Síða 1 af 1

Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 18:16
af zaiLex
http://www.rumfatalagerinn.is/skrifstof ... ta-3620042

Á einhver þennan stól?. Er að leita mér að nýjum skrifborðsstól. Er með leðurstól núna sem ég er mjög þreyttur á því að maður verður strax þreyttur í rassinum í honum. Held ég vilji ekki fara í leður aftur. Þessi stóll er sá eini sem mér líst á í rúmfó/ikea. Næsta skref fyrir ofan væri eitthvað mokdýrt í pennanum og svoleiðis búðum sem ég er ekki að tíma.

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 18:53
af Klemmi
Tók einmitt Rúmfó-IKEA rúnt rétt fyrir jól til að finna mér skrifborðsstól í jólagjöf frá foreldrunum.

Það var alveg sama sagan, þetta var sá eini sem mér leyst á, svo hann varð fyrir valinu. Er búinn að nota hann núna síðan á aðfangadagskvöld og get ekki sagt annað en að ég sé mjög ánægður með hann. Virkar voðalega traustur og varð allavega ekki meint af því að sitja í honum heilu næturnar í jólafríinu :)

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 19:12
af urban
Hvað kostar tölvan þín og aðrir tengdir hlutir ?

300k+ ? 400k+ ?

Stóll sem að menn sitja í, í nokkra klukkutíma á sólarhring á einfaldlega að eyða almennilegum pening í.

því meiri pening sem að þú eyðir í stól, því lengra er þangað til að þú þarft að gera það aftur og því betur líður þér í honum.

Ég segi fyrir mig, ekki spá í 30þús króna stólum, menn eiga að spá í miklu miklu dýrari stólum.

Þegar að við getum eytt hundruðum þúsunda í vélarnar hjá okkur (margir jafnvel nokkrum sinnum á ári) þá eigum við að vera með góða tölvustóla, sérstaklega þar sem að dýrir stólar endast í lang flestum tilfellum mun betur en ódýru stólarnir úr rúmfatalagernum/Ikea

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 19:46
af Frantic
Hvert er þá best að fara til að finna sér góðan stól?

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 19:50
af Viktor
Skil ekki hvernig fólk hefur það í sér að eyða 100þ+ í tölvustól.

Er búinn að eiga þennan í nokkur ár, það sér ekki á honum og ég er mjög sáttur.

http://www.rumfatalagerinn.is/skrifstof ... ur-3620061

Reyndar eru króm fætur á mínum, eins og á þessum:
http://www.rumfatalagerinn.is/skrifstof ... ur-3620021

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 20:12
af vesi
Ef þú ert í kringum 100kg. þá hefuru lítið í RL stól að gera.

Þurfti að endurnýja stólinn minn um daginn, RL stól sem dugði í tæpt ár.

Fór í þennan og gæti ekki verið sáttari
http://www.ikea.is/products/618

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 20:27
af oskar9
keypti þennan á síðasta ári: http://www.penninn.is/nanar/?productid= ... b3478ee263

hrikalega vandaður og stabíll stóll og ég finn ekki fyrir neinni þreytu eða verkjum eins og ég gerði oft áður í öðrum stólum og þetta er einhver bestu kaup sem ég hef gert og er þetta að vissu leyti bara fjárfesting sem maður þarf ekkert að hugsa um í mörg ár

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 20:35
af zaiLex
urban skrifaði:Hvað kostar tölvan þín og aðrir tengdir hlutir ?

300k+ ? 400k+ ?

Stóll sem að menn sitja í, í nokkra klukkutíma á sólarhring á einfaldlega að eyða almennilegum pening í.

því meiri pening sem að þú eyðir í stól, því lengra er þangað til að þú þarft að gera það aftur og því betur líður þér í honum.

Ég segi fyrir mig, ekki spá í 30þús króna stólum, menn eiga að spá í miklu miklu dýrari stólum.

Þegar að við getum eytt hundruðum þúsunda í vélarnar hjá okkur (margir jafnvel nokkrum sinnum á ári) þá eigum við að vera með góða tölvustóla, sérstaklega þar sem að dýrir stólar endast í lang flestum tilfellum mun betur en ódýru stólarnir úr rúmfatalagernum/Ikea


Tja það er tvennt sem kemur mér í huga. Í fyrsta lagi þá er allt þetta allt huglægt hvað maður er tilbúinn til að eyða í, stólar eru einfaldlega ekki mjög ofarlega á forgangsröðinni hjá mér. Síðan hef ég keypt mechanical keyboards fyrir yfir 200k, svona erum við mismunandi :D Finnst í öðru lagi líka vera voðalegt okur á stólum. Þessir pro stólar kosta formúu. Hef ekki ennþá hlammað mér í þann stól að ég finnist það 100+k virði. Síðasti stóll sem ég keypti mér var reyndar á 50k en hann reyndist drasl fyrir lengri tíma setu, þannig ég er mjög varhuga á því að splæsa big bucks í stól. Þetta er svolítið erfitt með stóla að það er oft allt annað að prófa þá í búðinni en þegar maður er komin með þá heim. Ég er einfaldlega á þeim stað í lífinu að mér finnst þess virði að kaupa mér einhverja svona cheap stóla, finnst ég vera fá 70% af virðinu fyrir 30% af peningnum. Þessi rúmfó stóll virðist vera eitthvers kona ripoff af þessum aerius stólum, good enough for me :D

Annars er ég forvitinn, hvernig stól ert þú með, og eitthvað sem þú mælir með?

vesi skrifaði:Ef þú ert í kringum 100kg. þá hefuru lítið í RL stól að gera.

Þurfti að endurnýja stólinn minn um daginn, RL stól sem dugði í tæpt ár.

Fór í þennan og gæti ekki verið sáttari
http://www.ikea.is/products/618


Hvað eru RL stólar?

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 20:38
af vesi
RL= Rúmfatalagerinn :)

Re: Skrifborðsstóll hjá rúmfó

Sent: Sun 18. Jan 2015 21:36
af urban
zaiLex skrifaði:
Tja það er tvennt sem kemur mér í huga. Í fyrsta lagi þá er allt þetta allt huglægt hvað maður er tilbúinn til að eyða í,

Auðvitað er þetta ekkert annað en huglægt.
ég ákvað bara að eyða vel í það sem að ég eyði stórum tíma af lífinu í.

Mér var kennt að maður á að eiga gott rúm og góða skó, ég ákvað að bæta þessu við, einfaldlega þar sem að ég nota minn það mikið.
zaiLex skrifaði: Síðan hef ég keypt mechanical keyboards fyrir yfir 200k, svona erum við mismunandi :D


Þessu hefði ég einmitt aldrei tímt. :)

zaiLex skrifaði:Annars er ég forvitinn, hvernig stól ert þú með, og eitthvað sem þú mælir með?

Reyndar verð ég að játa það að ég er bara hreinlega ekki klár á því hvað minn stóll heitir eða kostaði á sínum tíma(Veit að hann er frá Drabert), þar sem að ég fékk hann einfaldlega gefins þegar að ég ætlaði að fara að kaupa mér alvöru stól, en þessi stóll sem að ég er í var allavega 150þús króna græja á sínum tíma.

En ég veit það að ef að ég sæji nýjan svona stól til sölu í dag þá myndi ég hiklaust tíma að eyða í hann 200 þús.

Ég er búinn að eiga minn í allavegana 5 - 6 ár og er sjálfur um og yfir 100 kg.
Sá sem að átti hann sjálfur var tölvuvert þyngri en ég og notaði hann í 6 - 8 tíma á dag á skrifstofu hjá sér.