Göturnar í RVK

Allt utan efnis
Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf brain » Mán 26. Feb 2018 17:18

http://z1035.com/8000-potholes-repaired ... o-weekend/

Mynd

Ekki gott ástand víðar... 8000 holur í Toronto

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf GuðjónR » Mán 26. Feb 2018 17:23

Ef götur og göngustígar fá að grotna svona í „góðæri“ hvað gerist þá í næstu kreppu?

Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf brain » Mán 26. Feb 2018 17:44

Verðum við ekki öll þá að ferðast með Borgarlínuni, eða hjólandi...

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Viktor » Mán 26. Feb 2018 18:20

brain skrifaði:Verðum við ekki öll þá að ferðast með Borgarlínuni, eða hjólandi...

Markmiðið með Borgarlínu er 12% ferða séu með almenningssamgöngum árið 2040.

Þoli ekki þessa fáránlegu umræðu um þessa sjálfsögðu framþróun.

Áætlað er að á næstu 25 árum fjölgi íbúum höfuðborgarsvæðisins um hátt í 40% eða um 70.000, og verði þá orðin tæplega 300.000, og þegar við bætist vaxandi straumur ferðamanna er ljóst að það stefnir í stóraukna umferð. Haldist ferðavenjur óbreyttar mun þessi fjölgun valda erfiðleikum í samgöngum og auknum töfum í umferðinni, þrátt fyrir gríðarlegar fjárfestingar í nýjum umferðarmannvirkjum. Talið er að fram til 2040 muni ferðatími að óbreyttu lengjast um allt að 65%, vegalengdir aukast um 55% og umferðatafir um 80%. Ljóst er að umferðamál höfuðborgarkerfisins verði ekki leyst með annaðhvort öflugra gatnakerfi eða almenningssamgöngum. Því þarf samspil þessara tveggja lausna að koma til og þar munu afkastamiklar almenningssamgöngur gegna mikilvægu hlutverki fyrir íbúa svæðisins.

http://www.ssh.is/borgarlina/hvers-vegna-borgarlina

4. Hvað ef við sleppum Borgarlínu?
Ef ekki verður af Borgarlínu er óhjákvæmilegt að fjárfesta í vega- og gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins fram til ársins 2040 fyrir allt að 250 miljarða króna.
Til viðbótar verður nauðsynleg fjárfesting í bílastæðum á sama tíma allt að 100 milljarðar króna.

Meira: Skýrsla Mannvits, mat á samgöngusviðsmyndum

http://borgarlinan.is/

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3839
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Tiger » Mán 26. Feb 2018 18:23

Þetta malmbik sem er verið að nota hérna hlýtur bara að vera tómt rusl!!

Mér er alveg sama um salt og nagladekk, við erum með 350.000 bíla á þessu skeri sem er brot af fjöld bíla í öðrum evrópulöndum sem fá alveg snjó og mikið af honum. Og segja að saltið og nokkur nagladekk fari svona með þetta finnst mér eins ótrúverðugt og huxast getur þegar ágangurinn á malmikið er bara brotabrot af öðrum borgum.

Er bara alveg hand viss að skíta efni er selt á uppsprengdu verði aftur og aftur og þeim mum lélgra, þeim mun styttra í að þurfi að malmbika aftur.... og bróðir eða frændi einhvers sem ræðu makar krókin ala ísland.

Mynd

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Viktor » Mán 26. Feb 2018 20:49

Tiger skrifaði:Þetta malmbik sem er verið að nota hérna hlýtur bara að vera tómt rusl!!

