Síða 1 af 1

Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Fös 05. Sep 2014 21:03
af rapport
Sælir

Heyrði að einhver eigendaskipti hefðu átt sér stað nýverið, að Tölvutek hefðu verið að taka yfir skuldara hjá sér.

Fór þá að velta fyrir mér hverjir eru að flytja inn íhluti og hverjir eiga þessar verslanir sem keppast um markaðinn.

Veit að það eru einhver tengsl milli, ATT og Tölvulistans, Tölvutek og Tölvuvirkni... eru aðrir sem eru e-h tengdir sérstaklega eða bara einhverjir sem eru alveg sjálfstæðir?

Mun alltaf vilja versla frekar við minni aðila en að setja penigana bara í hítina hjá einhverjum stórum.

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 01:19
af rapport
Enginn heyrt neitt?

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 01:41
af Viktor
viewtopic.php?f=33&t=6900

14. gr.

Eitt "bump" á 12. klst. fresti er leyfilegt.
Ekki færa þráð ofar með bumpi oftar en tvisvar sinnum á sólarhring nema þú sért að svara fyrirspurn.
Verði þessi regla brotin geta umræðustjórar læst eða eytt þræði án aðvörunar.

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 01:51
af worghal
Sallarólegur skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=33&t=6900

14. gr.

Eitt "bump" á 12. klst. fresti er leyfilegt.
Ekki færa þráð ofar með bumpi oftar en tvisvar sinnum á sólarhring nema þú sért að svara fyrirspurn.
Verði þessi regla brotin geta umræðustjórar læst eða eytt þræði án aðvörunar.

16. gr.

Notendur skulu ekki pósta innleggjum til þess að benda öðrum notendum á reglurnar heldur skal nota tilkynninga-takkann. Brot á þessari reglu jafngildir aðvörun!

æ shit, hvað hef ég gert :crazy

en til að svara original post, þá hef ég ekkert heyrt um neitt af þessu tagi og ekki vissi ég að tölvuvirkni væri undir IOD ehf.
minnir að tölvutek hafi áður verið í eigu sömu eigenda og tölvulistinn en það varð eitthvað split fyrir nokkrum árum. einhver keypti meirhlutann af fyrirtækinu og tók það útfyrir eignarhald IOD ehf.
er ekki allveg viss hvort ég fari með rétt mál, einhver til í að leiðrétta mig ? :)

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 02:14
af hkr
worghal skrifaði:en til að svara original post, þá hef ég ekkert heyrt um neitt af þessu tagi og ekki vissi ég að tölvuvirkni væri undir IOD ehf.
minnir að tölvutek hafi áður verið í eigu sömu eigenda og tölvulistinn en það varð eitthvað split fyrir nokkrum árum. einhver keypti meirhlutann af fyrirtækinu og tók það útfyrir eignarhald IOD ehf.
er ekki allveg viss hvort ég fari með rétt mál, einhver til í að leiðrétta mig ? :)

Veit ekki alveg hvað er í gangi hjá TL og IOD en skv. fyrirtækja skrá heitir IOD núna TL og TL IOD
https://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit ... 5909022250
https://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit ... 6011922099

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 02:45
af worghal
hkr skrifaði:

já ég var búinn að skoða þetta eitthvað um daginn og fannst þetta hálf furðulegt.
skoðaði líka tölvutek á fyrirtækjaskrá og sé að aðal skráning tölvuteks sem fyrirtæki er "Smásala á ljósabúnaði í sérverslunum" sem er frekar skrítið :klessa
http://gamli.rsk.is/fyrirtaekjaskra/thj ... =popup.jsp

EDIT: hlítur að hafa verið tölvuvirkni sem að þeir tóku að sér því nýja síða tölvuvirkni er nánast sú sama og tölvutek notar.

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 05:04
af Viktor
worghal skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=33&t=6900

14. gr.

Eitt "bump" á 12. klst. fresti er leyfilegt.
Ekki færa þráð ofar með bumpi oftar en tvisvar sinnum á sólarhring nema þú sért að svara fyrirspurn.
Verði þessi regla brotin geta umræðustjórar læst eða eytt þræði án aðvörunar.

16. gr.

Notendur skulu ekki pósta innleggjum til þess að benda öðrum notendum á reglurnar heldur skal nota tilkynninga-takkann. Brot á þessari reglu jafngildir aðvörun!

æ shit, hvað hef ég gert :crazy

Þetta hef ég ekki séð áður #-o

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 09:45
af GuðjónR
Það er ekkert leyndarmál að Tæknibær á computer.is, Tölvulistinn á @tt.is og Tölvutek á Tölvuvirkni.
Aðrar Tölvu og íhlutaverslanir eru í einkaeigu.

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 09:55
af emmi
Whut, síðan hvenær eignaðist Tölvutek Tölvuvirkni? Seldi Björgvin fyrirtækið?

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 10:08
af GuðjónR
emmi skrifaði:Whut, síðan hvenær eignaðist Tölvutek Tölvuvirkni? Seldi Björgvin fyrirtækið?

Veit ekki hvenær það gerðist nákvæmlega, en þetta var í umræðunni fyrr á árinu.
Og ef þú skoðar vefsíðurnar þeirra, vöruúrvalið og verðin þá leyna tengslin sér ekkert. ;)

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 10:10
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=33&t=6900

14. gr.

Eitt "bump" á 12. klst. fresti er leyfilegt.
Ekki færa þráð ofar með bumpi oftar en tvisvar sinnum á sólarhring nema þú sért að svara fyrirspurn.
Verði þessi regla brotin geta umræðustjórar læst eða eytt þræði án aðvörunar.

