.is = Islamic State

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

.is = Islamic State

Pósturaf appel » Lau 11. Okt 2014 20:04

Ég veit ekki með ykkur en mér finnst þessi tenging á .is léninu við Islamic State vera mjög varhugaverð.

Það er mjög auðvelt að eyðileggja þetta "brand" sem .is lénið er með því að láta fólk allsstaðar í heiminum tengja .is fyrst og fremst við "Islamic State", sérstaklega þegar þessum aðilum verður leyft að búa hér til lén og hýsa vefsíður sínar undir þessu léni. Ég hef engan áhuga á að deila landsléni mínu með afhausurum og barnamorðingjum.

Ísland mun ekki geta búið sér til nýtt lén eftir að búið er að eyðileggja ímyndina. Við erum með .is að eilífu og við verðum að hugsa um orðsporið.

*-*

egillth
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Fös 02. Apr 2010 02:52
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf egillth » Lau 11. Okt 2014 20:17

sérstaklega þegar þessum aðilum verður leyft að búa hér til lén og hýsa vefsíður sínar undir þessu léni

Tjáningarfrelsi gildir jafnt um alla.

Það sem er varhugarvert er ákvörðun Advania að loka fyrir þessa vefsíðu af engri sérstakri ástæðu að því er virðist.

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf hfwf » Lau 11. Okt 2014 20:19

.to terrorist organization? passar allavega undir þína lógík.

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf gardar » Lau 11. Okt 2014 20:41

egillth skrifaði:
sérstaklega þegar þessum aðilum verður leyft að búa hér til lén og hýsa vefsíður sínar undir þessu léni

Tjáningarfrelsi gildir jafnt um alla.

Það sem er varhugarvert er ákvörðun Advania að loka fyrir þessa vefsíðu af engri sérstakri ástæðu að því er virðist.

Þetta!

arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 938
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf arons4 » Lau 11. Okt 2014 20:44

Smá samhengi væri ekki verra.

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Lau 11. Okt 2014 20:45

Þannig að ef ég afhausa einhvern og set myndband af því á vefsíðu á Íslandi þá er það tjáningarfrelsi?

Þið virðist ekki alveg fatta alvarleika þess að Islamic State sé tengt við .is, að tengja þetta við tjáningarfrelsið er bjánalegt.

Það eru fjöldamörg íslensk fyrirtæki með lén sem endar á .is. Þegar þessi fyrirtæki presenta sig t.d. erlendis fyrir einhverjum sem hefur aldrei heyrt um Ísland og sér endinguna ".is" í léni fyrirtækisins, þá hugsar útlendingurinn og segir "Ha? Islamic State?". Það er þessi tenging sem við þurfum að koma í veg fyrir. Að menn tengi ".is" við "islamic state" fyrst.

Mér finnst þetta svolítið einsog að gefa ríkisfangið frjálst, að allir geti fengið íslenskt vegabréf. Þá koma hingað í hrynum allskonar hryðjuverkamenn, morðingjar, barnaníðingar og hvaðeina og fá sér íslenskt vegabréf. Hve mikils virði heldur þú að íslenskt vegabréf verði þá í framtíðinni? Þegar þú presentar íslensku vegabréfi í útlöndum í framtíðinni þá endar þú í fangelsi.

Sama gildir með .is lénið, þetta er okkar ímynd út á við á netinu.

Hvað heldur þú að margir vilji heita Hitler í þýskalandi? Hvað heldur þú að margir vilji heita Osama Bin Laden? Þó þú hafir ekkert gert neitt þá skiptir það ekki máli.

Svo muna allir eftir Icesave málinu þegar Bretar frystu eignir íslendinga, alveg sama hvort það var bara þessi tiltekni banki sem var vondur eður ei, það skipti ekki máli, ALLIR íslendingar voru flokkaðir sem glæpamenn, hryðjuverkamenn. Það er þannig að svona smáland einsog Ísland verður að passa upp á nafn sitt, ímynd, orðspor. Það er auðvelt að blokkera á okkur.