Gæðamalbik notað í Reykjavík

Árleg gagnrýni þess efnis að Reykjavíkurborg noti lélegt malbik og leggi það við of lágt hitastig á ekki við rök að styðjast og hefur borgin hrakið hana jafnóðum. Reykjavíkurborg hefur ekki dregið úr gæðum malbiks sem lagt er á götur borgarinnar og hefur það verið staðfest með rannsóknum verkfræðistofu EFLU. Slitlagstegund er t.a.m. valin eftir því hve mikil umferð er á götum sem malbikaðar eru.

http://reykjavik.is/frettir/gaedamalbik ... -reykjavik

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3839
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Tiger » Mán 26. Feb 2018 21:12

Sallarólegur skrifaði:
Tiger skrifaði:Þetta malmbik sem er verið að nota hérna hlýtur bara að vera tómt rusl!!

Mér er alveg sama um salt og nagladekk, við erum með 350.000 bíla á þessu skeri sem er brot af fjöld bíla í öðrum evrópulöndum sem fá alveg snjó og mikið af honum. Og segja að saltið og nokkur nagladekk fari svona með þetta finnst mér eins ótrúverðugt og huxast getur þegar ágangurinn á malmikið er bara brotabrot af öðrum borgum.

Er bara alveg hand viss að skíta efni er selt á uppsprengdu verði aftur og aftur og þeim mum lélgra, þeim mun styttra í að þurfi að malmbika aftur.... og bróðir eða frændi einhvers sem ræðu makar krókin ala ísland.

Gæðamalbik notað í Reykjavík

Árleg gagnrýni þess efnis að Reykjavíkurborg noti lélegt malbik og leggi það við of lágt hitastig á ekki við rök að styðjast og hefur borgin hrakið hana jafnóðum. Reykjavíkurborg hefur ekki dregið úr gæðum malbiks sem lagt er á götur borgarinnar og hefur það verið staðfest með rannsóknum verkfræðistofu EFLU. Slitlagstegund er t.a.m. valin eftir því hve mikil umferð er á götum sem malbikaðar eru.

http://reykjavik.is/frettir/gaedamalbik ... -reykjavik

Já eins og KPMG staðfesti að Simmi borgaði allt alltaf...... Það þarf enga verkfræðistofu að segja manni það sem liggur í augum uppi. NY er kaldari en RVK og snjóar þar og með 4.000.000 bíla á móti 350.000 en miklu meiri umferð, sem myndi þýða að þeir yrðu að malbika á 2ja mánaðar fresti miðað við endingu malbiks hérna......not happening.

Og er þetta könnunin sem RVK vísar í (gefa ekki upp link í fréttinni að sjálfsögðu) þar sem þeir eru að tala um malbik sem var lagt 2001 og entist óvenju lengi..... kannski óvart sett gott malbik, nei bara segi svona :-"

Mynd

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7060
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf rapport » Mán 26. Feb 2018 21:30

Tiger skrifaði:Já eins og KPMG staðfesti að Simmi borgaði allt alltaf...... Það þarf enga verkfræðistofu að segja manni það sem liggur í augum uppi. NY er kaldari en RVK og snjóar þar og með 4.000.000 bíla á móti 350.000 en miklu meiri umferð, sem myndi þýða að þeir yrðu að malbika á 2ja mánaðar fresti miðað við endingu malbiks hérna......not happening.

Og er þetta könnunin sem RVK vísar í (gefa ekki upp link í fréttinni að sjálfsögðu) þar sem þeir eru að tala um malbik sem var lagt 2001 og entist óvenju lengi..... kannski óvart sett gott malbik, nei bara segi svona :-"

Þessi vegkafli er einn sá allra rólegasti og eins og bent er á þá er sáralítil trukka/rútu umferð.

En það sem maður hefur heyrt er að bæði er að þykkt malbiks hér er almennt 10cm en t.d. í Noregi er það 20cm (sel þetta ekki dýrara en ég keypti það)

Þá er einnig verið að spara undirlagið og halli í beygjum (á þjóðvegum) ekki nægur og þá er álagið á veginn allt örðuvísi og meira til hliðar en beint á vegflötinn.

