GuðjónR skrifaði:Daz skrifaði:GuðjónR skrifaði:
Þú ert að borga fyrir flutning á pakkanum þegar þú borgar sendingargjöldin.
Kerfið sem við búum við er of flókið ,óskilvirkt og úrelt.
og því lægri sem sendingarkostnaðurinn er, því minni þjónustu geturðu búist við.
Til að við gætum rætt um þetta á gáfulegum grundvelli þyrftum við að vita hversu mikið Pósturinn fær í sinn hlut fyrir einhverjar tegundir af sendingum, hversu mikill raunkostnaður póstsins fyrir meðhöndlun á þeim sendingum er og hvernig kostnaðurinn deilist niður.
En það er miklu skemmtilegra að spá og spekúlera út í loftið þegar maður hefur ekki allar upplýsingar.
Þú ert snillingur.
Þegar pakki er sendur til landsins þá er greitt fyrir hann í því landi sem hann er sendur frá.
Alveg eins og þegar þú sendir pakka til útlanda þá greiðir þú fyrir sendinguna hérna heima.
Þannig að þú ert að segja að þjónustan í tollmiðlun íslands veltur á póstþjónustu gjaldskrá viðkomandi lands sem pakkin er sendur frá?
Ég verð að gefa þér nýjan titil fyrir þessa snilld.
Nei, ég er að segja að þegar sending kemur til landsins, þá fær pósturinn greitt frá þeim aðila sem kom sendingunni til landsins (erlendar pakkaþjónustur t.d. USPS eða Royal mail). Pósturinn er ekki að dreifa pökkum frítt. Þjónustan sem Pósturinn veitir kostar peninga, t.d. launakostnaður starfsfólks, húsnæði, eldsneyti osfrv.
Reksturinn, skv kvótinu frá Bjosep er í bullandi tapi.
Ef Pósturinn er bundinn fastri gjaldskrá og getur því ekki rukkað þá sem flytja pakka inn til landsins meira og reksturinn er í tapi, þá er þrennt að gera, lækka þjónustustigið hérna heima til að spara kostnað (t.d. fækka starfsfólki og stytta afgreiðslutíma), auka tekjur á annan hátt, t.d. rukka fyrir "aukaþjónustu" eða bara hætta að veita þjónustuna. Pósturinn hefur greinilega tekið fyrstu 2 kostina saman til að reyna að rétta af reksturinn, kannski gætu þeir sparað á annan hátt frekar til að lækka kostnað, ég þekki það ekki.
Er ég alveg í bullinu hérna eða er það ekki Viðskipti 101 að það kostar peninga að veita þjónustu? Hvernig gerir það mig að einhverjum "snilling" (takk fyrir hrósið!

) ef ég reyni að skoða málið frá öllum flötum en ekki bara að kvarta yfir því að þjónustan sé að versna? Auðvitað er það hundfúlt, en Pósturinn er fyrirtæki í samkeppnisrekstri og þar af leiðir að þeir verði/vilji að vera reknir yfir núllinu og grípi til aðgerða ef það er ekki að gerast. Ég var ekki að reyna að tala niður til neins, bara fannst nauðsynlegt að koma því að að þessi versnandi þjónusta gæti verið afleiðing, en ekki ný stefna Póstsins " Verri þjónusta fyrir alla".
Augljóslega er ég ekki tengdur póstinum á neinn hátt, ekki öðruvísi en sem almennur viðskiptavinur bara.