Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Allt utan efnis

Ættum við að einkavæða vegakerfið (lestu greinina áður en þú svarar)?

Jamm
8
13%
Neims
51
84%
Annað
2
3%
 
Samtals atkvæði: 61

Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf hakkarin » Mið 11. Mar 2015 20:04

Við fyrstu sýn hljómar það kjánalega skal ég viðurkenna en svo rakst ég á þessa ágætu grein og þetta hljómar ekki svo galið: http://www.frjalshyggja.is/index.php/hu ... mgoengumal

"Einfaldast er að rukka veggjald með rafrænum hætti. Skynjarar geta numið hver keyrir hvar og hægt er að safna öllum upplýsingum saman og senda reikning. Hugsanlega verður fyrirkomulagið þannig að veggjald er fyrirframgreitt, þannig að menn gangi á inneign með akstri sínum. Kostnaður við rekstur bíls á ekki að aukast, enda verða skattar á eldsneyti lagðir niður.

Deilur um hagkvæmni jarðgangnagerðar munu ekki lengur verða á vettvangi stjórnmálanna. Fólk mun kjósa jarðgöng með því að keyra um þau. Fólk mun hafa meira á milli handanna til að greiða veggjöld við göngin, meðal annars vegna afnáms eldsneytisskatta."


Jamm þetta hljómar nú bara ágætlega. Sjálfur keyri ég mjög lítið og myndi ekki kvarta yfir þessu. Hver er ykkar skoðun á þessari hugmynd?




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf Klemmi » Mið 11. Mar 2015 20:23

Æji, þetta er samt einn af þeim hlutum sem verða að vera í lagi. Það má ekki alltaf horfa á alla hluti með "þeir greiða sem nýta".

Fyrir mig, eins og er, væri líklega ódýrast að einkavæða heilbrigðiskerfið, enda á góðum aldri og hraustur. En mér dettur það ekki í hug.

Sama skapi væri ódýrast fyrir mig ef skólakerfið væri einkavætt, enda búinn með nám og barnlaus. En mér dettur það ekki í hug.

Svona mætti lengi telja. Það er þó önnur umræða um hvort það megi ekki skapa meira gegnsæi svo að fólk gæti séð í hvað peningarnir sem fara til Vegagerðarinnar fara, hvert er kostnaðurinn við overheadið, hver einustu göng, viðhald á hvaða vegaköflum o.s.frv. Þetta er almannafé, við lifum á 21. öldinni, það á ekki að vera mikið mál að skapa meira gegnsæi í ríkisútgjöld eða ríkisfjármálin í heild.



Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf hakkarin » Mið 11. Mar 2015 21:02

Klemmi skrifaði:Æji, þetta er samt einn af þeim hlutum sem verða að vera í lagi.


Af hverju viltu þá að ríkið sjái um þetta :guy



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1548
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf depill » Mið 11. Mar 2015 21:10

Æi þó ég viti að ég borgi örugglega meira í gatnakerfið heldur en ég fæ út úr því. Þá vill ég að þetta sé partur af samneyslunni. Annars munum við bara endanlega leggja restina af landinu í eyði.

Þú keppir ekkert með vegi og þess vegna á þetta að vera partur af ríkinu ( samneyslunni ) það er enginn fara leggja tvo vegi út úr Grafarvogi og ég vakna um morgunin og það kostar mig 100 kr að keyra eina leið og 200 kr að keyra hina. Nei ef þetta verður einkavætt mun það bara kosta mig 2000 kr að keyra sama hvora áttina ég keyri þar sem þú hefur ekkert val.



Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf hakkarin » Mið 11. Mar 2015 21:20

depill skrifaði: Annars munum við bara endanlega leggja restina af landinu í eyði.


Af hverju ætti byggðir að leggjast í eyði?

Hér er annars ágæt myndband.




Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1548
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf depill » Mið 11. Mar 2015 21:38

hakkarin skrifaði:
depill skrifaði: Annars munum við bara endanlega leggja restina af landinu í eyði.


Af hverju ætti byggðir að leggjast í eyði?

Hér er annars ágæt myndband.



On September 21, 2014, ITRCC filed for Chapter 11 bankruptcy. Vegna þess að vegir sem eru sjaldan farið yfir munu ekki vera viðhaldið ef allt er einkavætt.



