Síða 1 af 1
10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Þri 17. Nóv 2015 21:37
af Hrotti
http://www.zuistar.is/endurgreiethsla.html"Trúfélagið Zúism endurgreiðir meðlimum sínum fjárstyrk ríkissins (stundum nefnd sóknargjöld). Skráðu þig í Trúfélagið Zuism í þjóðskrá fyrir 1. desember 2015 og þú öðlast rétt á endurgreiðslu á sóknargjöldum ársins 2016."
Þetta er á facebook síðunni hjá þeim.
https://www.facebook.com/zuistarMér datt í hug að þetta yrði vinsælt hjá heiðingjunum sem að hanga á vaktinni

Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Þri 17. Nóv 2015 22:07
af nidur
Flott framtak hjá zúistum

Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Þri 17. Nóv 2015 22:45
af Skari
Hef nú voðalítið viljað tjá mig varðandi trú þar sem þetta er ekkert annað endalaus rifrildi en er sjálfur "heiðingi", skráði mig úr þjóðkirkjunni fyrir nokkrum árum og hef engan að fá þennan pening endurgreiddan, er það auðveldur að ég vona að þessi peningur fari frekar í eitthvað mikilvægara.. td. eflingu löggæslinguna

Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Þri 17. Nóv 2015 23:23
af steinarorri
Skráði mig hiklaust. Þekki líka einn af forsvarsmönnunum þarna svo ég treysti þessu vel. Mér finnst þetta góð ádeila á mjög óréttlátt sóknargjaldakerfi sem er við lýði hér á Íslandi og mannréttindastofnun SÞ benti hér á 2012.
Það má einnig láta þúsundkallana renna til góðgerða í stað þess að fá "endur"greitt.
Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Mið 18. Nóv 2015 00:29
af Hrotti
steinarorri skrifaði:Skráði mig hiklaust. Þekki líka einn af forsvarsmönnunum þarna svo ég treysti þessu vel. Mér finnst þetta góð ádeila á mjög óréttlátt sóknargjaldakerfi sem er við lýði hér á Íslandi og mannréttindastofnun SÞ benti hér á 2012.
Það má einnig láta þúsundkallana renna til góðgerða í stað þess að fá "endur"greitt.
sammála, ég hef engann sérstakann áhuga á peningnum, þetta er aðallega gott fokkjú á sóknargjaldakerfið.
Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Mið 18. Nóv 2015 01:36
af urban
Er eðlilegt að skatta þetta ?
Svona þar sem að þetta er jú hluti af sköttum sem að þú greiðir nú þegar.
Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Mið 18. Nóv 2015 08:24
af Tbot
Skari skrifaði:Hef nú voðalítið viljað tjá mig varðandi trú þar sem þetta er ekkert annað endalaus rifrildi en er sjálfur "heiðingi", skráði mig úr þjóðkirkjunni fyrir nokkrum árum og hef engan að fá þennan pening endurgreiddan, er það auðveldur að ég vona að þessi peningur fari frekar í eitthvað mikilvægara.. td. eflingu löggæslinguna

Held að það hafi verið þannig að þeir sem voru utan trúfélaga voru samt rukkaðir um sóknargöld, en þá runnu þau til HÍ.
Þannig að það var hægt með góðri samvisku að kalla HÍ liðið "cult"
Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Mið 18. Nóv 2015 09:50
af Vaski
Það var þannig að þetta rann til HÍ, en núna er það ekki lengur svo, þannig að þetta er bara auka skattur á okkkur sem erum utan trúfélaga.
Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Mið 18. Nóv 2015 12:06
af steinarorri
Vaski skrifaði:Það var þannig að þetta rann til HÍ, en núna er það ekki lengur svo, þannig að þetta er bara auka skattur á okkkur sem erum utan trúfélaga.
Of rann í þokkabót held ég til guðfræðideildar HÍ
Re: 10þús kr. Nú er hægt að fá trúfélagagjaldið endurgreitt :)
Sent: Mið 18. Nóv 2015 14:45
af Hrotti
urban skrifaði:Er eðlilegt að skatta þetta ?
Svona þar sem að þetta er jú hluti af sköttum sem að þú greiðir nú þegar.
Mér skilst að það sé ólíklegt en þeir hafi ekki þorað öðru en að setja það inn. Sennilega þarf dómur að falla til að fá úr því skorið.