Einnig er algengt erlendis að það sé steypt ofaná grúsina og svo sé malbikað þar ofaná en að þetta sé ekki gert hér heima því að þunnt teygjanlegt malbik étur í sig þúfurnar sem koma þegar sparað er í jarðvegsskiptum og grús undir vegina en það mundi steypan aldrei gera.

En þetta er bara það sem ég hef heyrt hvipps um hvapps, ekkert áreiðanlegt.

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2287
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 386
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Moldvarpan » Mán 26. Feb 2018 21:37

Ísland þarf að flytja inn mörg efni fyrir malbik sem finnast ekki hérlendis, t.d. granít.

En það er eiginlega bara notað á stofnbrautum.

Hinsvegar er sett mun þynnra lag af malbiki en áður var gert. Þannig tæknilega séð hágæða malbik, en svo þunnt að það dugar ekkert.

Skjámynd

Sidious
Ofur-Nörd
Póstar: 237
Skráði sig: Mið 30. Júl 2003 03:01
Reputation: 13
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Sidious » Mán 26. Feb 2018 21:50

Moldvarpan skrifaði:Hinsvegar er sett mun þynnra lag af malbiki en áður var gert. Þannig tæknilega séð hágæða malbik, en svo þunnt að það dugar ekkert.

Ertu með einhverja heimild fyrir þessu?

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2287
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 386
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Moldvarpan » Mán 26. Feb 2018 21:56

Það var eh á vegum malbikunarfyrirtækis sem sagði þetta í fréttum nýlega. Það má grafa þetta upp á google eflaust.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Viktor » Mán 26. Feb 2018 21:57

Tiger skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
Tiger skrifaði:Þetta malmbik sem er verið að nota hérna hlýtur bara að vera tómt rusl!!

Mér er alveg sama um salt og nagladekk, við erum með 350.000 bíla á þessu skeri sem er brot af fjöld bíla í öðrum evrópulöndum sem fá alveg snjó og mikið af honum. Og segja að saltið og nokkur nagladekk fari svona með þetta finnst mér eins ótrúverðugt og huxast getur þegar ágangurinn á malmikið er bara brotabrot af öðrum borgum.

Er bara alveg hand viss að skíta efni er selt á uppsprengdu verði aftur og aftur og þeim mum lélgra, þeim mun styttra í að þurfi að malmbika aftur.... og bróðir eða frændi einhvers sem ræðu makar krókin ala ísland.

Gæðamalbik notað í Reykjavík

Árleg gagnrýni þess efnis að Reykjavíkurborg noti lélegt malbik og leggi það við of lágt hitastig á ekki við rök að styðjast og hefur borgin hrakið hana jafnóðum. Reykjavíkurborg hefur ekki dregið úr gæðum malbiks sem lagt er á götur borgarinnar og hefur það verið staðfest með rannsóknum verkfræðistofu EFLU. Slitlagstegund er t.a.m. valin eftir því hve mikil umferð er á götum sem malbikaðar eru.

http://reykjavik.is/frettir/gaedamalbik ... -reykjavik

Já eins og KPMG staðfesti að Simmi borgaði allt alltaf...... Það þarf enga verkfræðistofu að segja manni það sem liggur í augum uppi. NY er kaldari en RVK og snjóar þar og með 4.000.000 bíla á móti 350.000 en miklu meiri umferð, sem myndi þýða að þeir yrðu að malbika á 2ja mánaðar fresti miðað við endingu malbiks hérna......not happening.

