Erfiður dagur!

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Erfiður dagur!

Pósturaf GuðjónR » Þri 24. Apr 2012 16:34

Helvítis Kangoo'inn neitaði að fara í gang niðri í mjódd í dag, hann bókstaflega drapst!
Held það sé allt í lagi með rafgeymirinn en það virkaði ekkert að gefa honum straum.
Dró hann á verkstaði B&L og þar verður kannað hvað er að, mig grunar sterklega að startarinn sé bilaður.

Ég þurfti reyndar að kvitta undir blað þar sem ég viðurkenni að skulda þeim 13500 kr. fyrir bilanagreiningu!
Var orðinn svo pirraður á þessu öllu að ég nennti ekki að spyrja manninn út í þetta, finnst líklegt að þetta sé eitthvað gjald sem þeir rukka ef kúnninn ætlar sér að láta laga bílinn annarsstaðar. Allaveganna ef bilanagreining kostar 13500 hvað kostar þá viðgerðin :face

Jæja...kaffibolli og út að mála staura og langbönd...

vesley
Kóngur
Póstar: 4254
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf vesley » Þri 24. Apr 2012 16:38

Ef startarinn er dauður ekki samþykkja strax að skipta um startara!

í 90% tilvika eru bara kolin búin í startaranum og kostar bara örfáa þúsund kalla að kaupa ný kol og er það mjög auðvelt að skipta um þau.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf GuðjónR » Þri 24. Apr 2012 16:39

vesley skrifaði:Ef startarinn er dauður ekki samþykkja strax að skipta um startara!

í 90% tilvika eru bara kolin búin í startaranum og kostar bara örfáa þúsund kalla að kaupa ný kol og er það mjög auðvelt að skipta um þau.

Góður punktur!

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf tlord » Þri 24. Apr 2012 16:46

GuðjónR skrifaði:
vesley skrifaði:Ef startarinn er dauður ekki samþykkja strax að skipta um startara!

í 90% tilvika eru bara kolin búin í startaranum og kostar bara örfáa þúsund kalla að kaupa ný kol og er það mjög auðvelt að skipta um þau.

Góður punktur!

þvímiður mikil reip-hætta hjá bílaumboðum, good luck samt

Skjámynd

lifeformes
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 369
Skráði sig: Fim 10. Feb 2011 23:58
Reputation: 25
Staðsetning: 66°N
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf lifeformes » Þri 24. Apr 2012 16:57

skeði það sama hjá mér um daginn á Skodi-lackinum og bætheway er Hekla með umboðið en hef aldrei þurft að borga krónu fyrir að fara í tölvuna hjá þeim eða fá bilanagreiningu hjá þeim, eeeeen nýr startari kostaði
ekki NEMA 85.000.- ISLkr.
en ég fann nýjan startara hjá Ljósboganum ´Bíldshöfða 14´ á 20000 kall svo það er alveg þess virði að skoða í kringum sig eftir varahlutum. :happy

Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2349
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 54
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf Klaufi » Þri 24. Apr 2012 16:59

Partar s. 555-6-555
Ef þig vantar varahluti í Kangoo-inn ;)

Mynd

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf GuðjónR » Þri 24. Apr 2012 17:01

Það var viðtal við verkstæðisformann hjá einhverju umboðana um daginn, minnir að það hafi verið B&L/Ingvar Helgason en þar var hann að tala um að þeir hefðu áhyggjur af "bílskúrsviðgerðarmönnum"
Fólk væri að fá verri viðgerðir og það væri líkur á fúski etc...

... ef gjaldtakan hjá umboðunum verður út úr kú þá eru þeir sjálfir að stuðla að því að "bílskúrsviðgerðarmenn" skjóti rótum. Þetta getur hreinlega verið spursmál hvort fólk hafi yfir höfuð efni á viðgerðinni eða ekki.

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf tlord » Þri 24. Apr 2012 17:22

GuðjónR skrifaði:Það var viðtal við verkstæðisformann hjá einhverju umboðana um daginn, minnir að það hafi verið B&L/Ingvar Helgason en þar var hann að tala um að þeir hefðu áhyggjur af "bílskúrsviðgerðarmönnum"
Fólk væri að fá verri viðgerðir og það væri líkur á fúski etc...

... ef gjaldtakan hjá umboðunum verður út úr kú þá eru þeir sjálfir að stuðla að því að "bílskúrsviðgerðarmenn" skjóti rótum. Þetta getur hreinlega verið spursmál hvort fólk hafi yfir höfuð efni á viðgerðinni eða ekki.

jamm rétt.

hár vaskur á útseldri er líka að skemma mikið fyrir. Ytir undir svarta vinnu sem er þá heldur ekki borgaður annar skattur af.

OFF TOPiC
er ekki verktakavinna til útlanda vöskuð líka, heyrði einhvern tala um að það væri erfitt fyrir íslenska verktaka með rekstur skráðan á íslandi
að selja sig erlendis útaf þessu, veit enhver??

Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf Danni V8 » Þri 24. Apr 2012 17:29

Úff. Aldrei myndi ég borga svona mikið fyrir bilanagreiningu og eiga síðan eftir sjálfa viðgerðina!

Ég hefði frekar tjakkað bílinn upp, sett klossa fyrir dekkin og passað að hann væri ekki í gír. Sett síðan skrúfjárn á milli pólanna til að gá hvort að startarinn myndi snúast eða ekki. Veit ekki hvernig aðgengið er að startanum í Kangoo en það ætti ekki að taka meira en korter að gera þetta og með þessu er hægt að útiloka hvort það er startarinn eða ekki.