ISNIC er alveg búið að gera í brækurnar í þessu máli. Þeir eru búnir að kasta frá sér stjórn á .is léninuna núna vegna misvitrar hugsjónar um að allir geti skráð .is lén og gert hvað sem er við það. Meiri bjálfarnir :) Hvað ætli þetta kosti þá að kasta frá sér þessu fyrirtæki? Íslensk stjórnvöld munu núna á næstunni leggja fram frumvarp þess efnis að landslénið .is sé fært undir stofnun á borð við Þjóðskrá. Einkafyrirtækið ISNIC "is history" eftir þetta fiasco.

*-*

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf hfwf » Lau 11. Okt 2014 20:55

Svo mikið sem mig langar að segja Apple um þetta comment þitt en , það eru bara ekki nógu margir stafir í boði, þú ert allavega barking up the wrong tree svo að segja.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Viktor » Lau 11. Okt 2014 20:59

gardar skrifaði:
egillth skrifaði:
sérstaklega þegar þessum aðilum verður leyft að búa hér til lén og hýsa vefsíður sínar undir þessu léni

Tjáningarfrelsi gildir jafnt um alla.

Það sem er varhugarvert er ákvörðun Advania að loka fyrir þessa vefsíðu af engri sérstakri ástæðu að því er virðist.

Þetta!

x3

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf hagur » Lau 11. Okt 2014 21:02

Sammála Apple. Það er ekki hægt að láta fólk komast upp með hvað sem er í nafni tjáningarfrelsis. Ég persónulega kæri mig ekkert um að þessi viðbjóðslegu samtök séu að tengja sig við landslén okkar Íslendinga og bara fokk tjáningarfrelsi.

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Lau 11. Okt 2014 21:04

hfwf skrifaði:Svo mikið sem mig langar að segja Apple um þetta comment þitt en , það eru bara ekki nógu margir stafir í boði, þú ert allavega barking up the wrong tree svo að segja.

Ekki hægt að svara gagnrýni sem er innihaldslaus.

Eitt er ljóst, hvernig heldur þú að venjulegur alþingismaður líti á þetta mál? Munu þeir sætta sig við að .is sé andlit hryðjuverkasamtaka út á við? Þeir hljóta að hugsa hvernig þetta snerti Ísland, enda er .is táknið fyrir Ísland á internetinu. "Hvað er næst?" hugsa þeir. Svo eru ekki bara alþingismenn sem endurhugsa afstöðu sína, heldur munu aðilar sem eiga hagsmuna að gæta að landslénið .is sé laust við svona tengingu setja þrýsting á stjórnvöld að taka yfir stjórn á léninu af ISNIC til að koma í veg fyrir svona í framtíðinni.
Ef íslenska landslénið væri með gengisvísitölu þá missti .is lénið c.a. 30% í virði núna í dag.

Hitt er svo með hýsingarnar í Thor datacenter, það er alveg aðskilið mál. En menn hljóta að velta fyrir sér því eftir að upp komst að Silk Road var hýst þarna, og svo núna vefsíða Islamic State með vídjó af afhöfðunum.

En við þurfum held ég fyrst og fremst að passa upp á að .is falli ekki í ruslflokk í áróðursstríði Islamic State á netinu.

*-*

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1254
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 140
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Minuz1 » Lau 11. Okt 2014 21:05

appel skrifaði:Þannig að ef ég afhausa einhvern og set myndband af því á vefsíðu á Íslandi þá er það tjáningarfrelsi?

Þið virðist ekki alveg fatta alvarleika þess að Islamic State sé tengt við .is, að tengja þetta við tjáningarfrelsið er bjánalegt.

