Síða 1 af 1

[MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 04. Des 2012 23:02
af intenz
Í tilefni af þræðinum Hinn óskoðaði skyndibiti ákvað ég að búa til myndaþráð þar sem fólk getur póstað niðurstöðum heimsókna á íslenska skyndibitastaði. :snobbylaugh

Ég myndi mæla með að fólk reyni að hafa myndirnar ekki mikið stærri en 800x600

Einnig mæli ég með Imgur fyrir myndirnar.

Endilega setjið inn eftirfarandi upplýsingar:

    - Hvar þetta er
    - Hvað þetta er
    - Verð
    - Einkunn (0-10)

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 04. Des 2012 23:05
af FuriousJoe
Snilld, ég vona að fólk virði að þetta séi myndaþráður og láti kommentin eiga sig. (Fyrir utan þetta komment!)

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 04. Des 2012 23:12
af Klaufi
Pizza or Kebab? Why not both!

Mynd

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 04. Des 2012 23:15
af intenz
GRILL66 - Chicago
Mjög djúsí tvöfaldur beikonborgari sem er með einstakt bragð. Franskarnar eru samt ekkert spes, bara ósköp venjulegar.

Einkunn: 7/10
Verð: 1.350 kr.

Mynd

Hamborgarasmiðjan - Gráðostaborgari
Án efa einn besti hamborgarastaðurinn.

Einkunn: 9/10
Verð: 1.795 kr.

Mynd

Skalli Ögurhvarfi - Tvöfaldur Gústi
Mjög flottir hamborgarar þarna, svipa til þeirra sem maður fær á grillhúsum. Mjög góðir!

Einkunn: 8
Verð: ~1.800 kr.

Mynd

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 04. Des 2012 23:18
af capteinninn
Djöfull eru þessar núðlur ómerkilegar hjá mér núna

Allir að setja inn smá um fóðrið eins og t.d. hvar þetta er, hvaða tilboð, 0-10 einkunnagjöf og kannski líka hvað það kostaði ef fólk vill

OG

intense eyddu kommentunum okkar joe og settu reglur epst fyrir fólk að skoða

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 04. Des 2012 23:39
af hfwf
Captain America
Roadhouse - Snorrabraut.
1890 minnir mig. (Verðskrá á roadhouse.is
7-8 ( Alveg delicious pulled pork burger!!!
Mynd

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fös 07. Des 2012 11:53
af GuðjónR
Þegar ég borða á Hard Rock þá panta ég "Hickory smoked pulled pork sandwic" eða grísasamloku á íslensku.
Varð mjög kátur þegar ég sá Hamborgarabúlluna auglýsa þessa frægu samloku og fór og pantaði eina.
Vonbrigðin voru algjör, þetta er ekkert líkt original Hard Rock samlokunni.
Í uppþornuði hamborgarabrauði leyndist örlítið af ofelduðu og þurru svínakjöti með yfirgnæfandi edik bragði.
1/10

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fös 07. Des 2012 12:08
af vesley
Með ógirnilegri hamborgurum sem ég hef séð.

Að þeir skuli selja þessa hamborgara útlítandi eins og þetta.

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Fös 07. Des 2012 12:33
af GuðjónR
Barbecue borgari á tilboð í haust á Hamborgarasmiðjunni, 1350kr. næstum perfect borgari.
9/10

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Þri 11. Des 2012 03:43
af intenz
Tvöfaldur ostborgari á Hamborgarabúllunni, ~2000 kr. Fáránlega dýrt en mjög bragðgott.
8/10

Mynd

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Sun 16. Des 2012 21:37
af pattzi
Mynd

Hreindýraborgarinn á Grill 66 er mjög góður

Er btw að vinna þar en ég kaupi mér hann mjög oft :)

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Sun 16. Des 2012 23:15
af tanketom
Þeir sem vilja að það sé virkilega lagður metnaður í hamborgaran sinn þá mæli ég með lebowski bar, einn besti borgari sem ég hef fengið þar!
ég mæli hiklaust með að fólk fari þangað, því miður er ég ekki með mynd en þeir eru geeðveikir! OG SVO MÁ EKKI SLEPPA SHAKE Í EFTIRRÉTT! HANN ER GERÐUR Á GAMLA MÁTAN! =P~

einkun 9/10

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mán 17. Des 2012 00:12
af appel
Heilsusamlegt matarræði hérna.

Re: [MYNDIR] Hinn óskoðaði skyndibiti

Sent: Mán 17. Des 2012 00:49
af Black
Eldaðir hamborgarar heima
2x 120Gr hamborgarar með Káli tómatsósu gúrkum og osti. Ískaldri Pepsi
Verð einhvað í kringum 1000kr

Einkun 10/10 bestir heima ;)

Mynd