Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Mán 31. Ágú 2015 18:22

Sælt veri fólkið.

Ég er núna mögulega að fara inná meðferðarheimili fyrir fólk með geðrofssjúkdóma og var bara svona að pæla hvort einhver ykkar hefði kannski einhverja reynslu af Laugarásnum.

Langar bara svona að vita hvernig þetta er, fúnkerar og virkar og svona.

Endilega deilið ykkar sögum eða sögu einhvers sem þið þekkið. :happy


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Mán 31. Ágú 2015 18:23

Hér er linkur á starfsemina http://www.landspitali.is/?PageID=14189


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf intenz » Mán 31. Ágú 2015 18:43

Góður, ánægður með þig.


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Þri 01. Sep 2015 23:44

Enginn sem hefur farið þangað?


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7055
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1002
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf rapport » Mið 02. Sep 2015 10:32

Ég hef bara farið þarna í vinnutengd erindi, Ubuntu tölvan undir stiganum er mín sök.

Þetta er bara heimilislegt og kósý og á meðan ég var að dúlla mér í þessu þá komu strákur og stelpa líklega aðeins yngri en ég (ég er ´79) voða vinaleg og röbbuðu helling við mig um málefni líðandi stundar og svo kom það þeim á óvart að ég væri ekki íbúi, bara starfsmaður.

Mín upplifun af þessum stað var eiginlega nákvæmlega sú sama og að koma inn á guesthouse í holtunum eða á Njálsgötunni þar sem margir iðnskólanemar af landsbyggðinni búa saman á meðan skólanum stendur.

S.s. allir með sín herbergi en sameiginlegt eldhús og stofa.

Innan spítalans þá finnst mér a.m.k. að það fari virkilega gott orð af þeim.



Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Fim 03. Sep 2015 02:25

rapport skrifaði:Ég hef bara farið þarna í vinnutengd erindi, Ubuntu tölvan undir stiganum er mín sök.

Þetta er bara heimilislegt og kósý og á meðan ég var að dúlla mér í þessu þá komu strákur og stelpa líklega aðeins yngri en ég (ég er ´79) voða vinaleg og röbbuðu helling við mig um málefni líðandi stundar og svo kom það þeim á óvart að ég væri ekki íbúi, bara starfsmaður.

Mín upplifun af þessum stað var eiginlega nákvæmlega sú sama og að koma inn á guesthouse í holtunum eða á Njálsgötunni þar sem margir iðnskólanemar af landsbyggðinni búa saman á meðan skólanum stendur.

S.s. allir með sín herbergi en sameiginlegt eldhús og stofa.

Innan spítalans þá finnst mér a.m.k. að það fari virkilega gott orð af þeim.

Já, það litla sem ég hef heyrt um þennan stað er gott.

Ég á samt örugglega ekki eftir að koma til með að búa í húsinu, fyrir mér verður þetta bara dagdeild, ég mæti þarna á daginn(Kvöldin til að byrja með) og tek þátt í einhverri dagskrá.

Endilega fleiri að koma með sínar sögur :)


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Fös 18. Sep 2015 23:28

Smá update á stöðu mína;

Fór í gær í gegnum innritunarferli Laugarásins og mæti í minn fyrsta tíma á miðvikudaginn kemur. :)


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7055
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1002
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf rapport » Fös 18. Sep 2015 23:39

Ég heyrði af því í dag að þetta úrræði hefur náð markverðum árangri og er að fá meira pláss innan LSH og mun því að einhverju leiti vera í Víðihlíð líka, vonandi fá alla þá byggingu út af fyrir sig.



Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Lau 19. Sep 2015 16:31

rapport skrifaði:Ég heyrði af því í dag að þetta úrræði hefur náð markverðum árangri og er að fá meira pláss innan LSH og mun því að einhverju leiti vera í Víðihlíð líka, vonandi fá alla þá byggingu út af fyrir sig.

Já, Þau töluðu um eitthvað víði eitthvað ég man það ekki alveg en þarna verða listasmiðjur og svona sniðugt :)


Langar bara svona að renna inn á milli tölvu dótsins einni heimildarmynd um góðann mann, hann Hallgrím Björgvinsson, frænda minn sem var þá að berjast við það sama og ég er að berjast við í dag. Ég vissi bara ekki að þessi maður væri til, hvað þá að hann væri frændi minn fyrr en í gær þegar mamma sagði mér frá honum og benti mér á myndina. Þessi klukkutíma mynd er skylduáhorf fyrir alla sem vilja fræða sig um geðrofssjúkdóminn geðklofa(e. Schizophrenia).

Á ég nú tvo frændur sem hafa verið með sama sjúkdóm og ég, sitthvoru meginn við mömmu og pabba, Þannig að það er kannski ekkert skrítið að ég sé að fá þennan sjúkdóm.

https://vimeo.com/49401028


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Fös 15. Jan 2016 01:47

Nú langar mig að update'a þetta mál smá.

Upprunalega greindi ég sjálfan mig með geðklofa eftir að hafa leygið yfir internetinu í meira en ár. Og þegar ég tala um þetta þarna að ofan þá var ég einfaldlega búinn að greina mig en ég fékk að komast að því þegar ég spurði geðlækninn á Laugarásnum hver greiningin mín væri, tilbúinn að setja aleiguna á geðklofa, og sagði hann að miðað við þau gögn sem hann fékk frá geðlækninum mínum, honum Tómasi Zoega, að ég væri með geðklofa.
Var það mikill léttir og bókstaflega ekkert sjokk að komast að þessu. Ég náttúrulega búinn að venjast hugmyndinni í nokkra mánuði áður og var tilfinningin að tilheyra loksins einhverjum sjúkdómi í staðin fyrir að þetta væri alltaf skilgreint einungis sem geðrof, sem er náttúrulega bara einkenni margra geðrofssjúkdóma, var mikill léttir og er ég mjög ánægður með þessa greiningu og bæði sætti ég mig 100% við hana og er hjartanlega sammála læknunum. Finnst bara asnalegt hvað þetta tók langan tíma og að ég hafi þurft að spyrja að því hver greiningin var í staðin fyrir að þeir skyldu bara segja mér það, up front.
Þetta hinsvegar, að greina sjálfan sig, er eitthvað sem maður á alls ekki að gera, ég einfaldlega varð óþolinmóður og tók málin í eigin hendur en er langt frá því, eiginlega lengst frá því af öllum, að vera lærður í þessum málum. Hinsvegar, fyrst ég hafði nú actually rétt fyrir mér, for once, þá held ég að það hafi sloppið í þetta skiptið. Þessi sjálfs-greining þar að segja.

Ég er allavegana búinn að vera að sækja Laugarásinn núna í næstum fjóra mánuði.
Er þarna svona fjóra daga í viku, þarf að keyra úr 801, sem eru ca. 100km hvor leið. Þetta er dýrt sport en hver sagði að batinn væri frír og átakalaus?
Ég er maður sem aldrei hefur liðið vel og eftir einelti frá ungaaldri frá einstaklingum sem venjulegt fólk hefði átt að geta treyst, leitaði ég mikið í mat, nammi og gos sem svona comfort. Og hef gert alla tíð, þannig að í dag er ég, því miður, í mikilli yfirvigt og hef verið það siðan á þessu einelti stóð þegar ég var aðeins 4-5 ára.
Allavegana var ég vigtaður stuttu eftir komuna á Laugarásinn, í læknisskoðun bara, og var ég þá, fyrir 3-4 mánuðum, 190kg. Já, þú last rétt. Ég var næstum því 200kg. Vil ég samt meina að megnið af þessari þyngd, 'megnið', megi reka til geðlyfsins Risperdal sem ég var settur á þegar ég var eitthvað 18-19 ára. Allavegana 20kg, þó það séu tæknilega séð 30kg sem gæti hafa komið af þessu lyfi þá vil ég hafa smá skekkjumörk þar sem ég var 160kg á mínu 16da ári.

