Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Allt utan efnis

Höfundur
angelic0-
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 382
Skráði sig: Fös 26. Ágú 2011 20:04
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf angelic0- » Sun 15. Nóv 2015 21:09

Enn og aftur á að reyna að þvinga íslensku þjóðina til þess að vopnavæða almenna lögregluþjóna, hvað finnst ykkur um þetta;

http://www.dv.is/fb/konnun/thurfa-islen ... sur-til-a/

Ég vill endilega minna spjallverja á að Franska lögreglan hefur verið vopuð svo áratugum skiptir, en það breytti engu við þessar aðstæður!

ROG Crosshair V - Formula Z | AMD FX 8350 X8 @ 4.55GHz | Corsair XMS3 32GB DDR3 (4x8GB) | 2x WD 1TB & 1x Seagate Constellation 2TB (4TB storage)
Samsung SSD 840 EVO 750GB | ASUS HD7770 x2 (2GB) | Corsair H100i CPU cooler | CoolerMaster Silencio 650 | Forton Aurum Modular 1200w Pro PSU

Skjámynd

hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf hakkarin » Sun 15. Nóv 2015 22:21

Má alveg vopna þá mín vegna. Þeir fara ekkert að skjóta fólk af handahófi. Í versta falli koma upp einhver tilvik þar sem að þeir grípa til vopna þar sem að hægt hefði verið að beita vægara valdi, en jafnvel þá yrðu flest fórnarlömbin líklega bara einhverjir rónar og dópistar sem að fokka í löggunni þannig að hverjum er ekki skítsama?

Skjámynd

Henjo
Gúrú
Póstar: 526
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf Henjo » Sun 15. Nóv 2015 22:42

hakkarin skrifaði:Má alveg vopna þá mín vegna. Þeir fara ekkert að skjóta fólk af handahófi. Í versta falli koma upp einhver tilvik þar sem að þeir grípa til vopna þar sem að hægt hefði verið að beita vægara valdi, en jafnvel þá yrðu flest fórnarlömbin líklega bara einhverjir rónar og dópistar sem að fokka í löggunni þannig að hverjum er ekki skítsama?

jamm, bara eithverjir veikir einstaklingar að "fokka" í lögguni, hverjum er ekki skitsama hvort löggan drepi þá eða ekki?

*btw þetta kaldhæðni, finnst ansi sorglegt að hakkarinn finnst í lagi að drepa "róna og dópista"
Síðast breytt af Henjo á Sun 15. Nóv 2015 22:50, breytt samtals 1 sinni.

steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf steinarorri » Sun 15. Nóv 2015 22:46

hakkarin skrifaði:Má alveg vopna þá mín vegna. Þeir fara ekkert að skjóta fólk af handahófi. Í versta falli koma upp einhver tilvik þar sem að þeir grípa til vopna þar sem að hægt hefði verið að beita vægara valdi, en jafnvel þá yrðu flest fórnarlömbin líklega bara einhverjir rónar og dópistar sem að fokka í löggunni þannig að hverjum er ekki skítsama?

Mynd

Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf beggi90 » Sun 15. Nóv 2015 22:50

hakkarin skrifaði:Má alveg vopna þá mín vegna. Þeir fara ekkert að skjóta fólk af handahófi. Í versta falli koma upp einhver tilvik þar sem að þeir grípa til vopna þar sem að hægt hefði verið að beita vægara valdi, en jafnvel þá yrðu flest fórnarlömbin líklega bara einhverjir rónar og dópistar sem að fokka í löggunni þannig að hverjum er ekki skítsama?

Vá, þér tekst einhvern veginn alltaf að toppa þig.

Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1246
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 374
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf Njall_L » Sun 15. Nóv 2015 23:28

Persónulega finnst mér að það ætti ekki að vopna hinn almenna lögreglumann þegar hann er við almenn lögreglustörf heldur að þegar koma upp aðstæður þar sem að ástæða er talinn til að beita skotvopnum þá hafi lögregla þjálfun, þekkingu og aðgang að þeim útbúnaði sem þarf til og að ekki þurfi að bíða eftir að örfáir menn úr Víkingasveitinni mæti hvert á land sem er.

