Síða 1 af 1

Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 19:58
af agust1337
Já, tíminn líður hratt, og það eru liðin 11 ár síðan að 9/11 árásin átti sér stað á tvíbura turnina þar sem rúmlega 3000 manns fórst.
Sorglegt :/
Munið þið hvað þið voruð að gera þegar þetta átti sér stað?
11 Years After 9/11 Attacks, Victims' Family, Friends Return to Ground Zero

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 20:04
af Klemmi
Og hvaða hafa Bandaríkjamenn drepið marga saklausa borgara í Írak og Afganistan?

Mér finnst þessi 11. september áróður mjög þreytandi, jújú það er sorglegt að þetta hafi verið árás á saklausa borgara, en Bandaríkjamenn drepa líklega fleiri saklausa borgara á hverju einasta ári.

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 20:25
af Baldurmar
HAPPY 911 ♥ ✈ ▌▌ / ¦҉▌▌ / ▄ ▌ / ▄✈▌ / ▄ ¦҉▌ / ▄ ▄

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 20:39
af tdog
Klemmi skrifaði:Og hvaða hafa Bandaríkjamenn drepið marga saklausa borgara í Írak og Afganistan?

Mér finnst þessi 11. september áróður mjög þreytandi, jújú það er sorglegt að þetta hafi verið árás á saklausa borgara, en Bandaríkjamenn drepa líklega fleiri saklausa borgara á hverju einasta ári.

Mér finnst þetta merkilegra en árásin á WTC.

Mynd

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 20:41
af Moquai
Klemmi skrifaði:Og hvaða hafa Bandaríkjamenn drepið marga saklausa borgara í Írak og Afganistan?

Mér finnst þessi 11. september áróður mjög þreytandi, jújú það er sorglegt að þetta hafi verið árás á saklausa borgara, en Bandaríkjamenn drepa líklega fleiri saklausa borgara á hverju einasta ári.


100% sammála.

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 20:43
af Bragi Hólm
Var sofandi eftir næturvakt og kærastan kom með látum heim úr skólanum og vakti mig útaf þessu. Man þetta var hræðilegt enn í dag þegar maður horfir á heildarmyndina og það sem þetta hefur haft í för með sér nennir ma'ur ekki að spá í þessum 9/11....

Mynd

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 22:53
af halldorjonz
Ég hef alltaf haldið því fram að þetta hafi bara verið planað af háttsettum bandaríkjamönnum..

http://www.gagnauga.is/index.php?Fl=Greinar&ID=223

Mæli með að lesa þetta, horfa á nokkrar heimildarmyndir sem eru ekki svona "mainstrím" sem einblína á það sem þú átt að halda að hafi gerst..

Hlustaði á viðtal með þessum gæja þarna um þetta mál um daginn á armageddon, margt rétt, skrýtið og satt hjá honum,
en sprenghlægilegt og skemmtilega alvarleg umræða í leiðinni... :lol:

T.d. með vegabréfið sem "fannst" frá terroristanum
flugvél sem crashaði í gegnum heila byggingu, allt sprakk og brann, meira segja þetta sterka járndóterí þarna brann,
enn.. enn vegabréfið.. vegabréfið, það bara stökk út úr flugvélinni, og tók fallhlíf og lenti á mjúklega á jörðinni alveg óskaddað og brann ekkert, ansi magnað :roll:

Viðtalið: www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP ... 496327829& .. mæli með þessu, 30 min skemmtun

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 22:55
af Victordp
Ég elska 9/11 <3

ég á afmæli lol

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 23:08
af Daz
halldorjonz skrifaði:T.d. með vegabréfið sem "fannst" frá terroristanum
flugvél sem crashaði í gegnum heila byggingu, allt sprakk og brann, meira segja þetta sterka járndóterí þarna brann,
enn.. enn vegabréfið.. vegabréfið, það bara stökk út úr flugvélinni, og tók fallhlíf og lenti á mjúklega á jörðinni alveg óskaddað og brann ekkert, ansi magnað :roll:



Ég hef svosem engar sérstakar skoðanir á þessu máli í heild sinni, en varðandi þetta atvik (held að þeir hjá vantrú hafi sagt eitthvað svipað), þá er alltaf gott að skilja hvernig líkindi virka. Það er mjög ólíklegt að ég vinni í lottó (sérstaklega þar sem ég kaupi aldrei miða, but I digress), en það er nokkuð öruggt að það vinnur einhver í lottó. Alveg það sama með ólíklega atburði, einn ákveðinn atburður er ólíklegur, en að EINHVER ólíklegur atburður gerist er hreinlega bara næstum öruggt. Svo minnir mig nú að það hafi fundist ýmislegt meira brak úr vélinni, líklega einmitt allskonar léttir hlutir sem hafa skotist út í sprengingunni/unum. Ég nenni ekki að googla mér til um það, þar sem mér er alveg sama hvað fannst, vildi bara koma þessu að.

Annars held ég að ég hafi verið að keyra þegar flogið var á turnana, líklega á leiðinni heim úr skóla að hlusta á Xið og þeir hafa hoppað inn í dagskrána að segja frá þessu. Þetta var svolítið sjokkerandi, ekki síst þetta "hryðjuverk í beinni" sjónarhorn sem mér fannst mjög ... kalt? Ég horfði nú samt á íraksstríðið (fyrra) á Rúv á sínum tíma líka, þegar ég hugsa um þetta er eiginlega stórfurðulegt að svona atburðir séu sýndir í beinni útsendingu.

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 23:11
af svanur08
Áróður er þetta í ykkur.

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Þri 11. Sep 2012 23:17
af capteinninn
halldorjonz skrifaði:Ég hef alltaf haldið því fram að þetta hafi bara verið planað af háttsettum bandaríkjamönnum..

http://www.gagnauga.is/index.php?Fl=Greinar&ID=223

Mæli með að lesa þetta, horfa á nokkrar heimildarmyndir sem eru ekki svona "mainstrím" sem einblína á það sem þú átt að halda að hafi gerst..

Hlustaði á viðtal með þessum gæja þarna um þetta mál um daginn á armageddon, margt rétt, skrýtið og satt hjá honum,
en sprenghlægilegt og skemmtilega alvarleg umræða í leiðinni... :lol:

T.d. með vegabréfið sem "fannst" frá terroristanum
flugvél sem crashaði í gegnum heila byggingu, allt sprakk og brann, meira segja þetta sterka járndóterí þarna brann,
enn.. enn vegabréfið.. vegabréfið, það bara stökk út úr flugvélinni, og tók fallhlíf og lenti á mjúklega á jörðinni alveg óskaddað og brann ekkert, ansi magnað :roll:

Viðtalið: http://www.visir.is/section/MEDIA98&fil ... 496327829& .. mæli með þessu, 30 min skemmtun



Ég held að það sé ekki hægt að skipuleggja svona stóran atburð án þess að neinn segi neitt eða að ekkert komist upp. Gæti frekar trúað að þeir hafi vitað að eitthvað væri að fara að gerast og plönuðu að nýta sér það til að gera það sem þeir gerðu. Það gæti útskýrt þetta rugl með vegabréfið að þeir hafi bara notað það sem afsökun þegar þeir vissu í raun alveg hverjir höfðu framkvæmt þetta.

Annars mæli ég með því að skoða sögu Al-Qaeda og horfa t.d. á þættina The Power of Nightmares eftir Adam Curtis en þar tekur hann þessa mýtu um Al-Qaeda sem alþjóðleg hryðjuverkasamtök og snýr því á hausinn, fjallar hann um svikahrappinn sem var lykilvitni í RICO máli BNA manna gegn Bin Laden sem er talinn hafa logið öllu upp o.s.frv.

