Að gefa út reikning

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Haukursv
has spoken...
Póstar: 153
Skráði sig: Þri 29. Maí 2012 12:10
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Að gefa út reikning

Pósturaf Haukursv » Mið 27. Maí 2015 11:10

Halló,

Er með eina spurningu. Ef þetta á ekki heima hér skal ég glaður leiðrétta það.

Er semsagt að selja gítarinn minn, hef fengið fínt boð upp á 140þúsund krónur gegn því að ég gefi út reikning fyrir kaupanda.

Ég veit að ég þarf líklega að kaupa reikningsbók og held að ég sleppi við vsk þar sem þetta er í eina skiptið sem ég geri þetta (ekki satt?)

En þarf ég að borga einhvern tekjuskatt eða önnur gjöld? Vil helst hafa þetta á hreinu þar sem ég vil enda með 140.000 krónur í vasanum

Þakkir :)


i7-4790K | Asus GTX 970 | Asus Z97 Sabertooth | Zalman CNPS7X | 16GB Crucial DDR3 | 250gb Samsung EVO | Seagate 2TB HDD | Antec 750W modular | NZXT H230 | Logitech G710+ | Steelseries Rival | Benq xl2411z | Benq gl2450

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16270
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1994
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf GuðjónR » Mið 27. Maí 2015 11:42

Þú þarft ekki að borga nein gjöld af sölunni ef þú ert einstaklingur að selja gítar.
Sá sem er að kaupa er líklega með rekstur og vill nota gítarinn í kostnað.
Fái hann reikning (kvittun) frá þér þá getur hann kostnaðarfært gítarinn en hann fær auðvitað ekki neinn vsk endurgreiddan.
Þú lendir hins vegar ekki í neinum aukakostnaði nema að leggja út fyrir reikningsheftinu í næstu bókabúð, þú gætir líka sett það sem skilyrði fyrir "greiðanum" að kaupandinn keypti sjálfur reikningsheftið. ;)



Skjámynd

Höfundur
Haukursv
has spoken...
Póstar: 153
Skráði sig: Þri 29. Maí 2012 12:10
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Haukursv » Mið 27. Maí 2015 11:47

Ókei takk kærlega fyrir þetta, hann sagðist hafa gert þetta áður og ætlaði að aðstoða mig við þetta, en ég vildi bara vera viss um hvernig þetta virki :)


i7-4790K | Asus GTX 970 | Asus Z97 Sabertooth | Zalman CNPS7X | 16GB Crucial DDR3 | 250gb Samsung EVO | Seagate 2TB HDD | Antec 750W modular | NZXT H230 | Logitech G710+ | Steelseries Rival | Benq xl2411z | Benq gl2450

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3839
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Tiger » Mið 27. Maí 2015 14:07

Ein spurning. Getur maður ekki bara sett uppí Word eða Excel kvittun? Þarf þetta að vera númmerið frá bókabúð? Ef það er nauðsyn, hvað hefur sú kvittun fram yfir "homemade" ?


Mynd

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3086
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf lukkuláki » Mið 27. Maí 2015 14:11

Tiger skrifaði:Ein spurning. Getur maður ekki bara sett uppí Word eða Excel kvittun? Þarf þetta að vera númmerið frá bókabúð? Ef það er nauðsyn, hvað hefur sú kvittun fram yfir "homemade" ?


Ég hef einmitt gert þetta í excel í nokkur ár (nokkra reikninga á ári) það hefur ekki verið neitt vandamál.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf steinarorri » Mið 27. Maí 2015 14:54

Ég hef alltaf gert þetta í excel. Heimfærði eitthvað template yfir á íslensku, mátt nota það mín vegna... ábyrgist ekki að það sé 100% rétt en það hefur dugað mér.

https://www.dropbox.com/s/i5adn1ph82ds4 ... .xlsx?dl=0



Skjámynd

Höfundur
Haukursv
has spoken...
Póstar: 153
Skráði sig: Þri 29. Maí 2012 12:10
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Haukursv » Mið 27. Maí 2015 15:16