Við megum ekki horfa lengur á hlutina þannig að það verði ekki framinn stórglæpur, hryðjuverk eða slíkt hér á Íslandi heldur þurfum við að spyrja okkur hvenær það verður og hvernig við ætlum að takast á við það.

Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7052
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1000
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf rapport » Mán 16. Nóv 2015 00:03

Það er ótti sem keyrir fólk í að eyða formúgu í að búast við "worst case scenario" og þjálfa viðbrögð við því.

Persónulega finnst mér að þetta ætti að vera með því seinasta sem lögreglan ætti að gera, fyrst ætti hún að ná að sinna sínum daglegu störfum almennilega, ná að koma á öflugu forvarnarstarfi og eftirliti innan þess ramma sem hún hefur.

Þegar hún hefur sýnt að hún getur gert það almennilega, þá held ég að almenningur geti treyst almennum lögreglumönnum til að gera eitthvað meira, vera með öflugri vopn á sér, vera með byssur og skyldi í bílunum o.þ.h.

Þá má líka benda á að það er réttindamál að tryggja öryggi lögreglumanna við stöf, þeir eru ekki "cannon fodder" sem samfélagið á að vera sátt við að sé fórnað umhugsunarlaust í þessum aðstæðum.

Við verðum að bera ábyrgð á þessum opinberu starfsmönnum ein og öðrum, tryggja öryggi og úrræði fyrir þær aðstæður sem geta skapast við þeirra daglegu störf.

Í dag dugar Víkingasveitin ekki nógu vel fyrir landið í heild en það er líka gríðarlegur skortur á gagnsæi og eftirliti með því sem lögreglan á Íslandi er að gera.

Ég vil sjá eins og rætt hefur verið á Pírataspjallinu ofl. stöðum, að það sé sjálfstætt starfandi eftirlit með störfum lögreglunar. En það eftirlit ætti að sjálfsögðu líka að vera vettvangur fyrir umræðu um öryggi lögreglumanna við störf sem og öryggi viðfangsefna þeirra.

Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf DJOli » Mán 16. Nóv 2015 03:47

Var enginn búinn að útpæla það að við erum glaðasta þjóð í heimi, en notum samt mest af geðstillandi lyfjum í heimi miðað við hausatölu?

Ég vona að ég sé ekki að tala út úr rassgatinu á mér, ég heyrði þetta einhversstaðar fyrir ekki svo löngu.

i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf Jón Ragnar » Mán 16. Nóv 2015 09:44

angelic0- skrifaði:
Ég vill endilega minna spjallverja á að Franska lögreglan hefur verið vopuð svo áratugum skiptir, en það breytti engu við þessar aðstæður!

Erfitt að verjast einhverju með vopnum þegar þú ert ekki á staðnum

CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf AntiTrust » Mán 16. Nóv 2015 09:55

hakkarin skrifaði:... en jafnvel þá yrðu flest fórnarlömbin líklega bara einhverjir rónar og dópistar sem að fokka í löggunni þannig að hverjum er ekki skítsama?

Hefuru hitt marga róna?

Þeir eru flestir betur innrættar manneskjur en margir af þessum sjálftitluðu hrokagikkum sem ég hitti daglega. Ég segi þetta vitandi fullvel að ég hljóma eins mamma mín, en þú ættir að skammast þín.

blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1752
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf blitz » Mán 16. Nóv 2015 11:22

Er ekki verið að tala um að setja vopn í alla lögreglubíla sem yrði geymt í læstri hirslu?

Ef svo er - þá er það bara hið fínasta mál. Það geta alveg komið upp tilvik þar sem lögregla þar að grípa til vopna með mjög stuttum fyrirvara (þótt það hafi ekki gerst ennþá) og þá er hægt að opna umrædda hirslu.

PS4

Skjámynd

hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf hakkarin » Mán 16. Nóv 2015 13:27

AntiTrust skrifaði:
hakkarin skrifaði:... en jafnvel þá yrðu flest fórnarlömbin líklega bara einhverjir rónar og dópistar sem að fokka í löggunni þannig að hverjum er ekki skítsama?

Hefuru hitt marga róna?

Þeir eru flestir betur innrættar manneskjur en margir af þessum sjálftitluðu hrokagikkum sem ég hitti daglega. Ég segi þetta vitandi fullvel að ég hljóma eins mamma mín, en þú ættir að skammast þín.