Að sjá þessi 190kg var auðvitað mikið sjokk og geri ég mér aldrei grein fyrir því hvað ég er nú feitur. Kjörþyngd mín er örugglega í kringum 100-110kg þar sem ég er næstum tveir metrar á hæð, þannig að þetta er svona 80kg yfir kjörþyngd. Í huga mínum og öllum draumum er ég rétt svo aðeins þykkari en meðal maður og held ég að sé þessvegna sem ég gerði mér aldrei grein fyrir þessu.
Þetta var hálfgert wake-up call og fór ég að hugsa svona um heilsuna. En það náði ekki lengra en það, að hugsa, enda er þunglyndið og neikvæðu einkenni geðklofans oft á tímum að ganga frá mér.
Ég hef alltaf borðað mikið snakk, nammi og drukkið sykraða gosdrykki en fékk ég stuttu eftir þetta sjokk einfaldlega ógéð af namminu og snakkinu en hélt gosdrykkjuni samt sem áður áfram.
Svo er mér svissað af Risperdal og settur á Abilify sem snar minnkar allt hungur, og var ég loksins farinn að éta eins og venjulegur maður, ekki eins og svín á svínabúi. Hinsvegar, getur verið, það er ekki útilokað, að Abilify hafi orsakað svefn örðuleika og voru því prufuð nokkur svæfandi geðlyf í sameiningu við það. Þau lyf kölluðust, í þessari röð, Seroquel, Olazapine og Nozinan. Seroquel hjálpaði mér að sofna í fyrsta skiptið sem ég tók það, svo var eins og líkami minn hafi vanist því nánast strax og var það bara eins og að borða pappír, sama hversu hár skammturinn fór. Þá reyndum við Olazapine, það var nokkurnvegin sama sagan með það, nema hvað að það var strax eins og að gleypa bara loft en Nozinan hinsvegar, þrátt fyrir að hafa ekki virkað á svefninn, fékk mig til þess að borða töluvert meira. Var ég vakandi á nóttuni og þökk sé Nozinan stóð ég á beit í ísskápnum.
Þetta gengur nú ekki lengur, hugsaði ég eftir að hafa gefið því séns í smá tíma og sagði ég geðlækninum á Laugarásnum frá þessum hræðilegu aukaverkunum. Hann skrifaði uppá nýtt lyf, Circadin, sem þið þekkið kannski sem hið meinlausa Melatonin. Melatonin er eitt af því saklausasta sem þú getur fengið í skiptum fyrir lyfseðil, enda er það efni sem framleitt er í heilanum og, skilst mér, að tilgangurinn með þeirri framleiðslu sé svefn. Það eru meiri líkur á því að þú drepist af Paratabs heldur en Melatonin. Hann leggur til að ég taki þessi lyf í sameiningu þar sem, jújú, ég varð alveg smá þreyttur af Nozinan, en var það bara ekki nóg.
Byrja ég að taka Melatonin og virðist það vinna vinnuna sína, nema hvað að ég vakna nokkrum sinnum á nóttuni og fer þá, eins og áður, beint í ísskápinn a la Nozinan.
Ákveð ég þá einfaldlega að hætta að taka þessar helvítis ísskápapillur og sef ég nokkuð værum svefni eftir það. Það magnaða við þessa aukaverkun er að það eru mjöööög litlar líkur skyldist mér á honum að finna fyrir þyngdaraukningu á Nozinan.

Eftir að hafa náð svefninum á rétt ról ákveður geðlæknirinn að taka mig af Fluoxetine(Prozac), sem gerði það eitt af verkum að valda mér getuleysi og vil ég meina að meigi reka það til þess að ég hafi ekki fengið holdris í þrjú ár, og setja mig á Vortioxetin(Brintellix). Þessar lyfjabreytingar valda því hinsvegar að svefninn fari í fokk, þrátt fyrir neyslu mína á Melatonin töflunum og byrja ég því aftur að sofa illa, nú bara án þess að éta og éta.

Ef þú spyrð mig þá var þetta með holdrisið bæði blessing og curse því ég átti við massífa internet-klámfíkn þegar ég var uppá mitt besta/versta og prufaði ég einn daginn, í einangrun frá umheiminum, sorpfæði, lítilli hreyfingu og þunglyndi, að tosa í Tímon 17 sinnum á einum degi. Það eina sem ég fékk útúr því, fyrir utan 14 'fullnægingar' var blár og þrútinn limur í meira en viku á eftir. Mæli ég ekki með því fyrir mitt litla líf fyrir nokkurn mann að fara í mikið meira en 4 skipti á dag enda varð mér svo illt í honum að ég pældi mikið í því að enda líf mitt enda gat ég hvorki labbað né setið án þess að finna fyrir miklum sársauka um allt fyrir neðan brjóst eftir þetta. Þetta með að enda lífið var svo sem ekki bara eftir að hafa stundað svo mikla sjálfsfróun að ég gat varla pissað, enda var ég á mjög slæmum stað í lífinu á þessum tíma. Ég vil bara þakka guði fyrir að hafa ekki snúið mér að áfengi og vímuefnaneyslu á þessum tíma sem var tæpt um tíma enda er í rauninni ekkert mál að redda sér efnum ef maður þekkir rétta fólkið, sem ég gerði á þessum tíma.

Þetta sem þú varst að lesa er btw ekki djók heldur fúlasta alvara, því miður. Nóg um þennan kafla lífs míns, ætlaði ég ekki að rifja hann upp.

Allavegana, núna, tvem vikum eða svo eftir síðustu lyfjabreytingu, er ég byrjaður að sofa aðeins betur en finn ég annars engann mun á Prozac og Brintellix. Ég sef stutt en er samt ekki að vakna jafn oft og í jafn langann tíma og ég gerði hér áður.

Eins og ég sagði var ég vigtaður á miðvikudaginn síðastliðinn og var ég viss um að vera yfir 200kg. Ég stíg á vigtina, heyri brakið og brestina undan þessarri smá ál dós, bíð í nokkrar sekúndur og lít svo niður.

Hvað haldiði að hafi komið upp? Ekki 200kg allavegana heldur kom þetta mér svo mikið á óvart, að þarna, á helvítis vigtini sem ég er búinn að vera svo hræddur við síðustu mánuði kom upp 180kg. 180kg! Ég hef s.s. létt mig um heil 10kg á síðustu 3-4 mánuðum. Án þess að hreyfa mig og rétt svo sleppt snakki og nammi. Þrátt fyrir þetta lyfjaflakk og að hafa staðið á beit í ískápnum á næturna, léttist ég samt um heil, fokking, 10kg.
Eins og einn sem vinnur þarna sagði þá er af miklu að taka en þetta er stór sigur í minni bók. Svo lengi sem ég hef munað eftir mér, hef ég aldrei actually tapað þyngd, bara grætt hana. Það má segja að ég hafi skipt nammi og snakki út fyrir kaffi enda er sá djöfull drukkinn eins og vatn þarna á Laugarásnum.

Það magnaða við þetta er er að ég hef ekki hreyft mig neitt. Ekki nema á milli bíls og húsa. Reyndar, eftir að ég hætti á Nozinan, hef ég verið að éta töööluvert minna, tööööluvert minna. Svo mikið minna að það lyggur við að ég hafi verið að éta eina máltíð max á dag. Og ekki var sú máltíð holl enda þorði ég ekki að fá mér að borða á Laugarásnum vegna kvíða um að fólkið þarna myndi dæma mig fyrir matarvenjur mínar. Þessi eina máltíð var oft hamborgari eða vefja með frönskum á Grill66 eða jafnvel stór bátur á Hlöllabátum, með extra beikoni.