Og er þetta könnunin sem RVK vísar í (gefa ekki upp link í fréttinni að sjálfsögðu) þar sem þeir eru að tala um malbik sem var lagt 2001 og entist óvenju lengi..... kannski óvart sett gott malbik, nei bara segi svona :-"

Halló mr. tinfoil hat, hér er skýrslan:

http://www.vegagerdin.is/Vefur2.nsf/Fil ... itlaga.pdf

Mynd

9 Lokaorð

Niðurstöðurnar hafa sýnt okkur að ending slitlaga hefur aukist lítillega á síðastliðnum sex árum.
Hins vegar hefur umferðarþungi farið minnkandi á síðastliðnum fjórum árum. Jafnframt því
hefur ástand slitlaganna farið töluvert versnandi fyrir endurnýjun á síðastliðnum þremur árum
eins og sjá má á meðaldýpt hjólfara. Viðmiðið um hvenær eigi að endurnýja slitlög hefur
greinilega hækkað á síðastliðnum árum sem er ekki góð þróun sérstaklega ekki m.t.t.
umferðaröryggis á þessum götum. Annar þáttur sem gæti hafa stuðlað að aukinni endingu
slitlaganna er að hlutfall negldra hjólbarða hefur lækkað um helming á síðastliðnum tíu árum.
En ætti ending slitlaga ekki að hafa aukist enn meira þar sem áhrifaþættir á endingu slitlaga eru
allir í hag, þ.e. minnkandi umferð, minnkandi hlutfall negldra hjólbarða og versnandi ástand
slitlaganna? Hvað annað getur haft áhrif á endingu slitlaga? Kannski eru þessir áhrifaþættir eins
og negldir hjólbarðar og umferðarþungi ekki að hafa eins mikil áhrif og menn gera ráð fyrir.
Til þess að svara því þyrfti að skoða gögnin enn frekar og vinna meira með gögnin en hér hefur
verið gert. Til dæmis væri áhugavert að skoða hver hjólfaradýpt væri á hvert ökutæki. Einnig
væri áhugavert að skoða nánar dýpt hjólfara og þróun þeirra m.t.t. efnisvals og aðferðar. Ekki
reyndist rúm fyrir það í þessu verkefni en vel mætti hugsa sér nánari úrvinnslu gagna í
framhaldsvinnu.

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Höfundur
vesi
/dev/null
Póstar: 1464
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Reputation: 121
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf vesi » Mán 26. Feb 2018 22:00

Mynd

MCTS Nov´12
Asus eeePc

Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Glazier » Mán 26. Feb 2018 22:10

birgirb13 skrifaði:Eins gott að göturnar séu ekki svona. Þetta er þó bara göngustígur:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018 ... _vaetutid/

Haha, ekki nema von að barnið í byrjun myndbandsins spyrji hissa :roll: "hvað gerðist?"

Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Sidious
Ofur-Nörd
Póstar: 237
Skráði sig: Mið 30. Júl 2003 03:01
Reputation: 13
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Sidious » Mán 26. Feb 2018 22:10

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2287
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 386
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Moldvarpan » Mán 26. Feb 2018 22:16

Þá berast ítrekað fréttir af miklu magni svifryks í andrúmslofti í borginni sem reglulega mælist langt yfir heilsuverndarmörkum. Þýskir sérfræðingar bentu á það í fyrra að malbik er jafnan ekki nógu heitt þegar það er lagt á götur borgarinnar og í ofanálag er notað íslenskt grjót í malbik, þegar harðari bergtegundir, eins og kvarts, ættu miklu betur við. Þá er slitlag hér mun þynnra en alþjóðlegir staðlar mæla fyrir um. Þetta lélega malbik er laust í sér, verður hæglega fyrir frostskemmdum, brotnar upp og rykið fýkur út í andrúmsloftið. Dr. Larry G. Anderson, bandarískur sérfræðingur um þessi mál, benti á það á dögunum að svifryksmengun í Reykjavík mælist meiri en í stórum iðnaðarborgum vestanhafs.

Svo koma sérfræðingar vegagerðarinnar
http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/malbik-a-islandi-ekkert-odruvisi
Sömu aðferðir, sömu efni notuð hér á landi og erlendis að megninu til

Ye right.

Það er notað alltof mikið af íslensku drasl hraun grjóti, sem hentar ekki vel í malbik.
Það þarf harðari efni.

