Leiguhúsnæði

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Leiguhúsnæði

Pósturaf Krissinn » Mið 20. Nóv 2013 13:48

Mig langaði aðeins að fá álit/atvik um þegar maður leigir íbúðarhúsnæði, Málið er að skólpið er í ólagi Þar sem ég leigi og það er að verða tæpur mánuður núna. Og það stóð til fyrir sirka 1 viku síðan eða svo að fara að brjóta upp hér í kjallaranum til að skipta út lögnum en þær framkvæmdir eru ekki enn hafnar. Í gær var mér sagt að ég ætti hugsanlega rétt á því að borga lægri húsaleigu næsta mánuð útaf þessu. Skólpið er svosem ekkert alveg stíflað en það rennur mjög hægt úr baðvaski og baðkeri ásamt því að klóaklyktin er orðin ansi sterk í þvottahúsinu. Hefur einhver sem er á leigumarkaðinum lent í svipuðu? Kannski ekki endilega veseni með skólplagnir en einhverju veseni varðandi leiguhúsnæði og fengið að borga lægri húsaleigu eða eitthvað annað? :), Vildi bara aðeins forvitnast um þetta.



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf tdog » Mið 20. Nóv 2013 14:07

Hringdu í leigusalann og segðu að þér finnist þetta orðið þreytandi og viljir fá að sjá eitthvað gerast.



Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf Krissinn » Mið 20. Nóv 2013 14:13

tdog skrifaði:Hringdu í leigusalann og segðu að þér finnist þetta orðið þreytandi og viljir fá að sjá eitthvað gerast.


Ætlaði mér alltaf að gera það, vildi bara spyrja útí þetta fyrst. Fékk að vita um daginn að fólkið sem bjó í íbúðinni í kjallaranum gafst upp og rifti leigusamninginum.




kvaldik
Fiktari
Póstar: 53
Skráði sig: Lau 22. Sep 2012 09:46
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf kvaldik » Mið 20. Nóv 2013 14:48

Ekki svarið sem þú ert að leita að en langar að koma því að. Klóaks lykt í þvottarhúsum kemur oft úr niðurföllum sem ekkert vatnsflæði er um. Ef svo er, virkar að hella vatni í niðurfallið og þá ætti að lyktin að hverfa, þangað til vatnið gufar upp úr vatnslásnum. Ef það reynist vera vandamálið er lausnin annað hvort að hella alltaf vatni í niðurfallið eða einhverju lyktarlausu sem gufar ekki upp (matarolíu t.d.).



Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf Krissinn » Mið 20. Nóv 2013 15:05

kvaldik skrifaði:Ekki svarið sem þú ert að leita að en langar að koma því að. Klóaks lykt í þvottarhúsum kemur oft úr niðurföllum sem ekkert vatnsflæði er um. Ef svo er, virkar að hella vatni í niðurfallið og þá ætti að lyktin að hverfa, þangað til vatnið gufar upp úr vatnslásnum. Ef það reynist vera vandamálið er lausnin annað hvort að hella alltaf vatni í niðurfallið eða einhverju lyktarlausu sem gufar ekki upp (matarolíu t.d.).


Það er stöðugt rennsli í niðurfallið úr slöngu sem ég hef ekki hugmynd um hvert liggur :p En svo er tengt inná sömu lögn og niðurfallið er á, klósett + sturta + vaskur og þetta baðherbergi tilheyrir sameign. Tel þetta vera útaf þessum lögnum sem er talið að séu í sundur í gólfinu þarna.




Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf Bjosep » Mið 20. Nóv 2013 16:53

krissi24 skrifaði:Í gær var mér sagt að ég ætti hugsanlega rétt á því að borga lægri húsaleigu næsta mánuð útaf þessu.


Ef það er svo þá er það væntanlega eitthvað sem er tekið fram í leigjendalögum eða hvað sem lögin heita sem leigumarkaðurinn fellur undir, ég þekki þau ekki en þau eru svo sem aðgengileg á vef alþingis.

En ef þetta er í sameign og það eru fleiri eigendur en bara leigusalinn þinn þá er málið náttúrulega töluvert flóknara og er ekkert viss um að þú getir gert neitt nema vera þolinmóður.

Annars fann ég þetta hér handa þér

http://www.attavitinn.is/hus-og-bill/ad ... -leigusala

P.S.

Vandamálið við þessa grein er að hún viśar ekki í lagabókstafinn sem hún þó virðist vera að vitna í ...




orangestone
Nýliði
Póstar: 4
Skráði sig: Fös 25. Mar 2011 16:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf orangestone » Lau 07. Des 2013 04:17

mataroolía þránar og lyktar en ekki mótorolía sem væri þá betri kannski, eða glussi



Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1832
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 182
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf Nariur » Lau 07. Des 2013 06:01

orangestone skrifaði:mataroolía þránar og lyktar en ekki mótorolía sem væri þá betri kannski, eða glussi


Eða bara nota vatn, en ekki hella mótorolíu eða glussa í niðurfall eins og hálfviti.


AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED


Sindri A
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Mán 01. Feb 2010 17:33
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf Sindri A » Lau 07. Des 2013 14:02

orangestone skrifaði:mataroolía þránar og lyktar en ekki mótorolía sem væri þá betri kannski, eða glussi


Fyrir utan það að ég væri ekki til í það að íbúðin mín lyktaði eins og mótorolía, hvað þá glussi




Myro
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Fim 27. Okt 2011 18:45
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Leiguhúsnæði

Pósturaf Myro » Lau 07. Des 2013 16:14

Tu getur keypt sérstaka vatnslásaolíu í byko og husasmidjunni. Best ad nota tad eda bara vatn. Onnur efni geta farid ad lykta eda skemmt lagnir.