Snilld takk fyrir þetta strákar


i7-4790K | Asus GTX 970 | Asus Z97 Sabertooth | Zalman CNPS7X | 16GB Crucial DDR3 | 250gb Samsung EVO | Seagate 2TB HDD | Antec 750W modular | NZXT H230 | Logitech G710+ | Steelseries Rival | Benq xl2411z | Benq gl2450

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf kiddi » Mið 27. Maí 2015 17:29

Það er víst bannað að nota Excel og prenta sjálfur, sumir bókarar hjá stærri fyrirtækjum henda svoleiðis stundum í hausinn á viðkomandi aftur, en það gera það samt margir og taka sjensinn. Ég seldi einusinni hlut til manns sem var mikið í því að kaupa notaða hluti út á reksturinn sinn og hann hafði bara númerað nótuhefti með sér og bað mig að fylla það út. Og já, enginn VSK nema sala fari yfir milljón á ári ef ég man rétt (og auðvitað áttu ekki að rukka vsk þó þú þurfir ekki að skila honum).



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf tdog » Mið 27. Maí 2015 20:15

Það er fullkomlega í lagi að gera reikninga í Excel, þeir þurfa bara að vera númeraðir, prentaðir í þríriti og innihalda kennitölur bæði kaup– og seljenda og VSK og VSK númer ef við á.



Skjámynd

Zorglub
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 16. Jan 2008 12:42
Reputation: 42
Staðsetning: Nokkuð góð!
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Zorglub » Mið 27. Maí 2015 23:48

Ég er byrjaður að nota InExchange, ósköp þægilegt að geta sent löglega reikninga í tölvupósti og frítt meðan maður er undir 100 reikningum á ári.

http://www.inexchange.is/IS/


Gigabyte Z790 Aorus Master | I9 14900K | Corsair Vengeance 64GB | Asus TUF 3080 OC | Samsung 990 Pro | Corsair AX 860i | Noctua NH-D15

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3839
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Tiger » Fim 28. Maí 2015 08:25

Zorglub skrifaði:Ég er byrjaður að nota InExchange, ósköp þægilegt að geta sent löglega reikninga í tölvupósti og frítt meðan maður er undir 100 reikningum á ári.

http://www.inexchange.is/IS/


Notaru þá bara nafnið þitt í "Nafn fyrirtækis" ?


Mynd

Skjámynd

Zorglub
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 16. Jan 2008 12:42
Reputation: 42
Staðsetning: Nokkuð góð!
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Zorglub » Fim 28. Maí 2015 09:46

Tiger skrifaði:
Zorglub skrifaði:Ég er byrjaður að nota InExchange, ósköp þægilegt að geta sent löglega reikninga í tölvupósti og frítt meðan maður er undir 100 reikningum á ári.

http://www.inexchange.is/IS/


Notaru þá bara nafnið þitt í "Nafn fyrirtækis" ?


Já.


Gigabyte Z790 Aorus Master | I9 14900K | Corsair Vengeance 64GB | Asus TUF 3080 OC | Samsung 990 Pro | Corsair AX 860i | Noctua NH-D15


sigurdur
Ofur-Nörd
Póstar: 228
Skráði sig: Lau 16. Jan 2010 12:37
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf sigurdur » Fim 28. Maí 2015 09:52

Ég er í smá aukavinnu þar sem ég þarf að gefa út nokkra reikninga á ári. Ég hef notað þjónustuna hjá Reikningar.is (Notando) og það hefur dugað mér fínt. Í ókeypis útgáfunni hjá þeim getur þú gefið út 3 reikninga í mánuði og það hefur verið yfirdrifið fyrir mig. Reikningarnir frá þeim uppfylla skilyrði rafrænna reikninga hjá skattinum.




