Síða 1 af 2

Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Lau 27. Des 2014 23:14
af rapport
Var að koma af Holbytlunni III

Fékk þrjá gjafamiða og ákvað að smella mér, kostaði samt 4.800 kr. að komast inn, s.s. popp og kók á línuna + 3D gleraugu.

Þurfti svo að bíða í röð í c.a. 10 mínútur eftir að vera hleypt inn, með þeim öftustu í röð sem náði inn í sjoppuna í Álfabakkanum.

Leiðin að sal 1 í Álfabakka er eins og göng inn í 80´s m.v. gólfteppið og veggina, sætin voru fín, hrein og þægileg.

Ég hljóma kannski bitur, en ég er fyrst og fremst vonsvikinn.

3D gerir ekkert fyrir mig eða upplifunina að fara í bíó (nema asnalegheit að þurfa að hafa gleraugu utanyfir mín venjulegu gleraugu), virðist bara vera e-h markaðsplott.

Verðið + biðin öll pirraði mig ekki, bara fyrirkomulagið að fólk á leið í sjoppuna væri endalaust að troða sér framhjá mér og ég alltaf að ýta mér í fólkið í kringum mig fyrr vikið.

Lookið og feelið að fara í bíó var "cheap" frá A til Ö og flest okkar þekkjum fólk sem er búið að toppa bíóin í performance ^2 í bæði hljóði, mynd og þægindum (enda ekki erfitt).


Bíó hefur ekkert nema þjónustu að bjóða og þjónustan er hreinlega bara léleg.

Það er ekki skrítið að fólk nenni ekki að stunda þetta lengur.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Lau 27. Des 2014 23:27
af appel
Bíóin eru í útrýmingarhættu. Eina sem heldur lífinu í þeim er úrelt dreifingamódel Hollywood að gefa myndir fyrst út í bíóhúsum. Þegar það módel breytist þá fækkar bíóhúsum snarlega þar til þau þjóna bara ákveðnu "niche" hlutverki, þ.e. sumir vilja enn fara í bíó, en aðal-massinn og markaður fyrir útgáfu verður í streymingu heim til fólks.

Ef stúdíóin vilja ekki breytast þá koma bara nýjir aðilar á markaðinn, sbr. Netflix, og framleiða kvikmyndir til frumsýningar í streymingu.

Núna er fólk að uppfæra sjónvarpið heima hjá sér og margir eru að fara í 50-65" 4K LED tæki. Gæðin á heimaupplifun er orðin slík að bíótjaldið hefur lítið upp á að bjóða. Þetta er ekki lengur einsog var fyrir 15-20 árum síðan þegar allir voru með SD túbutæki og mono-audio sjónvarp þá klárlega var bíóupplifun mun betra, en í dag er heimaupplifun orðin alveg jafn góð ef ekki betri myndi ég segja.

Svo á næstu árum mun virtual reality headset geta boðið upp á bæði að horfa á myndir í bíósal og einnig allt öðruvísi afþreyingarupplifun, þannig að maður sér ekki hvernig svona kommúnal form sem bíóhús eru geti lifað það af.


Mér finnst fáránlegt að The Interview hafi ekki verið aðgengileg fyrir aðra en Bandaríkjamenn. Það er nákvæmlega engin ástæða fyrir að gefa hana ekki út alþjóðlega. Myndin er langvinsælasta torrent efnið í dag, milljónir búnir að sækja hana ólöglega. Talandi um "missed opportunity".

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Lau 27. Des 2014 23:29
af oskar9
ég pirra mig aðalega á popp poka skrjáfinu, símunum og þessu fjandans hléi í miðri mynd svo hægt sé að selja meira overpriced nammi alveg óþolandi.

Eftir að ég fékk mér 48" tæki inní sjónvarpsherbergi ásamt öflugu DALI og yamaha hljóðkerfi þá hef ég látið bíóin eiga sig, nú getur maður horft á myndir eftir sinni hentisemi og þarft ekki að þola alla hina í salnum.
Þetta er vissulega dýrt að koma sér upp almennilegu setupi heima en með sífellt hækandi miða og nammi verði þá kostar bíóferð fyrir eina fjölskyldu ekkert grín....

