Spurning um inntöku lyfja samtímis

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf Krissinn » Mán 08. Des 2014 23:28

Gott kvöld.

Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hér vissi hvort það mætti taka Paratabs og Ibúfen með Tramadoli?



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7157
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1044
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf rapport » Mán 08. Des 2014 23:33

Bjallaðu í næsta apótek eða slysó... dont take any chances



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1550
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 217
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf depill » Mán 08. Des 2014 23:37

Konan mín er lyfjafræðingur og sagði
I raun og veru er það allt i lagi en þu tekur liklegast ekki tramadol og paratabs a sama tima þar sem þu ert liklegast a tramadoli þar sem paratabs er ekki að virka. Paratabs er vægt verkjalyf og tramadol er millisterkt verkjalyf. Einu aðstæðurnar sem ég myndi sja fyrir mer einstakling að taka öll þrju lyfin væri ibufen við bolgu, færri skammtar en má af tramadóli teknir og paratabs þess á milli


Edit: Alltaf gott samt að hringja í lækninn sem skrifaði á þig Tramadoli til þess að vera viss.



Skjámynd

SIKk
Geek
Póstar: 870
Skráði sig: Mið 25. Mar 2009 20:55
Reputation: 7
Staðsetning: Hafnarfjarðarsveit
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf SIKk » Mán 08. Des 2014 23:41

Ég er með ónýt nýru, Sem gerir mig extra viðkvæmann fyrir vitlausri samsetningu lyfja og ég hef oft tekið þetta combo án afleiðinga, Svoleiðis að ég myndi stimpla þig safe fyrst ég er safe :)

En fáðu samt bara að tala lyfjafræðing við apóteki ef þú ert ekki viss, Alltaf betra að fá ráðgjöf frá fagaðila ef maður er í einhverjum vafa :happy


Just a Pc master race member that converted to a simple life as a console peasant


Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf Bjosep » Mán 08. Des 2014 23:48

zjuver skrifaði:Alltaf betra að fá ráðgjöf frá fagaðila ef maður er í einhverjum vafa :happy


Þegar þú spyrð faglegra spurninga á spjallborði sem tengist því fagi EKKERT þá er besta svarið ALLTAF: Hringdu í fagmann!

Í þessu tilfelli Lækni/Lyfjafræðing

P.S. Þetta var ekki skot á Zjuver



Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf Krissinn » Þri 09. Des 2014 03:35

depill skrifaði:Konan mín er lyfjafræðingur og sagði
I raun og veru er það allt i lagi en þu tekur liklegast ekki tramadol og paratabs a sama tima þar sem þu ert liklegast a tramadoli þar sem paratabs er ekki að virka. Paratabs er vægt verkjalyf og tramadol er millisterkt verkjalyf. Einu aðstæðurnar sem ég myndi sja fyrir mer einstakling að taka öll þrju lyfin væri ibufen við bolgu, færri skammtar en má af tramadóli teknir og paratabs þess á milli


Edit: Alltaf gott samt að hringja í lækninn sem skrifaði á þig Tramadoli til þess að vera viss.


Takk fyrir svarið :) Ég tek Tramadol við gigtarverkjum og fæ því skrifað uppá það. Málið er að ég hef náð mér í einhverja pest og því vantaði mig eitthvað hitalækkandi. Afgreiðslustúlka í apóteki sagði að oft væri tekið paratabs á móti td íbúfen-i til að magna upp áhrif. Og í þessu tilfeli þá var ég að sækjast eftir öflugari hitalækkandi virkni :) Steingleymdi að spyrja hvort það væri í lagi að taka þetta þrennt saman :p




ASUSit
Fiktari
Póstar: 81
Skráði sig: Sun 15. Jún 2014 02:26
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf ASUSit » Þri 09. Des 2014 03:43

krissi24 skrifaði:Gott kvöld.

Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hér vissi hvort það mætti taka Paratabs og Ibúfen með Tramadoli?