fedora1
Ofur-Nörd
Póstar: 290
Skráði sig: Sun 20. Jún 2010 23:05
Reputation: 6
Staðsetning: Rvk.
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf fedora1 » Fim 28. Maí 2015 10:52

sigurdur skrifaði:Ég er í smá aukavinnu þar sem ég þarf að gefa út nokkra reikninga á ári. Ég hef notað þjónustuna hjá Reikningar.is (Notando) og það hefur dugað mér fínt. Í ókeypis útgáfunni hjá þeim getur þú gefið út 3 reikninga í mánuði og það hefur verið yfirdrifið fyrir mig. Reikningarnir frá þeim uppfylla skilyrði rafrænna reikninga hjá skattinum.


Er þessi síða alltaf svona hæg ? ](*,)




sigurdur
Ofur-Nörd
Póstar: 228
Skráði sig: Lau 16. Jan 2010 12:37
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf sigurdur » Fim 28. Maí 2015 11:04

fedora1 skrifaði:
sigurdur skrifaði:Ég er í smá aukavinnu þar sem ég þarf að gefa út nokkra reikninga á ári. Ég hef notað þjónustuna hjá Reikningar.is (Notando) og það hefur dugað mér fínt. Í ókeypis útgáfunni hjá þeim getur þú gefið út 3 reikninga í mánuði og það hefur verið yfirdrifið fyrir mig. Reikningarnir frá þeim uppfylla skilyrði rafrænna reikninga hjá skattinum.


Er þessi síða alltaf svona hæg ? ](*,)


Hmmm hef ekki notað kerfið í einhverja mánuði, en þetta hef ég aldrei séð áður.




sigurdur
Ofur-Nörd
Póstar: 228
Skráði sig: Lau 16. Jan 2010 12:37
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf sigurdur » Fim 28. Maí 2015 11:55

fedora1 skrifaði:
sigurdur skrifaði:Ég er í smá aukavinnu þar sem ég þarf að gefa út nokkra reikninga á ári. Ég hef notað þjónustuna hjá Reikningar.is (Notando) og það hefur dugað mér fínt. Í ókeypis útgáfunni hjá þeim getur þú gefið út 3 reikninga í mánuði og það hefur verið yfirdrifið fyrir mig. Reikningarnir frá þeim uppfylla skilyrði rafrænna reikninga hjá skattinum.


Er þessi síða alltaf svona hæg ? ](*,)


Tilkynning á heimasíðunni og Facebook:

Það skarst sundur ljósleiðari í gagnaverinu þar sem serverar eru geymdir og því er síðan mjög hæg sem stendur. Viðgerðarteymi er að vinna í málunum.




Copyright
Fiktari
Póstar: 72
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 20:37
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Copyright » Fim 28. Maí 2015 20:28

Mæli með Naglanum. Algjör snilld í að gefa út og senda reikninga.
https://nagli.is/reikningar

SSL leyfið hjá þeim var reyndar að renna út, en það hlítur að detta inn von bráðar.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Daz » Fim 28. Maí 2015 22:47

Copyright skrifaði:Mæli með Naglanum. Algjör snilld í að gefa út og senda reikninga.
https://nagli.is/reikningar

SSL leyfið hjá þeim var reyndar að renna út, en það hlítur að detta inn von bráðar.


Þjónusta sem hefur ekki fyrir því að viðhalda SSL leyfinu sínu og er með stafsetningarvillu í fyrirsögn er ekki mjög traustvekjandi.



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf tdog » Fim 28. Maí 2015 23:25

Daz skrifaði:Þjónusta sem hefur ekki fyrir því að viðhalda SSL leyfinu sínu og er með stafsetningarvillu í fyrirsögn er ekki mjög traustvekjandi.


Póst– og fjarskiptastofnun, CERT-ÍS og Íslandsrót eru ekki með SSL skilríki. Samt eru þetta þær stofnanir sem eiga að tryggja netöryggi ómissandi upplýsingainnviða Íslands.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Daz » Fös 29. Maí 2015 00:14

tdog skrifaði:
Daz skrifaði:Þjónusta sem hefur ekki fyrir því að viðhalda SSL leyfinu sínu og er með stafsetningarvillu í fyrirsögn er ekki mjög traustvekjandi.


