Síða 1 af 1
Rafmagns ráðleggingar
Sent: Þri 17. Mar 2015 00:53
af Krissinn
Konan keypti þessa vinsælu dónalampa á netinu um daginn :p Málið er að þeir komu með kana kló. Er í lagi að kaupa nýja EU kló eða þarf að kaupa breytistykki?


Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Þri 17. Mar 2015 01:15
af rapport
Ekki að ég viti það fyrir víst, en ég mundi telja OK að skipta um kló en held að það þurfi nýja peru í lampann, ef það fylgdi pera þá er hún líklega ekki fyrir 230V.
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Þri 17. Mar 2015 03:34
af DJOli
Ættir að geta séð á perunni hvort hún sé fyrir 110v eða 220-240v
Lampar eru mjög einfaldir. kló - snúra - perustæði - pera. Perustæðið er yfirleitt ekki fyrir nein ákveðin volt nema það standi á því (sem ég hef aldrei áður séð)
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Þri 17. Mar 2015 08:52
af Pandemic
Smá off-topic, þessir lampar fást í ILVU ef aðrir hafa áhuga.
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Fim 19. Mar 2015 13:08
af Krissinn
Það stendur ekkert á perunni :/ og ekkert inní lampanum. Þið kannski vitið hvernig pera þetta er ef ég set mynd með?


Og svona er inní lampanum.
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Fim 19. Mar 2015 13:10
af Krissinn
Pandemic skrifaði:Smá off-topic, þessir lampar fást í ILVU ef aðrir hafa áhuga.
Konan var búinn að sjá þetta þar fyrst en hún vildi prófa að panta svona fyrst, Sirka 20 þús fyrir borðlampa er nú kannski fullmikið, en kannski er það svo ekkert mikið ef hinn er vandaðari sem ég geri nú ráð fyrir :p
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Fim 19. Mar 2015 13:37
af hagur
Skiptu bara um kló og keyptu nýja peru. Sýnist þetta vera venjuleg glópera með E14 gengjum.
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Fim 19. Mar 2015 14:34
af Krissinn
hagur skrifaði:Skiptu bara um kló og keyptu nýja peru. Sýnist þetta vera venjuleg glópera með E14 gengjum.
Okey, Á ég þá bara að kaupa svona ,,ísskápa" peru?
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Fim 19. Mar 2015 17:04
af hagur
Man reyndar ekki hvernig "ísskápaperur" eru. Ég myndi bara taka þessa peru úr lampanum og fara með hana með þér og segja "ég vil svona peru, takk" :-)
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Fim 19. Mar 2015 17:09
af Krissinn
hagur skrifaði:Man reyndar ekki hvernig "ísskápaperur" eru. Ég myndi bara taka þessa peru úr lampanum og fara með hana með þér og segja "ég vil svona peru, takk" :-)
Okey

skoða þetta takk fyrir.
Re: Rafmagns ráðleggingar
Sent: Fim 19. Mar 2015 19:43
af Blackened
...Annars gerist ekkert þegar að þú kveikir á lampanum annað en að peran springur og það slær kannski út ef hún er 110v ...just sayin
Annars er auðvitað solid að fara og kaupa nýja peru