Síða 1 af 1

Veit einhver um lögfræðing sem tekur að sér líkamsárásarmál?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 12:55
af DJOli
Ég er einfaldlega að leita mér að lögfræðing, en ég eiginlega hef ekki tímann í að hringja á allar lögfræðistofur íslands til að spyrjast fyrir um lögmann/lögmenn sem taka að sér líkamsárásarmál.

Er eiginlega að vonast til að þið getið hjálpað mér.

Takk.

Re: Veit einhver um lögfræðing sem tekur að sér líkamsárásar

Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:01
af Daz
S.s. þú vilt fara í einkamál, en ekki kæra til lögreglu og fara í opinbert mál? Þarft ekki lögfræðing í opinberu máli eftir því sem ÉG best veit. Ég veit voða lítið samt.

Re: Veit einhver um lögfræðing sem tekur að sér líkamsárásar

Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:28
af AciD_RaiN
Talaðu við Stefán Karl http://www.facebook.com/stefan.k.kristjansson?ref=ts

Segðu bara að Birkir Már hafi bent þér á hann. Hann hefur gert helling fyrir mig og ég hef aldrei þurft að borga krónu. Hann er líka mjög góður. Hann og bróðir hans vinna svoldið saman í málum.

Re: Veit einhver um lögfræðing sem tekur að sér líkamsárásar

Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:29
af Klemmi
Daz skrifaði:S.s. þú vilt fara í einkamál, en ekki kæra til lögreglu og fara í opinbert mál? Þarft ekki lögfræðing í opinberu máli eftir því sem ÉG best veit. Ég veit voða lítið samt.


Ég kærði líkamsárás til lögreglu fyrir rúmum 2 árum síðan, hef ekkert heyrt síðan þá. Hef ekki nennt að ganga á eftir kærunni og geri það líklega aldrei þar sem það sér ekki á mér lengur (er með lítið ör undir augabrúninni) og ég hafði verið með stæla við viðkomandi fyrr um kvöldið, en ekkert sem afsakaði þó árásina :thumbsd

Svo ef þú ert handviss um að þú viljir kæra viðkomandi, þá mæli ég með því að þú farir já í einkamál, opinbert mál í gegnum lögregluna er líklega leiðin sem réttarkerfið vill að þú farir, en held þú megir ekki búast við neinu með því að fara þá leið, hvorki í bótum né refsingu fyrir árásaraðilann.

Re: Veit einhver um lögfræðing sem tekur að sér líkamsárásar

Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:51
af Plushy
Það tekur langan tíma að fara með þetta í gegnum lögguna, veit að einn í vinnunni var kærður fyrir líkamsáras, síðan gerðist ekkert í 2-3 ár og hann hélt að hann hefði sloppið þangað til fyrir stuttu fékk hann boð um að mæta fyrir dómara :P