Póst– og fjarskiptastofnun, CERT-ÍS og Íslandsrót eru ekki með SSL skilríki. Samt eru þetta þær stofnanir sem eiga að tryggja netöryggi ómissandi upplýsingainnviða Íslands.


Það er munur á því að bjóða ekki upp á þjónustu og að viðhalda ekki þjónustu sem þú ert að bjóða upp á.

(Annars, ertu að meina að þeir bjóði ekki upp á HTTPS tengingu við vefsíðurnar sínar eða er einhver þjónusta sem þeir bjóða uppá þar sem samskiptin ættu að vera dulkóðuð og eru það ekki?)



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf tdog » Fös 29. Maí 2015 01:12

Bjóða ekki upp á HTTPS



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf tlord » Fös 29. Maí 2015 14:56

tdog skrifaði:Bjóða ekki upp á HTTPS


Ríksrekstur á Íslandi er að stórum hluta djók...




Saethor94
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 28. Des 2010 00:37
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf Saethor94 » Fös 29. Maí 2015 17:46

tdog skrifaði:Póst– og fjarskiptastofnun, CERT-ÍS og Íslandsrót eru ekki með SSL skilríki. Samt eru þetta þær stofnanir sem eiga að tryggja netöryggi ómissandi upplýsingainnviða Íslands.


Ef fyrirtækin eru ekki að bjóða upp á neina þjónustu annað heldur en bara upplýsingar á síðunni þá er enginn tilgangur að vera dulkóða samskiptin. Ef hins vegar þau eru að bjóða upp á innskráningu og persónulegar upplýsingar þá er þörf á SSL.




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Að gefa út reikning

Pósturaf pepsico » Fös 29. Maí 2015 23:02

Saethor94 skrifaði:Ef fyrirtækin eru ekki að bjóða upp á neina þjónustu annað heldur en bara upplýsingar á síðunni þá er enginn tilgangur að vera dulkóða samskiptin. Ef hins vegar þau eru að bjóða upp á innskráningu og persónulegar upplýsingar þá er þörf á SSL.


http://www.pfs.is/neytendur/kvartanir-fra-neytendum/

Ef neytendur vilja senda kvörtun til PFS þarf er nauðsynlegt að fylla út sérstakt kvörtunareyðublað hér á vefnum og senda stofnuninni. Önnur gögn er hægt að senda sem viðhengi með eyðublaðinu. Ekki er nóg að framsenda t.d. tölvupósta eða annað beint á netfang stofnunarinnar.


Það er ekkert static við síðu PFS og það er ekkert ásættanlegt við það að kvartanir sem eiga að vera nafnlausar (og eru það í ferlinu)
gagnvart þeim sem kvartað er um séu sendar yfir HTTP og það á vegum stofnunar með eftirfarandi á sinni stefnuskrá:

Áhersla er á að tryggja fjölbreytt vöruframboð fyrir neytendur, aðgengi sé gott og öryggi þjónustunnar sé þannig að kerfi virki alltaf og almenningur geti á þau treyst.
Áhersla er lögð á að PFS hafi innan sinna raða sérfræðinga sem til er leitað vegna fagmennsku sinnar og þekkingar og að þeir njóti óskoraðs trausts meðal hagsmunaaðila hvort sem er hjá póst- og fjarskiptamörkuðum eða stjórnvöldum.


Það er ekki neitt sem hindrar t.d. Vodafone frá því að fylgjast með öllum kvörtunum
viðskiptavina um sig, hver sendi þær, hvenær, hvað í þeim stendur, hvaða viðhengi fylgdu o.fl. Er það ásættanlegt?

CERT og Íslandsrót virðast mér hins vegar alveg static síður og því vissulega engin "nauðsyn" fyrir örugg samskipti.