Síða 1 af 1
Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 15:05
af Plushy
Lenti í því skemmtilega atviki að fara henda í mig 500ml Vanillu (grænu) Kea skyri í hádeginu. Ekkert að því en ég opna það og það er rosa hvítt og hreint. Hlýt ég þá að hafa keypt köttinn í sekknum því skyrið hafði ekkert vanillubragð heldur bragðaðist og leit alveg eins út og hreint, hrært (blátt) skyr frá Kea. Vitlaus merking eða vitlaust skyr farið í dolluna
Einhver lent í svipuðu? keypt hamborgara en fengið pylsu?


Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 15:07
af Output
Ég ekki fatta.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 15:11
af Plushy
Output skrifaði:Ég ekki fatta.
Ég keypti svona

en það var svona

í dollunni
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 15:45
af playman
Plushy skrifaði:Output skrifaði:Ég ekki fatta.
Ég keypti svona

en það var svona

í dollunni

Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 16:00
af Xovius
Áttu eitthvað eftir af skyrinu?
Ég fékk til dæmis nokkrar vondar engjaþykkni pakkningar í fyrra og talaði við MS og þeir sendu mér alveg böns af fríu dóti til baka

Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 16:04
af Plushy
Jamm ég fékk mér bara smá smakk til að prófa. Þau ætla að bæta mér þetta upp á mánudaginn. Ég reyndar skildi eftir dolluna eftir í ísskápnum og kærastan gerði sér ferð í ísskápinn, tók dolluna og var komin hálfa leið þegar hún fattaði að þetta var eitthvað skrítið, en borðaði sem betur fer ekki mikið

Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 16:10
af Viktor
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 16:25
af tanketom
ég keyfti einu sinni Burn orkudrykk og það var ávaxtaburn í honum, fékk 18 stikki Burn í skaðABÓT
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 17:44
af vesley
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 18:25
af gRIMwORLD
Ég keypti einu sinni AXA músli og fékk lifandi fiðrildi úr pakkanum. Fékk nokkra pakka af morgunkorni út á það en ég var svosem ekkert að stressa mig yfir því.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 19:23
af capteinninn
Keypti einu sinni Powerade í Vísi og drakk það í vinnunni, þegar ég var að klára síðasta sopann sá ég að það hafði runnið út nokkrum mánuðum fyrr.
Fann engan mun og ég minntist á þetta við gömlu hjónin næst þegar ég var að kaupa eitthvað hjá þeim og þau bönnuðu mér að borga fyrir það sem ég var að kaupa mér í það skiptið.
Man samt einu sinni eftir því þegar ég var á KFC í mosó og var að bíða eftir matnum mínum þá kom einhver inn alveg brjálaður með zinger twister sem var að mestu étinn, hann var brjálaður að þetta væri sterkt og sagði að hann hefði keypt þetta á föstudeginum (þetta gerðist á mánudegi), staffið sagði honum að þetta væri zinger twister og að þeir væru alltaf smá kryddaðir. Hann var ekki að taka í þau svör og varð alveg brjálaður og strunsaði út. Mér fannst þetta fyndið í fyrsta lagi því hann nánast kláraði twisterinn, setti hann í ísskápinn yfir helgi og kom svo á mánudegi ennþá brjálaður yfir þessu og líka því að Zinger Twister er mjög langt frá því að vera eitthvað sterkt.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 19:44
af KermitTheFrog
Hentu meili á KEA og kvartaðu.
Gætir grætt kassa af skyri eða eitthvað á þessu.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 19:56
af Plushy
Ert inn á Koníakstofunni, má ekki neitt? :/
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 20:04
af Unnaro
Lenti í nákvæmlega sama og þú. Ég sendi mail á KEA og þeir könnuðust ekkert við þetta en sögðust samt að sjálfsögðu ætla að bæta mér þetta.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 20:26
af capteinninn
Plushy skrifaði:Ert inn á Koníakstofunni, má ekki neitt? :/
It's all good, þetta er koníakstofan fyrir
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 20:44
af Moquai
Systir mín lenti í svipuðu þegar hún keyptir sér Doritos (Svart), en í raun var Blátt Doritos í pokanum.
Hringdi og fékk ehv shitload af drasli frá þeim.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 21:28
af tdog
Moquai skrifaði:Systir mín lenti í svipuðu þegar hún keyptir sér Doritos (Svart), en í raun var Blátt Doritos í pokanum.
Hringdi og fékk ehv shitload af drasli frá þeim.
Ég hefði verið sallarólegur yfir Skyri og Powerade ... En með svart Doritos, ég persónulega hefði farið með haglabyssu í heildsöluna og heimtað skýringar.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 23:18
af FuriousJoe
Keypti nýlega pepsi sem innihélt pylsubréf, hringdi og kvartaði. Maðurinn sagði mér að það væri ekkert sem hægt væri að gera, skaðinn væri skeður og þetta hefði nú ekki kostað mikið. (var búinn með ca hálfa flösku þegar ég tók eftir því, enda er maður ekki vanur að grandskoða flöskurnar)
Hætti að versla pepsi eftir það.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Fös 22. Mar 2013 23:26
af HalistaX
Keypti einu sinni hnetutopp.. opnaði hann, voru daimtopp umbúðir undir því og daimtoppur inní.. Besti hnetutoppur sem ég hef smakkað.
Re: Kea Skyr í ruglinu
Sent: Lau 23. Mar 2013 06:09
af g0tlife
Keipti 2L kók en þegar ég opnaði hana var ekkert gos í henni. Ég fór til þeirra og fékk kippu í staðinn. Besta við það er að ég ruglaðist svo á flöskum þegar ég var að fara til þeirra og tók 2L sem var óopnuð. Hefði verið fyndið ef starfsmennirnir ætla svo að skoða þetta bakvið og fyrsta sem heyrist þegar þeir opna er ''ttssss'' hljóðið haha !