
Mér datt í hug að deila með ykkur hobbýhorninu mínu. Þannig er að ég ákvað fyrir stuttu að koma mér upp aðstöðu til að sinna aðaláhugamálinu sem er að skera út og smíða allskonar smáhluti úr timbri og öðru tilfallandi. Fór og tæmdi einn vegg inni í þvottahúsi/geymslu og smíðaði mér þetta horn hérna:
Vorum að skipta út eldhúsinnréttingu og var þessi borðplata afgangs þannig að ég sneið hana niður í 1,5m og skellti henni í hornið.
Undir er frystiskápur sem væri ekki þarna ef hann kæmist fyrir annars staðar, og ikea skúffueining sem ég fékk gefins. Hún fékk nýtt líf sem verkfæraskápur. Planið er að setja hjól undir þannig að það sé hægt að draga hann út ef mig vantar auka borðpláss.
Fyrir ofan set ég svo grunna hillu fyrir hluti eins og skrúfur og nagla, auka batterý og annað sem gott er að geta gripið í. Undir hana skrúfa ég slátur úr gömlum vegglampa sem gefur alveg hellings ljós. Þar fyrir ofan koma svo djúpar geymsluhillur.
Set þetta hér inn sem smá innblástur fyrir þá sem hafa drauma um aðstöðu fyrir hobbýið sitt, hvert sem það er, en þykjast ekki hafa pening eða pláss til að koma henni upp
