Síða 1 af 1

nights on broadway á íslensku !

Sent: Fös 10. Júl 2015 20:48
af andripepe
Hæhæ, ég hef verið að leita af þessu lagi útum allt á íslensku. En ég bara finn það ekki neinstaðar.

https://www.youtube.com/watch?v=5wRM-t7wvF0

Þetta lag er reglulega spilað á bylgjuni og fleirri ágætum útvarpsstöðum. Og ég held að það heiti " Kvöldin í bænum"

Segið það sem þið viljið um lagið, mér er slétt.

Eina sem ég veit um þetta er að það var í söngleik frá Verlzó 1997, Og að það var til á Grooveshark \:D/ En eftir að sú siða lokaði, Hef ég bara ekki fundið lagið neinstaðar ! Svo mér datt í hug ef að einhver ætti þetta lag í tónlistarsafninu sínu, einhver sem var grimmur á dc++ hérna í denn. Gæti hjálpað mér að koma því til mín fyrir verkefni sem ég er að vinna í fyrir vinnustaðinn minn. ( eða bent mér á stað sem ég gæti streamað því)


Takk. :)

Re: nights on broadway á íslensku !

Sent: Lau 11. Júl 2015 01:30
af capteinninn
Þetta er frábært lag

Prófaðirðu samt áður en þú gerðir þráðinn að googla hvernig maður nær í tónlist af youtube?

Getur til dæmis sett pwn fyrir framan youtube.com/.......... og þá færðu fullt af leiðum til að ná í efni þaðan.
Hérna er t.d. síðan sem kemur þegar ég geri það fyrir framan linkinn þinn. Velur bara eitthvað undir liðnum Save this video as an mp3 audio file og þar geturðu náð í þetta.
Ég mæli með Peggo

Re: nights on broadway á íslensku !

Sent: Lau 11. Júl 2015 01:47
af Klara
capteinninn skrifaði:Þetta er frábært lag

Prófaðirðu samt áður en þú gerðir þráðinn að googla hvernig maður nær í tónlist af youtube?

Getur til dæmis sett pwn fyrir framan youtube.com/.......... og þá færðu fullt af leiðum til að ná í efni þaðan.
Hérna er t.d. síðan sem kemur þegar ég geri það fyrir framan linkinn þinn. Velur bara eitthvað undir liðnum Save this video as an mp3 audio file og þar geturðu náð í þetta.
Ég mæli með Peggo


FAIL! Lestu póstinn einu sinni enn! :-"

Re: nights on broadway á íslensku !

Sent: Lau 11. Júl 2015 21:20
af intenz
Já ég væri líka til í að finna þetta lag.

Re: nights on broadway á íslensku !

Sent: Sun 12. Júl 2015 00:06
af Klara
http://www.last.fm/music/Versl%C3%B3/_/ ... B%C3%A6num

Ég er ekki á Last FM, en þetta virðist mér vera lagið ?

Ég held þið neyðist annars til þess að senda fjölpóst á Rúnar Róberts á bylgjunni og biðja hann um að smygla laginu til ykkar.

Kannski hann taki við Dunkin Donuts sem greiðslu. Ég efast allavega um að Ívar Guðmunds geri það.

Djók. Íbbi er alger hlunkur sem elskar hringina!

Re: nights on broadway á íslensku !

Sent: Sun 12. Júl 2015 00:10
af Halldorhrafn
Lagið heitir "Kvöldin í bænum" og er með Hauk Guðmundssyni og kór V.Í.

http://picosong.com/myy2

Re: nights on broadway á íslensku !

Sent: Sun 12. Júl 2015 05:33
af andripepe
Takk kærlega fyrir mig !