Ef að þú ert að tala um einhverja lúða sem að hanga út á götu horni eins og rónanir í spaugstofunni að þá er ekki líklegt að þeir lendi í neinum vandræðum hjá löggunni. En það kæmi mér ekkert að óvart ef að heimski hlutinn fari sér að voða.

En annars get ég ekki sagt að sé sammála þér að þetta sé fínt fólk Hef að vísu bara hitt 2 róna í bænum sem að ég á heima í en þeir eru ekki beint til fyrirmyndar. Annar er orðinn hálfgert legend út af sögunum um hann og hinn hitti ég á KFC einu sinni blindfulla sullandi gosi út um allt auk þess að angra fjölskyldufólk sem að þar var. Þannig að sorry ef að ég hef ekki hátt álit á þessu fólki.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf urban » Mán 16. Nóv 2015 14:20

hakkarin skrifaði:

Álit mitt á mörgum öryrkjum er ekkert frábært.
miðað við þínar skoðanir þá á mér bara að vera slétt sama hvort að lögreglan skjóti þá fólk einsog þig eða ekki.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf steinarorri » Mán 16. Nóv 2015 14:26

hakkarin skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
hakkarin skrifaði:... en jafnvel þá yrðu flest fórnarlömbin líklega bara einhverjir rónar og dópistar sem að fokka í löggunni þannig að hverjum er ekki skítsama?

Hefuru hitt marga róna?

Þeir eru flestir betur innrættar manneskjur en margir af þessum sjálftitluðu hrokagikkum sem ég hitti daglega. Ég segi þetta vitandi fullvel að ég hljóma eins mamma mín, en þú ættir að skammast þín.

Ef að þú ert að tala um einhverja lúða sem að hanga út á götu horni eins og rónanir í spaugstofunni að þá er ekki líklegt að þeir lendi í neinum vandræðum hjá löggunni. En það kæmi mér ekkert að óvart ef að heimski hlutinn fari sér að voða.

En annars get ég ekki sagt að sé sammála þér að þetta sé fínt fólk Hef að vísu bara hitt 2 róna í bænum sem að ég á heima í en þeir eru ekki beint til fyrirmyndar. Annar er orðinn hálfgert legend út af sögunum um hann og hinn hitti ég á KFC einu sinni blindfulla sullandi gosi út um allt auk þess að angra fjölskyldufólk sem að þar var. Þannig að sorry ef að ég hef ekki hátt álit á þessu fólki.

Fullir og sullandi gosi... jú jú þá er allt í lagi að lögreglan beiti á þeim vopnum. :face

Skjámynd

einarhr
Of mikill frítími
Póstar: 1977
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 252
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf einarhr » Mán 16. Nóv 2015 16:40

Hversu lengi ætlar Vaktin að leyfa Hakkaranum að vera hér. Hann kallar fólk róna og aumingja þó svo að hann viti ekkert hvað þetta fólk hefur gengið í gengum og finnst bara allt í lagi að skjóta þá. Þessi einstaklingur er greinilega ekki í lagi.

| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

bigggan
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf bigggan » Mán 16. Nóv 2015 16:49

Mér persónulega finnst að lögreglan á að hafa greiðan aðgang að vopnum td öllum ökutækin sem þeir hafa, eiga að vera með læst vopn ef á þarf.
Lögreglan á Keflavikur flugvöllurinn voru áður alltaf með vopn á sig, mer finnst að það eigi að gera það aftur.

En mér finnst ekki að það sé þörf að lögreglann séu alltaf með vopn á sér ennþá.
Síðast breytt af bigggan á Mán 16. Nóv 2015 16:52, breytt samtals 3 sinnum.

Klara
has spoken...
Póstar: 165
Skráði sig: Fim 11. Jún 2015 20:39
Reputation: 55
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf Klara » Mán 16. Nóv 2015 16:49

einarhr skrifaði:Hversu lengi ætlar Vaktin að leyfa Hakkaranum að vera hér. Hann kallar fólk róna og aumingja þó svo að hann viti ekkert hvað þetta fólk hefur gengið í gengum og finnst bara allt í lagi að skjóta þá. Þessi einstaklingur er greinilega ekki í lagi.

Tjáningarfrelsið veitir fólki réttinn til að opinbera eigin fáfræði.

