Síða 1 af 1

EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 20:43
af appel
Common knowledge isn't so common;

Það er fullt af vitleysingum þarna úti sem vita ekkert af því að þeir eyðileggja í sér sjónina ef þeir horfa á sólmyrkvann. Sólgeislarnir brenna augnfrumurnar.
Menn geta notað ákveðna filtera til að horfa á sólmyrkvann, en persónulega ætla ég bara að sleppa þessari áhættu á að eyðileggja í mér sjónina, þó það hljómi sem óþarfa áhyggjur.

Ætla ég að treysta einhverju "made in China" á fimm krónur til að vernda sjónina í mér? Eða einhverju trikki sem maður lasi um á netinu, t.d. þetta með tvær blaðsíður? Maður finnur ekki fyrir neinu, og þetta tekur aðeins örstutta stund að gerast. Áður en þú ert búinn að bregðast við þá er búið að brenna í burtu miðsjónina þína for good. Fyrir mig þá er það algjör steypa að taka slíka áhættu með sjónina. Líf manns endar ef maður missir sjónina eða verður fyrir svona sjónskaða, maður þarf að fara á öryrkjabætur þar sem maður gæti þá ekkert unnið.

Bara svona smá varnaðarorð. Endilega minnið fólk á þetta sem þið þekkið, og sérstaklega börn og yngra fólk.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 20:47
af oskar9
ég ætla að nota rafsuðuhjálm...

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 20:53
af Moldvarpan
Það er í raun ekkert hættulegt að horfa á sólmyrkvann, heldur er það skaðlegt fyrir augun að horfa beint í sólina.

Og þótt hluti sólarinnar er hulinn, þá eru samt að eitthverju leyti enn að stara beint í sólina.
Það getur hver sem er horft upp og séð þetta, en óþarfi að stara stanslaust. Það skapar hættu á sjónskemmdum.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 20:54
af GuðjónR
Ég bý í Reykjavík og þarf því ekki að hafa nokkrar áhyggjur sólskini þennan dag frekar en aðra daga. :(

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 21:03
af appel
Vandamálið er að þegar menn hora á sólmyrkvann, og sólin er komin bakvið tunglið, þá er orðið dimmt og augun þenjast út til að hleypa inn ljósi. Svo þegar sólin kemur aftur þá eru menn algjörlega óviðbúnir því, með augnsteinana þanda út (einsog þeir gera í myrkri) þá lendir mjög mikið ljósmagn inn í augun á stuttum tíma. Margir bregðast við alltof seint.

Þú verður e.t.v. ekki blindur, en þú færð "spotty" sjón, færð skuggasvæði í sjónsviðið, og þetta getur varað lengi, marga mánuði, ár. Stundum er þetta varanlegur skaði.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 21:21
af nidur
rafsuðuhjálmurinn hér líka.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 21:39
af dbox
Nú hef ég alltaf horft beint i sólina í fjölda mörg ár þegar hún hefur verið á lofti.
Ekki hefur mín sjón skaddast á nokkurn hátt.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 21:44
af Gislinn
Ef að menn eru mjög paranoid geta þeir beint myndavél að sólmyrkvanum og horfa á sólmyrkvann á skjá.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 22:01
af bigggan
Herna get þið séð sólmyrkvan beint hjá NRK:

Sólmyrkvan beint

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 22:24
af Pandemic
dbox skrifaði:Nú hef ég alltaf horft beint i sólina í fjölda mörg ár þegar hún hefur verið á lofti.
Ekki hefur mín sjón skaddast á nokkurn hátt.


Þarftu virkilega að koma með eitthvað svona hingað? Heldur þú að þetta sé gott input í umræðuna?

Það þarf ekkert að halda neitt um þetta mál punktur, ef þú horfir í sólina í smá stund þá er sterkur möguleiki að þú skaddir í þér augun. Það marg sannað og augnlæknar geta eflaust sagt þér hundruðir dæmisagna um slíkt og ef við viljum fara út á persónulegar nótur þá á ég á t.d frænku sem skaddaði sjónina í sér með því að horfa á sólina.

Þetta er engin typpasamkeppni þar sem þú ert svo frábær að þú getur allt. Við erum að tala um að leiðbeina fólki svo að það skaddi ekki á sér sjónina og allt rugl fyrir utan það á ekki heima hér.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Mið 18. Mar 2015 22:32
af Klemmi
Það að horfa ekki í sólina getur þó valdið einhverfu.

Stjörnuspekingarnir eru bara að reyna að féfletta ykkur með þessu hlífðargleraugna-scami.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 01:08
af Tw1z
Ég vissi að það væri einhvað bogið við þetta allt saman....

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 01:45
af Xovius
Sólin er bara samsæri George W. Bush til að blinda alla jarðarbúa!