Eins og ég kom núna bara, þá þorði ég ekki, vegna félagskvíða, að fá mér að borða eða socialize'a yfir höfuð þarna á Laugarásnum en ákvað ég fyrir svona tvem vikum að taka mig til í andlitinu og ríða á vaðið. Er ég fyrir vikið búinn að kynnast fullt af mismunandi fólki, deila minni sögu, ekki þessu með klám fíknina kannski, það er betur sagt svona undir nafnleynd, heldur minni geðrofs og veikinda sögu.

Ég kýs að horfa á það þannig, á meðan margir skammast sín fyrir veikindi sín, að ef það er einhver sem hefur áhuga á mér og minni sögu og er til í að hlusta, þá er um að gera að nýta sér það. Er ég í dag eins og opin bók með veikindi mín og svara öllum þeim spurningum sem fólk kann að hafa á hreinskilinn hátt.

Ég segi nú ekki að ég sé endilega stolltur af mínum veikindum en ég tek þeim með opnum örmum og líður mér yfir höfuð töluvert betur fyrir vikið.

Ímyndaðu þér að ef þú værir með sjúkdóm sem aðeins 1% af heimsbyggðinni er með, væri það þá ekki draumurinn þinn að komast einhvert þar sem þú getur talað við fólk um þann sjúkdóm? Við fólk sem hefur væntanlega skilning á því sem þú hefur gengið í gegnum, fólk sem bæði hefur upplifað það og er lært í því að takast á við svona lagað.

Ég er búinn að vera að grafa soldið í barnæsku mína, þar að segja man ég eftir geðrofseinkennum eins langt aftur og ég mögulega man. Að fara í geðrof er mjög víðtækt hugtak í augum þeirra sem ég hef talað við. Ég tengi það alltaf við það að ég missi tengslin við raunveruleikann, fæ ofsóknarbrjálæðisranghugmyndir og byrja að upplifa ofskynjanir. Hinsvegar man ég eftir þessu flestu frá því að ég var barn og vill einn sálfræðingurinn sem ég ræddi við bæði á miðvikudag og fimmtudag meina að þó ég hafi ekki endilega misst tengslin við raunveruleikann í æsku, ekki nema undir mjög sérstökum kringumstæðum, hafi ég samt sem áður upplifað geðrof þegar ég byrjaði að fá ofsóknarbrjálæði, ranghumgyndir og ofskynjanir.
Ég man t.d. eftir því sem mjög ungur heima í sveitini, logandi hræddur um að foreldrar mínir hafi komið upp örsmáum myndavélum í húsinu á meðan þau voru t.d. útí fjárhúsi. Einnig man ég eftir þeirri ranghugmynd, þeirri álíka algengri ranghugmynd, að þau gætu lesið hugasnir mínar, ekki það að ég hafi hugsað eða hugsi í dag um einhver hernaðar leyndarmál, það er bara eitthvað við það að finnast einhver vera að potast í hausnum á manni.
Hinsvegar missti ég ekki tengslin við raunveruleikann eins og í dag, þá nema innan um mikið af fólki t.d. í Kringluni. Þetta má víst rekja til félagskvíðans sem ég hef barist við síðan ég var smærri en ég geri mér grein fyrir.

Tæknilega séð má rekja pretty much öll þessi geðrofseinkenni til kvíðans og félagskvíðans eða svo vilja menn meina.

Allavegana, ég er búinn að kynnast fullt af skemmtilegu fólki, búinn að prufa hin og þessi lyf gegn lyfseðli og loksins kominn með formlega greiningu á mig og mín vandamál.
Er ég nánast einkenna frír eftir að ég fór á Abilify og laus við ofátið sem Nozinan olli.
Eins og ég sagði er ég þarna svona 3-4 sinnum í viku og líkar mér þetta æ meir með hverjum deginum sem líður. Hjálpar það náttúrulega hvað allir eru nice og hvað konurnar sem vinna þarna eru flestar hverjar mjög fallegar(Það er svo sem ekki gott fyrir kvíðann, fallegar konur gera kvíðann verri but what can you do). Ég veit ekki með karlana, ætli einn væri ekki sætur ef hann myndi raka sig, annars hef ég voðalega lítið vit á útliti karlmanna. Hali don't swing that way.

Ef það eru einhverjar spurningar um mig, veikindi mín, Laugarásinn eða eitthvað annað, endilega skjótið.

Ég veit að þetta er soldið langt og eiga flestir hverjir ekki eftir að lesa þetta útaf því en hey, það hefur mikið gerst á þessum 3-4 mánuðum :)

TL;DR: Mér líður frábærlega, ný lyf, þyngdar tap og nýjir vinir.


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...


krat
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 397
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 21:14
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf krat » Fös 15. Jan 2016 01:58

Loksins eitthvað áhugavert að lesa. Thumps upp my man!

Gangi þér svo sannarlega vel!!. :happy



Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf DJOli » Fös 15. Jan 2016 02:17

Vel gert! Glæsilegt að þú sért að bæta þig, og vonandi, að batna :)


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

stefhauk
spjallið.is
Póstar: 474
Skráði sig: Mið 20. Júl 2011 21:11
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf stefhauk » Fös 15. Jan 2016 05:29

Góð grein og frábært að hlutirnir eru farnir að rúlla hjá þér. :happy



Skjámynd

svensven
spjallið.is
Póstar: 453
Skráði sig: Þri 16. Mar 2010 16:10
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf svensven » Fös 15. Jan 2016 09:20

Vel gert, gangi þér vel í framhaldinu!

Virkilega áhugaverð lesning.



Skjámynd

zetor
spjallið.is
Póstar: 458
Skráði sig: Sun 17. Júl 2011 23:12
Reputation: 77
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf zetor » Fös 15. Jan 2016 09:39

Gaman að lesa þetta og gott að heyra að þér gangi betur. Það er partur að batanum að geta sagt frá og skrifað um líðan sína. Sérstaklega það að geta séð hlutina frá húmorísku sjónarhorni eins og þú gerir marg oft í textanum. Vertu áfram besti vinur þinn.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf hagur » Fös 15. Jan 2016 10:12

Óska þér góðs bata.



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf urban » Fös 15. Jan 2016 11:03

Fokkings vel gert
Þyngdartapið kemur á sjálfu sér þegar að þér fer að líða betur, þekki það bara frá mínum eigin málum.

En virkilega vel gert að segja frá þessu öllu saman og vona ynnilega að þú haldir því áfram, leyfir okkur að halda áfram að fylgjast með þér :)

Eigu bara góðan bata, leiðin er löng en þú ert byrjaður að hjálpa sjálfum þér, það er fyrir öllu.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Kristján
Of mikill frítími
Póstar: 1740
Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
Reputation: 39
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf Kristján » Fös 15. Jan 2016 11:10

Frábært árangur hjá þér!!
Svo gott að lesa svona batasögur og hvað þá frá félaga vaktara :D

Vona innilega að þér muni ganga enn betur og fáir þá hjálp sem þú þarft.

Gangi þér bara allt í haginn :D



Skjámynd

Nitruz
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 13. Júl 2011 19:14
Reputation: 32
Staðsetning: milli steins og sleggju
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf Nitruz » Fös 15. Jan 2016 15:28

Það þarf alvöru kjark til að segja frá þessu! Gaman að heyra að þú ert að ná bata. Gangi þér vel í framhaldinu og aldrei gefast upp.



Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Sun 17. Jan 2016 23:07

Ég þakka innilega allar hlýju kveðjurnar sem og móttökurnar.

Ekki var ég að búast við því að fá þessar viðtökur, allavegana ekki að svona margir myndu lesa þessa langloku. Alls ekki var ég að búast við því að fá svona mörg stig fyrir innleggið mitt.

