Síða 1 af 2

Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 13:09
af Dagur
http://www.kickstarter.com/projects/ada ... r-everyone

The Parallella is a new pocket sized computer based on the Epiphany multicore chips developed by semiconductor start-up Adapteva.

The Epiphany chips consists of a scalable array of simple RISC processors programmable in C/C++ connected together with a fast on chip network within a single shared memory architecture. Much more detailed technical information about the Epiphany architecture can be found on Adapteva's website.

Parallella computer specifications:

Dual-core ARM A9 CPU
Epiphany Multicore Accelerator (16 or 64 cores)
1GB RAM
MicroSD Card
USB 2.0 (two)
Two general purpose expansion connectors
Ethernet 10/100/1000
HDMI connection
Ships with Ubuntu
Ships with free open source Epiphany development tools that include C compiler, multicore debugger, Eclipse IDE, OpenCL SDK/compiler, and run time libraries.
Dimensions are 3.4'' x 2.1''

Parallella project is currently on Kickstarter targeting a funding goal of $750k. If they reach $3 million, a new 64 core board for $199 will also be launched.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 13:42
af playman
Já sæll.

En hvaða "memory bottleneck er hann að tala um?

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 13:55
af dori
Mmm... Mig langar. Bara spurning hvað maður myndi gera við þetta :P

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 15:00
af Varasalvi
Ég skil ekkert í þessu :/

Á þetta að vera eins og venjuleg PC tölva, sem getur verið með t.d windows 7 og er alveg eins í notkun og PC, nema mikklu kraftmeiri?

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 15:50
af Dagur

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 15:58
af Viktor
Einhversstaðar heyrði ég...
if it sounds to good to be true... it usually is?

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:04
af dori
Þetta getur verið miklu kraftmeira en venjleg tölva með því að hafa parallel vinnslu. En venjuleg forrit skrifuð fyrir einn kjarna munu aldrei keyra hraðar á svona arkitektúr. Svo er ekkert víst með hvaða stýrikerfi keyra á svona arkitektúr.

En með því að skipta verkum niður þannig að það sé hægt að vinna þau samtímis á mörgum kjörnum og taka svo saman niðurstöðuna þá geturðu á mjög auðveldan hátt rústað núverandi tölvum í vinnuafli. Vandamálið er hins vegar aðallega að forrit eru ekki skrifuð til að nýta sér svona nema að mjög miklu leyti og þannig þarf að búa allt slíkt til aftur. En ef þetta er opið og allir geta kynnt sér í grunninn hvernig arkitektúrinn virkar þá held ég að það gæti orðið mikil lyftistöng fyrir þróun á tölvum og vélbúnaði.

Ég er allavega mest spenntur fyrir því að þetta væri "open source" hardware en ekki því að þetta er "sjúkleg ofurtölva".

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:23
af Garri
dori skrifaði:Þetta getur verið miklu kraftmeira en venjleg tölva með því að hafa parallel vinnslu. En venjuleg forrit skrifuð fyrir einn kjarna munu aldrei keyra hraðar á svona arkitektúr. Svo er ekkert víst með hvaða stýrikerfi keyra á svona arkitektúr.

Mesta málið í þessu að fjöldi forrita sem gætu nýtt samhliða vinnslu eru ekki svo mörg. Flestar vinnslur eru "tunnel" eðlis af einhverju tagi, það er, Fyrsta þarf A, síðan B til að geta fengið út C.

Þannig gæti B hlutinn ekki farið af stað fyrr en A hlutinn er búinn og C hlutinn þarf að bíða eftir B hlutanum osfv. (á við bæði yfirgripsmikin kerfi og niður í örlitlar stefjur)

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:28
af dori
Garri skrifaði:

Algjörlega. En það er margt þar sem einfalda lausnin er að gera fyrst A og reikna svo út B þar sem hann reiðir á A. En oft er hægt að breyta ferlinu þannig að það lagist að samhliða vinnslu. Þar sem þú getur brotið hlutina niður í mörg einfaldari skref og tekið þau svo saman. Ekkert allt. En með því að vera frumlegur er ýmislegt sem er hægt að gera.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:54
af Garri
Það er vissulega margt sem er hægt.. gallinn er bara flækjustigið.

Flækjustigið virðist vera yfrið nóg í dag til dæmis miðað við hrakfallasögurnar sem berast frá Advania og tölvuvæðingu ríkisins.

