Síða 1 af 2

Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 09:57
af GuðjónR
Er að leita af góðum tannlækni fyrir fjölskylduna, veit að "leikmaður" getur átt erfitt með að meta hvað er góður og hvað er lélegur tannlæknir, yfirleitt kemur það ekki í ljós fyrr en um seint og síðir ef tannlæknir er lélegur og þá er skaðinn skeður.
Sé að það eru tveir skráðir í mosó, hefur einhver reynslu af þeim?

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 10:29
af Yawnk
Árni Þórðarsson í Skeifunni er mjög góður tannlæknir, veit alveg nákvæmlega hvað hann er að gera, var hjá honum þegar ég var með spangir og það gekk mjög vel, hinsvegar er hann frekar dýr.

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 10:40
af trausti164
Það er einn góður í Hafnarfirðinum sem að heitir Ásgeir, ég man ekki hvers sonar hann er né hvað stofan heitir en þetta er við hliðina á tölvulistanum.

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 10:43
af ManiO
http://www.kryna.is/ á Grensásvegi. Hef ekki heyrt neitt nema góða hluti um þessa stofu.

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 10:44
af Dagur
Yawnk skrifaði:Árni Þórðarsson í Skeifunni er mjög góður tannlæknir, veit alveg nákvæmlega hvað hann er að gera, var hjá honum þegar ég var með spangir og það gekk mjög vel, hinsvegar er hann frekar dýr.


Er hann ekki bara í tannréttingum?

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 10:45
af Tiger
Er þetta ekki meira spurning hver er með heitustu klinkuna?

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 11:00
af Yawnk
Dagur skrifaði:
Yawnk skrifaði:Árni Þórðarsson í Skeifunni er mjög góður tannlæknir, veit alveg nákvæmlega hvað hann er að gera, var hjá honum þegar ég var með spangir og það gekk mjög vel, hinsvegar er hann frekar dýr.


Er hann ekki bara í tannréttingum?

Úbs, já ég las vitlaust, hélt að hann Guðjón væri að spyrja um tannréttingar :catgotmyballs my bad.

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 12:10
af Gislinn
GuðjónR skrifaði:Sé að það eru tveir skráðir í mosó, hefur einhver reynslu af þeim?


Elmar Geirsson er í mosó, sama hvað þú gerir... ALLS ALLS EKKI fara til hans. Hann er orðinn of gamall til að nenna að sinna starfi sínu, hann segir bara alltaf að allt sé í lagi þótt að svo sé ekki.

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 12:36
af omare90
trausti164 skrifaði:Það er einn góður í Hafnarfirðinum sem að heitir Ásgeir, ég man ekki hvers sonar hann er né hvað stofan heitir en þetta er við hliðina á tölvulistanum.

Þannig að Ásgeir í tölvulistanum er orðinn tannlæknir :D

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 13:20
af Baldurmar
Þessi maður hefur séð um tengdafjölskylduna síðan kærastan var lítið barn, ég er farinn að fara til hans. Hann er snillingur.

http://www.tannsi.is/tannlaeknir/bjzrn-x-xorhallsson

Hann er á Háteigsvegi, fyrir ofan Ámuna

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 13:47
af blitz
ManiO skrifaði:http://www.kryna.is/ á Grensásvegi. Hef ekki heyrt neitt nema góða hluti um þessa stofu.


X2

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 15:46
af Lexxinn
Sjálfur fer ég til Svanhvítar í árbænum. Hún hefur sinnt mér, bróður mínum og móður frá því ég var polli, alltaf sáttur. Tannlæknar eru aftur á móti aldrei ódýrir...

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 22:25
af natti
trausti164 skrifaði:Það er einn góður í Hafnarfirðinum sem að heitir Ásgeir, ég man ekki hvers sonar hann er né hvað stofan heitir en þetta er við hliðina á tölvulistanum.

Ásgeir? Meinar Ágúst... ?
Það eru tveir þarna á þessari stofu, annar þeirra heitir Ágúst (565-4722), og hinn Úlfar ef ég skil ja.is rétt....
Eftir að hafa farið í gegnum tvo slæma tannlækna var mér bent á hann og fór þangað (til Ágústs), mjög sáttur þar.
(Ég hvorki vinn né bý nálægt, finnst alveg þess virði að taka góðan rúnt fyrir góðan tannlækni.)

