Síða 1 af 1
Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:23
af appel
Truflanir virðast vera á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu sem getur valdið því að netbúnaður slær út og missir samband.
Var að lenda í þessu rétt í þessu.
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:30
af Danni V8
Líka á Suðurnesjunum. Erum 3 að spila saman og lentum allir í ljósaflökti rétt áðan.
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:32
af appel
Er að heyra af rafmagnsleysi í sumum hverfum í borginni.
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:32
af GuðjónR
Ljósin hérna eru eins og blikkseríur, búinn að kveikja á fimm kertum til vonar og vara.
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:35
af rickyhien
er ekki að ná internetinu eftir rafmagnsleysi
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:53
af gutti
Er í hátúni 105 tók eftir að rafmagnið fór að blikka 1 sinnu
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:59
af GuðjónR
rickyhien skrifaði:er ekki að ná internetinu eftir rafmagnsleysi
Gætir þurft að re-setta routerinn.
En ef þú gerir það, þá þarftu að setja notendaupplýsingarnar þínar aftur upp.
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 22:01
af depill
7 9 13 ekkert í Grafarvoginum, meiri segja töluvert skýli hérna hjá mér.
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 22:02
af Framed
Var að stinga eina þráðlausa tækinu sem ekki er fullhlaðið í samband einmitt vegna ítrekaðra blikkandi ljósa. Er í efri hluta Seljahverfis.
Nú er ég bara að vona að 3/4G sambandið haldist uppi þó húsarafmagnið fari. Er í miðjum prófalestri og má ekki missa netið núna.
Man að vísu ekki til þess að rafmagnið hafi farið hérna þau fimm ár sem ég hef búið hérna.
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 22:05
af kiddi88
Er í 111 rvk það var rafmagnslaust í nokkrum íbúðum í stigagangum mínum í 1,5 klst og netlaus í hálftíma eftir það en allt komið í lag núna.
Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 22:19
af Plushy
Flökti smá ljósið hjá mér.
Annars fór ég í hagkaupa rétt áðan, þá var ekki hægt að borga nema með peningum, og hraðbankinn var líka niðri svo ekki var hægt að kaupa peninga.
Ég sem vildi bara kaupa mitt beikon, rjóma og tape

Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Sun 30. Nóv 2014 23:54
af rango
Ég er greinilega ekki sá Eini sem stakk öllu sínu í hleðslu þegar ljósin blikkuðu.

Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Mán 01. Des 2014 09:13
af hagur
Plushy skrifaði:Flökti smá ljósið hjá mér.
Annars fór ég í hagkaupa rétt áðan, þá var ekki hægt að borga nema með peningum, og hraðbankinn var líka niðri svo ekki var hægt að kaupa peninga.
Ég sem vildi bara kaupa mitt
beikon, rjóma og tape 
Rjómalagað beikon bondage?

Re: Truflanir á rafmagni á höfuðborgarsvæðinu
Sent: Mán 01. Des 2014 09:16
af Plushy
hagur skrifaði:Plushy skrifaði:Flökti smá ljósið hjá mér.
Annars fór ég í hagkaupa rétt áðan, þá var ekki hægt að borga nema með peningum, og hraðbankinn var líka niðri svo ekki var hægt að kaupa peninga.
Ég sem vildi bara kaupa mitt
beikon, rjóma og tape 
Rjómalagað beikon bondage?

Allir hafa sitt blæti.