Mér hefur aldrei liðið vel í gegnum tíðina, kannski þegar ég var 1-3 ára, man t.d. eftir því þegar það vorum bara við mamma heima á daginn, kenndi hún mér á minn fyrsta leik(http://i.imgur.com/cjoPrqB.png), það eru eiginlega mínar fyrstu og skástu minningar, annars aldrei. Var ég meira að segja eitt af stærstu tröllunum á einhverri síðu hérna fyrir hátt í tíu árum. Ástæðan fyrir því var t.d. að ég var lagður í einelti og skilinn útundan í skólanum, þannig að ég tók tilfinningarnar sem mynduðust þar og í staðin fyrir að segja einhverjum frá því þá breytti ég sorgini í hatur og nýddist soldið vel á þeim sem minna máttu meiga sín. Ég var orðinn að bullyunum sem ég var að forðast með því að halda bara til á internetinu.
Það er svo magnað með internetið að maður á það til að gleyma að það er raunverulegt fólk á bakvið notandanöfnin, sem ég gerði auðvitað og gat ég sagt allann andskotann til þess að líða betur með sjálfan mig. Hugsaði ég aldrei hvað það myndi gera öðrum 13 ára krökkum sem vildu bara leita sér hjálpar á spjallborði einnar Torrent síðunnar en fengu ekkert nema skít til baka.
Var ég á þessum tíma mikið hataður á internetinu og kom auðvitað til að því að ég var bannaður á flestum þessum síðum. IP bann. Notaðist ég þá við proxy síður til þess að komast inná þær aftur. Þetta voru síður á borð við xbox360.is, vaktin.is og svo torrent síðurnar. Maður var svo sem ekki eina tröllið á þeim, man ég eftir ákveðnum nöfnum sem leynast hér líka og á ég margar slæmar minningar að rekja til þeirra einstaklinga.
Þetta var orðin fíkn. Ég var internet-tröllunar fíkill.
Hvað varðar ykkur hina sem ég man eftir, og sjálfan mig auðvitað, þá virðist þetta vera bara tímabil í lífi hvers og eins að ganga í gegnum þetta. Að vera internet tröll. Maður var náttúrulega bara krakki. Heimskur krakki, sem ekkert vildi viðurkenna að væri að.
Foreldrar mínir og kennarar sáu það langar leiðir hvað mér leið illa. Sáu það bara á mér. Þannig að var ég sendur til óteljandi sálfræðinga og sérfræðinga sem aldrei fengu orð útúr mér, það var svo mikil skömm að fara til sérfræðings og vildi ég ekki viðurkenna neitt.
Í eitt skiptið, man ég ekki hvað gekk á, en ég sturlast inni hjá einhverjum lækninum og er langt kominn með að leggja skrifstofuna hennar i rúst, 14 ára gamall, 190+cm á hæð og 160kg. Ég vorkenni greyjið konuni að hafa þurft að upplifa þetta enda var hún orðin logandi hrædd. Vona ég bara að þetta hafi verið einangrað tilfelli og séu börn ekki almennt svona er kemur að fólki sem leggur allt á sig til þess að hjálpa þeim að líða betur.
Ég útskrifast svo bara úr grunnskólanum, hætti þessari internet tröllun og fer í framhaldsskóla. Það bíður mín enn meiri vanlíðan þar sem ég þekki svona fjóra einstaklinga sem flestir eru komnir með nýja vini og hafa ekki tíma í einhvern feitann og skap stórann lítinn krakka.
Fyrstu önnina mína kynnist ég einhverjum eldri strákum, ekki það að aldur skipti jafn miklu máli í farmhaldsskóla og í grunnskóla, sem kenna mér m.a. að taka í nef, vör og reykja sígarettur. Verð ég hooked á neftóbakinu í fyrstu en þegar ég finn fyrir því að ég get bara ekki tekið það lengur því ég stíflaðist alltaf svo rosalega þá er mér kennt á munntóbakið. Lummast ég hægri-vinstri og er alltaf inná teppinu hjá skólastjóranum útaf því, 15 ára gamall. Manni var svo stundum boðið út í sígarettu sem maður þáði auðvitað því maður varð að vera kúl, rétt eins og með hitt tóbakið voru það bara hommar og kellingar sem stunduðu það ekki. Eða svo var manni sagt. Var maður svo fenginn til þess að selja President neftóbak þarna í lok fyrstu annarinnar og var það það fyrsta í lífi mínu sem mér fannst actually gaman. Ég segi nú ekki að ég hafi verið eiturlyfjasali en kannski svona næsti bær við, 15-16 ára að aldri. Fannst mér það rosalegt fjör og gerði ég það ekki uppá gróðann heldur einungis útaf gamaninu og tengingunum sem maður fékk á söluni. Til þess að allir versluðu við mig hafði ég þetta sem ódýrast, 1000kr dollan og fékk ég bókstaflega ekkert í vasann.
Á annari önninni minni í framhaldsskóla kynntist ég betur fólkinu sem ég var með í tímum á fyrstu önninni enda lenti ég með því fólki aftur í tímum. Eignast ég alvöru vini á meðan hinum gömlu fækkar jafnt og þétt. Lífsleikni, sem manni var alltaf sagt að væri pain in the ass þar sem hann var þarna í FSu 6 eininga áfangi, var bara topp áfangi þrátt fyrir að hafa fallið í honum.
Kynntist ég skemmtilegu fólki, allskonar fólki sem fylgdi mér fram á næstu annir.
Næ ég hinsvegar aðeins 6 einingum af tuttugu og eitthvað á þessari önn og var ég skammaður mikið fyrir það. Fyrir mér var þetta ekki skóli heldur dagvistun, svona eins og Boltaland í Ikea, ef það er enþá til.
Á þeirri þriðju hinsvegar, færi ég mig af misfit-svæðinu í þriðjuhæðinni og á aðra hæð þar sem ég þekkti svona felsta. Var mér vel tekið þar og gátum við spilað Forseta og sniffað President(Yeah) í mörg hunduðir klukkutíma. Kynnist ég enn fleira fólki og er nálægt því að líða vel. Þangað til skólinn byrjar fyrir alvöru.
Á mínum fyrstu önnum var ég bara að læra eitthvað svona, á annarri önninni prufaði ég svo valáfanga í málmsmíði 173 og líkaði mér svo vel að ég ákvað að reyna að læra bara málmsmiðinn á þeirri þriðju.
Þegar allir voru búnir að týnast inní stofu fyrir rafmagnsfræði eða einhvern andskotann komst ég að því að það er mikill munur á þeim sem eru á Náttúrufræðibraut og á Grunndeild Málmiðnaðar/Bíliðnaðar(Sömu tímarnir, annað nafn).
Þetta crowd sem ég var nú með í tímum var mun aggressívara en venjulega fólkið sem var inní Odda. Það lögðu einhvernveginn allir alla í einelti og var þetta bara leikur fyrir þeim, ég hinsvegar, þorði ekki að taka þátt, svara eineltinu með einelti. Ég hef alltaf verið full lítill í mér til þess að vera með einhver óþarfa leiðindi þannig að ég einfaldlega tók mikið einelti á mig en skilaði engu til baka. Varð bara reiður, rústaði klósettum, speglum og svona pappírs dispenserum.