Eftir að hafa lesið nokkuð ítarlega um "víxlverkun" þessara þriggja lyfja (paracetamol, ibuprofen og tramadol) að þá er engin sérstök hætta sem fylgir því fyrir almennt heilbrigðan einstakling að taka þessi þrjú lyf samtímis. Meðal annars er til lyf (þó hvorki skráð lyf hérlendis né fáanlegt með undanþágu frá markaðsleyfi) sem inniheldur bæði paracetamol og tramadol og er selt undir nafninu Tramacet. Ibuprófen er þekkt fyrir að geta valdið magaóþægindum (allt frá verkjum og yfir í ógleði/uppköst og niðurgang), en í einhverjum tilvikum virðist sem samtímis inntaka ibuprofens og tramadóls auki á þessi óþægindi.

Þessar upplýsingar eru fengnar á vef drugs.com ásamt því sem víxlverkun lyfjanna var einnig skoðuð þar (drug interactions og þessi þrjú lyf valin). Þó svo að þessi samsetning lyfja virðist í flestum tilvikum vera í lagi, að þá skal í öllum tilvikum ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing áður en lyfin eru tekin inn. Lyf geta í sumum tilvikum haft gífurlega skaðleg áhrif á líkamsstarfsemina og í stöku tilvikum valdið varanlegum skaða ef óvarlega er farið.

Þú getur alltaf fengið að tala við lyfjafræðing ef þú hringir í apótek á opnunartíma þess. Mögulegt er að hafa samband við 1) neyðarsíma Lyfjastofnunar: 616-1444 eða ef þú hefur tekið inn lyf og ert í vafa um öryggi þitt að hringja í neyðarlínuna, 112, en þaðan var síðast þegar ég vissi hægt að fá beint samband við einhvern ákveðinn vakthafandi lækni án tafar.

:japsmile



Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf Krissinn » Þri 09. Des 2014 03:44

zjuver skrifaði:Ég er með ónýt nýru, Sem gerir mig extra viðkvæmann fyrir vitlausri samsetningu lyfja og ég hef oft tekið þetta combo án afleiðinga, Svoleiðis að ég myndi stimpla þig safe fyrst ég er safe :)

En fáðu samt bara að tala lyfjafræðing við apóteki ef þú ert ekki viss, Alltaf betra að fá ráðgjöf frá fagaðila ef maður er í einhverjum vafa :happy


Takk fyrir svarið, Já, það er notla best :)



Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf Krissinn » Þri 09. Des 2014 03:51

ASUSit skrifaði:
krissi24 skrifaði:Gott kvöld.

Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hér vissi hvort það mætti taka Paratabs og Ibúfen með Tramadoli?


Eftir að hafa lesið nokkuð ítarlega um "víxlverkun" þessara þriggja lyfja (paracetamol, ibuprofen og tramadol) að þá er engin sérstök hætta sem fylgir því fyrir almennt heilbrigðan einstakling að taka þessi þrjú lyf samtímis. Meðal annars er til lyf (þó hvorki skráð lyf hérlendis né fáanlegt með undanþágu frá markaðsleyfi) sem inniheldur bæði paracetamol og tramadol og er selt undir nafninu Tramacet. Ibuprófen er þekkt fyrir að geta valdið magaóþægindum (allt frá verkjum og yfir í ógleði/uppköst og niðurgang), en í einhverjum tilvikum virðist sem samtímis inntaka ibuprofens og tramadóls auki á þessi óþægindi.

Þessar upplýsingar eru fengnar á vef drugs.com ásamt því sem víxlverkun lyfjanna var einnig skoðuð þar (drug interactions og þessi þrjú lyf valin). Þó svo að þessi samsetning lyfja virðist í flestum tilvikum vera í lagi, að þá skal í öllum tilvikum ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing áður en lyfin eru tekin inn. Lyf geta í sumum tilvikum haft gífurlega skaðleg áhrif á líkamsstarfsemina og í stöku tilvikum valdið varanlegum skaða ef óvarlega er farið.