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 00:37
af ZiRiuS
60fps er fucked up, hata það drasl meira en 3D...

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 01:04
af rapport
En væri ekki líka eðlilegra að bjóað bara meira upp á VIP bíó, engin bið frammí sjoppu, endalaust popp og jafnvel litla sali með góðum skjávarpa.

Mynd að eigin vali fyrir litla hópa o.s.frv.

Alveg viss um að margar fjölskyldur mundu hittast saman og horfa á mynd fyrir jólin svoleiðis frekar en að hverfa í hítina í risa sal...

Þjónustan er "valid" ef fólk fær að ráða forsendunum og verðinu meira sjálft.

Þá væri meiri markaður fyrir afmæli, vinnustaði, saumaklúbba, karklaklúbba o.s.frv.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 01:28
af kiddi
Var að koma af Hobbit 3, HFR útgáfunni, eða High Frame Rate í Egilshöll- en það er einmitt einu skiptin að mér finnst sem 3D/stereotæknin raunverulega virkar.

Ég er bæði sammála og ósammála flestu sem er hér að ofan, þetta endar sennilega með því að bara "blockbuster" myndirnar skila sér í bíóhúsin og þá með einhverjum gimmicks, allavega spáðu George Lucas & Steven Spielberg því sameiginlega fyrir nokkrum árum í blaðaviðtali, að bíóupplifun framtíðarinnar væri einhverskonar spectacle, og bara örfáar myndir yrðu frumsýndar á ári. Persónulega finnst mér gaman að fara í bíó, það er ákveðin hátíð fyrir mig að fá útivistarleyfi frá fjölskyldunni og fara út að hitta félagana í bíó, kaupa goslaust gos og bragðlaust popp og hlusta á skrjáfið og horfa á birtuna frá símunum sem allir eru í. Grínlaust, ég hef gaman að því.

Það eina hinsvegar sem gerir mig snælduvitlausan og bókstaflega rauðan af bræði, er þegar ég fæ þessa "áminningu" á bíótjaldið frá "rétthöfum" að upptökur séu bannaðar í salnum. Pardon my french, en give me a f*****g break - eru þetta verðlaunin fyrir að borga sig inn í bíósal, að fá þessa áminningu af því að einhverntíman, var einhver 13 ára gutti sem tók þetta upp á videoupptökutæki í skítagæðum? Í alvöru? Eru Íslendingar virkilega upp til hópa að horfa á íslenskar heimagerðar bíóupptökur og valda bíóhúsunum og rétthöfum fjárhagslegu tjóni? Á þessi andskotans skjáauglýsing frá rétthöfum raunverulega rétt á sér? Ég er alltaf á leiðinni að skrifa opið bréf á Facebook eða eitthvað þar sem ég drulla hægri vinstri yfir bíóhúsin og alla sem við koma því máli, en hætti svo við þegar ég fatta að ég vinn fyrir margt af þessu liði. ](*,)

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 02:03
af KermitTheFrog
kiddi skrifaði:Það eina hinsvegar sem gerir mig snælduvitlausan og bókstaflega rauðan af bræði, er þegar ég fæ þessa "áminningu" á bíótjaldið frá "rétthöfum" að upptökur séu bannaðar í salnum. Pardon my french, en give me a f*****g break - eru þetta verðlaunin fyrir að borga sig inn í bíósal, að fá þessa áminningu af því að einhverntíman, var einhver 13 ára gutti sem tók þetta upp á videoupptökutæki í skítagæðum? Í alvöru? Eru Íslendingar virkilega upp til hópa að horfa á íslenskar heimagerðar bíóupptökur og valda bíóhúsunum og rétthöfum fjárhagslegu tjóni? Á þessi andskotans skjáauglýsing frá rétthöfum raunverulega rétt á sér? Ég er alltaf á leiðinni að skrifa opið bréf á Facebook eða eitthvað þar sem ég drulla hægri vinstri yfir bíóhúsin og alla sem við koma því máli, en hætti svo við þegar ég fatta að ég vinn fyrir margt af þessu liði. ](*,)


Ég er orðlaus...