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 02:11
af Nariur
HORFIÐ á sólmyrkvann, notið samt sólmyrkvagleraugu eða rafsuðuhjálm. Svona hræðsluáróður er fáránlegur. Skammastu þín, appel.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 07:40
af Dagur
Sammála. Það er rétt að vara við heimatilbúnum lausnum en það er óþarfi að vera með fordóma og setja út á þessi sólmyrkvagleraugu.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 10:49
af MeanGreen
Sólmyrkvagleraugun sem ég er með eru Made In Germany, CE merkt og með öryggisvottun skv. DIN EN 1836. Þau fylgdu með síðasta Lifandi Vísindi tölublaðinu sem ég fékk og ég veit ekki betur en að þetta séu gleraugun sem verið var að selja m.a. í Pennanum/Eymundsson. Svo virðist sem að þau séu uppseld núna.

Filman er með ljósdeyfingu upp á 5,0 og lítur út eins og álpappír. Þegar maður notar þau innandyra þá sér maður varla neitt með þeim enda ráðlagt að hreyfa sig sem minnst þegar þau eru í notkun ](*,) . Mig langar rosalega til að upplifa þetta fyrirbæri svo ég ætla að taka sénsinn á þessum gleraugum :8) Vona bara að það verði ekki svona skýjað eftir rúman sólarhring [-o<

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 11:02
af Viktor
MeanGreen skrifaði:Sólmyrkvagleraugun sem ég er með eru Made In Germany, CE merkt og með öryggisvottun skv. DIN EN 1836. Þau fylgdu með síðasta Lifandi Vísindi tölublaðinu sem ég fékk og ég veit ekki betur en að þetta séu gleraugun sem verið var að selja m.a. í Pennanum/Eymundsson. Svo virðist sem að þau séu uppseld núna.


Ekki gleyma "China Export" merkinu. Ég get lofað þér því að þetta er ekki framleitt í Þýskalandi. Mögulega er þeim pakkað inn þar.

Mynd

Mynd

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 11:36
af frr
Ef þið eigið ekki rafsuðuhjálm, þá getið þið bara keypt gler í rafsuðuhjálm, (styrkleiki 9-10 skilst mér). Það kostar lítið og ver ykkur fyrir útfjólubláum geislum. Hægt að klippa út kartonpappír og festa glerið á með límbandi til þæginda.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 13:14
af MeanGreen
Sallarólegur skrifaði:Ekki gleyma "China Export" merkinu. Ég get lofað þér því að þetta er ekki framleitt í Þýskalandi. Mögulega er þeim pakkað inn þar.


Mynd

Ja, eins og myndin sýnir að þá eru bæði merkin á gleraugunum. Það er spurning af hverju það er? En gleraugun uppfylla víst einhvern staðal sem gerir þau CE vottuð. Svo stendur Made In Germany á þeim og það væri gaman að vita hvort það sé satt eða, eins og þú segir, þeim sé einungis pakkað þar inn.

En það er filman sem er málið hér, ekki satt? Umgjörðin sjálf gæti verið framleidd í Kína en filman er líklegast þýsk enda á vottunin, að mér skilst, við um filmuna. Pappírinn er væntanlega bara til þæginda, eins og frr mælir með fyrir rafsuðugler, og hvar hann er framleiddur skiptir litlu máli enda ekki verið að horfa í gegnum hann.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 14:24
af kusi
Það er auðvitað tilgangslaust að horfa í sólina þegar hún er myrkruð, þá fær maður hvorki orku nér stærri heilaköngul út úr því.
http://www.earthclinic.com/remedies/sun_gazing.html

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 14:49
af JReykdal
Gislinn skrifaði:Ef að menn eru mjög paranoid geta þeir beint myndavél að sólmyrkvanum og horfa á sólmyrkvann á skjá.

Góð leið til að steikja flöguna á myndavélinni.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 15:48
af Gislinn
JReykdal skrifaði:
Gislinn skrifaði:Ef að menn eru mjög paranoid geta þeir beint myndavél að sólmyrkvanum og horfa á sólmyrkvann á skjá.

Góð leið til að steikja flöguna á myndavélinni.


Það eru mjög sennilega flestir hér sem eiga gamlann snjallsíma sem þeir eru hættir að nota og er drullu sama um flöguna í myndavélinni.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 17:42
af tdog
Er með sólmyrkvapendúla til sölu, nánari upplýsingar í PM.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 20:49
af Tiger
Sé þetta bara á google image þegar þetta er búið.... Er líklega eini Íslendingurinn sem gæti ekki verið meira sama.

Re: EKKI horfa á sólmyrkvann!

Sent: Fim 19. Mar 2015 20:56
af hagur
Tiger skrifaði:Sé þetta bara á google image þegar þetta er búið.... Er líklega eini Íslendingurinn sem gæti ekki verið meira sama.


x2