Það eru fjöldamörg íslensk fyrirtæki með lén sem endar á .is. Þegar þessi fyrirtæki presenta sig t.d. erlendis fyrir einhverjum sem hefur aldrei heyrt um Ísland og sér endinguna ".is" í léni fyrirtækisins, þá hugsar útlendingurinn og segir "Ha? Islamic State?". Það er þessi tenging sem við þurfum að koma í veg fyrir. Að menn tengi ".is" við "islamic state" fyrst.

Mér finnst þetta svolítið einsog að gefa ríkisfangið frjálst, að allir geti fengið íslenskt vegabréf. Þá koma hingað í hrynum allskonar hryðjuverkamenn, morðingjar, barnaníðingar og hvaðeina og fá sér íslenskt vegabréf. Hve mikils virði heldur þú að íslenskt vegabréf verði þá í framtíðinni? Þegar þú presentar íslensku vegabréfi í útlöndum í framtíðinni þá endar þú í fangelsi.

Sama gildir með .is lénið, þetta er okkar ímynd út á við á netinu.

Hvað heldur þú að margir vilji heita Hitler í þýskalandi? Hvað heldur þú að margir vilji heita Osama Bin Laden? Þó þú hafir ekkert gert neitt þá skiptir það ekki máli.

Svo muna allir eftir Icesave málinu þegar Bretar frystu eignir íslendinga, alveg sama hvort það var bara þessi tiltekni banki sem var vondur eður ei, það skipti ekki máli, ALLIR íslendingar voru flokkaðir sem glæpamenn, hryðjuverkamenn. Það er þannig að svona smáland einsog Ísland verður að passa upp á nafn sitt, ímynd, orðspor. Það er auðvelt að blokkera á okkur.

ISNIC er alveg búið að gera í brækurnar í þessu máli. Þeir eru búnir að kasta frá sér stjórn á .is léninuna núna vegna misvitrar hugsjónar um að allir geti skráð .is lén og gert hvað sem er við það. Meiri bjálfarnir :) Hvað ætli þetta kosti þá að kasta frá sér þessu fyrirtæki? Íslensk stjórnvöld munu núna á næstunni leggja fram frumvarp þess efnis að landslénið .is sé fært undir stofnun á borð við Þjóðskrá. Einkafyrirtækið ISNIC "is history" eftir þetta fiasco.

Sagði enginn að þessi maður sem er með síðuna hafi eitthvað með afhausanir að gera.
Sá aðilli er víst búsettur í Tyrklandi, sem eru frekar langt frá því að vera bandamenn ISIS.

En ok, segjum að ég vilji koma þessari síðu upp aftur, kaupa íslenskt lén og setja hana aftur í gang.
Viltu banna mér að gera það?
Með hvaða rökum myndir þú taka frá mér stjórnarskrábundin réttindi?

Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Lau 11. Okt 2014 21:13

Minuz1 skrifaði:

Tjáningarfrelsinu má setja tálmanir til þess að vernda aðra og almannareglu. Það er það sem stjórnarskráin segir um tjáningarfrelsið.

Við erum ekki í Bandaríkjunum, en ég er þó nokkuð viss um að það væri búið að loka fyrir þetta þar.

*-*

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1254
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 140
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Minuz1 » Lau 11. Okt 2014 21:36

appel skrifaði:

73. gr. Stjórnarskrár Íslands sem er svohljóðandi:
Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.

XIII. kafli. Brot á almannafriði og allsherjarreglu
Hver, sem opinberlega í ræðu eða riti mælir með því eða stuðlar að því, að erlent ríki byrji á fjandsamlegum tiltækjum við íslenska ríkið eða hlutist til um málefni þess, svo og hver sá, er veldur hættu á slíkri íhlutun með móðgunum, líkamsárásum, eignaspjöllum og öðrum athöfnum, sem líklegar eru til að valda slíkri hættu, skal sæta fangelsi allt að 6 árum. Ef brot þykir mjög smávægilegt, má beita sektarhegningu.