16. gr.

Notendur skulu ekki pósta innleggjum til þess að benda öðrum notendum á reglurnar heldur skal nota tilkynninga-takkann. Brot á þessari reglu jafngildir aðvörun!

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 16:56
af rango
GuðjónR skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=33&t=6900

14. gr.

Eitt "bump" á 12. klst. fresti er leyfilegt.
Ekki færa þráð ofar með bumpi oftar en tvisvar sinnum á sólarhring nema þú sért að svara fyrirspurn.
Verði þessi regla brotin geta umræðustjórar læst eða eytt þræði án aðvörunar.

16. gr.

Notendur skulu ekki pósta innleggjum til þess að benda öðrum notendum á reglurnar heldur skal nota tilkynninga-takkann. Brot á þessari reglu jafngildir aðvörun!

Enn er reglubrot að quota reglu 16?

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 16:59
af Bjosep
Er computer.is ekki bara heimasíða Tæknibæs?

Er Tæknibær með fleiri verslanir en þessa í Skipholtinu?

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 17:05
af appel
Versla svo ekki allir þessir aðilar að sama birgjanum hérna á Íslandi?

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Lau 06. Sep 2014 18:07
af worghal
appel skrifaði:Versla svo ekki allir þessir aðilar að sama birgjanum hérna á Íslandi?

Jú. IOD ehf.

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 01:39
af rapport
s.s. IOD er sambærilegt á töluíhlutamarkaði og Hagar eru á matvörumarkaði?

iod.is vísar á Tölvilistann...

Það gæti þurft meiri samkeppni á þennan markað ....

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 02:08
af worghal
rapport skrifaði:s.s. IOD er sambærilegt á töluíhlutamarkaði og Hagar eru á matvörumarkaði?

iod.is vísar á Tölvilistann...

Það gæti þurft meiri samkeppni á þennan markað ....

Mynd

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 11:26
af depill
Er það samt. Ég hélt að Tölvutek væri í sínum eigin innflutningi. Hélt einmitt að það hefði þar á meðal verið ástæðan fyrir stofnun Tölvutek til að fara á móti Tölvulistanum/IOD.

Tölvulistinn/IOD/SM/HT er reyndar orðnir mjög stórir á þessum markaði, líka eftir að hafa gleypt part af Hátækni.

En ég hélt basicly að það væri litlu verslaninar sem versluðu af IOD og Tölvutek og stærri versluðu bara ef einhverjum. Svo er Tæknibær líka í einhverjum innflutningi þó þeir versli líka eithvað innanlands ( til dæmis af OK ). Vöruframboð Tölvutek og Tölvulistans er líka eiginlega bara of ólíkt til að þeir séu að nota sama byrgja. Allavega Tölvutek flytur inn BenQ veit það :P

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 11:37
af beatmaster
Ég er líka nokkuð viss um að Kísildalur flytji inn flest allt sitt sjálfir

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 11:39
af GuðjónR
depill skrifaði:Er það samt. Ég hélt að Tölvutek væri í sínum eigin innflutningi. Hélt einmitt að það hefði þar á meðal verið ástæðan fyrir stofnun Tölvutek til að fara á móti Tölvulistanum/IOD.

Tölvulistinn/IOD/SM/HT er reyndar orðnir mjög stórir á þessum markaði, líka eftir að hafa gleypt part af Hátækni.

En ég hélt basicly að það væri litlu verslaninar sem versluðu af IOD og Tölvutek og stærri versluðu bara ef einhverjum. Svo er Tæknibær líka í einhverjum innflutningi þó þeir versli líka eithvað innanlands ( til dæmis af OK ). Vöruframboð Tölvutek og Tölvulistans er líka eiginlega bara of ólíkt til að þeir séu að nota sama byrgja. Allavega Tölvutek flytur inn BenQ veit það :P

Held þetta sé í aðalatriðum rétt hjá þér.
http://tolvutek.is/page/um-tolvutek

Tölvutek er umboðsaðili á Íslandi fyrir einhver stærstu merki í tölvugeiranum eins og AG Neovo, Allsop, Antec, Arctic, BenQ, Brother, GIGABYTE, Inter-Tech, LaCie, Lite-On, Luxa2, McAfee, Mushkin, OCZ Technology, Packard Bell, Plextor, Point of View, Satzuma, Seagate, Silicon Power, Thermaltake, Thonet & Vander, TRENDnet og Tt eSPORTS og dreifingaraðili fyrir Logitech og Acer Group.

Varðandi Tölvulistinn/IOD/SM/HT, eiga þeir ekki líka Einar Farestveit & Co?
http://www.ef.is

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 13:02
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Varðandi Tölvulistinn/IOD/SM/HT, eiga þeir ekki líka Einar Farestveit & Co?
http://www.ef.is

Júpp júpp

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 13:18
af JohnnyX
Voðalega dreifist eignarhaldið á fáa einstaklinga

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 14:10
af rapport
Eignarhaldið er á einstaklega fáum höndum, það er spurning um hvort að hlutfall af markaðinum í krónum sé ekki líka rosalega stórt hjá þessum tveim aðilum.

Hagfræði 101 - Glæra 15 = staðan á Íslandi í flestum geirum, glæra 33 = umhugsunarefni ef álagning á íhlutum er há.

Re: Eignarhald á tölvu og íhlutaverslunum á Íslandi

Sent: Mið 17. Sep 2014 15:58
af vesley
Tölvutækni skrifaði:Yfir 95% af öllum vörum sem við seljum koma frá birgjum að utan.

Fínt að taka þetta fram víst verið er að tala um byrgjasölu hérlendis og þessháttar.