Hvar eru gervihnettirnir?

Allt utan efnis

Höfundur
Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 607
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 87
Staða: Ótengdur

Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf Manager1 » Mán 28. Jan 2013 20:42

Veit einhver í hvaða átt gervihnattadiskur þarf að snúa til að ná gervihnettinum sem sendir út Sky?

Ég er að spá í að kaupa mér disk og er að pæla svona ca. á hvaða hlið á húsinu mínu ég þyrfti að festa hann.




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 615
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 104
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf dadik » Mán 28. Jan 2013 20:44

Þeir eru við miðbaug þannig að diskurinn þarf að snúa í suður


ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

fallen
ÜberAdmin
Póstar: 1320
Skráði sig: Fös 06. Feb 2004 13:09
Reputation: 8
Staðsetning: eyjar
Staða: Ótengdur

Re: Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf fallen » Mán 28. Jan 2013 20:48

Farðu inná dishpointer.com, searchaðu að staðsetningunni þinni, veldu 28.2E Astra (Sky er á því) og farðu með græna draslið á húsið þitt. Ef það er eitthvað að blokka sjónlínuna þá geturðu gert show obstacle og fært rauða draslið á þann stað og séð nákvæmlega hvað það má vera mikið fyrir áðuren það blokkar merkið.


Gaming: Intel i5-4670K @ 4.4GHz | Gigabyte G1.Sniper M5 | Gigabyte GTX 970 4GB | 16GB Crucial BallistiX DDR3 | Samsung 840 EVO 120GB | Corsair 350D | Corsair AX760 | Corsair H100i | BenQ XL2411T 144Hz
unRAID: Intel Xeon E3-1275 v6 | Supermicro X11SSL-CF | 32GB DDR4 ECC | 6x10TB IronWolfs | Samsung 850 Pro 512GB & 256GB | Fractal Node 804 | Corsair SF750 | APC Back-UPS Pro 900

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf GuðjónR » Mán 28. Jan 2013 21:17

Snúa þeir ekki alltaf í austur?




topas
Ofur-Nörd
Póstar: 244
Skráði sig: Mið 16. Jún 2010 11:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf topas » Mán 28. Jan 2013 22:50

Astra sem sky er á er yfir miðbaug, 28,2 gráður austur. Diskurinn þarf því að snúa í suðaustur.




Höfundur
Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 607
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 87
Staða: Ótengdur

Re: Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf Manager1 » Þri 29. Jan 2013 19:49

Er eitthvað að marka þetta dish obstruction á dishpointer.com?

Astra hnötturinn er á 28.2 austur. Ef ég set obstruction örina 600m í burtu á fjall sem er þar þá má fjallið ekki vera hærra en 64m, Það passar enganvegin því s.k.v. þessu er hnötturinn í tæplega 10° hæð en ekki 28.2°

S.k.v. mínum útreikningum mætti fjallið vera a.m.k. 150m hátt í 600m fjarlægð eða því sem samsvarar 25° halla.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1783
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf axyne » Þri 29. Jan 2013 20:00

Ég held það þessi síða sé ágætlega áreiðanleg.

28.2°E er ekki hæðin. Gerfihnötturinn er staðsettur á miðbaug og þetta er fjarlægðin frá núllbaug.


Electronic and Computer Engineer


Garri
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Lau 31. Okt 2009 21:34
Reputation: 3
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf Garri » Þri 29. Jan 2013 20:14

Manager1 skrifaði:Er eitthvað að marka þetta dish obstruction á dishpointer.com?

Astra hnötturinn er á 28.2 austur. Ef ég set obstruction örina 600m í burtu á fjall sem er þar þá má fjallið ekki vera hærra en 64m, Það passar enganvegin því s.k.v. þessu er hnötturinn í tæplega 10° hæð en ekki 28.2°

S.k.v. mínum útreikningum mætti fjallið vera a.m.k. 150m hátt í 600m fjarlægð eða því sem samsvarar 25° halla.

Ef línan í fjallið er um 10° ofan af þaki, þá ertu í vandræðum. Er með 80cm disk norður á Akureyri. Byrjaði á að fella þrjár Aspir sem voru farnar að teygja sig hátt. Miðaði síðan sirka á gil á Vaðlaheiði (Suð-aust-suður), var með móttakarann og lítið 14" tæki með mér upp á þaki sem sýndi styrk merkis á stiku og handstillti þetta inn, gekk ótrúlega vel þar sem ég hafði aldrei verið með svona móttakara áður í höndunum. Vaðlaheiðin er um 500m há mundi ég giska á og fjarlægðin frá húsinu að heiðinni sé um 5-8km. (lol.. mældi það á Ja.is og er nákvæmlega 6.7km)

Miðað við þínar tölur þá er ekki mikill afgangur.. og væntanlega erum við hér fyrir norðan með aðeins lægri hnetti en þið fyrir sunnan.




Höfundur
Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 607
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 87
Staða: Ótengdur

Re: Hvar eru gervihnettirnir?

Pósturaf Manager1 » Þri 29. Jan 2013 20:25

Djöfulli er þetta drasl lágt á himninum, ekki viss um að þetta sleppi hjá mér, en það kemur í ljós ;)

Ég er fyrir vestan Garri, ekkert nema djúpir firðir umkringdir fjöllum hérna.