Síða 1 af 1

Könnun: Hversu mörgum flóttamönnum á Ísland að taka á móti? v2

Sent: Þri 08. Sep 2015 16:58
af nidur
Hérna er könnun með öllum valmöguleikum.

Alger óþarfi að spjalla eitthvað nánar um þetta hérna.

Re: Könnun: Hversu mörgum flóttamönnum á Ísland að taka á móti? v2

Sent: Þri 08. Sep 2015 19:11
af gutti
nog hafa 1 könnunn

Re: Könnun: Hversu mörgum flóttamönnum á Ísland að taka á móti? v2

Sent: Mið 09. Sep 2015 17:46
af Halli13
gutti skrifaði:nog hafa 1 könnunn


Þar sem hin könnunin var mjög langt frá skoðunum fólks almennt, og að mínu mati raunveruleikanum, þá finnst mér alveg þörf á þessari.

Til viðmiðunar ætla Bretar að taka við 20.000 flóttamönnum og miðað við stærð þjóðar samanber það að við Íslendingar tökum við 100 flótamönnum, meðan að lágmark í hinni skoðakönnuninni er fimmfalt það og allar aðrar tölur í henni úr takt við raunveruleikann.

Re: Könnun: Hversu mörgum flóttamönnum á Ísland að taka á móti? v2

Sent: Fim 10. Sep 2015 07:32
af svanur08
Til hvers að hafa þessar kannanir, við fáum hvort sem er engu ráðið um það hvað tökum marga.

Re: Könnun: Hversu mörgum flóttamönnum á Ísland að taka á móti? v2

Sent: Mán 14. Sep 2015 12:33
af KristinnK
svanur08 skrifaði:Til hvers að hafa þessar kannanir, við fáum hvort sem er engu ráðið um það hvað tökum marga.


Þetta er skoðanakönnun, ekki kosning. Ekki er bara áhugavert að athuga hvar almannaskoðun liggur, heldur er það líka gott fyrir fólk að geta borið fram skoðanir sínar. Oft finnst manni að sérstaklega stjórnmálamenn, og margir aðrir, hlusta ekki á skoðanir fólks, jafnvel þegar það eru meirihlutaskoðanir. Oft er minnihlutinn háværastur (samanber hópana á Fésbókinni um innflytjendur og fleira).