"Sætindi eru að hækka í verði eftir að hafa lækkað í kringum áramótin vegna afnáms sykurskattsins. Er hækkunin á bilinu 1,1-2,8% hjá Bónus, Krónunni, Iceland, Hagkaupum, Samkaupum-Úrvali, 10/11 og Kjarval. Hækkunin er minni hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, Samkaupum-Strax og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga eða um 0,2-0,6%. Í Nettó er lækkun um 0,9% og hjá Víði um 1,8%."
Eins og mig grunnaði að þá virðast kaupmenn ætla að reyna sparnaðinum svo að neytandin fái hann ekki. Og á sama tíma vill Bjarni Ben afnema alla tolla til að lækka verð

Það er eins og stjórnmálamenn eigi heima á annari plánetu þar sem að þeir upplifa hlutina allt öðruvísi heldur en allir aðrir. Hlusta aldrei á reynslurök. Hvernig væri frekar að brjóta upp þetta matardor sem að hefur orðið til? Er ekki bara Hagi með 60% markaðshlutdeild?