Hefur einhver hérna reynslu af heyrnatólum sem henta vel til útivistar og líkamsræktar þ.e þola raka og svita þar sem ég hef náð að skemma öll heyrnatól sem ég hef átt vegna þess að þau endast ekki lengi í svitabaði

Getið þið mælt með einhverjum sérstökum sem búa yfir endingu og góðum hljómgæðum. Þá er ég að tala um svona in ear unit eða sambærilegt sem hentar við hlaup og annað.
Vona að það sé í lagi að pósta þessu á koníakið, ég fann allavega ekki umræðuborð fyrir þetta.