Síða 1 af 1

Hobbýhornið mitt: mini trésmíðaverkstæði

Sent: Þri 14. Júl 2015 20:57
af Chokotoff
Sælir spjallverjar :D

Mér datt í hug að deila með ykkur hobbýhorninu mínu. Þannig er að ég ákvað fyrir stuttu að koma mér upp aðstöðu til að sinna aðaláhugamálinu sem er að skera út og smíða allskonar smáhluti úr timbri og öðru tilfallandi. Fór og tæmdi einn vegg inni í þvottahúsi/geymslu og smíðaði mér þetta horn hérna:
20150714_202451.jpg
20150714_202451.jpg (1.86 MiB) Skoðað 1153 sinnum


Vorum að skipta út eldhúsinnréttingu og var þessi borðplata afgangs þannig að ég sneið hana niður í 1,5m og skellti henni í hornið.
20150714_201630.jpg
20150714_201630.jpg (1.89 MiB) Skoðað 1153 sinnum


Undir er frystiskápur sem væri ekki þarna ef hann kæmist fyrir annars staðar, og ikea skúffueining sem ég fékk gefins. Hún fékk nýtt líf sem verkfæraskápur. Planið er að setja hjól undir þannig að það sé hægt að draga hann út ef mig vantar auka borðpláss.
20150714_201529.jpg
20150714_201529.jpg (1.96 MiB) Skoðað 1153 sinnum


Fyrir ofan set ég svo grunna hillu fyrir hluti eins og skrúfur og nagla, auka batterý og annað sem gott er að geta gripið í. Undir hana skrúfa ég slátur úr gömlum vegglampa sem gefur alveg hellings ljós. Þar fyrir ofan koma svo djúpar geymsluhillur.
20150714_201622.jpg
20150714_201622.jpg (1.97 MiB) Skoðað 1153 sinnum


Set þetta hér inn sem smá innblástur fyrir þá sem hafa drauma um aðstöðu fyrir hobbýið sitt, hvert sem það er, en þykjast ekki hafa pening eða pláss til að koma henni upp :P

Re: Hobbýhornið mitt: mini trésmíðaverkstæði

Sent: Þri 14. Júl 2015 22:14
af Daz
Flott! þ.e.a.s að ganga bara í málið.
Ég þarf bara að finna mér eitthvað hobbý sem ég get sett út í horn :|

Re: Hobbýhornið mitt: mini trésmíðaverkstæði

Sent: Lau 18. Júl 2015 22:27
af Saber
Vel gert! :happy

Re: Hobbýhornið mitt: mini trésmíðaverkstæði

Sent: Lau 18. Júl 2015 23:31
af Nitruz
Flottur =D> takk fyrir að deila þessu.