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 22:30
af GuðjónR
Takk fyrir öll svörin, er að safna infó í sarpinn í von um að geta tekið upplýsta ákvörðun.
Ef þið hafið vonda/góða reynslu en viljið ekki blasta því á vefinn þá megið alveg senda mér PM.

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 22:54
af Nitruz
Heiðdís er fær og mjög góð við fólk sem er hrætt við tannlækna. Sanngjörn í verði miðað við aðra sem ég hef heyrt um. Hún er í turninum í kóp ásamt þrem öðrum ungum konum og ekki skemmir fyrir að þær eru fallegar ;)
http://www.tannlaeknastofan.is/index.php

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Þri 04. Mar 2014 23:03
af hagur
Kristín Sandholt í Borgarkringlunni sér um mig og mína familíu og hefur gert í mörg ár. Hefur reynst vel.

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 02:53
af littli-Jake
Ég get aldrei munað hvað tannlæknirinn minn heitir en hún er staðsett í turninum í Kópavogi. Skal grafa það upp á morgun hvað hún heitir.

Skemmir ekki fyrir að hún er alveg þokkalega hugguleg ;)

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 06:44
af Viktor
Ég mæli með Þorsteini Scheving í Mörkinni, mikill fagmaður og mjög flott stofa:
http://ja.is/tannlaeknastofa-thorsteins ... einssonar/

Nitruz skrifaði:Hún er í turninum í kóp ásamt þrem öðrum ungum konum og ekki skemmir fyrir að þær eru fallegar ;)


littli-Jake skrifaði:Ég get aldrei munað hvað tannlæknirinn minn heitir en hún er staðsett í turninum í Kópavogi. Skal grafa það upp á morgun hvað hún heitir.

Skemmir ekki fyrir að hún er alveg þokkalega hugguleg ;)


Maður er greinilega að missa af miklu þarna í turninum :fly

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 07:06
af Gúrú
Baldurmar skrifaði:Þessi maður hefur séð um tengdafjölskylduna síðan kærastan var lítið barn, ég er farinn að fara til hans. Hann er snillingur.
http://www.tannsi.is/tannlaeknir/bjzrn-x-xorhallsson
Hann er á Háteigsvegi, fyrir ofan Ámuna


Besti og þægilegasti tannlæknir sem ég hef verið hjá og ég mun vera hjá honum til starfsloka. :)

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 07:32
af trausti164
natti skrifaði:
trausti164 skrifaði:Það er einn góður í Hafnarfirðinum sem að heitir Ásgeir, ég man ekki hvers sonar hann er né hvað stofan heitir en þetta er við hliðina á tölvulistanum.

Ásgeir? Meinar Ágúst... ?
Það eru tveir þarna á þessari stofu, annar þeirra heitir Ágúst (565-4722), og hinn Úlfar ef ég skil ja.is rétt....
Eftir að hafa farið í gegnum tvo slæma tannlækna var mér bent á hann og fór þangað (til Ágústs), mjög sáttur þar.
(Ég hvorki vinn né bý nálægt, finnst alveg þess virði að taka góðan rúnt fyrir góðan tannlækni.)

Ágúst var það, takk fyrir.

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 07:59
af Nuketown
er til eitthvað sem heitir góður tannlæknir? já nei ég held ekki:) skiptir ekki máli hvaða tannlæknis þú ferð til, allt sama ruslið

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 08:07
af Gúrú
Nuketown skrifaði:er til eitthvað sem heitir góður tannlæknir? já nei ég held ekki:) skiptir ekki máli hvaða tannlæknis þú ferð til, allt sama ruslið


Ert þú svona "hálfviti"? :)

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 08:43
af littli-Jake
Gúrú skrifaði:
Nuketown skrifaði:er til eitthvað sem heitir góður tannlæknir? já nei ég held ekki:) skiptir ekki máli hvaða tannlæknis þú ferð til, allt sama ruslið


Ert þú svona "hálfviti"? :)


Gúrú be nice

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 11:17
af tdog
Ef að Halldór Fannar væri ekki látinn, myndi ég mæla með honum!

Re: Veist þú um góðan tannlækni?

Sent: Mið 05. Mar 2014 14:05
af Jón Ragnar
tdog skrifaði:Ef að Halldór Fannar væri ekki látinn, myndi ég mæla með honum!



Sammála


Næst besti tannlæknir sem ég hef haft. Sigursteinn var betri en hann er látinn líka :(