Afhverju ertu svona pirraður yfir því að það sé réttilega bent á að það er bannað að taka myndina upp? Ég efast um að þetta nái að lifa í 10 sekúndur á tjaldinu.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 03:34
af Tesy
Það er samt án djóks "ekki hægt að gera neitt annað á Íslandi" annað en að fara í bíó og ég hef actually gaman að því. Skil vel að sumir finnst betra að horfa á myndir heima hjá sér en ég persónulega hef ekki þolinmæðina í að bíða nokkrar mánuðir til að sjá nýja mynd í góðum gæðum.

Hins vegar er fátt sem ég hata meira en þegar fólk klappar eftir bíómynd.. WTF! stuuup iit

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 10:37
af depill
kiddi skrifaði:horfa á birtuna frá símunum sem allir eru í. Grínlaust, ég hef gaman að því.


Grínlaust, þetta er að eyðileggja það að fara í bíó. Og jafnvel út að borða stundum. Getið þið ekki látið þessa anskotans fjandans síma í friði í fjandan klukkutíma *GAMLI BITRI KALLINN*.

En samt án gríns þetta er að gera okkur alveg félagslega þroskaheft.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 11:01
af toybonzi
kiddi skrifaði: Það eina hinsvegar sem gerir mig snælduvitlausan og bókstaflega rauðan af bræði, er þegar ég fæ þessa "áminningu" á bíótjaldið frá "rétthöfum" að upptökur séu bannaðar í salnum. Pardon my french, en give me a f*****g break - ](*,)



Uss, það er nú ekkert miðað við viðbjóðinn sem þeir troða í byrjun DVD mynda sem maður kaupir..... YOU WOULD NOT STEAL A CAR dum dum dum. Það er það allra ömurlegasta þar sem að maður er þá búinn að KAUPA hana til að nota heiðarlega HEIMA hjá sér.

Skamm skamm rétthafar :)

En annars fíla ég ágætlega að fara í bíó. Búinn að sjá fjórar ágætis myndir í þessum mánuði. Það sem fer þó í taugarnar á mér er það að ég þurfi að kaupa mér gosið áður en ég fer í flest bióin í dag þar sem að þau selja bara uppþvottalög ;)

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 11:15
af CendenZ
Talandi um þessi innskot í DVD... maður getur ekki sett teiknimyndir í dvd/blueray tækið nema sonurinn þurfi að horfa á 8 mínútur af auglýsingum og rétthafakjaftæðið. Svo eru öll function bönnuð. Það er alveg pirrandi!:)

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 11:23
af kiddi
KermitTheFrog skrifaði:Afhverju ertu svona pirraður yfir því að það sé réttilega bent á að það er bannað að taka myndina upp? Ég efast um að þetta nái að lifa í 10 sekúndur á tjaldinu.


Þetta er svolítið preaching to the choir, meira táknrænt frekar en annað. Það myndi pirra mig alveg jafn mikið þó skiltið lifði bara í 2sek. 99,9999% allra sem fara í bíó hafa engan áhuga á því að dröslast með upptökuvél og halda henni stöðugri í tvo klukkutíma svo þeir geti náð sér í download kvóta á Deildu.net. Að mínu mati ætti frekar að standa á þessu skilti: "Takk fyrir að koma og borga fyrir bíómiða frekar en að downloada myndinni heima hjá þér!". Eins og CendenZ benti réttilega á, þá varð ég sömuleiðis pirraður þegar ég sá þessi no-skip "þú myndir ekki stela" video á DVD diskum, það er einmitt til þess fallið að hvetja til ólöglegs niðurhals frekar en hitt, þegar ólöglega niðurhalið hleypir þér beint í myndina með engum auglýsingum, á meðan DVD diskar sem kostuðu 2-3þús píndu þig með nokkrum mínútum af auglýsingum, m.a. þessu forvarnameistarastykki.

