Síða 4 af 6

Re: Göturnar í RVK

Sent: Þri 12. Maí 2015 20:06
af vesi

Re: Göturnar í RVK

Sent: Þri 12. Maí 2015 21:15
af Sindri A
Yfirleitt er fræst langt áður en það er malbikað hjá borginni. Annað er hinsvegar hjá Vegagerðinni, þeir vilja að það sé malbikað 1-2 tímum seinna.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 13. Maí 2015 13:01
af Elmar-sa
Og núna hefur einhver hagsmunaaðili komið í veg fyrir að Sænska Repa­ve malbikunarvélin komi í sumar. Þar þarf bara að loka einu sinni fyrir utan sparnaðinn að sleppa fræsingu og að keyra það burtu. Það á að bika 16 km en þörfin er 45 km, Gasskrímslið leggur þynnra bik en væri ekki betra að ná niður fleiri Fermetrum þegar ástandið er orðið svona slæmt?

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 13. Maí 2015 14:35
af rapport
lol - erum við svona lítið land að við verðum að fá malbikunarvélar í heimsókn yfir sumarið?

Það er ekki furða að þetta sé dýrt...

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 16. Mar 2016 11:57
af vesi
Jæja, Næstum komið ár frá upphafi þessa þráðs, Hvernig fynnst ykkur ástandið núna miðað við fyrir ári þrátt fyrir allan þennan auka pening sem settur var í endurbætur.

http://www.visir.is/sjadu-holurnar-i-go ... 6160319046

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 16. Mar 2016 12:05
af Tbot
Held að það sé hægt að lýsa því með "lengi getur vont versnað"

Það sem hefur verið ein og ein hola í húsagötum er núna holubreiður.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 16. Mar 2016 12:51
af k0fuz
rapport skrifaði:Skatturinn fyrir bensínlítrann fer til ríkisins en ekki sveitafélaga = þjóðvegir og göng...

En ég veit að það er verið að rannsaka hvað er að klikka, vegirnir hafa verið að eyðast miklu hraðar en oft áður.

Veit t.d. um nema í jarðfræði í HÍ sem hafa verið að taka sýni úr vegum til að greina hvort að mölin semnotuð var sé eitthvað verri og niðurstaðan var að hún var miklu stökkari og molnaði því miklu meira.

Að auki þá er tjaran orðin eitthvað umhverfisvænni og líklega lélegri sbr. fréttirnar um malbikið sem var að rúllast upp á bíla sbr. http://www.mbl.is/frettir/knippi/3042/

Allt þetta spilar saman í það ástand sem orðið er að veruleika.

Það er kominn tími til að skoða steypu sem raunverulegan valkost í gatnagerð.

Ég hef blessunarlega ekki skemmt neitt hingað til nema fyrir c.a. 8-10 árum þegar ég ók í holu þar sem nú er Askja bílaumboð, bjallaði í kjölfarið í lögguna og fékk dekk og felgu bætt úr tryggingum Reykjavíkurborgar.


Ástæðan fyrir því að tjaran slettist uppá bíla hér um árið var vegna þess að menn voru að nota repjuolíu með white-spirit í stað einungis white-spirit útí tjöruna þegar þeir lögðu klæðninguna, sem þýðir: Ef einungis er notað white-spirit, þá gufar vökvinn á endanum upp og allt verður hart og fínt, en með olíunni verður allt mjúkt og ómögulegt og aldrei alveg hart. Og auðvitað var þetta eitt af "sparnaðar" ráðunum [-X

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 16. Mar 2016 13:00
af svanur08
Svo brosir hann Dagur bara.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 16. Mar 2016 13:53
af Spekingur
Skipta bara malbikinu út fyrir möl?

Við skulum nú samt ekki gleyma því að bifreiðagjöld og bensínskattur er inntur af hendi ríkis en ekki borgar, upphaflega eyrnamerkt viðhaldi gatnakerfa og vega. Hversu há prósenta af þessum upphæðum endar í raun í viðhaldið er svo allt annar handleggur.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 16. Mar 2016 14:08
af hfwf
Hvernig er statusinn á Dalvegi, steypt gata, er hann ekki holulaus? í einhver 10 ár eða svo, strax búið að svara kostnaði að að steypa götur ef sú er staðan.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 16. Mar 2016 15:22
af Tbot
hfwf skrifaði:Hvernig er statusinn á Dalvegi, steypt gata, er hann ekki holulaus? í einhver 10 ár eða svo, strax búið að svara kostnaði að að steypa götur ef sú er staðan.


Þetta verða vegavinnukappar að staðfesta en gæti ekki verið að það sé líka betri undirvinna þegar götur séu steyptar.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mið 16. Mar 2016 15:39
af hfwf
Tbot skrifaði:
hfwf skrifaði:Hvernig er statusinn á Dalvegi, steypt gata, er hann ekki holulaus? í einhver 10 ár eða svo, strax búið að svara kostnaði að að steypa götur ef sú er staðan.


