar nema í algerum neiðartilvikum. Hef keypt alla mína stærri parta þar og ekkert nema herlegheitin þegar maður labbar þarna inn. Bara núna um daginn labbaði ég með skjákortið mitt þarna inn sem var bilað, labbaði upp að kassanum ,,Þetta er bilað" starfsmaðurinn fer með það á bakvið og kemur svo aftur eftir 10 mín eða svo og segir við mig ,,Já, þetta er bilað.". Ég labba svo út með sambærilegt kort bara sáttur :happy

Re: jákvæð reynsla í Tölvutækni

Sent: Þri 12. Jan 2016 13:20
af Frost
Ég hef verslað flest allar mínar tölvuvörur af þeim og mun halda því áfram. Topp verslun.