Þetta er semsagt í mínum huga, algjört og absolút virðingarleysi í minn garð sem neytanda/kaupanda, að troða þessum skilaboðum framan í mig, þegar ég er nýbúinn að borga 1350-2600kr fyrir bíómiðann.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 11:30
af hagur
Sammála Kidda hér að ofan og dettur þessi mynd í hug:

Mynd

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 16:34
af tdog
Prófiði að fara í bíó uppi á Akranesi, fullkomin sýningarvél og kósý andrúmsloft :)

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 20:09
af Elisviktor
Þetta er úrelt fyrirbæri.

á öllum svona úreltum sviðum er til fólk sem á mikla hagsmuni að gæta og ætlar að troða hlutunum ofaní kokið á neytendum.

Ég hef engann áhuga á að kaupa dvd myndir. Nenni ekki að vera með 100 dvd hulstur útum alla íbúð, enda bý ég í lítilli íbúð. Nenni ekki að vera neyddur til að horfa á auglýsingar á efni sem ég kaupi.
Mér hefur alltaf fundist hrikalega leiðinlegt að fara í bíó. Meira að segja þegar ég var krakki. Fyrir utan hversu dýrt þetta er orðið. Þetta er ca 3þ kall á mann í venjulegann sal.
Var með netflix í sirka ár og fannst það frábært. Ekki nægilega mikið af nýju efni að mínu mati en aftur á móti hræódýrt 6-800kr ef ég man rétt. Ég myndi hreinskilningslega eyða um 3þkr á mán í svona þjónustu sem væri mjög góð.
Fékk símtal frá stöð 2 um daginn sem var að reyna að selja mér áskrift. Verðið var bara brandari, mér fannst þetta eiginlega bara fyndið.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 22:31
af Daz
CendenZ skrifaði:Talandi um þessi innskot í DVD... maður getur ekki sett teiknimyndir í dvd/blueray tækið nema sonurinn þurfi að horfa á 8 mínútur af auglýsingum og rétthafakjaftæðið. Svo eru öll function bönnuð. Það er alveg pirrandi!:)

Hot tip:
Prófaðu að ýta á STOP-STOP-PLAY (eða STOP-STOP-STOP-PLAY, eða ef þú ert klikk, STOP-STOP-STOP-STOP-PLAY) um leið og auglýsingarnar byrja. Virkar hjá mér :happy

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 23:02
af Framed
Fyrir mitt leyti sé ég takmarkaðan ávinning af því að horfa á dvd diska heima hjá mér vegna, more or less, þess sem hefur komið fram hér fyrir ofan. Mér þykir hins vegar ennþá gaman að því að fara í bíó. Það kemur að mestu til þar sem ég hef ekki haft efni á að koma mér upp glápsgræjum sem komast nálægt gæðunum eða upplifuninni af bíóferð. Ég sé heldur ekki fram á að hafa efni á því í náinni framtíð (já, jafnvel þrátt fyrir niðurfellingu vörugjalda).

Það eru ekki allir sem hafa efni á 60" tv (eða skjávarpa) og heimabíókerfi. Ég myndi hins vegar líklega reyna að koma upp einhverju slíku setup-i ef ég væri með stóra fjölskyldu sem hefði þá hefð að fjölmenna í bíó 1-2 í mánuði. Í því scenario-i væri kostnaðurinn við mánaðarlegu bíóferðina farin að slaga upp í afborgun af almennilegu heimabíókerfi.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Sun 28. Des 2014 23:26
af capteinninn
Ég fer bara í bíó ef þetta eru einhverjar stórmyndir sem mér finnst þurfa að upplifa það í bíó eins og t.d. Interstellar sem var um daginn.