Þarna tóku þessir drengir sakleysi mitt og skitu á það sem olli því að mér leið enn verr en mér leið áður. Sáu kennarar þetta einelti sem ég varð fyrir og gerðu hvorki neitt né sögðu. Ég hugsaði oft á dag að gera þessum bullyum greiða og enda líf mitt. Hefði það s.s. ekki verið neitt mál enda mikið af hættulegum hlutum inní málmiðnaðar stöfuni. Var ég langt kominn með plan þar sem ég ætlaði að drepa þá og síðan mig, taka þá með mér þar að segja, gera öllum greiða og hreinsa jörðina, allavegana Selfoss, af þessum bullyum og sjálfum mér(Ég veit hvernig þetta hljómar, en þetta sýnir bara enn og aftur að einelti geti gert þolendur geðveika).
En rétt áður en ég náði að byggja mér kjarkinn í að gera eitthvað, þá endaði önnin loksins.
Næsta önn var nokkurnveginn eins, einkenndist af einelti og horbjóði og gat ég þetta ekki lengur. Sá ekki annað í stöðuni en að annað hvort enda líf mitt eða hætta bara í skólanum og þar sem ég hef ávallt verið með lítil eistu ákvað ég að hætta bara.
Frændi minn, sem var einnig ökukennarinn minn og hafði kennt mér grunnteikningu, hitti á mig síðasta daginn minn og spurði mig hví ég væri að hætta. Vissi hann uppá hár afhverju og hverjir stóðu fyrir því að ég gæti ekki höndlað það að vera í skólanum lengur og var ljóst að málmsmíði/rafmagnsfræði/vélfræði kennararnir mínir hafi talað um það sem þeir urðu vitni að á kennarastofuni en einfaldlega sleppt því að gera eitthvað í því.
Í Mars 2011 kveð ég s.s. skólann og held heim á leið. Á leiðinni heim(Bjó í Þorlákshöfn á meðan skólanum stóð) frá Þorlákshöfn með allt draslið mitt spyr faðir minn mig hví ég hafi hætt og segi ég honum, aldrei þessu vannt, frá eineltinu. Hann segist muna eftir því hvernig þetta var frá því hann var í skóla og kallar mig aumingja fyrir að geta ekki svarað fyrir mig og höndlað þetta eins og maður. Að heyra hann kalla mig aumingja hefur setið í mér og byggst hefur upp hálfgert hatur á föður minn síðan.
Er til eitthvað orð á Íslensku sambærilegt loath? Well, I loath my father.
Tekur þarna við þunglyndi og mikil tölvuleikjaspilun þangað til ég fæ bílprófið í Apríl.
Þá fyrst kemur smá glæta í líf mitt en þegar einn af félögum mínum deyr í bílslysi stuttu seinna, 15 Apríl 2011, og hundurinn minn deyr þá sömu helgi, 17 Apríl 2011, þá verður lífið sót svart aftur. Ég tek minn fyrsta bíltúr í Landeyjarnar frá Grímsnesinu(ca. 80km) solo, fyrsta Maí no less, þannig að það var fullt af traffík. Ég læt mig hafa það enda missti ég af jarðaförinni og ætlaði sko aldeilis að heimsækja hann í eitt síðasta skiptið.
Að missa vin svona ungann, jafnaldri minn, tók mikið á og ekki gerði hunda tapið það eitthvað skárra. Við(Óli hét hann), vorum langt frá því að vera bestu vinir, stundum vorum við verstu óvinir, en þetta tók samt alveg rosalega á og vona ég að þið hinir eigið aldrei eftir að upplifa þetta, ef þið hafið upplifað þetta hinsvegar, þá segi ég bara að ég finni til með ykkur.
Raddirnar mínar voru bestu vinir mínir í gegnum þetta allt hinsvegar. Þær skildu mig, voru búnar að sannfæra mig t.d. um að drepa mig og taka þessa bullya með mér. Ég hélt alltaf að þetta væri bara ég að hugsa þetta en komst ekki að því fyrr en ég var orðinn tvítugur að svo var ekki.
Haustið 2011 ákvað ég að fá mér vinnu við Slátufélag Suðurlands. "Farðu að vinna í SS marr, það er svo gott kaup þar marr....." síðast þegar ég tjékkaði hinsvegar voru lágmarkslaun allt annað en gott kaup en hvað um það. Var SS bara eins og skólinn, klíku skapur, einelti og þekkti ég bara handfylli af fólki.
Þar kynnist ég hinsvegar dreng sem er afkvæmi skólasystkyna foreldra minna, var hann aðeins eldri en ég, sex árum til þess að vera nákvæmur og byrja ég að hanga mikið með honum. Byrjar það allt með því að hann þarf far heim til sín en endar á því að ég er go-to gæjinn sem hann hringir í ef hann er fullur einhverstaðar og vantar far. Hann hafði verið tekinn fullur einhvern tímann stuttu fyrir þetta þannig að hann var próflaus og þurfti ég að keyra hann hvert sem hann vildi. Ég hefði svo sem getað sagt nei, en ég fýlaði athyglina, félagsskapinn bara full mikið til þess að gera það. Fékk ég oft á tilfinninguna að hann væri að nota mig fyrir ökuskírteinið mitt enda borgaði hann einu sinni, 2000kall, í bensín þrátt fyrir að ég hafi eytt svona 200þ kalli af bensíni í hann. Kynnist ég fullt af vinum hans, jafnöldrum hans, sem eru víst mis gáfaðir en þetta var einmitt á þeim tíma sem klámfíknin var sem verst og fannst mér skárra að vera notaður í staðin fyrir að liggja heima og fróa mér.
Ætli þessi strákur hafi ekki meinað allt vel og viljað vera vinur minn en það hefur einhvernveginn alltaf fylgt mér í gegnum tíðina þessar ranghugmyndir og ofsóknarbrjálæði sem ég hélt að væru bara venjulegar tilfinningar, ég hélt að það væri bara normið að treysta engum en ég veit nú að það var/er eitthvað mikið að mér.
Svo kemur að því að kærastan hans fer einhvert í burtu heila helgi og ákveður hann að halda partý. Mér er auðvitað boðið og fer hann í ríkið fyrir mig og kaupir kippu af bjór, einn ananas breezer og einn 500ml pela af Cpt. Morgan fyrir mig. Byrja ég kvöldið sem driver en endum við heima hjá honum þar sem allir úr vinnuni koma saman og drekkum við langt fram eftir kvöldi. Finnst mér áfengi algjör viðbjóður svo ég skurka bara öllu draslinu í mig og eftir að hafa ælt soldið og spoonað klósettið hans í svona hálftíma, rúlla ég út og er nær áfengisdauða en lífi á veröndini hjá honum. Er mér smalað uppí leigubíl af bróður mínum og vinum hans og drepst ég uppí rúmi hjá æskuvini, þar sem mér var hent út úr leigubílnum.
Eftir þetta varð ég mikið þunglyndur, hætti að geta mætt í vinnuna og dett bara í enn meiri klám og tölvuleikja fíkn. Þessi strákur kenndi mér að reykja sígarettur fyrir alvöru og stunda ég það það sem eftir er af búsetu minni á Selfossi.