Ég man vel að þegar ég vann við malbikun Reykjanesbrautarinnar, að þá var lagt granít blandað malbik á aðal akreinarnar, á meðan vegaxlirnar fengu malbik með salla úr Hvalfirði. Sumsé, þeir blanda þetta bara eftir því sem þeim hentar.

Það er vel hægt að blanda sterkara malbik, en það er lítið gert af því nema á aðalgötum landsins. (reykjanesbraut, hringbraut, miklubraut og kannski eh aðeins meira) Ef þið sjáið ekkert hvítt í malbikinu(granít), þá er það drasl malbik. End of story.

jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2407
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 282
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf jonfr1900 » Þri 27. Feb 2018 02:12

Íslenskt grjót er mjúkt (jarðfræðilega) þar sem það er nær eingöngu úr þunnfljótandi kviku sem verður að blágrýti eða grágrýti. Það er afskaplega lítið af graníti á Íslandi og alveg örugglega ekki í vinnanlegu magn. Síðan er sparað svo mikið á Íslandi að helst má ekki eyða neinu í framkvæmdir og nauðsynlegt viðhald.

Þar sem ég er búsettur núna í Danmörku nærri Þýskalandi þá hef ég aldrei séð malbikunarframkvæmd á þeim tíma sem ég hef átt hérna heima (samtals 7 ár) í bænum (fyrir ári síðan var hinsvegar hluti af vegi nærri mér endurnýjaður [mokaður upp vegna lagna þar undir] og endurmalbikaður í leiðinni, þar eru ekki komnar holur í malbikið eftir rúmlega 1 ár í notkun). Ég veit ekki hversu mikil umferð fer hérna um daglega en líklega er umferðin umtalsvert meiri en í allri Reykjavík þó svo að ég búi bara í smábæ (rúmlega 6300 manns).

Skjámynd

einarhr
Of mikill frítími
Póstar: 1984
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 260
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf einarhr » Þri 27. Feb 2018 11:09

jonfr1900 skrifaði:Íslenskt grjót er mjúkt (jarðfræðilega) þar sem það er nær eingöngu úr þunnfljótandi kviku sem verður að blágrýti eða grágrýti. Það er afskaplega lítið af graníti á Íslandi og alveg örugglega ekki í vinnanlegu magn. Síðan er sparað svo mikið á Íslandi að helst má ekki eyða neinu í framkvæmdir og nauðsynlegt viðhald.

Þar sem ég er búsettur núna í Danmörku nærri Þýskalandi þá hef ég aldrei séð malbikunarframkvæmd á þeim tíma sem ég hef átt hérna heima (samtals 7 ár) í bænum (fyrir ári síðan var hinsvegar hluti af vegi nærri mér endurnýjaður [mokaður upp vegna lagna þar undir] og endurmalbikaður í leiðinni, þar eru ekki komnar holur í malbikið eftir rúmlega 1 ár í notkun). Ég veit ekki hversu mikil umferð fer hérna um daglega en líklega er umferðin umtalsvert meiri en í allri Reykjavík þó svo að ég búi bara í smábæ (rúmlega 6300 manns).

Þetta einmitt eitt af vandamálunum, ss að það er ekki nógu hart grjót hér á landi. Ath að allt efnið í Hvalfjarðargönginn var flutt inn frá Noregi.

"Þegar Hvalfjarðargöng voru opnuð í júlí 1998 var reiknað með að endurnýja þyrfti slitlag á akreinum þar eftir fimm til sjö ár en endingin varð í reynd sextán til sautján ár!

Flutt var inn kvars frá Noregi til að blanda í malbikið í göngunum, hart steinefni sem styrkti slitlagið. Slitlagið var þannig dýrara en ella en það entist hins vegar margfalt betur en búist var við.