Áskorun:
Gaman væri ef einhverjir vaktarar mundu reikna út hversu mikið fljótari fjórir örgjörvar væru að sortera lista upp á 1.000.000 stök af stengjum með að meðaltali 25 stafi hver, til dæmis með Bubble Sort (hugsa að Quick Sort og aðrir meir advance væri kannski of flókið að reikna) alrími, annars vegar með Tunnel aðferðinni og hinsvegar með því að skipta listanum upp í fjögur verk (fjóra þræði) og tvinna síðan þessa fjóru sortuðu lista saman í restina.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 28. Sep 2012 23:32
af Eiiki
Er samt ekki verið að tala um að þessar ofurtölvur séu bara í þróun? Það á alveg eftir að útbúa og hanna hugbúnaðinn fyrir þessar vélar..
En þegar það klárast þá erum við virkilega mikið að tala um alvöru vélar!

Garri skrifaði:Það er vissulega margt sem er hægt.. gallinn er bara flækjustigið.

Erum við samt að tala um eitthvað miklu flóknara flækjustig heldur en fyrir nútíma hugbúnað sem nýtir sér t.d. 8kjarna örgjörva? Ætti að ég held ekki að vera mikið meira mál fyrir færa forritara.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mán 01. Okt 2012 10:38
af Dagur
Eiiki skrifaði:Er samt ekki verið að tala um að þessar ofurtölvur séu bara í þróun? Það á alveg eftir að útbúa og hanna hugbúnaðinn fyrir þessar vélar..

Pælingin er að gefa hverjum sem er tækifæri til að þróa í parallel umhverfi þannig að tölvunarfræðinni geti fleytt fram.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mán 01. Okt 2012 11:07
af dori
Eiiki skrifaði:Er samt ekki verið að tala um að þessar ofurtölvur séu bara í þróun? Það á alveg eftir að útbúa og hanna hugbúnaðinn fyrir þessar vélar..
En þegar það klárast þá erum við virkilega mikið að tala um alvöru vélar!

Garri skrifaði:Það er vissulega margt sem er hægt.. gallinn er bara flækjustigið.

Erum við samt að tala um eitthvað miklu flóknara flækjustig heldur en fyrir nútíma hugbúnað sem nýtir sér t.d. 8kjarna örgjörva? Ætti að ég held ekki að vera mikið meira mál fyrir færa forritara.

Vélarnar eru til. Spurningin er bara að fá nógu marga kaupendur til að geta fjöldaframleitt tölvuna.

Það er miklu miklu erfiðara að þróa fyrir parallel keyrslu. Ég veit ekki hvað þú átt við með "fær forritari" en ég get fullvissað þig um að þessi meðal forritari í dag hugsar rosalega lítið um hvernig er hægt að besta það sem hann gerir fyrir þessa allt að 8 kjarna sem hugbúnaðurinn hans keyrir á.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Lau 13. Okt 2012 20:37
af Stuffz
The big boys are going to buy them out and shut them down, this is too good to be allowed to work.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fim 25. Okt 2012 10:26
af Dagur
59 tímar eftir og þeir eru ennþá $250.000 frá markinu.

Þeir hafa hent inn fullt af efni til að kynna þetta og mér finnst þetta líta betur og betur út. Þeir hafa líka verið að leggja meiri áherslu á að þetta sé ekki bara fyrir forritara heldur er þetta líka fín tölva fyrir almenna notendur.

Hvet ykkur til að taka þátt (mig langar í svona!)

http://www.kickstarter.com/projects/ada ... r-everyone

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fös 26. Okt 2012 11:17
af dori
Já, núna eru þeir rúmum $150 þúsund frá markinu. Ég kommittaði á að kaupa af þeim í gær. Mig langar í þetta... Kaupið ykkur alvöru tölvu!

Þið sem eruð að folda, ímyndið ykkur hvað þið gætuð gert með 26 GFLOPS

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mið 17. Apr 2013 17:29
af Dagur

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mið 17. Apr 2013 21:16
af dori
Ég er einmitt að bíða :D

Mikið hlakka ég til.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mið 17. Apr 2013 21:30
af I-JohnMatrix-I
Nú spyr ég eins og einhver algjör auli en í hvað er þetta notað? Varla spilar þetta leiki betur en flestar gaming borðtölvur ? :)

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mið 17. Apr 2013 21:57
af dori
Öflug low-power tölva á stærð við kreditkort... Þú hlýtur að geta látið þér detta eitthvað í hug.

Ég ætla bara að leika mér með mitt. En þetta er væntanlega mjög fínt platform til að rendara hluti og bara allt sem crunchar tölur. Robotics og OpenCV er líka eitthvað sem manni dettur í hug.

