Síða 1 af 1

Frozen CPU tímabundið niðri

Sent: Mið 11. Feb 2015 22:15
af Steini B
Núna er greinilega ekki rétti tíminn til að panta frá Frozen CPU þar sem það virðist allt vera niðri hjá þeim þessa dagana
og miklar sögusagnir um að þeir séu farnir á hausinn.
Allavega ekki sniðugt að panta á síðunni, þar sem það er ennþá hægt, fyrr en það er komið confirmed að þeir séu up and running...

Miklar umræður ásamt nýjustu fréttum
http://www.overclock.net/t/1540656/unof ... -its-doors

https://www.youtube.com/watch?v=Dw6LKjH-59U

Re: Frozen CPU tímabundið niðri

Sent: Mið 11. Feb 2015 22:21
af oskar9
Uggh, frekar fúlt... Ég pantaði helling frá þeim síðasta sumar, voru eldsnöggir að shippa öllu og allir hlutir komu réttir, þeir voru líka fljótir að svara tölvupóstum og mjög gott að eiga við þá.... :(

Re: Frozen CPU tímabundið niðri

Sent: Mið 11. Feb 2015 22:28
af Xovius
Já, hef góða reynslu af þeim líka. Vona að þeir komist aftur á sporið.

Re: Frozen CPU tímabundið niðri

Sent: Mið 11. Feb 2015 22:50
af Saber
Verslaði við þá fyrir nokkrum árum. Ekkert nema góð reynsla.

Re: Frozen CPU tímabundið niðri

Sent: Fim 12. Feb 2015 01:21
af FreyrGauti
Keypti alla vatnskælinguna hjá mér hjá þeim, mjög góð þjónusta, þetta er mjög svekkjandi.

Lenti í galla með aðra vatnsblokkina hjá mér og það dugði að senda þeim myndir af gallanum til að þeir sendu mér replacement part.