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf urban » Mið 11. Mar 2015 21:44

Þar sem að 2 möguleikar verða alltaf til staðar og ríkið sér um hinn, þá má alveg skoða það.
(svipað og með hvalfjarðargöngin, nema að vegurinn um hvalfjörð væri almennilegur)

Annars er þetta alltaf NEI


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf hakkarin » Mið 11. Mar 2015 21:49

urban skrifaði:Þar sem að 2 möguleikar verða alltaf til staðar og ríkið sér um hinn, þá má alveg skoða það.
(svipað og með hvalfjarðargöngin, nema að vegurinn um hvalfjörð væri almennilegur)

Annars er þetta alltaf NEI


Það væri alveg ágæt að byrja á blönduðu kerfi. Þá væri það líka ok að hafa ríkisrekna vegi fyrir afar ákveðna staði (eins og til dæmis þá sem að koma okkur til þingvallar og á aðra svipaða þjóðlega staði), en almennt væri hægt að láta einkaaðila sjá um þetta.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf hagur » Mið 11. Mar 2015 22:10

Nei.

Nauðsynleg grunnþjónusta á að vera á höndum ríkisins.




bigggan
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf bigggan » Fim 12. Mar 2015 02:00

Nei, ég hef keyrt á einkavædd vegi í Asíu, og það er alveg fáránleg, 10 min fresti er tollað, þó að veiginnar eru flottar og með 5 akreinar báðum megin þá er það ekki nog til þess að rettlegga svona mikið af vegagjöld, finst mér.



Skjámynd

Skaz
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Lau 14. Sep 2013 01:48
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf Skaz » Fim 12. Mar 2015 09:23

Málið er að hér er um samgæði að ræða sem að mega ekki klikka og flestir vegir hérlendis eru ólíklegir til að vera arðbærir nema með gígantískri gjaldtöku. Og þú getur ekki valið annan veg sem að tekur lengri tíma til að keyra.
Flestir tollvegir sem að ég hef keyrt erlendis eru express dæmi. Þú ert að borga fyrir þægindi og hraða en það er alltaf valkostur. Æ
Annað mál er það að einkafyrirtæki eru að reyna að hagnast, það er þeirra thing og þau reyna að spara allstaðar. Og reynslan af einkavæddum samgæðum eins og í Bretlandi með járnbrautirnar hræðir. Þar leiddi sparnaður á viðhaldi lestarspora til slysa og fòlk dó. Þetta endaði með því að breska ríkið leysti aftur til sín lestarbrautirnar þó að einkafyrirtækin reki lestirnar.

Þannig að ég er nokkuð viss um að hér séu einungis fáir takmarkaðir staðir þar sem þetta virkar, verulega fáir.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5493
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1017
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf appel » Fim 12. Mar 2015 12:20

Ég er ekki á móti einkaframvæmdum í vegakerfinu, Hvalfjarðargöng eru gott dæmi um einkaframkvæmd sem heppnaðist vel.

En ég held að þetta ætti að vera í undantekningartilvikum frekar en almenna reglan.

Hvað með t.d. suðurlandsveg, á að selja hann til einkaaðila og láta hann tvöfalda hann? Hví ætti einkaaðili að tvöfalda veg eingöngu vegna umferðaröryggis? Reykjanesbrautin var tvöfölduð, ekki útaf því að hann var full-lestaður og umferðarteppum, heldur útaf umferðaröryggi.

Svo eru jarðgöng úti á landi þar sem innan við 1 þúsund bílar fara um á hverjum degi, það klárlega borgar sig ekki.

Svo er líka spurning með þann rétt mann að fara um land sitt.


Ríkið á bara að hækka álögur á bíla til að sinna vegakerfinu, svo einfalt er það. Ef það kostar að leggja vegi og viðhalda þeim þá á að borga fyrir það. Kannski er bensínið alltof ódýrt.


*-*

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2293
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 388
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf Moldvarpan » Fim 12. Mar 2015 13:04

appel skrifaði:Ríkið á bara að hækka álögur á bíla til að sinna vegakerfinu, svo einfalt er það. Ef það kostar að leggja vegi og viðhalda þeim þá á að borga fyrir það. Kannski er bensínið alltof ódýrt.



Mjög ósammála þessu, álögurnar eru NÓGU háar fyrir.