Annars er forum fyrir þetta þar sem það er þráður þar sem menn hafa póstað því sem þeir ætla að gera með sitt: http://forums.parallella.org/viewtopic.php?f=9&t=34

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mið 17. Apr 2013 22:44
af Gislinn
dori skrifaði:Öflug low-power tölva á stærð við kreditkort... Þú hlýtur að geta látið þér detta eitthvað í hug.

Ég ætla bara að leika mér með mitt. En þetta er væntanlega mjög fínt platform til að rendara hluti og bara allt sem crunchar tölur. Robotics og OpenCV er líka eitthvað sem manni dettur í hug.

Annars er forum fyrir þetta þar sem það er þráður þar sem menn hafa póstað því sem þeir ætla að gera með sitt: http://forums.parallella.org/viewtopic.php?f=9&t=34

Verst er hvað RAM-ið er mikið bottleneck.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mið 17. Apr 2013 23:01
af dori
Ert þú með einhverja töff hugmynd sem myndi ekki virka með svona litlu minni? Þú varst að rendera eitthvað líkan á ofur shuttle tölvu var það ekki?

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mið 17. Apr 2013 23:32
af Gislinn
dori skrifaði:Ert þú með einhverja töff hugmynd sem myndi ekki virka með svona litlu minni? Þú varst að rendera eitthvað líkan á ofur shuttle tölvu var það ekki?

Flestar vísindalegar módeleringar krefjast aðeins meira en 16-64 MB per kjarna eins og parallella býður uppá (algengt viðmið er 2-4 GB per kjarna). Enda má finna mikið af gagnrýni á netinu frá vísindafólki sem hefur talað um hvað þetta gæti verið öflugt tól (sérstaklega í akademísku umhverfi þar sem kostnaður borðsins er klárlega kostur) ef það hefði meira RAM.

Annars er áhugaverð umræða sem hefur verið um takmarkanir á þessu borði, þeir sem hafa áhuga getað googlað Parallella Von Neumann bootleneck.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Mið 17. Apr 2013 23:51
af dori
Ég studdi þetta verkefni bara útaf því að ég fíla conceptið og hugsunina á bakvið þetta (open source etc.) og af því að ég sá alveg fyrir mér að það væri í versta falli hægt að leika sér með þetta á svipaðan hátt og Raspberry Pi. Hef varla kynnt mér hvaða fítusar eru á þessu ennþá eða hvað er hægt að gera nema bara rosalega yfirborðskennt.

Samt er ég viss um að þetta muni finna sér stað sem er gagnlegur, þó svo að meira ram skemmi auðvitað aldrei. Spurning hvort þeir haldi áfram og komi með nýja útgáfu ef þetta heppnast vel sem muni henta betur fyrir einhverjar svona módeleringar.

Núna fer þetta samt að detta inn svo að maður þarf að skoða betur hvað á að leika sér með fyrst.

Re: Ofurtölva á $99

Sent: Fim 18. Apr 2013 00:04
af Gislinn
dori skrifaði:Ég studdi þetta verkefni bara útaf því að ég fíla conceptið og hugsunina á bakvið þetta (open source etc.) og af því að ég sá alveg fyrir mér að það væri í versta falli hægt að leika sér með þetta á svipaðan hátt og Raspberry Pi. Hef varla kynnt mér hvaða fítusar eru á þessu ennþá eða hvað er hægt að gera nema bara rosalega yfirborðskennt.

Samt er ég viss um að þetta muni finna sér stað sem er gagnlegur, þó svo að meira ram skemmi auðvitað aldrei. Spurning hvort þeir haldi áfram og komi með nýja útgáfu ef þetta heppnast vel sem muni henta betur fyrir einhverjar svona módeleringar.

Núna fer þetta samt að detta inn svo að maður þarf að skoða betur hvað á að leika sér með fyrst.

Þetta mun án efa nýtast mörgum og ég var sjálfur að spá í að skella mér á eina á sínum tíma en þar sem ég á nú þegar nokkur Arduino, Raspberry Pi of.l dót sem ég hef ekki enn komist í að leika mér almennilega með þá ákvað ég að bíða með Parallella. Ég vona bara að þeir haldi áfram að þróa þetta concept. :happy

Ég er alls ekki að segja að þeir sem keypti svona hafi verið að gera mistök, ég held að þessi græja geti verið stórskemmtileg í t.d. image processing, ég tel bara að "supercomputer" sé ekki réttnefni. Ef maður setur þetta í samhengi þá ertu að borga 99USD fyrir tölvu sem hefur möguleika á ca. 26 GFLOPS afköstum meðan tölva með i7 3770 er líklegast >100 GFLOPS.