Áhugaverð lesning er Operation Northwoods þar sem DoD og JCS voru með áætlun um að meðal annars sprengja flugvél yfir Kúbu til að réttlæta innrás í landið, þeirri áætlun var hent út.

Ég gæti alveg trúað því að Flug 93 hafi verið skotin niður og mér finnst það bara ekkert óeðlilegt, jafn hræðilegt og það er að skjóta niður saklaust fólk verður maður að horfa á fórnarkostnaðinn, annaðhvort deyja allir í flugvélinni eða allir í flugvélinni og fólkið sem hefði verið þar sem skotmarkið var.

Mikið fer þessi maður samt í taugarnar á mér sem er í þessu viðtali, ég hætti strax að taka mark á mönnum þegar þeir eru nánast froðufellandi því þeir eru svo æstir í staðinn fyrir að útskýra mál sitt á hnitmiðaðan og rólegan hátt. Hann er alltaf að tala yfir hinn aðilann, leyfa hinum að klára sitt mál og koma svo með mótrök en ekki hrópa bara yfir. Þessi Matti er alger hetja að fara bara ekki úr viðtalinu því ég hefði gert það fyrir löngu síðan, ég er orðinn pirraður á að hlusta á þetta núna. Þessi Guðjón Heiðar er svo mikið að berjast gegn því að þetta er rannsakað frekar því það nennir enginn að hlusta á hann öskra á þá sem rökræða gegn honum og vera með einhver læti. T.d. núna hefði ég alveg gaman að hlusta á þetta viðtal en eftir rúmar 2 mín gafst ég upp því hann fer bara svo í taugarnar á mér að ég get ekki hlustað lengur.

En já þetta á eftir að hljóma frekar illa en ég var í strætó á leiðinni heim og bílstjórinn sagði mér og vini mínum að flugvél hefði flogið á einhverja turna í New York, við töluðum um hvað það væri stupid að sjá ekki risastórt háhýsi fyrir framan sig og fljúga beint á hann. Við héldum að þetta væri bara einhver lítil rella en svo kom ég heim og kveikti á sjónvarpinu og hugsaði strax SHIT

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Mið 12. Sep 2012 13:41
af bulldog
Ég var upp á Reykjalundi þegar þetta gerðist gleymi því aldrei.

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Mið 12. Sep 2012 14:19
af Leviathan
halldorjonz skrifaði:Ég hef alltaf haldið því fram að þetta hafi bara verið planað af háttsettum bandaríkjamönnum..

http://www.gagnauga.is/index.php?Fl=Greinar&ID=223

Mæli með að lesa þetta, horfa á nokkrar heimildarmyndir sem eru ekki svona "mainstrím" sem einblína á það sem þú átt að halda að hafi gerst..

Hlustaði á viðtal með þessum gæja þarna um þetta mál um daginn á armageddon, margt rétt, skrýtið og satt hjá honum,
en sprenghlægilegt og skemmtilega alvarleg umræða í leiðinni... :lol:

T.d. með vegabréfið sem "fannst" frá terroristanum
flugvél sem crashaði í gegnum heila byggingu, allt sprakk og brann, meira segja þetta sterka járndóterí þarna brann,
enn.. enn vegabréfið.. vegabréfið, það bara stökk út úr flugvélinni, og tók fallhlíf og lenti á mjúklega á jörðinni alveg óskaddað og brann ekkert, ansi magnað :roll:

Viðtalið: http://www.visir.is/section/MEDIA98&fil ... 496327829& .. mæli með þessu, 30 min skemmtun

Ein röng kenning þýðir ekki að þær séu það allar.

http://youtu.be/Zv7BImVvEyk

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Mið 12. Sep 2012 14:30
af jericho
halldorjonz skrifaði:Hlustaði á viðtal með þessum gæja þarna um þetta mál um daginn á armageddon, margt rétt, skrýtið og satt hjá honum,
en sprenghlægilegt og skemmtilega alvarleg umræða í leiðinni... :lol:
...
Viðtalið: http://www.visir.is/section/MEDIA98&fil ... 496327829& .. mæli með þessu, 30 min skemmtun