Málið er bara að þessir peningar eru ekki að skila sér í gatnakerfið og til vegagerðarinnar.
Þetta fer bara í einn stórann drullupoll sem heitir ríkissjóður og hann er eins og hann er.

Það ætti að skipta upp ríkissjóði og nota fjármagnið öðruvísi.




bigggan
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf bigggan » Fim 12. Mar 2015 13:16

En mér finst samt alt i lagi að sum vegkerfi td göngum og aðalvegir verði lagt á vegagjöld, eins og i hvalfjörðurinn og mundi finnast alt i lagi ef það væri sett upp eitt hlið á Hellisheiði til þess að fjármagna sá vegur betur. En það má ekki ofgera þetta.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5493
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1017
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf appel » Fim 12. Mar 2015 13:45

Ef ríkið myndi ákveða að selja vegakerfið í heild sinni eða hlutum, en selja að öllu leyti, þá væri vandamálið að feitustu bitarnir myndu eingöngu seljast, þ.e. þar sem umferðin er mest og þar af leiðandi tekjumöguleikar mestir. Það myndi enginn bjóða í einhvern afdalaveg sem fáir fara um, og fá þá kvöð á sig að halda honum úti.

Samkeppni í vegakerfi er eitthvað sem meikar engan sense fyrir mig heldur. Á að vera hægt að leggja marga vegi austur fyrir fjall? Hvaða hagkvæmni er í því? Getur Vegafyrirtækið HF. lagt nýjan vesturlandsveg í samkeppni við Vesturlandsveg HF.? Svo maður tali nú ekki um náttúruspjöllin að malbika yfir hraunbreiðuna.

Ég sé enga ástæðu að gera þetta að almennri reglu, frekar gera þetta að undtekningu, sbr. Hvalfjarðargöngin, þar sem vegasamgöngur voru ekki til fyrir.


*-*

Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Reputation: 3
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf rango » Fim 12. Mar 2015 15:26

Er ekki hægt að halda núvernadi fyrirkomulagi með gjaldtökuna enn einkavæða hluta af framkvæmdini?

S.s. áfram skattar enn að einkaaðilar geta tekið að sér viðhald á vegum?
Þannig er hægt að ná samkepni, Á sama tíma heldur ríkið í taumana uppá að hlutirnir séu ekki gerðir ílla.
Væntanlega verður vegagerðin áfram batterý enn töluvert minna batterý.

Eða er það líka afleit hugmynd?



Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf hakkarin » Fim 12. Mar 2015 16:09

Ok ég get tekið undir það sem að þið segið um að sumir vegir yrðu ekki gróðalegir undir venjulegum ástæðum, en erum við þá ekki eiglega bara að tala um landsbyggðarvegi? Væri ekki bara hægt að niðurgreiða hluta af viðhaldinu svo að raunhæft væri að græða á þeim? Þá væri raunhæfara að einkaaðilar sýni því áhuga að eiga þá.

EDIT: Vill benda á eitt í sambandi við það sem að sumir hafa sagt um tilraunir breta til að einkavæða lestakerfin. Mér skilst að japanir hafi gert þetta líka og gengið betur en bretunum.



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf tlord » Fim 12. Mar 2015 16:32

Það á auðvitað ekki að einkavæða þar sem samkeppni er ómöguleg. Það er samt eðlilegt og æskilegt að framkvæmdir séu boðnar út til verktaka.

Ungt fólk sem er heiðarlegt, hrekklaust og vel upp alið, telur oft að ríkisumsvif og ríkisrekstur sé góð hugmynd. NOT - því miður!!!

Reyndin er sú að ríkisrekstur sogar til sín óvandað fólk af ýmsu tagi, allt frá því að nenna ekki að vinna til þess að stela og svíkja sem mest.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Ættum við að einkavæða vegakerfið?

Pósturaf dori » Fös 13. Mar 2015 09:54

Ríkisrekstur+ógegnsæi er alltaf vond hugmynd. En eru gatnaframkvæmdir ekki boðnar út eins og er? Er ekki bara málið að það eru félög í eigu fólksins sem tekur ákvarðanir (eða tengdra aðila) um hver er valinn sem vinna öll útboð?

Sbr. http://www.ruv.is/frett/vissu-af-brotum ... ar-i-fyrra