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf tdog » Mán 16. Nóv 2015 18:00

Klara skrifaði:
einarhr skrifaði:Hversu lengi ætlar Vaktin að leyfa Hakkaranum að vera hér. Hann kallar fólk róna og aumingja þó svo að hann viti ekkert hvað þetta fólk hefur gengið í gengum og finnst bara allt í lagi að skjóta þá. Þessi einstaklingur er greinilega ekki í lagi.

Tjáningarfrelsið veitir fólki réttinn til að opinbera eigin fáfræði.

Verst að fáviska sé ekki glæpur og lögreglan ekki vopnuð :) Þá gæti hún lagt saman tvo og tvo og losað Vaktina við hann.

/s ef að enginn kveikti

Skjámynd

hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf hakkarin » Mán 16. Nóv 2015 18:01

urban skrifaði:
hakkarin skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
hakkarin skrifaði:... en jafnvel þá yrðu flest fórnarlömbin líklega bara einhverjir rónar og dópistar sem að fokka í löggunni þannig að hverjum er ekki skítsama?

Hefuru hitt marga róna?

Þeir eru flestir betur innrættar manneskjur en margir af þessum sjálftitluðu hrokagikkum sem ég hitti daglega. Ég segi þetta vitandi fullvel að ég hljóma eins mamma mín, en þú ættir að skammast þín.

Ef að þú ert að tala um einhverja lúða sem að hanga út á götu horni eins og rónanir í spaugstofunni að þá er ekki líklegt að þeir lendi í neinum vandræðum hjá löggunni. En það kæmi mér ekkert að óvart ef að heimski hlutinn fari sér að voða.

En annars get ég ekki sagt að sé sammála þér að þetta sé fínt fólk Hef að vísu bara hitt 2 róna í bænum sem að ég á heima í en þeir eru ekki beint til fyrirmyndar. Annar er orðinn hálfgert legend út af sögunum um hann og hinn hitti ég á KFC einu sinni blindfulla sullandi gosi út um allt auk þess að angra fjölskyldufólk sem að þar var. Þannig að sorry ef að ég hef ekki hátt álit á þessu fólki.

Álit mitt á mörgum öryrkjum er ekkert frábært.
miðað við þínar skoðanir þá á mér bara að vera slétt sama hvort að lögreglan skjóti þá fólk einsog þig eða ekki.

einarhr skrifaði:Hversu lengi ætlar Vaktin að leyfa Hakkaranum að vera hér. Hann kallar fólk róna og aumingja þó svo að hann viti ekkert hvað þetta fólk hefur gengið í gengum og finnst bara allt í lagi að skjóta þá. Þessi einstaklingur er greinilega ekki í lagi.

Ég sagði að ef að löggan færi að skjóta einhvern að þá yrðu það líklega bara einhverjir rónar og dópistar. Ég sagði ekki að löggan ætti að skjóta róna og dópista almennt af handahófi. Þið eruð að saka mig um að hafa sagt eitthvað sem að ég sagði bara einfaldlega ekki.

Jú jú, það má svosem alveg vera að það séu ekki allir rónar og dópistar glæponar eða hyski, en ætlið þið í alvörunni að halda því fram að það séu ekki fleiri svartir sauðar þarna en annarstaðar?

Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1164
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 154
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf g0tlife » Mán 16. Nóv 2015 18:14

Ef löggan fer að bera vopn á sér þá fara glæpamenn öruglega að gera það sama. Þannig að nei takk. Hafa þetta frekar í læstum hirslum inní bíl

Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf hakkarin » Mán 16. Nóv 2015 18:15

g0tlife skrifaði:Ef löggan fer að bera vopn á sér þá fara glæpamenn öruglega að gera það sama.