Það muna kannski einhverjir eftir því þegar ég setti inn póst hérna varðandi sykursýki. Það var akkúrat á þessum tíma, þegar raddirnar voru búnar að sannfæra mig um að ég væri með sykursýki og var ég svo logandi hræddur um að lífið væri búið að ég hringi hágrátandi í móður mína, vælandi yfir þessari hræðslu minni. Fer ég daginn eftir í næsta apótek og fæ blóðsykurspróf og kemur útúr því hár blóðsykur en samt sem áður ekki of hár.

Flyt ég svo heim stuttu síðar, og líður mér það illa að ég bið mömmu um að hafa samband við sálfræðing sem gæti hjálpað mér. Ég er þarna loksins, loksins, tilbúinn til þess að tala við einhvern um mig og mín vandamál. Fer ég til heimilislæknis sem þekkir til Tómasar Zoega, geðlæknis, og fæ ég tíma hjá honum mánuði síðar. Fæ ég bróður minn til þess að keyra mig í bæinn á tveggja til þriggja vikna fresti í tíma hjá Tómasi þar sem ég þorði ekki og kunni ekki að keyra í Reykjavík.

Þetta sumar fékk ég bestu vinnu sem ég hef nokkurn tímann unnið við. Það er vinna á gámasvæðum, að segja fólki hvert það á að henda ruslinu sínu. Fékk ég borgað bæði á tímann og fyrir hvern kílómeter enda var mikill akstur innifalinn.
Líður mér mjög vel í þessari vinnu, sérstaklega þar sem ég þurfti ekki oft að hitta samstarfsmenn mína. En þegar sumrinu var lokið ákvað ég að fara aftur í skólann.

Byrja ég í skólanum, allt gengur vel og mæti reglulega til Tómasar geðlæknis.
Hinsvegar gerist eitthvað inní mér, ego boostið sem ég fékk við það að vera sort of minn eigin yfirmaður um sumarið hvarf og ég fékk gamla góða félagskvíðann 1000 fallt í bakið. Hætti ég einfaldlega að mæta í tíma og þegar liðinn er mánuður af því að hanga á svæðinu sem allir mínir vinir og félagar hengu á í skólanum er hringt í mig af umsjónakennara og ég boðinn á fund. Ég rúlla á fundinn og er ég skammaður í húð og kyn fyrir að hafa ekki mætt í skólann í heilann mánuð, þrátt fyrir að hafa mætt í skólann mætti ég bara ekki í tíma samt sem áður, ekki að það skipti einhverju máli HVAR ég skrópa, bara það að ég hafi skrópað.
Fer ég á fund með nýja skólastjóranum og ræðum við þetta um stund. Segir hún mér að hægt sé að laga þetta, yrði ég bara á síðasta séns það sem eftir væri af önninni en sagði ég henni að ég gæti ekki, sama hversu mikið ég reyndi, mætt í tíma.
Svo ég ákveð það í sameiningu við skólastjórann að hætta einfaldlega í skólanum.
Fer ég heim og segi mömmu frá þessu öllu, að ég hafi ekki mætt í tíma í mánuð þrátt fyrir að hafa alltaf mætt í skólann. Hún tekur mér eins og ég er, hef ég ekki hugmynd hvað föður mínum fannst og er mér í rauninni alveg skít sama um hann og skoðanir hans.

Dett ég inní létta neyslu, ekkert alvarlegt, ekkert sem fór úr böndunum. Notaði ég bara kannabis eins og mér finnst að fólk eigi að nota áfengi, 1-2x í mánuði. Fæ ég vinnuna mína aftur um sumarið nema í þetta skiptið var það bara helgarvinna. Eftir sumarið er ég svo bara atvinnulaus, eftir áramót hinsvegar fæ ég atvinnuleysisbætur en endast þær ekki lengi og eru þær teknar af mér þegar ég neita vinnu sem bauðst einfaldlega vegna þess að ég var kominn með vinnu og var bókstaflega 5 mínútum frá því að hringja í Vinnumálastofnun með þær upplýsingar þegar mér býðst hin vinnan. Eru bæturnar hrifsaðar af mér, fæ ég bara leiðindi frá vinnumálastofnun og sagt að næst þegar ég þarf á bótunum að halda þurfi ég að bíða í tvo mánuði eftir að ég sæki um þær til þess að fá þær. Allavegana, þessi nýja vinna var í gróðurhúsi hjá vinafólki mömmu og pabba, pabbi m.a. þekkti þennan gæja í gegnum vinnuna sína og þekkti ég til flestra starfsmannanna. Ég hinsvegar, höndla varla þessa vinnu vegna félagskvíða þannig að ég fer til Tómasar Zoega, geðlæknis, og skrifar hann út kvíðastillandi lyfið Tafil Retard(Xanax). Eftir smá gúgl heima, seinna um daginn, komst ég að því að þetta er eitt af algengasta læknadópinu og basically drug addict's wettest dream. Plús það að vera bara stór hættulegt, fólk getur bókstaflega dáið af fráhvarfi frá þessu lyfi.
Allavegana, ég byrja að skófla þessu í mig á morgnanna, hvort það hafi verið 2mg eða 5mg man ég ekki en ég finn strax mikla breytingu. Líður mér eins og ég sé í draumi, byrja ég að fá miklar og stekrar, bæði, ranghugmyndir og ofskynjanir. Líf mitt verður það grátt að ég get ekki stundað það lengur, fæ mömmu fyrst til þess að hringja mig inn veikann nokkrum sinnum í röð í nýju vinnuna en á endanum hætti ég bara.
Ég heyri raddir sem segja mér að skaða mig sjálfann og drepa. Ég hlýði þessum röddum náttúrulega og byrja að skera mig allann upp á vinstri löppinni(Hví löppinni í staðin fyrir handleggina eins og fólk gerir flest? I figured að ef ég myndi lifa í gegnum þetta þá myndu örin ekki sjást og þar af leiðandi ekki draga jafn mikla athygli að mér á löppinni og á hendinni. Smort Roight?)
Mér er byrjað að líða það illa að ég skrifa sjálfsmorðsbréfið mitt en þegar ég er alveg að fara að skera á allar slagæðar þá spyr móðir mín mig hvort ég vilji ekki bara kíkja uppá Hringbraut, geðdeildina þar, og þygg ég það boð því ég geri mér grein fyrir því að það er eitthvað mikið að mér. Förum við uppá deild, sem er náttúrulega alla leið í bæinn, og fáum viðtal við lækni. Ég minntist kannski á þetta allt í hinum póstinum, en læknirinn sem var á vakt þar vill ekki taka mig af Xanaxinu nema í samráði við Tómas Zoega.
Er mér boðið að gista nokkrar nætur/verða eftir á deildinni en fordómar mínir gagnvart fólki sem líður illa komu í veg fyrir að ég þáði það boð. Förum við heim, pöntum tíma hjá Tómasi og fáum við tíma nokkrum dögum síðar.
Ráðleggur Tómas mér að hætta bara að taka þetta lyf, þetta var svo lítill skammtur að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af fráhvarfseinkennum. Og viti menn, allt lagast. Ég fer úr geðrofinu nánast daginn eftir að ég hætti að taka lyfið en við tekur hinsvegar að ég missi tenglsin við raunveruleikann 1-2 í viku í eitt og hálft ár eftir það.
Var ég settur á Risperdal eitthvað áður en þetta allt gerðist vegna þess að ég fékk svo mikið ofsóknarbrjálæði í daglegu lífi en virkar það bara engann veginn á þetta geðrof sem ég varð fyrir svona 4-8 sinnum í mánuði.

Ofsóknarbrjálæði. Elska þetta orð. Lætur það hljóma eins og þetta ofsóknaræði sé einhver sturlun, að maður verði alveg brjálaður. En svo er víst ekki, verð ég allavegana hlédrægari en vanalega, þrátt fyrir að vera mjög hlédrægur einstaklingur, og held mig bara útaf fyrir mig.

Síðan þetta með Xanaxið gerðist allt hef ég spurt allavegana 4 sérfræðinga, 3 geðlækna og einn sálfræðing, búast má við því að sálfræðingurinn viti ekki jack shit um þetta enda bara búinn með venjulegt háskólanám, ekki læknisfræði eins og geðlæknarnir, en öll eru þau sammála því að það sé ekki til að Xanax(Rafil Retard) valdi geðrofi. Það er til að fráhvarfseinkenni geti ollið geðrofseinkennum en ekki að áhrifin af pilluni sjálfri geti orsakað það. Einn geðlæknirinn sagði að það væri mögulegt að ég fari einfaldlega í geðrof af róandi lyfjum s.s. Xanax og Kannabis, enda ekki prufað annað. Það sé eitthvað með líkama minn sem veldur þessu. Að ég sé einstakur.
Sálfræðingurinn vill meina að það hafi bara verið tilviljun að ég hafi farið í geðrof á sama tíma og ég tók lyfið, geðrofið hafi bara orsakast af miklum kvíða, streitu og álagi. En ég vil meina að þetta helvítis lyf hafi fokkað mér svona upp. En eins og ég sagði þá er það ekki til, hef ég allavegana ekki fundið snefil af því á internetinu og eru sérfræðingarnir sammála um það að þetta lyf valdi ekki beint geðrofi.

