Síða 1 af 2

Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:30
af appel
og ég elska PC tölvur! :sleezyjoe


Nei, þetta er love-hate relationship.

Þarna er ég undir skrifborðinu mínu:
Mynd
En stundum líður mér svona: http://img.gawkerassets.com/img/18i2beu ... iginal.jpg


PC tölvur eru hraðvirkar, en þær eru hræðilegar er viðkemur köplum og stærð á ATX kassanum. Síminn minn er nálægt því að vera jafn hraðvirkur og PC tölvan mín, en CD-ROM drifið í PC tölvunni minni er 10x stærra en síminn minn. :wtf


Ég vil losna við þetta umfang, kaplana, stærðina á turninum... ég vil bara eitthvað nett einsog apple tv box eða álíka, en ég vil samt GPU powahh... hver er lausnin?

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:33
af Dúlli
Er þá Brick tölva ekki málið ? svo er haugur af flottum ATX tölvum og getur fengið perfect cable management ef þú tekur þér þinn tíma. Til dæmis er hægt að gera gott cable management undir borðum og allstaðar. bara gefa þér tíma.

Fyrir myndinn virkar ekki.

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:41
af depill
Hvað ertu að gera með vélina ? Skiptir það ekki aðalmáli. Grunar samt að þetta sé leikjavél. Er ekki PS4 málið :D

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:41
af appel
Nei nei, ég vil desktop vél, lyklaborð, mús, og stóran skjá. En kassinn, snúrurnar... gera mig alveg geggjaðan!

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:42
af Dúlli
hvernig þá ? það eru til svo margar leiðir að gera þetta vel og flott og sést oft ekki í einn kapal.

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:44
af worghal
myndin af þér undir skrifborðinu virkar ekki :?

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:51
af kunglao
cable management @theback.jpg
cable management @theback.jpg (473.41 KiB) Skoðað 3789 sinnum
alvöru cable management að aftan >>>

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:54
af appel
Ég er ekki að tala um kaplana inni í tölvunni, mér er skítsama um þá, þeir sjást ekki þegar þú ert búinn að setja lokið á. Ég er bara að tala um.... fáránleikann að volume á ATX turnvélinni minni er 10000x meira en á símanum mínum en hún er aðeins kannski 20-30% öflugri.

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 22:57
af worghal
appel skrifaði:Ég er ekki að tala um kaplana inni í tölvunni, mér er skítsama um þá, þeir sjást ekki þegar þú ert búinn að setja lokið á. Ég er bara að tala um.... fáránleikann að volume á ATX turnvélinni minni er 10000x meira en á símanum mínum en hún er aðeins kannski 20-30% öflugri.

fá sér skrifborð með kapalhillu :D

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 23:02
af Dúlli
ég er með þetta svona, er með 2x rennur í borðinu, 1 fjöltengi og allt endar í rennur þannig það sem sem endar á gólfinu er einn tengil og einn cat5 kapall.

svo er önnur renna fyrir stuff sem fer ofan á borð og allt tengt og smiðað á milli. kostaði mig tæpan 5.000 að gera þetta, með fjöltengjum sem maður smíðar og 2-3m af rennum og sé ekki einn einasta kapal.

Mynd

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 23:06
af appel
Þetta er engin lausn fyrir mig, ég er með borð úr gleri og á stólfótum. Er ekki að fara bora í það einhverja stokka.

Ég er bara að nöldra um snúrurnar og stærðina á kassanum. :(

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 23:08
af Dúlli
Fara í all in one skjátölvu en og macinn ? slatti af þeim sem er öflugt annars brick tölva ef þú ert með gler borð.

Svo er hægt að ganga mjög vel frá köplum á glerborði með stálfótum, krefst bara tíma og þolimæði.

Skil ekki allveg þennan þráð, finnst það vera ekkert mál að leysa þetta ef maður vill þessi og nennir því.

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 23:28
af GuðjónR
Er þetta ekki bara lausnin ?

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Lau 14. Mar 2015 23:28
af appel
But but... I don't want an Apple :( :(

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 00:02
af chaplin
appel skrifaði:But but... I don't want an Apple :( :(

Fair enough.. http://www.netverslun.is/verslun/produc ... 9,844.aspx ? =)

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 00:45
af lukkuláki
AIO
All In One
https://www.advania.is
AIO.jpg
AIO.jpg (15.13 KiB) Skoðað 3616 sinnum

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 00:56
af AntiTrust
Ein lausnin er að láta alla þyngri vinnslu gerast annarsstaðar. Ég er með rMBP og kærastan með low-specced MB Air. Tengjum þær við stóran skjá þegar þarf og bluetooth lyklaborð, mús og hátalara. Minimal snúrufjöldi, 2 snúrur í heild í tölvuna.

