Síða 1 af 1

1TB SSD á klakanum!

Sent: Fös 07. Jún 2013 23:19
af GuðjónR
Nú sannast máltækið "Margur er knár þótt hann sé smár" en Start.is bjóða fyrstir allra á íslandi 1TB SSD.
Þessi risastóri SSD er líka súper hraður, eða Read 500MB/s og Write 400MB/s
Verðið er tæp 110 þúsund en miðað við að verðið á þessum disk er í kringum $600 erlendis þá er þetta mjög góður díll.
Nú er bara spurninginn, hver verður fyrstur til að landa þessum ofur SSD. Pant verannnnn!!!!!!!! :D

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Fös 07. Jún 2013 23:28
af Arkidas
Sexy.

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Lau 08. Jún 2013 00:03
af GuðjónR
Arkidas skrifaði:Sexy.

wewwwy!

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Lau 08. Jún 2013 00:16
af Daz
raid5!!

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Lau 08. Jún 2013 11:05
af MrIce
holy crap thats sexy.....

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Lau 08. Jún 2013 12:04
af Eiiki
Er ég sá eini sem er að spá í því hvað maður hefur að gera við 1TB SSD disk?

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Lau 08. Jún 2013 12:12
af GuðjónR
Eiiki skrifaði:Er ég sá eini sem er að spá í því hvað maður hefur að gera við 1TB SSD disk?

Fínt ef þú vilt losa þig alveg við HDD og vera bara með SSD.
Á sínum tíma sögðu menn líka, sé ekki hvað maður hefur að gera við 1TB HDD :megasmile
Svo kom 2TB 3TB 4TB....
Þetta kallast þróun.

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Lau 08. Jún 2013 12:14
af Xovius
Held að þetta væri tildæmis fullkomið upgrade fyrir fartölvuna þar sem ekki er pláss fyrir einn stýrikerfisdisk og einn geymsludisk.

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Lau 08. Jún 2013 12:19
af GuðjónR
Xovius skrifaði:Held að þetta væri tildæmis fullkomið upgrade fyrir fartölvuna þar sem ekki er pláss fyrir einn stýrikerfisdisk og einn geymsludisk.

Nákvæmlega, þetta er fullkominn fartölvudiskur! tekur lítinn straum, hitnar ekkert og hefur mikið geymslupláss og hraðinn er svakalegur.
Þetta er diskur sem maður myndi síðan taka úr og setja í næstu fartölvu þegar maður selur og uppfærir.
Myndi líta á þetta sem fjárfestingu.

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Sun 23. Jún 2013 23:40
af jojoharalds
þetta er snillt er einmitt með 2 1 tb i raid 0,
kanski marr uppfærir, í þetta serstaklega þvi ég er búin að fjarlæga drive bay festingar úr turninum hjá mér.

Thumbs up for a verry great invention.

biða samt þangað til þetta lækkar aðeins í verði.100 kall stykki til að geyma **** er aðeins of mikið.

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Mán 24. Jún 2013 00:38
af Labtec
þetta er snilld til að vera fyrstur inná counter-strike server

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Fös 12. Júl 2013 10:24
af Viktor
Eiiki skrifaði:Er ég sá eini sem er að spá í því hvað maður hefur að gera við 1TB SSD disk?


AFHVERJU segir fólk svona?!

Þú ert inni á tækninördaspjalli, þetta er svo mikil bann spurning.

Mynd

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Fim 25. Júl 2013 22:42
af appel
Spinning diskar eru doldið á útleið. Þeir eru að verða doldið eins gömlu tape-drifin, geyma mikið af gögnum en eru hægvirkir og bilanagjarnir.

Ég ætla ekki að kaupa mér spinning disk aftur miðað við þessa þróun. 1tb ssd kominn og stærsti hdd er 3tb. Nema maður sé algjör safnari þá hefur maður lítið við svona mikið pláss að gera.

Núna er ég bara með einn 128gb ssd disk tengdan, og læt það duga, hendi út jafnóðum af honum. Ég á spinning diska en nenni ekki að vera með þá inni í kassanum, þeir eru svo hávaðasamir.

EN... ef það kæmi einhver bylting í spinning diskum, t.d. að alltíeinu væri fundin tækni til að 10x eða 20x falda diskaplássið, þá værum við að tala saman. En líklegra er að þannig bylting komi í solid state diskum frekar en spinning.

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Fim 25. Júl 2013 22:52
af oskar9
Ég keyri bara 240GB Intel disk og er með Torrent/ video 2TB snúnigsdisk í Hot swap drifi, tek hann úr í hvert skipti sem ég nota hann ekki bara útaf þessum víbringi og vinnsluhljóði, get ekki beðið eftir að gera keypt bara 1-1.5TB SSD á viðráðanlegu verði og skipt 7.200 diskunum út allveg

Svo er maður svo mikið virkari að hreinsa út ónotuð forrit og bloatware þegar plássið er af svona skornum skammti sem þýðir að maður er alltaf með vél og stýrikerfi sem keyrir á minnstu mögulegu forritum, hentar mér mjög vel

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Fim 25. Júl 2013 23:55
af hkr
Það er líka töluverður kostur við SSD að þeir "deyja" hægt og rólega (í flestum tilfellum) í stað þess að deyja allt í einu eins og snúnings diskarnir eiga til að gera.

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Fös 26. Júl 2013 00:32
af Svansson
Maður má leyfa sér, þegar svona tækifæri koma. Þetta er kannski mikill peningur, en í þessu áhugamáli þarf maður bara að sætta sig þann galla.

Re: 1TB SSD á klakanum!

Sent: Fös 26. Júl 2013 06:50
af Semboy
Labtec skrifaði:þetta er snilld til að vera fyrstur inná counter-strike server




þetta er bara della hjá fólki. hefur ekkjart að gera með peninga sina