Ég er svekktur, því mér skilst að víman/áhrifin af Xanax eigi að vera alveg himnesk og hitti ég einu sinni gæja sem vildi meina að að taka eina Xanax og fá sér svo línu af spítti sé draumurinn. Er planið reyndar að koma aldrei nálægt þeim viðbjóði en ég dæmi ekki.

Bara til að hafa það á hreinu svona í endann er ég ekki að reyna að veiða up-vote með þessum skrifum mínum, einungis að segja mína sögu og gera smá svona awareness um geðsjúkdóma, einelti og þh. Þetta gæti allt saman hljóðað þannig en ég hvet ykkur til þess að nota up-vote'in á einhvern sem hefur eitthvað málefnalegt/merkilegt/skynsamlegt eða tölvutengt að segja, eins og Hakkarin.

Takk fyrir mig og ég bæti mögulega við þennan þráð seinna.


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Sun 14. Feb 2016 04:10

Langar að bæta smá við þennan þráð, aftur. Ég veit, ég veit, það var notandi hérna sem tók ekkert vel í þetta en, fannst þetta óþarfi eða eitthvað á tölvuspjalli og hélt að ég væri að skálda þetta fyrir athygli. En ef ég væri að skálda þetta fyrir athygli þá hefði ég troðið inní þetta nokkrum all female+ég orgíum með öllum sem tóku þátt í Ungfrú Ísland síðustu fimm árin og sagt frá þarna skiptinu þar sem ég fékk 110% hreint kókaín á Hlemmi hérna um árið.... En ég skil alveg hvaðan hann kemur, sumt þetta sem ég er að segja hljómar lygilega, ef ég væri að lesa þetta frá einhverjum öðrum myndi ég líklega hugsa eins, þannig að það er water under the bridge. :)

En já, langar að update'a smá þetta með Tafil Retard lyfið. Xanax'ið. Svo er mál með vexti að, eins og ég sagði í fyrri pósti, neitaði ég að samþykja það sem sérfræðingarnir sögðu, að það væri ekki séns að Benzo lyf valdi geðrofi nema þá kannski í fráhvarfi. Ég fann hinsvegar hugtak sem kallast Paradoxical Reaction/Effects(PR) eftir smá gúgl. Það s.s. lýsir sér þannig að segjum að ég taki morfín, verði fyrir þessu PR og þá, í staðin fyrir að minnka sársaukann, þá hækkar/versnar hann í rauninni. Lyfið sem sagt virkar akkúrat öfugt á við það sem það á að gera. Og eins og þið vitið kannski eru Benzo lyf notum einkum til þess að minnka kvíða og stress, og sem nauðgunarlyf ef blandað í háum skömmtum í áfengi. Þannig að það eru, og ég fékk þetta frá einum geðlækninum mínum, ágætlega stórar líkur á því að ég hafi orðið við þessum PR af Xanax'inu. Þannig að ef, og það er náttúrulega erfitt að staðfesta það, en svona eftir á er hægt að skoða einkennin og meta eitthvað svona með 80-90% nákvæmni, ég hef orðið fyrir Paradoxical Reaction af Xanax'inu þá hefur það í raunini, í staðinn fyrir að minnka kvíðann eins og það átti að gera, hækkað hann, umtalsvert. Svo umtalsvert af kvíða að kvíða magnið hafi ollið geðrofi. Ég hef oft áður og eftir þetta farið í geðrof útaf streitu og kvíða, og er það svo sem þekkt að fólk undir mikilli pressu eigi í hættu á því að upplifa geðrof.

Hér er hinsvegar quote í Wikipedia síðu Paradoxical Reactions
Severe behavioral changes resulting from benzodiazepines have been reported including mania, schizophrenia, anger, impulsivity, and hypomania.[2]

https://en.wikipedia.org/wiki/Paradoxical_reaction

Og svo smá quote í Side Effect partinn af Benzo.ork.uk, síðu sem sérhæfir sig í Benzo lyfjum á borð við Xanax
According to Professor Malcolm Lader, 5% of those using benzodiazepines may be affected by so-called "paradoxical" reactions in response to the drugs rather than the desired tranquillising effects. Such reactions include increased aggressiveness (in some individuals even violent behaviour), depression (with or without suicidal thoughts or intentions), and sometimes personality changes. In some instances, reactions such as hallucinations, depersonalisation, derealisation and other psychiatric symptoms occur.

Ativan (lorazepam) and Halcion (triazolam) in particular may produce dissociation and other psychiatric symptoms.

"Paradoxical" side effects occur in all age groups but are more likely to be found in children and in the elderly where they may be fairly frequent yet erroneously diagnosed as various psychiatric disorders. The risk of such reactions is generally greater with short-acting compounds but may occur with all benzodiazepine drugs. It is important to remember that the "paradoxical" reactions can also be encountered in short-term use and, in rare cases, even following the first ingestion of the drug.

http://www.benzo.org.uk/sidefx.htm

Þetta sýndi ég geðlækninum, meðal annars, og var hann sammála mér að það væru bara ágætis líkur á því að þetta hafi komið fyrir mig. Er búinn að vera að þræta þetta á einhverju erlendu Forum'i, þar er víst fólk sem tilbiður Benzos eins og guði og neitar það að taka í mál, þrátt fyrir að ég sé með quote frá traustri síðu, að þetta sé hægt/til og hægt sé að finna þessar upplýsingar annarsstaðar á netinu einnig.

Þetta sem ég minntist á að mér liði eins og í draumi, ég fengi svona óraunveruleika tilfinningu, að ég missi tengslin við raunveruleikann, það heitir semsagt Derealization og getur orsakast, einmitt, beint af þessum Paradoxical Effects af Benzo lyfjum og einnig er það partur af geðrofi.
https://en.wikipedia.org/wiki/Derealization

Hvað finnst ykkur um þetta? Er einhver tölvunördinn með eitthvað smá background í einhverju tengdu þessu og gæti skiptst á skoðunum við mig? Sálfræði, læknisfræði, lyfjafræði etc.? Er þetta far fetched? Þessi sem ég var að rífast við inná þessu erlenda Forum'i sagði að geðlæknirinn hafi einfaldlega tekið undir með mér til þess að svala þessari þörf minni, svala sem sagt þessari ranghugmynd minni, svo ég léti hann í friði. En ef eitthvað er unprofessional þá er það að gera það. En það stendur þarna, allskonar kvillar sem fylgja geðrofi, allskonar kvillar sem ég hef, því miður, þurft að upplifa. Hvernig fer fólk að því að sjá ekki sönnunargögnin? Eða er það satt hjá þessum aðila? Er þetta bara einhver ranghugmynd í mér? Er ég bara að lesa það sem ég vil lesa útúr þessum texta?

Það er satt, ég er hvorki gamalmenni né barn, er rétt svo kominn uppúr því að teljast sem barn, ég tók hvorki stórann skammt né til lengri tíma og var þetta í fyrsta skiptið sem ég prufaði lyfið. En er samt ekki alltaf séns? Þó hann sé lítill? Who's to say að ég geti ekki verið einn af þessum 5% sem lenda í þessu yfir ævina? Og jafnvel partur af þessu brota broti sem er ekki einn af þessum aðilum sem ég taldi upp núna áðan?