Ég vil geta keyrt fullt af virtual vélum = Gerist allt á serverum inní geymslu og Remote Desktop bjargar rest.
Ég vil geta haft val um mikið magn af efni til að horfa á í toppgæðum = Streymir allt af fileserver inn í geymslu.
Ég vil geta spilað hina ýmsustu PC leiki án þess að þurfa að pæla í vinnslugetunni á vélinni minni eða kærustunnar = Streymir af Steam Server inní geymslu.

Ég gæti verið með C2D iMac eða pínulítinn Intel NUC kubb með Mobile-grade örgjörva festan aftan á skjáinn hjá mér og gert allt sem ég vil. Þetta er bara spurning um færa sig meira yfir í thinclient - server umhverfi og hugsun.

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 01:32
af snaeji
AntiTrust skrifaði:Ein lausnin er að láta alla þyngri vinnslu gerast annarsstaðar. Ég er með rMBP og kærastan með low-specced MB Air. Tengjum þær við stóran skjá þegar þarf og bluetooth lyklaborð, mús og hátalara. Minimal snúrufjöldi, 2 snúrur í heild í tölvuna.

Ég vil geta keyrt fullt af virtual vélum = Gerist allt á serverum inní geymslu og Remote Desktop bjargar rest.
Ég vil geta haft val um mikið magn af efni til að horfa á í toppgæðum = Streymir allt af fileserver inn í geymslu.
Ég vil geta spilað hina ýmsustu PC leiki án þess að þurfa að pæla í vinnslugetunni á vélinni minni eða kærustunnar = Streymir af Steam Server inní geymslu.

Ég gæti verið með C2D iMac eða pínulítinn Intel NUC kubb með Mobile-grade örgjörva festan aftan á skjáinn hjá mér og gert allt sem ég vil. Þetta er bara spurning um færa sig meira yfir í thinclient - server umhverfi og hugsun.


Þetta hljómar eins og algjör snilld hjá þér! Streama af Steam Server á pc vél yfir á macca ?

Ég vissi ekki að þetta væri hægt. Ertu allveg að fá sæmileg gæði og lítið lagg ?

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 01:36
af Hrotti

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 01:42
af FreyrGauti

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 02:16
af snaeji
Hrotti skrifaði:ég er að fíla þetta https://store.nzxt.com/products/doko-by-nzxt


Eflaust algjör snilld, en þar sem mér finnst skemmtilegast að spila mjög hraða leiki finnst mér þeir missa svolítið edge'ið í lágu fps'i.
Alls ekki slæmt ef maður vill skella FTL í sjónvarpið.

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 03:23
af appel
My PC is in my living room!! Hm....

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 07:56
af mercury
ef þú meinar það að síminn þinn sé nánast jafn hraðvirkur tölvan af því að bæði er quad core 2.x ghz þá er það ekki alveg satt. margt annað sem kemur hraða og afköstum á örgjörva við.
svo getur þú ekki borið saman geisladrif sem "þarf að vera í vissum form factor" við síma.

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 10:51
af depill
Ég nú varla reyndi að commenta á það. En RISC vs CISC það er svo mikill munur að það varla tekur því að byrja að ræða það.

Það er langt frá því 20% munur á ARM og nýjum Intel CPUs í afköstum , annars væru allir netþjónar byrjaðir að keyra ARM.

Re: Ég hata PC tölvur...

Sent: Sun 15. Mar 2015 11:35
af Demon
Ég kannast við þessa tilfinningu með kaplana og hávaðann í vélinni. Ég skellti mér á iMac 27 tommu fyrir 3 árum og sé alls ekki eftir því.
Keyri MacOs mest af tímanum, boota þó windows upp fyrir erfiða leiki.
Heyrist ekkert í þessum vélum, jafnvel að keyra erfiða leiki.
Þetta er auðvitað tradeoff samt að kaupa svona vél. Get vissulega ekki uppfært skjákortið neitt sem þýðir að ég 'þarf'' að selja þessa vél og kaupa nýja ef ég ætla að uppfæra.

Hentar mér samt fínt. Þegar maður er kominn yfir þrítugt þá er minni þörf að vera með nýjustu vélina fyrir leikina.