Síða 1 af 1
Batteríið í símanum allt í einu "ónítt" **Komið í lag
Sent: Fim 29. Jan 2015 08:00
af littli-Jake
Er með Iphone 3gs. Gamalt grey en gerir það sem ég ætlast til að síminn minn geri svo ég hef ekki séð ástæðu til að uppfæra fyrr en hann gefur upp öndina eða brotnar.
Fyrir nokkrum dögum varð hann alveg straumlaus hjá mér svo að ég hendi honum í hleðslu. Eftir þetta er batterys endingin gjörsamlega vonlaus. Gerði test á þessu í nótt. Tók hann úr hleðslu um 11 í gærkvöldi og þegar vekjaraklukkan vaktui mig í morgun rúmlega 7 var hann í 52%. Næstum helmingurinn farinn á um 8 tímum þar sem síminn var ekki snertur.
Verð ég bara að fara að sætta mig við að kaupa mér nýjan síma eða get ég gert eitthvað til að hressa upp á draslið?
Re: Batteríið í símanum allt í einu "ónítt"
Sent: Fim 29. Jan 2015 08:56
af Moldvarpan
Kaupa nýtt batterí? Það er ódýrara en nýr sími.
Svo þegar batteríin eru byrjuð að vera eh slöpp, þá munar rosalega um að slökkva á WiFi, sérstaklega eins og á nóttunum þar sem þú ert væntanlega ekki að nota WiFi.
Re: Batteríið í símanum allt í einu "ónítt"
Sent: Fim 29. Jan 2015 09:30
af littli-Jake
ráterinn fór í gólfið fyrir svona 2 mánuðum og síðan þá hefur ekki verið neitt wi-fi heima.
Re: Batteríið í símanum allt í einu "ónítt"
Sent: Fim 29. Jan 2015 09:45
af dori
Þú vilt væntanlega tékka á
iFixit leiðbeiningunum fyrir þetta. Nýtt batterí kostar ekki mikið en þú þarft náttúrulega mikla natni til að skemma ekkert.
Re: Batteríið í símanum allt í einu "ónítt"
Sent: Fim 29. Jan 2015 09:46
af Moldvarpan
Þótt það sé ekki WiFi til staðar, þá er síminn samt að nota orku ef þú hefur ekki Disable-að WiFi í símanum sjálfum

Getur fengið nýtt batterí fyrir um 10dollara ef þú vilt reyna blása lífi í símann.
http://www.amazon.com/Apple-Iphone-3gs-Replacement-Battery/dp/B004HJSECG
Re: Batteríið í símanum allt í einu "ónítt"
Sent: Fim 29. Jan 2015 14:27
af Viktor
Re: Batteríið í símanum allt í einu "ónítt"
Sent: Þri 03. Feb 2015 20:56
af lukkuláki
Ég á iPhone 3GS hvítan sem ég er ekkert að nota það er alveg fínt batterýið í honum eftir því sem ég best veit það heldur sér allavega í nokkra daga á standby. Ef þú vilt hann sendu mér þá PM.
Re: Batteríið í símanum allt í einu "ónítt"
Sent: Þri 03. Feb 2015 21:15
af littli-Jake
lukkuláki skrifaði:Ég á iPhone 3GS hvítan sem ég er ekkert að nota það er alveg fínt batterýið í honum eftir því sem ég best veit það heldur sér allavega í nokkra daga á standby. Ef þú vilt hann sendu mér þá PM.
Fallega boðið en þetta er komið í lag hjá mér. Held að ég viti hvað "vandamálið" var. Netinneygnin mín var búinn og síminn hefur verið að reyna að senda snaps en ekki getað það. Allavega er hann farinn að haga sér eðlilega núna.
Re: Batteríið í símanum allt í einu "ónítt" **Komið í lag
Sent: Þri 03. Feb 2015 21:34
af lukkuláki
OK hann fer mjög ódýrt ef einhver hefur áhuga, allavega fínn sem tónlistarspilari. PM me fyrir samningaviðræður