Hvergi er nokkur ógn við íslenska ríkið í þessum myndböndum og frekar ólíklegt er að ISIS fari að gera árásir á Íslandi vegna þess að þeir séu með vefsíðu hér.

Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Revenant » Lau 11. Okt 2014 21:41

appel skrifaði:Ég veit ekki með ykkur en mér finnst þessi tenging á .is léninu við Islamic State vera mjög varhugaverð.

Það er mjög auðvelt að eyðileggja þetta "brand" sem .is lénið er með því að láta fólk allsstaðar í heiminum tengja .is fyrst og fremst við "Islamic State", sérstaklega þegar þessum aðilum verður leyft að búa hér til lén og hýsa vefsíður sínar undir þessu léni. Ég hef engan áhuga á að deila landsléni mínu með afhausurum og barnamorðingjum.

Ísland mun ekki geta búið sér til nýtt lén eftir að búið er að eyðileggja ímyndina. Við erum með .is að eilífu og við verðum að hugsa um orðsporið.

En hvað með ef íslendingur hefði skráð þetta lén? Eða íslendingur væri að reka þennan vef?

Hvað bannar mér (sem íslending) að kaupa lénið islamskarikid.is (sem dæmi) og fara að reka vef (ekkert endilega á íslandi) þar sem barist er fyrir málstaði íslamska ríkisins?

Skjámynd

Stuffz
Kerfisstjóri
Póstar: 1232
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 77
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Stuffz » Lau 11. Okt 2014 21:46

egillth skrifaði:
sérstaklega þegar þessum aðilum verður leyft að búa hér til lén og hýsa vefsíður sínar undir þessu léni

Tjáningarfrelsi gildir jafnt um alla.

Það sem er varhugarvert er ákvörðun Advania að loka fyrir þessa vefsíðu af engri sérstakri ástæðu að því er virðist.

amm það er gullna reglan, sumir tjá sig meira en aðrir á meðan aðrir tjá sig 9 sinnum á 4 árum.

Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
Rafskjótar: KS-16S, KS-S22, KS-S9, OW Pint. CAMS: Insta360 ONE X, X3, FLOW, GO, ACE Pro. DJI Action. Skydio 2
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack

egillth
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Fös 02. Apr 2010 02:52
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf egillth » Lau 11. Okt 2014 23:45

appel skrifaði:Tjáningarfrelsinu má setja tálmanir til þess að vernda aðra og almannareglu. Það er það sem stjórnarskráin segir um tjáningarfrelsið.

Við erum ekki í Bandaríkjunum, en ég er þó nokkuð viss um að það væri búið að loka fyrir þetta þar.

Mér heyrist að þú viljir fá lénanafnanefnd sem ákveði hvaða lén séu leyfileg. Það er ekki eitthvað sem heillar mig.
Dómstólar eru til þess að skera úr um hvort eitthvað sé ólögmætt, ekki persónulegar skoðanir fólks. Ef ég fengi að ráða þá mætti Vigdís Hauksdóttir ekki tjá sig á opinberum vettvangi því ég tel hana ógna öryggi þjóðarinnar mun meira en myndbönd af aftökum.

Sem betur fer erum við ekki í Bandaríkjunum.

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Sun 12. Okt 2014 00:30

Það er ekkert að því að verja tjáningafrelsið, en tjáningarfrelsinu fylgir ákveðin ábyrgð.

Þegar útlendingar nota Ísland sem einhverskonar skálkaskjól fyrir sitt tjáningafrelsi þá er engin leið fyrir okkur að draga þá til ábyrgðar.

En það er ekkert að því að íslendingar noti .is til að tjá sig, hvort sem það eru afhöfðunarvídjó eður ei, þá þurfa þeir að svara til saka fyrir íslenskum dómsstólum. Við getum ekki beinlínis dregið einhvern Tyrka eða Araba fyrir dómsstóla á Íslandi. Ég skil ekki afhverju þið eruð svona sáttir við að útlendingar séu að misnota Ísland með þessum hætti, þetta kemur í bakið á okkur einhverntímann.

