Síða 1 af 1

Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Sun 04. Okt 2015 23:08
af zaiLex
Var að spá hverjir væru helstu kostir og gallar að kaupa fartölvu erlendis.

Tökum t.d. þessa http://tl.is/product/macbook-air-13-128gb-apl-z0rh

195k hér
erlendis 999 usd = 126k.

Ef maður myndi koma með þetta til Íslands og gefa þetta upp til tolls þá 1,24 * 126k = 156k = 39k munur á verði samt.

Hvernig er svo með ábyrgð á þessu? Ætla að kaupa þetta í BNA...

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Sun 04. Okt 2015 23:53
af tdog
Eitt ár í ábyrgð frá Apple Inc., Epli þjónustar hér heima.
Þú verður að sérpanta hana úti ef þú vilt íslenskt lyklaborð

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mán 05. Okt 2015 00:04
af rapport
Ég þoli fátt jafn illa og erlend lyklaborð... nema þetta sem ég er að nota x7 G800v úr kíslildal... veit ekki einusinni af hverju ég keypti það m.v. hvað ég þoli illa erlend luklaborð...

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mán 05. Okt 2015 00:04
af Oak
Er ekki bara borgað vsk af umfram 88 þús. sem er þá 0,24 x 38 þús. sem gerir 9 þús. ca. sem er þá 136 þús.??

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mán 05. Okt 2015 01:42
af zaiLex
Ég einmitt vill erlent lyklaborð frekar en íslenskt, alveg sama hvað stendur á tökkunum en bna layoutið er betra

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mán 05. Okt 2015 03:36
af Tesy
BNA layout > allt annað að mínu mati, sérstaklega ef maður er að forrita.
Myndi skoða refurbished tölvur beint frá Apple (Apple certified) ef þú ert að fara út sjálfur (Basically ný tölva án kassa ef þú ert að kaupa nýjasta modelin), sparar helling og þekki mjög marga sem hafa keypt refurbished frá Apple án vandræða.

Til dæmis:
http://www.apple.com/shop/product/FJVE2 ... el-core-i5 (2015 Macbook Air 128gb - $849)
http://www.apple.com/shop/product/FJVG2 ... el-core-i5 (2015 Macbook Air 256gb - $1019)

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mán 05. Okt 2015 12:57
af zaiLex
Hvernig er annars með að versla síma í BNA, virka þeir hérlendis?

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mán 05. Okt 2015 14:31
af zurien
Þú þarft að passa að síminn passi fyrir kerfið hérna heima.
Flestir tri & quadband símar gera það.

Tri-band - Tri-band phones usually include 900 mhz, 1800 mhz and 1900 mhz band. These phones will work around the world and in the North America. These phones will not work with service providers that only support 850 mhz in your area.

Quad band - Quad band phones cover all the bands - 850 mhz, 900 mhz, 1800 mhz, 1900 mhz. Quad band phones will work all over the world with all GSM service providers.

Einnig að síminn sé unlocked.

Sjá nánar:
http://buyersguide.bargainoffers.com/gs ... uide.shtml

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mið 07. Okt 2015 19:04
af zaiLex
Hvernig er svo best að leysa power plug vandamálið, þ.e. frá us í eu með macbooks?

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mið 07. Okt 2015 22:34
af sverrirgu

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Lau 17. Okt 2015 21:53
af zaiLex
Er ég ekki ennþá að fá þetta ódýrara en á íslandi þó ég kaupi þetta á netinu og láti senda?

Sé að það er ekki sent internationally frá Apple, hugsa að ég verði að nota þjónustu eins og shopusa.is, hvaða þjónusta er best þessa dagana til að kaupa frá usa? Sá að það var komin einhver ný síða eins og shopusa bara ódýrari en finn hana ekki núna...

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Sun 18. Okt 2015 00:23
af I-JohnMatrix-I
zaiLex skrifaði:Er ég ekki ennþá að fá þetta ódýrara en á íslandi þó ég kaupi þetta á netinu og láti senda?

Sé að það er ekki sent internationally frá Apple, hugsa að ég verði að nota þjónustu eins og shopusa.is, hvaða þjónusta er best þessa dagana til að kaupa frá usa? Sá að það var komin einhver ný síða eins og shopusa bara ódýrari en finn hana ekki núna...


Hef góða reynslu af pantadu.is, þeir voru margfallt ódýrari en shopusa þegar ég lét þá flytja spjaldtölvu inn fyrir mig.

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Sun 25. Okt 2015 19:22
af zaiLex
En er ekki til tölva með amerísku layouti og evrópsku power supply? eða þarf maður alltaf að vera með converter?

einnig: Ég get keypt þetta í gegnum tölvulistann, þá er þetta um 200k, og þá fæ 2 ára ábyrgð, er þetta basically spurning hvort að ég vilji kaupa aðeins ódýrara sjálfur í gegnum pantadu.is og fá þá 1 ára alþjóðlega ábyrgð eða kaupa þetta aðeins dýrara hjá Tölvulistanum og fá þá 2 ára ábyrgð hjá þeim?

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Sun 25. Okt 2015 19:43
af elvarb7
Eru ekki öll power supply orðin 110-230V? Ef svo þá er bara að breyta klónni er það ekki. Veit ekki hvernig það er á mac fartölvum samt

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mán 26. Okt 2015 00:23
af sverrirgu
zaiLex skrifaði:En er ekki til tölva með amerísku layouti og evrópsku power supply? eða þarf maður alltaf að vera með converter?

elvarb7 skrifaði:Eru ekki öll power supply orðin 110-230V? Ef svo þá er bara að breyta klónni er það ekki. Veit ekki hvernig það er á mac fartölvum samt


Sjá fyrra svar

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Þri 27. Okt 2015 22:48
af zaiLex
Einhver hérna reynslu af bestbuy.com ? Sé að það er langbesta verðið þar.

Re: Kaupa fartölvu erlendis

Sent: Mið 28. Okt 2015 08:28
af berteh
zaiLex skrifaði:En er ekki til tölva með amerísku layouti og evrópsku power supply? eða þarf maður alltaf að vera með converter?

einnig: Ég get keypt þetta í gegnum tölvulistann, þá er þetta um 200k, og þá fæ 2 ára ábyrgð, er þetta basically spurning hvort að ég vilji kaupa aðeins ódýrara sjálfur í gegnum pantadu.is og fá þá 1 ára alþjóðlega ábyrgð eða kaupa þetta aðeins dýrara hjá Tölvulistanum og fá þá 2 ára ábyrgð hjá þeim?


Ég myndi frekar taka svona, þessar snúrur eru original í EU en í BNA er bara tengi beint í powerbrickinn (leiðinlegt að koma í fjöltengi og svona)
http://www.ebay.com/itm/1M-Extension-Wa ... SwcnpTlnZX
Pantaði svona fyrir systur mína í sumar mun þægilegra en að hafa beint eu plug á brickinn eða adapter :)