Í ljósi reynslunnar kemur því ekki á óvart að malbikið, sem nú er notað til endurnýjunar í göngunum, verður líka blandað norskættuðu kvarsi."

https://spolur.is/index.php/frettir/fre ... 3%ADl.html

| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6299
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 441
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf worghal » Þri 27. Feb 2018 11:41

talandi um innflutt efni til vegagerðar.
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1240559/

CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

GullMoli
Stjórnandi
Póstar: 2465
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 220
Staðsetning: NGC 3314.
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf GullMoli » Þri 27. Feb 2018 11:53

Held að það hafi líka mikil áhrif hversu miklar hitabreytingarnar eru. Það er þokkalegt frost í dag svo hlýtt á morgun, svona gengur þetta dögunum saman. Í stað þess að hitastigið sé nokkuð stöðugt.

Samblanda af:
Saltinu
Hitabreytingum
Lélegar malbikunarvinna (undirbúningur á undirlagi eða whatever)

Amk fyrst að malbikið er fyrsta flokks efni, þá er bara að skoða næstu mögulegu ástæðu.

Alveg ótrúlegt að sjá glænýtt malbik á stofnæð í Rvk, á innan við ári eru byrjuð að myndast hjólför í því :)
Hjólförin á Reykjanesbrautinni eru t.d. alveg fáránleg. Eins gott að bílar séu 100% rétt hjólastilltir og með dekk í lagi..

Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf GuðjónR » Þri 27. Feb 2018 12:20

Það var sett slitlag á götu hérna fyrir 2 árum eða svo, það liðu ekki nema 3 mánuður þá var allt orðið holótt. Ég giska á að sé búið að fylla svona 500 holur síðan og um leið og ein er fyllt þá myndast tvær nýjar. Þetta er álíka gáfulegt og bera vatn í götóttri fötu. Það þarf að malbika þetta og malbika með efnum sem endast meira en 3 mánuði. Hætta þessu fjandans fúski.
Viðhengi
left.jpg
left.jpg (86.18 KiB) Skoðað 2284 sinnum

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2287
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 386
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Moldvarpan » Þri 27. Feb 2018 12:29

GuðjónR skrifaði:Það var sett slitlag á götu hérna fyrir 2 árum eða svo, það liðu ekki nema 3 mánuður þá var allt orðið holótt. Ég giska á að sé búið að fylla svona 500 holur síðan og um leið og ein er fyllt þá myndast tvær nýjar. Þetta er álíka gáfulegt og bera vatn í götóttri fötu. Það þarf að malbika þetta og malbika með efnum sem endast meira en 3 mánuði. Hætta þessu fjandans fúski.

Skjámynd

Skaz
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Lau 14. Sep 2013 01:48
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf Skaz » Þri 27. Feb 2018 17:32

Þetta er allt í vinnslu, það er að segja undirbúningurinn að því að setja saman matsnefnd til þess að meta viðhaldsþörfin á vegunum á hluta Höfuðborgarsvæðisins.

http://reykjavik.is/frettir/samstarfssa ... svaedisins

Gerðist fyrir ári síðan, get ekki séð að þessi matshópur hafi einu sinni verið settur saman hvað þá skilað af sér einni einustu fundargerð eða mati.

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf hfwf » Þri 27. Feb 2018 18:02

Hægt að setja smá í samhengi hvað mikið var malbikað síðasta sumar t.d en það var eitthvað í kringum 14-16kom fram í fréttum einhverntíman á síðastaa ári, til að setja það í samhengi er það ríflega vegalengdin frá skeifunni upp í egilshöll.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5488
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Tengdur

Re: Göturnar í RVK

Pósturaf appel » Þri 27. Feb 2018 21:10

hfwf skrifaði:Hægt að setja smá í samhengi hvað mikið var malbikað síðasta sumar t.d en það var eitthvað í kringum 14-16kom fram í fréttum einhverntíman á síðastaa ári, til að setja það í samhengi er það ríflega vegalengdin frá skeifunni upp í egilshöll.

Sem er ekki neitt miðað við umfang gatnakerfisins.

*-*