*-*

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1254
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 140
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Minuz1 » Sun 12. Okt 2014 00:39

appel skrifaði:Það er ekkert að því að verja tjáningafrelsið, en tjáningarfrelsinu fylgir ákveðin ábyrgð.

Þegar útlendingar nota Ísland sem einhverskonar skálkaskjól fyrir sitt tjáningafrelsi þá er engin leið fyrir okkur að draga þá til ábyrgðar.

En það er ekkert að því að íslendingar noti .is til að tjá sig, hvort sem það eru afhöfðunarvídjó eður ei, þá þurfa þeir að svara til saka fyrir íslenskum dómsstólum. Við getum ekki beinlínis dregið einhvern Tyrka eða Araba fyrir dómsstóla á Íslandi. Ég skil ekki afhverju þið eruð svona sáttir við að útlendingar séu að misnota Ísland með þessum hætti, þetta kemur í bakið á okkur einhverntímann.

Vil bara ekki ritskoðun á internetinu frekar en annars staðar.

Óheft málfrelsi skaðar held ég færri en kúgun siðapostula.

Við getum auðvitað bara hent net neutrality út um gluggann og selt internetið til comcast.

Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Hamsurd
Bannaður
Póstar: 110
Skráði sig: Fim 13. Sep 2012 19:14
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Hamsurd » Sun 12. Okt 2014 01:05

80% of Icelanders are demented tards.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf dori » Sun 12. Okt 2014 01:33

Mér finnst rosalega leiðinlegt þegar svona mál detta alltaf í þann gír að menn vilja að allir taka á sig hlutverk lögreglu og dómara. Af hverju á Isnic að úrskurða um að það sem er hýst þarna sé slæmt og þ.a.l. eigi að loka fyrir lénið? Mér finnst reyndar Advania vera í betra hlutverki til að gera það því að þeir voru virkilega að hýsa þetta efni á vélnunum sínum og mega gera það sem þeim sýnist (og ISIS fara bara í mál við þá ef þeim finnst á þeim brotið).

En ég er mjög ánægður með Isnic að vera harðir í þeirri afstöðu sinni að þeir séu ekki lögga og að ef fólk vilji láta loka á einhver lén þurfi dómsúrskurð þar um.

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Sun 12. Okt 2014 02:02

dori skrifaði:Mér finnst rosalega leiðinlegt þegar svona mál detta alltaf í þann gír að menn vilja að allir taka á sig hlutverk lögreglu og dómara. Af hverju á Isnic að úrskurða um að það sem er hýst þarna sé slæmt og þ.a.l. eigi að loka fyrir lénið? Mér finnst reyndar Advania vera í betra hlutverki til að gera það því að þeir voru virkilega að hýsa þetta efni á vélnunum sínum og mega gera það sem þeim sýnist (og ISIS fara bara í mál við þá ef þeim finnst á þeim brotið).

En ég er mjög ánægður með Isnic að vera harðir í þeirri afstöðu sinni að þeir séu ekki lögga og að ef fólk vilji láta loka á einhver lén þurfi dómsúrskurð þar um.

Skemmtilegt þegar menn eru svona "naive".

ISNIC er vissulega á Íslandi, er íslenskt fyrirtæki, og þarf að lúta íslenskum lögum og dómsstólum. Ég held nú að hryðjuverkamenn séu nú ekki einhver verndaður hópur hérna með sérstaka málfrelsisvernd. Þessi samtök fjöldamyrða börn, raða þeim upp í röð og skjóta þau í hausinn eitt af öðru, ekki einhver nokkur, heldur þúsundir. Murrka lífið úr heilum samfélögum. Nauðga og selja konur sem þræla. Og afhausa alla aðra. Svo eru einhverjir spekúlantar á Íslandi að tala um málfrelsið handa þeim? Málfrelsi til að spúa út hatri sínu á öðrum?

Afsakið á meðan ég æli :pjuke

Ég tel bara tímaspursmál núna hvenær ISNIC verður annaðhvort þjóðnýtt eða settur þrengri rammi með lögum. Því get ég lofað ykkur. Stjórnmálamenn líta á þetta mál út frá hagsmunum heildarinnar. Hingað til hefur ISNIC ekki verið þyrnir í augum stjórnvalda þar sem sambærileg mál hafa ekki komið upp. En þetta mál með "Islamic State" er mikið umhugsunarefni fyrir íslensk stjórnvöld, sérstaklega þar sem nafn Íslands er tengt við þessa barbara og aðilinn sem heldur um lénaskráninguna, ISNIC, er ekki að pæla í hvaða áhrif þetta hefur á nafn Íslands og landslénið.
Breytingar eru klárlega í vændum.

*-*

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Gúrú » Sun 12. Okt 2014 04:27

appel skrifaði:Og afhausa alla aðra. Svo eru einhverjir spekúlantar á Íslandi að tala um málfrelsið handa þeim? Málfrelsi til að spúa út hatri sínu á öðrum?

Já. Nákvæmlega málfrelsi, handa nákvæmlega þeim.

Ef þú vilt taka það af þeim, hví ekki öllum sem myrða? Hví þá ekki öllum sem meiða? Nauðga? Ræna? Kúga? Særa?

"Skaðinn" af málfrelsinu sjálfu er hreint út sagt grín m.v. "skaðann" af hægindastóls-ritskoðurum.

Modus ponens

slapi
Gúrú
Póstar: 557
Skráði sig: Fös 19. Jún 2009 21:47
Reputation: 50
Staða: Tengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf slapi » Sun 12. Okt 2014 06:49

https://www.orangewebsite.com/domain-registration.php

Gaman að sjá textann þarna , hjá hostingfyrirtækinu sem "hostaði" þetta

hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf hkr » Sun 12. Okt 2014 08:46

Gúrú skrifaði:
appel skrifaði:Og afhausa alla aðra. Svo eru einhverjir spekúlantar á Íslandi að tala um málfrelsið handa þeim? Málfrelsi til að spúa út hatri sínu á öðrum?

Já. Nákvæmlega málfrelsi, handa nákvæmlega þeim.

Ef þú vilt taka það af þeim, hví ekki öllum sem myrða? Hví þá ekki öllum sem meiða? Nauðga? Ræna? Kúga? Særa?

"Skaðinn" af málfrelsinu sjálfu er hreint út sagt grín m.v. "skaðann" af hægindastóls-ritskoðurum.

sérstaklega þegar um ræðir hatursáróður sem sé ólöglegur.

http://www.visir.is/birgitta--sidan-kem ... 4141019811

Tjáning ákveðinna skoðana; kynþáttahaturs og annarra fordóma er bönnuð og refsiverð skv. 233. gr. alm. hgl. nr. 19/1940

Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á mann eða hóp manna vegna þjóðernis þeirra, litarháttar kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum

http://www.innanrikisraduneyti.is/media ... org-th.pdf
http://www.althingi.is/lagas/131b/1940019.html

Ulli
Kerfisstjóri
Póstar: 1291
Skráði sig: Fös 21. Ágú 2009 19:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Ulli » Sun 12. Okt 2014 10:03

Það að menn séu að ræða það að það sé verið að brjóta á þessum hóp fynst mér allveg magnað :face

I7-950 4.2Ghz1.4VStable! Rampage III Extream Corsair H70 Corsair Dominator 8-8-8-24 3x2Gb DDR3 1600 Asus R9 280x Samsung 470 series 64Gb SSD WD Green 2 TB Raven II Turn Beng Q V2420 Corsair AX850