Þú getur alltaf fengið að tala við lyfjafræðing ef þú hringir í apótek á opnunartíma þess. Mögulegt er að hafa samband við 1) neyðarsíma Lyfjastofnunar: 616-1444 eða ef þú hefur tekið inn lyf og ert í vafa um öryggi þitt að hringja í neyðarlínuna, 112, en þaðan var síðast þegar ég vissi hægt að fá beint samband við einhvern ákveðinn vakthafandi lækni án tafar.

:japsmile


Takk fyrir góðar upplýsingar :D Ég hef tekið íbúfen með tramadol-i áður og það virkar fínt, var áður að taka Voltaren rapid + Tramadol og það var alls ekki góð blanda í mínu tilfelli. Lyf sem innihalda Díklófenak fara frekar illa í mig almennt. Var bara ekki viss aðallega hvort paratabs væri í lagi í þessari samsetningu. En auðvitað hefði ég átt að orða þetta öðruvísi þá í upphafi hehe :)



Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 990
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 137
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf brain » Þri 09. Des 2014 11:10

Var í hnéskipta aðgerð í sumar

Tók Paratabs og Tramadól saman, 2x4 á sólarhring af hvoru.

ss 16 töflur samanlagt.

Þetta var vikuskamtur sem ég fékk með mér eftir útskrift.

Var ekki meint af.



Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf Krissinn » Þri 09. Des 2014 19:45

brain skrifaði:Var í hnéskipta aðgerð í sumar

Tók Paratabs og Tramadól saman, 2x4 á sólarhring af hvoru.

ss 16 töflur samanlagt.

Þetta var vikuskamtur sem ég fékk með mér eftir útskrift.

Var ekki meint af.


Nú jæja, Vonandi ertu búinn að ná þér að fullu :)




Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf Bjosep » Mið 10. Des 2014 01:10

missranny skrifaði:Fyrsta skipti sem eg sé lyfja umræðu hér og aldrei séð jafngóð svör og skjót viðbrögð,hér ræður skynsemin ríkjum. En hverjum datt í hug windows 8,ég held að ég skipti niður í windows 7 á nýju fartölvunni svo hún endi ekki með að vera kastað út um gluggann. Það er alltaf eitthvað á hverjum degi, windows 7 var ekkert að kvarta yfir hola eða HMA núna virka ekki browserarnir af því þetta conflictar við serverin þar sem ég er í áskrift. Mig vantar svo að geta náð í það sem ég horfi vanalega en hvað sem ég prófa gerir allt vitlaust í tölvunni og svo fer allur timin í að laga allt aftur HJÁLP einhver


Verkjalyf -> Windows 7 vs 8 ...

Skilgreiningin á þráðarráni.

Búðu til nýjan þráð með lýsandi titli og einhver svarar.

Feldu fyrirspurnina þína í einhverjum þræði og ... enginn svarar ?




tkp12
Nörd
Póstar: 123
Skráði sig: Fös 07. Nóv 2014 13:43
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf tkp12 » Fös 26. Des 2014 04:32

krissi24 skrifaði:Gott kvöld.

Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hér vissi hvort það mætti taka Paratabs og Ibúfen með Tramadoli?


Slepptu þessu öllu. Þetta eru bæði skaðleg efni. Borðaðu hollan mat, drekktu meira vatn og fáðu meiri hvíld.



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Spurning um inntöku lyfja samtímis

Pósturaf Gúrú » Fös 26. Des 2014 07:02

tkp12 skrifaði:
krissi24 skrifaði:Gott kvöld.

Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hér vissi hvort það mætti taka Paratabs og Ibúfen með Tramadoli?


Slepptu þessu öllu. Þetta eru bæði skaðleg efni. Borðaðu hollan mat, drekktu meira vatn og fáðu meiri hvíld.


Eflaust auðvelt fyrir mann sem er með áskrift að Tramadoli og íhugar að taka meiri verkjalyf að "hvíla" sig þegar hann sleppir því.

Eflaust mjög ánægjulegt.

Frábært að vekja 2 vikna gamlan þráð með þessu bulli.


Modus ponens