Síða 1 af 1
Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:03
af Aimar
Eru menn að nota einhverjar ákveðnar síður til að leita að ódýrum flugmiðum út?
Kannski síða sem skoðar fyrir mann millilanda flug og svo framvegis?
er að skoða flug til ungverjalands um miðjan des. næsta. fyrir menneskju sem er að fara á Hm í fitness. Budapest....
Allar þakkir fyrirfram.
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:06
af Klaufi
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:26
af Dagur
Momondo
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Mán 15. Okt 2012 23:54
af Ulli
Edreams.com
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Þri 16. Okt 2012 00:45
af capteinninn
Dohop
Momondo
Opodo
Passaðu þig samt að skoða líka sjálfur hvernig maður getur flogið, ég pantaði með Opodo frá London til Santiago í Chile og ég fór að spjalla við annað fólk sem ég hitti á ferðalögum mínum og þau sögðu mér að það væri ódýrara að fljúga frá London til Spánar og svo þaðan til Argentínu, og það munaði víst talsverðu
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Þri 16. Okt 2012 08:15
af Benzmann
ég hringi nú bara alltaf í þjónustufulltrúann minn hjá icelandair

og hún reddar þessu frá A til ö fyrir mig

Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Þri 16. Okt 2012 09:19
af dori
Ég flaug til Budapest fyrir rúmu ári síðan og þá var alltaf ódýrast að fara í gegnum Kaupmannahöfn. Ég fór með ódýrasta flugi þangað og tók svo Norwegian. Mér hefur líka reynst vel að finna ódýra daga til að fara til Kaupmannahafnar eða London og leita að flugum frá þeim stöðum með þessum leitarvélum. Þessi Íslandsleggur virðist stundum flækja hlutina aðeins.
Benzmann skrifaði:ég hringi nú bara alltaf í þjónustufulltrúann minn hjá icelandair

og hún reddar þessu frá A til ö fyrir mig

Það er örugglega mjög þægilegt en vel hugsanlegt að það sé ekki það ódýrasta sem þú færð.
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Þri 16. Okt 2012 12:42
af kjarrig
Mín reynsla er sú að þessar leitarvélar virka ekki almennilega, ég hef verið að bóka flug (tengiflug, beint flug) og hef ekki enn fengið ódýrasta flugfarið í gegnum þessar leitarvélar. Ég myndi skoða bara flug frá London, mikið um flug þaðan í allar áttir. Snöggt dæmi, bókaði flug til Izmir í Tyrklandi, með Icelancexpress til London og EasyJet þaðan, flug aðra leið er um 40.000, en eDreams.com fann flug (1 flug) á um 500.000.
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Þri 16. Okt 2012 15:09
af Ulli
Fekk beint flug frá Munchen til íslands á 130€..Notaði Edreams
Annarstaðar var boðið upp á flug með millilendingu í Köben á 290-320€
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Þri 16. Okt 2012 22:18
af Frantic
Ulli skrifaði:Fekk beint flug frá Munchen til íslands á 130€..Notaði Edreams
Annarstaðar var boðið upp á flug með millilendingu í Köben á 290-320€
Var að prófa EDreams og mér finnst verðin vera í mjög lág.
Vantar eitthvað inní þessi verð?
Þarf maður að borga eitthvað aukalega við að innrita farangur etc?
Re: Hvaða leið nota men í að finna ódýr flug út í heim?
Sent: Þri 16. Okt 2012 23:33
af hundur
Getur líka athugað hvort það séu ódýr flug héðan til staðar þar sem Ryanair flýgur til (held Ryanair finnist oft ekki á svona leitarvélum).
Ég veit að þeir fljúga frá Billund í Danmörku og alveg örugglega London líka og miðarnir þar eru hræódýrir. Passaðu þig samt á öllum skilmálunum þeirra!