Síða 1 af 1
Versla af ebay.
Sent: Þri 31. Mar 2015 20:42
af lifeformes
Ok þarf að setja inn hér einn pirringa póst, þannig er mál með vexti að ég var að panta hljóðkort af ebay og er búinn að greiða fyrir það gegnum paypal, en sendandin er alltaf að byðja um meiri og meiri upplýsingar svo sem símanúmer og vegabréfs númer.
Ég hélt og er nokkuð viss um að vegabréfs upplýsingar eru alveg óþarfar fyrir svona sendingar, þetta er innan evrópu, og allar upplýsingar eiga að koma gegnum paypal.
Eða hef ég rangt fyrir mér?
þetta var að koma frá honum þegar ég neitaði honum um vegabréfs nr.
"Well, not like we can fix, because the ad agency does not accept me without collecting these data, we will cancel the order, not how to fix this without an ID card or passport number just ask me"
Re: Versla af ebay.
Sent: Þri 31. Mar 2015 20:50
af jólnir
Ef þeir ætla að aflýsa pöntuninni þá varstu ekki að tapa neinu öðru en tíma þínum.
Þú borgaðir með paypal og á ebay. Þú ert búinn að sóa tíma þínum en peningarnir þínir ættu að vera öruggir.
Ef seljandi neitar að senda þér vöruna nema þú uppfyllir skilyrðin þá eruð þið ekki að fara að stunda viðskipti. Þú gætir kvartað til ebay en ég sé ekki að þú sért að fara að fá hljóðkortið þannig. Ég hefði samt örugglega ekki heldur sent honum vegabréfsnúmerið mitt!
Re: Versla af ebay.
Sent: Þri 31. Mar 2015 20:59
af lifeformes
jólnir skrifaði: Ég hefði samt örugglega ekki heldur sent honum vegabréfsnúmerið mitt!
nei mér datt það ekki í hug, en var að fá póst frá honum og hann segist vera búinn að finna út úr þessu hjá sér,
þá er bara að bíða og vona.....
Re: Versla af ebay.
Sent: Þri 31. Mar 2015 21:33
af arons4
Þarft bókstaflega ekkert annað en heimilisfang og mögulega nafn..
Re: Versla af ebay.
Sent: Þri 31. Mar 2015 21:36
af DaRKSTaR
furðulegt að einhver biðji um vegabréfsnúmer.. ertu ekki að láta senda á sama heimilisfáng og er á paypal hjá þér?
ég versla fáránlega mikið af ebay og hef ekki lent í neinu svona basli.
Re: Versla af ebay.
Sent: Þri 31. Mar 2015 21:55
af lifeformes
DaRKSTaR skrifaði:furðulegt að einhver biðji um vegabréfsnúmer.. ertu ekki að láta senda á sama heimilisfáng og er á paypal hjá þér?
ég versla fáránlega mikið af ebay og hef ekki lent í neinu svona basli.
þetta er allt á sama heimilisfangið,s.s paypal accountin, og já hef oft verslað af ebay, en aldrei lent í svona veseni, en hann segist vera búinn að leysa þetta, en það u.þ.b. 10 pósta að útskýra það fyrir hinum að Island er í evrópu, og hann segist vera búinn að leysa þetta sín megin.
þurfti bara aðeins að pústa hérna

Re: Versla af ebay.
Sent: Þri 31. Mar 2015 22:39
af roadwarrior
Svona af forvitni, ertu með linkinn á ebay á þessu korti?
Re: Versla af ebay.
Sent: Þri 31. Mar 2015 23:06
af lifeformes