Síða 1 af 1

Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Mán 23. Nóv 2015 20:36
af Krissinn
Ég er ítrekað búinn að reyna að link-a nýtt MasterCard kreditkort frá Íslandsbanka við Paypal accountinn minn en ekkert gengur!!! Eru fleiri að lenda í þessu? Þetta er reyndar plúskort en það er fjárhæð inná því. Sendi skjáskot af villuboðunum sem koma upp.

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Mán 23. Nóv 2015 20:51
af einarhr
Spurnig að hafa samband við bankann þinn eins og stendur þarna í villuboðunum :-"

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Mán 23. Nóv 2015 21:22
af Krissinn
Jú, vildi bara láta reyna á þetta fyrst :)

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Mán 23. Nóv 2015 21:35
af Klemmi
Hvaða upphæð ertu að reyna að greiða?

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Mán 23. Nóv 2015 21:56
af audiophile
Veit að það er ekki hægt (allavega vesen) að transfera funds af Paypal inn á Mastercard. Held að Paypal virki almennt illa með Mastercard.

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Þri 24. Nóv 2015 01:48
af DaRKSTaR
kannski hefur kortið enga erlenda heimild.. það er bara nothæft til að versla í íslenskum krónum?

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Þri 24. Nóv 2015 07:21
af brain
Ég er með Mastercard prepaid linkað á paypal. var ekkert mál að gera. einsog DarkStar sagði, kannski er kortið merkt fyrir innlendar færslur.

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Þri 24. Nóv 2015 10:29
af Zpand3x
Lenti stundum í ves með prepaid á steam en þá fékk ég að vita að það þyrti að vera 10 eða 20% meiri upphæð inná kortinu en það sem þú ætlaðir að nota. Hefur örugglega eitthvað með gengisbreytingar að gera.

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Þri 24. Nóv 2015 10:39
af vesley
Zpand3x skrifaði:Lenti stundum í ves með prepaid á steam en þá fékk ég að vita að það þyrti að vera 10 eða 20% meiri upphæð inná kortinu en það sem þú ætlaðir að nota. Hefur örugglega eitthvað með gengisbreytingar að gera.



Maður þarf að passa þetta líka á paypal að vera með að mig minnir 20% meira inná prepaid korti til að heimildin komi í gegn.

Var allavega þannig á plús korti sem ég átti.

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Þri 24. Nóv 2015 10:44
af Klemmi
vesley skrifaði:Maður þarf að passa þetta líka á paypal að vera með að mig minnir 20% meira inná prepaid korti til að heimildin komi í gegn.

Var allavega þannig á plús korti sem ég átti.


Hef ekki lent í þessu með mitt fyrirframgreidda kort, VISA kort frá Landsbankanum. Paypal er einnig farið að sýna upphæðina í íslenskum krónum og hvaða gengi er miðað við.

Hins vegar stoppar kortið við erlendar færslur yfir 100þús og þau hjá Valitor og Landsbankanum segja að það geri það með flest öll kort önnur en Platinum kort. Þannig að ef þú ert að greiða umfram 100þús þá þarftu að hringja og láta opna fyrir það í hvert skipti (þau opna út daginn ef ég skildi þau rétt).

Re: Get ekki link-að kreditkort vð Paypal account

Sent: Þri 24. Nóv 2015 12:21
af Krissinn
Ég er að reyna að tengja nýtt kort við Paypal accountinn minn. Er ekki að fara að greiða með því á næstunni. Ég hélt bara að Paypal myndi taka eitthvað tengigjald fyrir og því hafði ég fjárhæð inná því. Klemmi: Ég var einnig í Landsbankanum með 2x kreditkort frá VISA og gat tengt þau við án vandræða :) En Ég skipti um viðskiptabanka og Íslandsbanki býður einungis uppá MasterCard greiðslukort og ég kann ekkert inná þetta :)