
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/ ... eildu_net/
ferdinand94 skrifaði:Ætli þetta endi ekki í því að löggan fari að tracka fólk sem er að niðurhala og setja það í fangelsi eða á skilorð? Þar sem fangelsin verða svo full af fólki sem niðurhalar og þá verða nauðgarar og morðingjar lausir á skilorði xD
rango skrifaði:ferdinand94 skrifaði:Ætli þetta endi ekki í því að löggan fari að tracka fólk sem er að niðurhala og setja það í fangelsi eða á skilorð? Þar sem fangelsin verða svo full af fólki sem niðurhalar og þá verða nauðgarar og morðingjar lausir á skilorði xD
Nei maður þessvegna eru þeir að smygla inn byssunum
hallihg skrifaði:Athyglisvert að síminn lokar á deildu.net, piratebay og þess til viðbótar iceland.pm. Síðasta lénið kom til eftir að úrskurður héraðsdómara féll um lögbannið, þannig það á ekki að geta hafa verið hluti af lögbannsbeiðni STEF sem sýslumaður hafnaði, og dómari samþykkti síðan.
Vodafone hafa nú lokað á tiltekin lén, deildu.net og piratebay, en ekki iceland.pm
Ég fæ ekki séð annað en að úrskurðirnir tveir í héraðsdómi Rvk gagnvart annars vegar Fjarskipti hf. (Vodafone) og Símanum hins vegar varði nákvæmlega sömu lénin, þ.e. http://www.deildu.net, http://www.deildu.com, http://www.piratebay.se, http://www.piratebay.sx og http://www.piratebay.org.
Miðað við tilkynningu Vodafone í dag, um að fyrirtækið þurfi að loka á þessar síðar vegna þess að sýslumaður hefur nú framkvæmt lögbannið til samræmis við úrskurð dómara, þá sýnist mér að Síminn hafi bara sjálfur bætt við iceland.pm og gert lénið hluta af lokuninni, án þess að lögbannið krefjist þess og Síminn hafi þurft að gera slíkt samkvæmt úrskurði dómara og síðan framkvæmd sýslumanns.
Viðskiptavinir Símans geta því lesið af þessu hvort þeir telji fyrirtækið standa vörð um tjáningar- og upplýsingafrelsi viðskiptavina sinna.
hallihg skrifaði:
edit: til þess að reyna að skýra þetta þá áttu væntanlega við að STEF hafi farið fram á nýtt lögbann, gagnvart Símanum, byggt á þessum eldri úrskurði gegn Vodafone til fordæmis, og sú beiðni um lögbann hafi náð til Iceland.pm meðal annars, en það hafi hins vegar ekki verið hluti af lögbanninu gagnvart Vodafone. Þetta kann að vera skýringin og ef svo er þá er Síminn bara að fara eftir lögbanni sýslumans.
depill skrifaði:hallihg skrifaði:
edit: til þess að reyna að skýra þetta þá áttu væntanlega við að STEF hafi farið fram á nýtt lögbann, gagnvart Símanum, byggt á þessum eldri úrskurði gegn Vodafone til fordæmis, og sú beiðni um lögbann hafi náð til Iceland.pm meðal annars, en það hafi hins vegar ekki verið hluti af lögbanninu gagnvart Vodafone. Þetta kann að vera skýringin og ef svo er þá er Síminn bara að fara eftir lögbanni sýslumans.
Akkurat, þegar það er komið fordæmi fyrir sambærilegum málum er minna mál að fá lögbann hjá sýslumanni sem svo sá lögbannið er sett á þarf að fara í dóm til að fá hnekkt. Sýslumaður leyfir iceland.pm vegna þess að það sambærilegt. Svo bara spurning hversu lengi STEF nennir þessum leik, þar sem það er frekar ódýrt fyrir þá að bæta við nyjum lénum.
depill skrifaði:Nú missti ég alveg af þessu. Lokaði 365 fyrir aðgang að deildu.net og thepiratebay án lögbanns ?
Getur einhver sem er með net hjá 365 staðfest að það sé lokað fyrir þessa vefi ?
Paragon skrifaði:snip-
What the heck..!