Síða 1 af 1
Íslenskukennsla á netinu
Sent: Þri 12. Maí 2015 17:49
af hakkarin
Maður er orðinn svo vanur að lesa allt á ensku í tölvunni og hlusta á allt á ensku í bíómyndum að Íslenski orðaforðinn mans er eiglega bara orðinn hálfslappur.

Er til einhver ókeypis íslenskukennsla á netinu eða eitthvað svo að maður geti komið sér í gott Íslensku form og stækkað orðaforðan sinn og gert hann að einhverju meiru heldur en bara einhverju lágmarks lágmenningardrasli?
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Þri 12. Maí 2015 17:54
af trausti164
Prófaðu rasmus.is
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Þri 12. Maí 2015 18:07
af svanur08
Hahaha vá hvað þetta er rétt, orðið svona hjá mér líka.
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Þri 12. Maí 2015 19:31
af hakkarin
trausti164 skrifaði:Prófaðu rasmus.is
Þarna sé ég bara stærðfræði og eitthvað annað sem að tengist ekki Íslensku kennslu.
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Þri 12. Maí 2015 19:37
af Chokotoff
Hvernig væri bara að lesa meira? Notaðar bækur fást á klink á nytjamörkuðunum til dæmis.
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Þri 12. Maí 2015 19:50
af trausti164
hakkarin skrifaði:trausti164 skrifaði:Prófaðu rasmus.is
Þarna sé ég bara stærðfræði og eitthvað annað sem að tengist ekki Íslensku kennslu.
Sorrý, misminnti.
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Mið 13. Maí 2015 00:12
af Xovius
Mæli með því að lesa eins mikið og þú getur. Hljóðbækur eru líka mjög góð lausn.
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Mið 13. Maí 2015 01:10
af Viktor
Það eru líka til nokkrar mjög góðar íslenskar bíómyndir og þættir, það er ágætis byrjun.
Mæli með Fóstbræðrum og Ríkinu.
Svo bíómyndir eins og Englar Alheimsins, Sódóma Reykjavík, Mýrin, Vonarstræti, Djöflaeyjan, Börn og Fúsi.
Myndir sem ég á eftir að sjá en þarf að sjá eru svo Hross í oss og Málmhaus.
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Mið 13. Maí 2015 08:00
af axyne
Lesa lesa lesa.
Farðu á næsta bókasafn og leigðu þér bækur.
Síðan ef einhver orð eru að vefjast fyrir þér þá útvegarðu þér íslenska orðabók eða notar snara.is
Efast stórlega þú sért að fara að læra eitthvað meira en þú kannt nú þegar með einhverju kennsluefni á netinu.
Re: Íslenskukennsla á netinu
Sent: Mið 13. Maí 2015 14:02
af hakkarin
Æi nenni ekki að lesa heilar bækur. Það hlýtur að vera hægt að finna kennsluefni eða eitthvað.
Sent: Mið 13. Maí 2015 15:39
af KermitTheFrog
Ef þú ert að leitast eftir orðaforða þá er lang einfaldast að lesa bara bækur. Ertu að leitast eftir einhverjum orðaforðaæfingum eða hvað?