Allavegana, látið í ykkur heyra, ég vil heyra skoðanir og umræðu, ef þið eruð game í það. Og plís, ekki nauðga up-vote takkanum eins og síðast, líður eins og ég sé að fiska eftir up-vote'um á eftir, sem ég er btw alls ekki að gera. Notið vote'in í eitthvað tölvutengt og mikilvægt, fyndið jafnvel, ég á nóg af þeim, þarf ekki meira. Allar skoðanir eiga rétt á sér. Vona bara að textinn sé allur hér, tölvan er búin að vera að restarta sér bara eins og henni sýnist síðustu 20 mínúturnar sem ég hef verið að skrifa þetta.

Og enn og aftur, ég biðst afsökunar á því að vera að pósta þessu á tölvuspjallið, langar bara að tala um þetta á Íslensku áður en ég geri þessar pælingar mínar opinberar undir nafni.


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

Nitruz
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 13. Júl 2011 19:14
Reputation: 32
Staðsetning: milli steins og sleggju
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf Nitruz » Sun 14. Feb 2016 09:30

þetta er áhugavert. Lyf eru óútreiknanleg og sérstaklega held ég geðlyf. Þau geta virkað mjög mismunandi á milli manna. Ég hef tekið ýmis lyf sum gegn læknisráði en mörg ekki.. Ég hef tekið eftir því að mörg róandi lyf, verkjalyf og sum svefnlyf virka lítið á mig.
En ég átti félaga sem þau virkuði einstaklega vel á. Þannig þurfti ég alltaf fimmfaldan skamt á við hann til að ná sömu áhrifum.
Svo virka staðdeyfi lyf líka ílla á mig gæti verið útaf rauðhærða geninu.Tannlæknirinn virðist alltaf jafn hissa haha.
Nema einu sinni þá tók ég eitthvað "hætta að reykja lyf" sem heitir Zyban.
Það var þunglyndis lyf sem átti að hjálpa við hætta að reykja. En mér leið mjög ílla af því og það tók mig marga daga að átta mig á því að það væri lyfið. Svo þegar ég fór að lesa á bæklinginn þá sá ég að ég var með margar aukaverkanir og sumar semi alvarlegar. Þetta var fyrir um það bil 15 árum síðan og eftirminnilegustu aukaverkanirnar voru útbrot, ofsakláði, sjóntruflanir, hraður hjartsláttur og getuleysi. Og það var dealbreaker var tvítugur og hafði aldrei átt erfitt með að ná honum upp jafnvel þegar ég var blindfullur. Þannig ég hætti að taka þau og ég lagaðist um leið. Hætti reyndar ekki að reykja fyrr en mörgum árum seinna. En ég man að lyfið var rándýrt og átti að vera frekar "safe".
Hafði alltaf hugsað að allar þessar aukaverkanir sem eru taldar upp væri bara svona til þess að einginn gæti kært eða eitthvað en eftir þetta þá hugsa ég að það eru einhverjir óheppnir sem fá virkelga þessu hættulegu aukaverkanir.

Svo held ég líka að ég mundi nú treysta geðlæknirnum örlítið meir heldur en einhverjum random forum náunga.
Þótt að læknar hafa oft vitlaust fyrir sér.



Skjámynd

Höfundur
HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf HalistaX » Sun 14. Feb 2016 11:02

Nitruz skrifaði:Svo held ég líka að ég mundi nú treysta geðlæknirnum örlítið meir heldur en einhverjum random forum náunga.
Þótt að læknar hafa oft vitlaust fyrir sér.

Haha jájá, algjörlega, Maður er bara svo auðtrúa. Sérstaklega þegar maður er viðkvæmur fyrir ranghugmyndum fyrir. ;)

Róandi/svæfandi geðlyf eru einmitt ekki að virka á mig, ég finn ekki fyrir róandi/svæfandi hlutanum, en ég finn hinsvegar fyrir hungrinu. Alltaf finn ég fyrir því.


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf Hnykill » Þri 16. Feb 2016 18:41

Var ekki greindur með neitt.. vaknaði einn morguninn eftir að hafa tekið PMMA og gat ekki stjórnað augunum mínum.. flöktu til og frá.. fólk talaði orð en ég heyrði bara eitthvað allt annað.. man þegar ég labbaði framhjá Ráðhúsi Akureyrar og það stóð Ráðhús.. en orðin runnu bara saman í " Húðsár".. .. gat ekki talað í nokkra mánuði.. bróðir minn dröslaði mér milli gistiheimila á þessum tíma.. á meðan hann fékk bæinn til að borga. í heilt ár.. gat ekki talað við neinn.. fór úr sokkunum og labbaði uppá heiði til að fara í fótabað .. til að "vera hreinn" ..með öskrandi "hættu að reykja!".. á milli þess að vera "stökktu af húsþaki" og ég vissi það.. að geðveikin væri loks komin til að taka mig :/

það var stelpa sem dó af þessu efni í RVK á sama tíma.. ég vaknaði bara eitthvað heilaskemmdur.. þolum mismikið, en já.. það hefði þurft slatta til að drepa mig.. og ég heyrði hann fyrst tala "Mig hlakkar til að takast á við þig!" ég vissi ég væri nýkominn í helvíti og þetta væri djöfullinn að bjóða mig velkominn .

Ég gekk í Lystigarð Akureyrar. sá sýnir.. sólina sjálfa eftir 4 Billjón ár.. loks orðin róleg og stór. komin að jörðu, og lokkar hennar voru róandi. svo róleg. ég vissi þetta væri endir manna... ég sá sjóinn niðri við sjávarlínuna. hann hafði ekki gufað upp eða minnkað.. svo ég vissi að sólin var að ljúga.. hún var bara að sýna mér. en ég vissi að ef þetta væri satt.. að kominn væri endir manna.. hví hefur þá ekki sjávarmálið minnkað ? spurði ég hana.. en við vildum ekki tala meira ég og sólin... "ég sagði þér" heyrði ég... það er kuldinn "alkuldi" alheimsins sem heldur þessu saman"... þó ég verði 5 Billjón ára mun hafið standa í stað.. !! k það er meira svona tal og ekki bara þa' en bara samt... ég var fínn hérna áður.. en svo er ég stundum að tala við sólina eða aðrar verur og það á bara að krossfesta mann.. veit ekkert sjálfur hver þetta er eða hvað er að gerast.. svo já.


veit ekki hvort þetta flokkast sem nein geðhvarfa vandamál en ég hef fengið öll lyf sem geðlæknar bjóða uppá.. engin virka.. nema svefnlyf.. því þá er ég ekki í lífinu að upplifa svona.. svo ógeðslega erfitt að réttlæta svona líf suma daga..

ég var að hugsa mikið á meðan.. ég skrifaði .. en þetta. "Geðhvarfasýki er oft...." ég vaknaði með helvítis öskur og brjálæði í hausnum á mér!! .. og ég er búinn að reyna halda mér á lífi hingað til. fínt.. samt.. ekkert sérstakt núna .. maður verður harðari en lífið eftir svona.. það er svona sem maður herðir snöruna.. því maður veit þetta verður alltaf svona. efritt að réttlæta og sannfæra sjálfan sig að svona muni lífið vera héðan í frá.. ég syrgi mitt gamla líf.. en þetta var kvöldið sem ég dó.. en ég vaknaði í helvíti.


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4954
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Laugarásinn, meðferðargeðdeild.

Pósturaf jonsig » Þri 16. Feb 2016 20:00

Crazy shit ....

En hey HalistaX ,geturu tekið punkta um allt þetta sem þú hefur skrifað hérna ? Ég kemst ekki í að lesa þetta allt :(