Fer heldur ekki í neitt bíó nema Egilshöll en ég gæti hugsanlega farið í Bíó Paradís en ég er ekki að leitast eftir neinni "upplifun" ef ég færi í það bíó nema bara myndin sjálf og andrúmsloftið í húsinu.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Mán 29. Des 2014 09:47
af Jón Ragnar
Ég er með semi félagsfælni

Finnst oftast mjög óþæginleg tilhugsun að fara í bíó. NEMA það sé Egilshöllin, Personal space þar er svo gott.

Lenti í Álfabakka einu sinni í stóra salnum í kjallaranum að fara á mynd um sumar þegar 160kg+ gæi sest hliðina á mér í hlýrabol með svitalykt dauðans.

Áunnin félagsfælni þar :thumbsd

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Mán 29. Des 2014 10:13
af Xovius
ZiRiuS skrifaði:60fps er fucked up, hata það drasl meira en 3D...

Hvað er að því?
Sjálfur spila ég til dæmis alla mína leiki á 144hz skjánum mínum og finnst fleiri fps alltaf vera betra. Þetta truflar mig einmitt stundum í hröðum myndum að sjá hvað framerateið er ótrúlega lágt.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Mán 29. Des 2014 11:20
af depill
Jón Ragnar skrifaði:Finnst oftast mjög óþæginleg tilhugsun að fara í bíó. NEMA það sé Egilshöllin, Personal space þar er svo gott.


Ertu búinn að fara samt nýlega. Ég fór fyrir 2- 3 mánuðum og sætin eru orðin ekkert smá rifin/slitin. Annað er samt gott þarna

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Mán 29. Des 2014 12:21
af valdij
Fór einmitt í fyrsta skipti í nokkuð langan tíma í Egilshöllina um daginn, var leiður að sjá hversu ljót sætin voru orðin (Salur 1)

En fyrir utan það er þetta by-far besta bíóið á landinu. En þeir ættu þá líka að dreyna drullast til að halda í þá sérstöðu og ekki leyfa þessu að grotna svona fljótt niður.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Mán 29. Des 2014 14:36
af Jón Ragnar
depill skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Finnst oftast mjög óþæginleg tilhugsun að fara í bíó. NEMA það sé Egilshöllin, Personal space þar er svo gott.


Ertu búinn að fara samt nýlega. Ég fór fyrir 2- 3 mánuðum og sætin eru orðin ekkert smá rifin/slitin. Annað er samt gott þarna



Var í Sal 1 á Interstellar

Tók ekki eftir neinu, Var reyndar frekar ofarlega.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Mán 29. Des 2014 16:42
af Arena77
Hef ekki farið í bíó sl 3 ár, mér finnst myndin einfaldlega betri í sjónavarpinu heima hjá mér, lenti líka í því síðast þegar ég fór í bíó voru krakkar á fyllerí fyrir aftan okkur
og þögnuðu ekki allan tímann svo ég missti alveg af myndinni, þoli ekki hléið og auglýsingarnar fyrir myndina og skráfið í poppinu, nei takk ég fer aldrei aftur í bíó.

Re: Að fara í bíó v.s. önnur miðlun

Sent: Mán 29. Des 2014 17:14
af worghal
ég fer einstakasinnum í bíó en ég geri það þá aðeins ef að einhverjir vinir mínir nenna að draga mig með.
Annars er ég búinn að vera að safna smá dvd og blu-ray. ég kaupi nú orðið mikið að utan og nánast eingöngu Steelbook.
Núna í þessum mánuði fékk ég mér Jumanji, iron sky, they live, guardians of the galaxy og clerks á steelbook blu-ray.
Margar af þessum myndum sem ég kaupi eru gefnar út í mjög takmörkuðu upplagi og ég sé smá verðmæti í því persónulega.
Á orðið ágætis safn af blu-ray steelbooks og er hæst ánægður með það.

safnið mitt.
http://www.blu-ray.com/community/collec ... p?u=258182