En hvernig veistu það? Getur hver sem er bara reddað sér góðum byssum? Og myndu flestir Íslenskir glæponar einu sinni leggja upp í það að fara í byssó við lögguna?

tomas52
Gúrú
Póstar: 564
Skráði sig: Mið 29. Ágú 2007 17:07
Reputation: 3
Staðsetning: Mosfellsbær 270
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf tomas52 » Mán 16. Nóv 2015 18:40

Lögreglan er reyndar með byssu í læstum kassa í öllum bílum þannig það er verið að tala um þeir fari að ganga með vopn á sér dags daglega :)

Og takk fyrir mig

Intel DZ68BC - Intel I7 2700K - Asus HD 7950 - G.Skill Ripjaws 16 gb 1600mhz - Intel 510 series 120 GB - 4TB Hdd - Corsair HX1050 - BenQ 22* - 42" FullHD - XSPC Rasa RS360 - HAF X Blue Edition

vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf vesley » Mán 16. Nóv 2015 20:03

tomas52 skrifaði:Lögreglan er reyndar með byssu í læstum kassa í öllum bílum þannig það er verið að tala um þeir fari að ganga með vopn á sér dags daglega :)

Miðað við það sem ég hef heyrt er það ekki rétt, hinsvegar eru örfáir bílar hér í borginni sem eru með byssur í læstum kössum sem lögregluþjónanir í bílunum vita ekki kóðann á til að opna, heldur þurfa þeir að fá kóðann sendan til sín frá stjórnstöð ef ástandið er á þann hátt að þörf sé á skotvopni.

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf AntiTrust » Þri 17. Nóv 2015 08:28

einarhr skrifaði:Hversu lengi ætlar Vaktin að leyfa Hakkaranum að vera hér. Hann kallar fólk róna og aumingja þó svo að hann viti ekkert hvað þetta fólk hefur gengið í gengum og finnst bara allt í lagi að skjóta þá. Þessi einstaklingur er greinilega ekki í lagi.

Sem er eiginlega akkúrat ástæðan fyrir því að mér finnst fínt að hafa hann hérna. Það er sjaldan sem ég opna þræði eftir hann, en þegar maður er búinn með fyrstu fimm síðurnar á reddit og helstu RSS feedin, þá er ágætis afþreyting að sjá hvað drengurinn er að tauta. Stærsta vandamálið er svo hinsvegar bara að meiða sig ekki um of þegar maður byrjar að headbanga nærliggjandi húsgögn.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vopnavæðing Íslensku Lögreglunnar

Pósturaf urban » Þri 17. Nóv 2015 10:08

hakkarin skrifaði:Ég sagði að ef að löggan færi að skjóta einhvern að þá yrðu það líklega bara einhverjir rónar og dópistar. Ég sagði ekki að löggan ætti að skjóta róna og dópista almennt af handahófi. Þið eruð að saka mig um að hafa sagt eitthvað sem að ég sagði bara einfaldlega ekki.

Jú jú, það má svosem alveg vera að það séu ekki allir rónar og dópistar glæponar eða hyski, en ætlið þið í alvörunni að halda því fram að það séu ekki fleiri svartir sauðar þarna en annarstaðar?

Ég er ekkert að saka þig um neitt sem að þú hefur ekki sagt.

ég var að segja að þar sem að mér er ekkert vel við öryrkja, þá á mér að vera alveg sama um hvort að löggan skjóti þig eða ekki.
Alveg einsog þér er alveg sama hvort að hún skjóti einhverja róna.

hakkarin skrifaði:
g0tlife skrifaði:Ef löggan fer að bera vopn á sér þá fara glæpamenn öruglega að gera það sama.

En hvernig veistu það? Getur hver sem er bara reddað sér góðum byssum? Og myndu flestir Íslenskir glæponar einu sinni leggja upp í það að fara í byssó við lögguna?

í fyrsta lagi þá erum við að tala um glæpamenn, glæpamenn fara ekki og spá í því hvort að hlutirnir séu löglgegir eða ekki, og þar að leiðandi gerir það vinnuna 10x auðveldari fyrir þau.

í öðru lagi þá eru ef að ég man rétt 30 byssur á hverja 100 manns hérna, þannig að þar er önnur leið til þess að redda sér byssu.
í þriðja lagi þá myndi ég treysta mér til þess að ná mér í á næstu 5 - 6 tímunum ca 10+ byssur án þess að það væri mikið vesen fyrir mig.

og þú hefur augljóslega enga hugmynd um hversu alvarlegur glæpaheimurinn er hér á landi, þar sem að stór hluti þeirra er vopnaður nú þegar, bara spurning hvort að byssurnar finnist.

EDIT** breytti 60 byssur í 30 þar sem að það var innsláttarvilla hjá mér

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !