Tollur & Tollmeðferð

Allt utan efnis

Höfundur
Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Dúlli » Fös 10. Okt 2014 14:57

arons4 skrifaði:
Dúlli skrifaði:
Oak skrifaði:Borgar alltaf vsk af sendingunni líka.

En það er ekki varan ? það besta sem ég veit að maður greiðir eingöngu toll og vsk af vörunni en ekki sendingunni það er bara kjánalegt.

Það er alltaf tekið vsk af flutningskostnaði, hefur alltaf verið svoleiðis. Þú átt ekki rétt á endurgreiðslu fyrir þessa 30 usd.

Hvar er það tekið fram ? ef aldrei heyrt af svoleiðis. Hvað ef maður ætlar að láta senda eithvað hratt og nota TNT eða DHL eða svoleiðis þjónustu og það kostar kannski bara 100$ að senda er ég þá þvingaður að greiða skatt af því ?

arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 938
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf arons4 » Fös 10. Okt 2014 15:04

Dúlli skrifaði:
arons4 skrifaði:
Dúlli skrifaði:
Oak skrifaði:Borgar alltaf vsk af sendingunni líka.

En það er ekki varan ? það besta sem ég veit að maður greiðir eingöngu toll og vsk af vörunni en ekki sendingunni það er bara kjánalegt.

Það er alltaf tekið vsk af flutningskostnaði, hefur alltaf verið svoleiðis. Þú átt ekki rétt á endurgreiðslu fyrir þessa 30 usd.

Hvar er það tekið fram ? ef aldrei heyrt af svoleiðis. Hvað ef maður ætlar að láta senda eithvað hratt og nota TNT eða DHL eða svoleiðis þjónustu og það kostar kannski bara 100$ að senda er ég þá þvingaður að greiða skatt af því ?

Sérð tildæmis á reiknivélinni á tollur.is stendur "Verð með flutningi (tollverð)". Getur örugglega fundir meiri upplýsingar inn á tollur.is um þetta. Og já ef þú notar dýrari flutningsþjónustu borgaru meiri vsk.

Höfundur
Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Dúlli » Fös 10. Okt 2014 15:05

Já sæll, hef aldrei tekið eftir þessu, mín mistök en þetta er rugl.

machinefart
Ofur-Nörd
Póstar: 288
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2014 12:23
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf machinefart » Fös 10. Okt 2014 16:00

Þetta er rugl og endurspeglar ekki virði vörunnar, satt

en svona hefur þetta alltaf verið :/

konice
Fiktari
Póstar: 64
Skráði sig: Fös 04. Feb 2011 15:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf konice » Fös 10. Okt 2014 16:09

Eitt í sambandi við þetta allt er að þegar ég hef pantað beint frá kína þá er enginn tollur þ.e. fríverslunnar samningur,
afhverju borga ég þá tollmeðferðar gjald? Þar sem það liggur fyrir að pakkin kemur frá kína því það stendur á honum.
Það hafa nú ekki allar sendingar lennt í meðferð c.a. 3 af 10.

Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Haxdal » Fös 10. Okt 2014 16:46

Ef það þarf að skila öllu á pappírsformi niður á Tryggvagötu þá sparast nú minna en maður heldur við að gera þetta sjálfur, kæmi svo mikill óbeinn kostnaður. Meina þú þarft að kaupa blöð/blek og eyða tíma í að fylla þetta út og svo þarftu að koma þér niður á Tryggvagötu (bensín/strætó) + borga í stæði (er ekki allt gjaldskylt þarna niður í bæ?). Endar örugglega ekki á því að spara eins mikið og maður heldur.

edit: Annars held ég að þetta sé bara bundið við starfsmennina hjá tollinum sem fara yfir pakkana hvort maður lendi í þessu veseni eða ekki. Ég hef oft verið að panta svipaða hluti frá Ebay og það er handahófskennt hvort ég þurfi að borga eða ekki(allt sambærilegir hlutir í sama tollflokki, svipuð stærð á pakkanum, allt handútfylltir fylgiseðlar, svipuð þyngd, svipaðar umbúðir), Eru þetta ekki bara útaf lötum starfsmönnum sem nenna ekki að standa í þessu veseni við að biðja um fylgigögn og svona, kannski er pakkinn hjá þeim sem "lenda" í þessu akkúrat að fara í gegn þegar vaktstjórinn eða eitthvað er í yfirlitsferð yfir svæðið :-"
Síðast breytt af Haxdal á Fös 10. Okt 2014 16:53, breytt samtals 1 sinni.

Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf dori » Fös 10. Okt 2014 16:53

konice skrifaði:Eitt í sambandi við þetta allt er að þegar ég hef pantað beint frá kína þá er enginn tollur þ.e. fríverslunnar samningur,
afhverju borga ég þá tollmeðferðar gjald? Þar sem það liggur fyrir að pakkin kemur frá kína því það stendur á honum.
Það hafa nú ekki allar sendingar lennt í meðferð c.a. 3 af 10.

Þú þarft að borga virðisaukaskatt og þó svo að það sé ekki tollur á honum þá þarf samt að tollafgreiða hann ef það þarf að borga einhver gjöld.

machinefart
Ofur-Nörd
Póstar: 288
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2014 12:23
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf machinefart » Fös 10. Okt 2014 17:24

samt ekki góð lógík.

tollmeðferðargjald er fast gjald fyrir vinnuna sem það tekur að taka vöruna og kvittunina og flokka hana og ábyrgjast rétta tollun og so far.

hitt er basically horfa á verðmiða og margfalda með fasta.

bónus rukkar mig ekki 550 fyrir að reikna vaskinn af innkaupakerrunni minni, góð þjónusta í bónus!

edit: ef það var ekki á hreinu þá var ég að replya á dóra :)

Þú þarft að borga virðisaukaskatt og þó svo að það sé ekki tollur á honum þá þarf samt að tollafgreiða hann ef það þarf að borga einhver gjöld.

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf urban » Fös 10. Okt 2014 18:43

Ef að þið eruð svona rosalega á móti því að borga VSK og toll af vörunni sem að þið eruð að panta (það er, borga það sérstaklega)
þá getiði alveg rölt ykkur í einhverja búð hérlendir og keypt vöruna þar.

nú eða ef að þið eruð á móti því að borga tollmeðferðargjald, þá efast ég ekkert um annað en að tollinum vanti fólk sem að er tilbúið að vinna frítt.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Gislinn » Fös 10. Okt 2014 21:34

urban skrifaði:Ef að þið eruð svona rosalega á móti því að borga VSK og toll af vörunni sem að þið eruð að panta (það er, borga það sérstaklega)
þá getiði alveg rölt ykkur í einhverja búð hérlendir og keypt vöruna þar.

nú eða ef að þið eruð á móti því að borga tollmeðferðargjald, þá efast ég ekkert um annað en að tollinum vanti fólk sem að er tilbúið að vinna frítt.

Tollurinn fær ekki krónu af þessu gjaldi. Það er pósturinn sem rukkar þetta gjald og fær það í vasann. Fólki er frjálst að fylla út tollskýrslur sjálft ef það vill sleppa við að greiða þetta gjald til póstsins.

common sense is not so common.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf dori » Lau 11. Okt 2014 00:50

machinefart skrifaði:samt ekki góð lógík.

tollmeðferðargjald er fast gjald fyrir vinnuna sem það tekur að taka vöruna og kvittunina og flokka hana og ábyrgjast rétta tollun og so far.

hitt er basically horfa á verðmiða og margfalda með fasta.

bónus rukkar mig ekki 550 fyrir að reikna vaskinn af innkaupakerrunni minni, góð þjónusta í bónus!

edit: ef það var ekki á hreinu þá var ég að replya á dóra :)

Þú þarft að borga virðisaukaskatt og þó svo að það sé ekki tollur á honum þá þarf samt að tollafgreiða hann ef það þarf að borga einhver gjöld.

Þú gleymir að hugsa út í að það þarf að útbúa tollskýrslu þó svo að varan sé tollfrjáls. Tollskýrslu sem segir að varan sé í tollflokki sem ber ekki toll (t.d. tölvur) eða að hún komi frá landi sem við erum í tollabandalagi við (t.d. ESB og núna Kína). Það er nákvæmlega sama vinna fyrir þá (Póstinn). Þú ert að bera saman allt aðra hluti með það að Bónus selji þér einhverjar vörur sem er búið að tollafgreiða.

Það er mjög margt við kerfið okkar hérna sem má endurskoða en þessi þráður er uppfullur af kommentum sem lýsa svo mikilli vanþekkingu á því sem þið eruð að tala um að það er eiginlega vandræðalegt.

Höfundur
Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Dúlli » Lau 11. Okt 2014 00:57

dori skrifaði:

Mátt fræða mig um þessi mál :happy

biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 4
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf biturk » Lau 11. Okt 2014 09:51

Bara samt að fella gjöld af flutningskostnaði myndis stórbæta kjör allra og einfalda kerfuð

Mætti einfalda meira með tollfrelsismarki að upphæð 30 us dollars eða álíka

ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Gislinn » Lau 11. Okt 2014 10:03

biturk skrifaði:Bara samt að fella gjöld af flutningskostnaði myndis stórbæta kjör allra og einfalda kerfuð

Mætti einfalda meira með tollfrelsismarki að upphæð 30 us dollars eða álíka

Ég sé bara ekkert athugavert við það að greiddur sé virðisaukaskattur af fluttningskostnaði. Þú greiðir vsk. af annari þjónstu hér á landi og ég sé ekki alveg afhverju þjónustugjöld vegna fluttningskostnaðar ættu að vera undanskilin því. Hinsvegar finnst mér frekar skrítið að önnur aðflutningsgjöld séu rukkuð af flutningskostnaði.

common sense is not so common.

Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Danni V8 » Lau 11. Okt 2014 10:54

Ég var að kaupa eitt lítið millistykki fyrir bílinn minn á eBay um daginn. Stykkið kostaði með sendingarkostnaði heilar 1.500kr. Til að leysa það út úr tolli þurfti ég síðan að borga 1.300kr. Þetta er ekkert að fara að setja mig á hausinn, en mér finnst asnalegt að þurfa að nánast borga vöruna aftur bara til að fá hana í hendurnar.

Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Höfundur
Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Dúlli » Lau 11. Okt 2014 11:08

Danni V8 skrifaði:Ég var að kaupa eitt lítið millistykki fyrir bílinn minn á eBay um daginn. Stykkið kostaði með sendingarkostnaði heilar 1.500kr. Til að leysa það út úr tolli þurfti ég síðan að borga 1.300kr. Þetta er ekkert að fara að setja mig á hausinn, en mér finnst asnalegt að þurfa að nánast borga vöruna aftur bara til að fá hana í hendurnar.

Akkurat, maður er líka ekki að segja að maður fer á hausinn en að greiða 1.500 hér og þar oft getur farið upp í góða upphæð og þetta er líka kjánlegt kerfi eins og margir segja.

Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Gislinn » Lau 11. Okt 2014 11:46

Danni V8 skrifaði:Ég var að kaupa eitt lítið millistykki fyrir bílinn minn á eBay um daginn. Stykkið kostaði með sendingarkostnaði heilar 1.500kr. Til að leysa það út úr tolli þurfti ég síðan að borga 1.300kr. Þetta er ekkert að fara að setja mig á hausinn, en mér finnst asnalegt að þurfa að nánast borga vöruna aftur bara til að fá hana í hendurnar.

Þessi 1.300 kr hefur líklegast skipst upp í:
550 kr til póstsins í tollmeðferðargjald
383 kr í virðisaukaskatt
og þá hefur verið 25% tollur á vörunni til viðbótar (367 kr) í einhverju formi.

Þannig að um 42% af gjöldunum sem þú borgaðir hér heima fóru beint til póstsins í formi þjónustugjalds (tollmeðferðargjald). Þú hefðir getað gert tollaskýrsluna sjálfur og þá hefðiru þurft að greiða 750 kr í stað 1.300 kr hér heima.

common sense is not so common.

biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 4
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf biturk » Lau 11. Okt 2014 22:57

Gislinn skrifaði:
biturk skrifaði:Bara samt að fella gjöld af flutningskostnaði myndis stórbæta kjör allra og einfalda kerfuð

Mætti einfalda meira með tollfrelsismarki að upphæð 30 us dollars eða álíka

Ég sé bara ekkert athugavert við það að greiddur sé virðisaukaskattur af fluttningskostnaði. Þú greiðir vsk. af annari þjónstu hér á landi og ég sé ekki alveg afhverju þjónustugjöld vegna fluttningskostnaðar ættu að vera undanskilin því. Hinsvegar finnst mér frekar skrítið að önnur aðflutningsgjöld séu rukkuð af flutningskostnaði.

Það er merkilegt

Þvi sendingarkostnaður er það sem þu ert að borga fyrir að fa vöruna á milli landa og er algerlega ótengt virði vörunnar sem þú ert að borga af

Það er engin leið til að réttlæta þetta því þetta er ekki það sem þú borgar fyrir vöruna sjálfa

Fáránlegt peningaplokk sem á sér enga gáfulega ástæðu eða rök

Ég hef ekkert a moti þvi að borga vsk, vörugjöld og toll.....bara ekki af sendingarkostnaðinum sjálfum sem getur rokkað um tugi dollara eftir hversu fljótt þú vilt fá vöruna

ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Revenant » Lau 11. Okt 2014 23:13

biturk skrifaði:
Gislinn skrifaði:
biturk skrifaði:Bara samt að fella gjöld af flutningskostnaði myndis stórbæta kjör allra og einfalda kerfuð

Mætti einfalda meira með tollfrelsismarki að upphæð 30 us dollars eða álíka

Ég sé bara ekkert athugavert við það að greiddur sé virðisaukaskattur af fluttningskostnaði. Þú greiðir vsk. af annari þjónstu hér á landi og ég sé ekki alveg afhverju þjónustugjöld vegna fluttningskostnaðar ættu að vera undanskilin því. Hinsvegar finnst mér frekar skrítið að önnur aðflutningsgjöld séu rukkuð af flutningskostnaði.

Það er merkilegt

Þvi sendingarkostnaður er það sem þu ert að borga fyrir að fa vöruna á milli landa og er algerlega ótengt virði vörunnar sem þú ert að borga af

Það er engin leið til að réttlæta þetta því þetta er ekki það sem þú borgar fyrir vöruna sjálfa

Fáránlegt peningaplokk sem á sér enga gáfulega ástæðu eða rök

Ég hef ekkert a moti þvi að borga vsk, vörugjöld og toll.....bara ekki af sendingarkostnaðinum sjálfum sem getur rokkað um tugi dollara eftir hversu fljótt þú vilt fá vöruna

Það eru gild rök fyrir því. Það eru margir söluaðilar sem selja vöru á t.d. 100 kr og hafa sendingarkostnað upp á 10.000 kr einmitt til að komast framhjá svona reglum.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf dori » Sun 12. Okt 2014 01:28

Dúlli skrifaði:
dori skrifaði:Það er mjög margt við kerfið okkar hérna sem má endurskoða en þessi þráður er uppfullur af kommentum sem lýsa svo mikilli vanþekkingu á því sem þið eruð að tala um að það er eiginlega vandræðalegt.

Mátt fræða mig um þessi mál :happy
Ég og nokkrir aðrir höfum í þessum þræði reynt að útskýra eftir mætti einstaka atriði. Ég er samt ekki að fara að útskýra þetta eitthvað heildstætt hérna. Hef ekki tíma í það og forum er fáránlega lélegur vettvangur fyrir námskeið. Þessar reglur eru samt allar mjög aðgengilegar á vefnum og svo er hægt að tala við starfsmann tollstjóra í svona "beinni línu" þegar það er eitthvað sem þú skilur ekki.

Þið sem eruð að velta fyrir ykkur virðisaukaskatti á sendingarkostnað. Þú borgar virðisaukaskatt af öllu virði vörunnar (CIF verði, kaupverð+flutningskostnaður+vátrygging). Það er bara skilgreint að tollverðið, sem þú borgar aðflutningsgjöld af, sé þannig (meikar satt að segja meiri sense en að hafa það ekki ef maður veltir því meira fyrir sér en bara þegar þú pirrar þig á því að þurfa að borga hann). Virðisaukaskattskerfið er ekki fullkomið en það er kerfið sem við höfum og það er langt frá því að vera það versta til að skattleggja neyslu. Tæknilega séð áttu að borga skatt af allri vöru og þjónustu (líka þjónustu sem þú kaupir á netinu, leikir á Steam eða eBók á Amazon) en það gerir það enginn.

Um tollverð: http://www.tollur.is/displayer.asp?cat_ ... t_id=10140
Um VSK: https://www.rsk.is/atvinnurekstur/virdi ... byrjendur/
Leiðbeiningar fyrir gerð aðflutningsskýrslu (útskýrir fullt af því sem er að vefjast fyrir sumum hérna): http://www.tollur.is/displayer.asp?modu ... nt_id=1355

biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 4
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf biturk » Sun 12. Okt 2014 12:26

Ég veit alveg hvernig það virkar og þekki reglurnar vel enda búin að stunda innflut ing fyrir margar milljónir síðustu 3 ár

En þetta er samt vitlaust frá öllum sjónarhornum því þú ert að borga virðisauka af sendingarkosntaði að utan en ekki innanlands

Virðisaukinn okkar á ekki að eiga við erlenda póstþjónustu

ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf dori » Sun 12. Okt 2014 12:51

biturk skrifaði:Ég veit alveg hvernig það virkar og þekki reglurnar vel enda búin að stunda innflut ing fyrir margar milljónir síðustu 3 ár

En þetta er samt vitlaust frá öllum sjónarhornum því þú ert að borga virðisauka af sendingarkosntaði að utan en ekki innanlands

Virðisaukinn okkar á ekki að eiga við erlenda póstþjónustu

Virðisaukaskatturinn er rukkaður af verði vörunnar. Ég er alveg sammála því að það er böggandi að þurfa að "borga meira" en þetta meikar samt miklu meiri sense ef þú pælir í þessu (fyrir utan hvernig þú opnar á það að "shipping & handling" verði 90+% af heildarverði til að svindla á tolli).

Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1823
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 179
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Nariur » Mán 13. Okt 2014 00:55

Póstsending er bara venjuleg þjónusta og ekkert óeðlilegt við að borga VSK af því.

AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Höfundur
Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf Dúlli » Mán 13. Okt 2014 11:53

Tók eftir einu í dag að þeir bæta stundum við ofan á kostnað, var með vöru sem kostaði 36.45$ en þeir skrifa 38.45$ finnst það frekar leiðinlegt þar sem þetta eru 2$ sem er verið að ræna af manni og hve oft er maður að lenda í svona.

Mynd
Mynd

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Tollur & Tollmeðferð

Pósturaf dori » Mán 13. Okt 2014 12:10

Þá áttu að kvarta og neita að borga eða senda þeim kvörtun eftirá og krefjast þess að fá endurgreitt. Þetta eru samt ekki $2 sem er verið að ofrukka þig. Þetta eru 62 kr. sem þeir ofrukka þig (mismunurinn á vsk af 4660 kr. og 4418 kr.) sem er rétt rúmlega 50¢ (ég er reyndar á þeirri skoðun að það skipti ekki máli hversu lítið það er sem þeir ofrukka mann, prinsippið á að vera að fá það alltaf rétt á endanum).