Þetta verða vegavinnukappar að staðfesta en gæti ekki verið að það sé líka betri undirvinna þegar götur séu steyptar.


Þetta var auðvita tilraunaverkefni, og ég held líka að þetta hafi verið lagt niður í (premade) plötum, enda sést það á götunni.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Fim 22. Feb 2018 15:07
af vesi
Ég veit gamall þráður,

Miðað við ástandið núna á götum Reykjavíkur þá hlakkar mig lítið til í vor. þetta er að koma svakalega illa undan vetri og það er bara feb!

Re: Göturnar í RVK

Sent: Fim 22. Feb 2018 15:31
af GuðjónR
Þetta er svakalegt! Tugir bílar stórskemmdir.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... somu_holu/

Svo flettist malbik af Vesturlandsvegi norðan við mosó, það vantar svona 10m2 í veginn og þeir gefa sér tíu daga í lagfæringu á holu!!, upphaflega gáfu þeir sér 4 daga en greinilega er þessi hola þeim ofviða.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Fim 22. Feb 2018 15:53
af worghal
GuðjónR skrifaði:Þetta er svakalegt! Tugir bílar stórskemmdir.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... somu_holu/

Svo flettist malbik af Vesturlandsvegi norðan við mosó, það vantar svona 10m2 í veginn og þeir gefa sér tíu daga í lagfæringu á holu!!, upphaflega gáfu þeir sér 4 daga en greinilega er þessi hola þeim ofviða.

þetta er bara samsæri! n1 grófu þessa holu til að auka viðskiptin! :fly

Re: Göturnar í RVK

Sent: Fim 22. Feb 2018 16:01
af GuðjónR
worghal skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Þetta er svakalegt! Tugir bílar stórskemmdir.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... somu_holu/

Svo flettist malbik af Vesturlandsvegi norðan við mosó, það vantar svona 10m2 í veginn og þeir gefa sér tíu daga í lagfæringu á holu!!, upphaflega gáfu þeir sér 4 daga en greinilega er þessi hola þeim ofviða.

þetta er bara samsæri! n1 grófu þessa holu til að auka viðskiptin! :fly


LOL :happy

Re: Göturnar í RVK

Sent: Fim 22. Feb 2018 16:38
af linenoise
Þessi hola er ekki í Reykjavík. Pollarnir sem drápu bíla heimskra ökumanna voru heldur ekki í Reykjavík. Just saying.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Fim 22. Feb 2018 18:40
af Nariur
linenoise skrifaði:Þessi hola er ekki í Reykjavík. Pollarnir sem drápu bíla heimskra ökumanna voru heldur ekki í Reykjavík. Just saying.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Fim 22. Feb 2018 18:51
af worghal
Nariur skrifaði:
linenoise skrifaði:Þessi hola er ekki í Reykjavík. Pollarnir sem drápu bíla heimskra ökumanna voru heldur ekki í Reykjavík. Just saying.

rangt
allt innan grænu markana á borgarvefsjánni er reykjavík.
http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/

Re: Göturnar í RVK

Sent: Fim 22. Feb 2018 19:00
af appel
Vegagerðin sem sér um þennan veg þarna, og er ábyrg fyrir holunni og á því tjóni sem hlaust af henni eftir að búið var að tilkynna hana til þeirra.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mán 26. Feb 2018 14:20
af vesi
Jæja,
Hér er hægt að benda á hvað þarf að laga innan rvk http://reykjavik.is/abendingar
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... _um_holur/

Verður áhugavert hvað verður gert og mig grunar, og vona að meiri aurum verður varið í þetta í sumar.

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mán 26. Feb 2018 16:06
af davida
Spurning um að prófa eitthvað af þessum tillögum til að hraða viðgerðum :lol: https://www.citylab.com/life/2017/06/how-to-get-the-city-to-notice-your-gaping-pothole/530418/

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mán 26. Feb 2018 16:06
af worghal
vesi skrifaði:Jæja,
Hér er hægt að benda á hvað þarf að laga innan rvk http://reykjavik.is/abendingar
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... _um_holur/

Verður áhugavert hvað verður gert og mig grunar, og vona að meiri aurum verður varið í þetta í sumar.

glæsilegt. sendi inn ábendingu um laugaveg milli katrínartúns og rauðarárstígs :happy

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mán 26. Feb 2018 17:02
af birgirb13
Eins gott að göturnar séu ekki svona. Þetta er þó bara göngustígur:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... _vaetutid/

Re: Göturnar í RVK

Sent: Mán 26. Feb 2018 17:05
af vesi
birgirb13 skrifaði:Eins gott að göturnar séu ekki svona. Þetta er þó bara göngustígur:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... _vaetutid/


ouch..