Það var líka viðtal við Guðjón aftur í gær (11.sept 2012) og ég missti allt álit á öðrum meðlimi Harmageddion, því miður (frábærir þættir). Hann gat engan veginn haldið umræðunni málefnalegri, kallaði Guðjón samsæris-"nöttara" og endaði svo umræðuna með því að líkja honum við Breivik. Annar þáttastjórnandinn snéri út úr öllum rökum sem Guðjón færði fram (eins og sú staðreynd að ekkert blackbox fannst en vegabréf flugræningjans fannst óskaddað aftur á móti) og gerði lítið úr þeim. Mér fannst Guðjón alveg frábær í báðum viðtölum. Seinna viðtalið er reyndar ekki komið inn á Vísi.is og ég efast um að það verði sett þangað inn.

Ég ætla ekki að taka afstöðu til þessara árása, en við ættum frekar að eyða orkunni okkar í að uppræta hungur, ofbeldi eða annan viðbjóð í stað þess að velta okkur upp úr þessum árásum.

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Mið 12. Sep 2012 15:57
af halldorjonz
jericho; Anans leiðindi að þeir virðiast ætla sleppa því að setja þetta á Visi! Var eitthvað að þessu viðtali þannig að það ætti ekki að berast á netið eða? :popeyed

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Mið 12. Sep 2012 16:02
af jericho
Það er best að vera ekkert að fabúlera um þetta (viðtalið gæti þess vegna dottið inn á eftir), en mér þykir það ekki vera þættinum til framdráttar. Meira að segja hinum þáttarstjórnandanum fannst Breivik samlíkingin vera yfir velsæmismörkum.

Það er bara vonandi að viðtalið detti inn fljótlega. Þá getur hver dæmt fyrir sig.

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Mið 12. Sep 2012 16:03
af Varasalvi
Munið þið hvað þið voruð að gera þegar þetta átti sér stað?


Ég var í hádeigishléi í skólanum, ég og félagi minn fórum heim to hans og þegar við komum sáum við foreldra hans sitjandi áköf fyrir framan sjónvarpið. Ég man eftir að hafa séð flugvélina fljúa á bygginguna en ég hélt að þetta væri bíómynd. Var ekki fyrr en skólinn sendi alla heim þegar ég fattaði að þetta var alvarlegt.

Edit: Athygliverð staðreynd. Amma mín og afi voru að fjúga í bandaríkjonum þegar þetta gerðist :o

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Mið 12. Sep 2012 17:51
af axyne
jericho skrifaði:Það var líka viðtal við Guðjón aftur í gær (11.sept 2012) og ég missti allt álit á öðrum meðlimi Harmageddion, því miður (frábærir þættir).


Sammála þessu, held mikið uppá Harmagedddon og hvernig ýmis málefni eru rædd á mannamáli. Hvernig Frosti lét í þættinum var fyrir neðan allar hellur og ekki þættinum til framdráttar.
Í fyrra viðtalinu þá var Guðjón alltof æstur og kom það niður á honum. Í því seinna var hann yfirvegaður og Frosti einfaldlega barnalegur með uppnefningum og reyna að æsa Guðjón upp.
Þótt umræðuefnið sé umdeild þá er eingin ástæða til að hrauna yfir Guðjón og hans málstað, það var bara tímaspurnsmál hvenær Guðjón fengi nóg og sliti samtalinu.

Re: Virkilega liðin 11 ár

Sent: Fös 14. Sep 2012 15:39
af jericho
Þátturinn í heild sinni er kominn á netið, ef menn vilja heyra viðtalið við Guðjón nokkurn Heiðar nokkurn Valgarðsson.

http://visir.is/section/MEDIA98&fileid=SRC386ACACB-10E8-4814-B258-895C1B325B34