En hvort er þetta beinskiptur eða sjálfskiptur bíll? Ef beinskiptur, prófaðiru að draga hann í gang?

Varðandi bílskúrsviðgerðir þá er alveg rétt að það eru miklar líkur á fúski. En það er líka lykil atriði að fara til einhvers sem þú treystir eða hefur heyrt góða hluti af. Ég hef verið með nokkra bíla inní skúr hjá mér sem hefur verið mikið fúskað í í gegnum árin og ég geri mikið af því að leiðrétta úr þannig fúski. Það skemmir oftar en ekki útfrá sér þrátt fyrir að laga bílinn til að byrja með.

Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3086
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf lukkuláki » Þri 24. Apr 2012 17:35

Hvað sem gerist og hvað sem er að renóinum EKKI fara með hann til BL - A L D R E I !

Ég er búinn að eiga nokkra Renault undanfarin 10 - 15 ár og er alveg ánægður með bílana en HATA ógeðslegu ömurlegu þjónustuna hjá BL
þegar þetta sameinaðist svo IH þá versnaði það ennþá meira.

Átti reyndar eitt sinn nýlegan Scenic og það var allt önnur saga. Hann bilaði alvarlega og var þá í ábyrgð. Þá lá við að þeir sleiktu skóna mína.
Síðast fór ég á Aðalverkstæðið (rétt fyrir ofan BL) þar er eitthvað af fyrrum BogL mönnum að vinna, ég fékk þar fínustu þjónustu á sanngjarnan pening.
Er samt farinn að nota meira og meira að fara á N1 Bíldshöfða í ýmisskonar smáviðgerðir, bremsur ofl. það hefur verið fínt og ekkert okur þar.

If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf tdog » Þri 24. Apr 2012 19:27

Leiðinda svekkelsi Guðjón, ert þó heppinn að þetta hafi ekki skeð sama dag og pizzuævintýrið þitt :)

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf GuðjónR » Þri 24. Apr 2012 20:24

Bíllinn er sjálfskiptur þannig að það var ekki hægt að draga hann í gang :(
Og mér datt ekkert í hug nema "umboðið" ...

Já eins gott að þetta var ekki á sama degi og pizza ruglið ... þá hefði ég dáið :(

Ég ætlaði að gera svo margt í bænum, fara á amk. 7 staði ... náði á einn af þessum 7.
Svo varð siminn inneignarlaus, og loksins þegar ég náði að fylla á frelsið þá var sími konunnar straumlaus :face
Náði reyndar á henni á endanum, en þurfti að bíða í 1.5 klst eftir að hún færi að ná í börnin í skóla/leikskóla ....
Var orðinn nett-pirraður.

MrIce
Gúrú
Póstar: 587
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 14:08
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf MrIce » Þri 24. Apr 2012 21:04

Ef þetta er startarinn þá mæli ég með PG þjónustunni S: 586 1260
hef farið til þeirra í nokkur skipti sem það hefur verið eikkað rafmagnsvesen á bílunum hjá mér og alltaf fín þjónusta. Mæli hiklaust með þeim, og þeir segja hreint út ef þeir geta þetta ekki / borgar sig ekki að gera við, ekkert plott hjá þeim.

Bögg samt að lenda í þessu og vonandi reddast þetta sem fyrst hjá þér Guðjón!

-Need more computer stuff-

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf GuðjónR » Þri 24. Apr 2012 21:21

MrIce skrifaði:Ef þetta er startarinn þá mæli ég með PG þjónustunni S: 586 1260
hef farið til þeirra í nokkur skipti sem það hefur verið eikkað rafmagnsvesen á bílunum hjá mér og alltaf fín þjónusta. Mæli hiklaust með þeim, og þeir segja hreint út ef þeir geta þetta ekki / borgar sig ekki að gera við, ekkert plott hjá þeim.

Bögg samt að lenda í þessu og vonandi reddast þetta sem fyrst hjá þér Guðjón!

Takk fyrir það, spurning um að hringja í B&L kl 7:45 í fyrramálið og cancela .... draga bílinn á hinn staðinn...PG er rétt hjá.
Kannski kostar viðgerðin þar svipað og "bilanagreiningin" hjá B&L

vesley
Kóngur
Póstar: 4254
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf vesley » Þri 24. Apr 2012 21:29

Þessi þráður leiðir greinilega frá sér ógæfu!

Það rofnaði bremsuleiðsla í bílnum hjá kærustunni rétt í þessu. Sem betur fer var hún ekki lögð af stað til Keflavíkur því bíllinn er orðinn alveg bremsuvökvalaus.

:lol: :thumbsd

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3086
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf lukkuláki » Þri 24. Apr 2012 21:29

GuðjónR skrifaði:
MrIce skrifaði:Ef þetta er startarinn þá mæli ég með PG þjónustunni S: 586 1260
hef farið til þeirra í nokkur skipti sem það hefur verið eikkað rafmagnsvesen á bílunum hjá mér og alltaf fín þjónusta. Mæli hiklaust með þeim, og þeir segja hreint út ef þeir geta þetta ekki / borgar sig ekki að gera við, ekkert plott hjá þeim.

Bögg samt að lenda í þessu og vonandi reddast þetta sem fyrst hjá þér Guðjón!

Takk fyrir það, spurning um að hringja í B&L kl 7:45 í fyrramálið og cancela .... draga bílinn á hinn staðinn...PG er rétt hjá.
Kannski kostar viðgerðin þar svipað og "bilanagreiningin" hjá B&L

Færðu ekki bilanagreininguna upp í viðgerðina ef þú lætur þá klára þetta ?
Hef ekki farið þarna í nokkur ár en sumir eru með þetta svoleiðis.

If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf GuðjónR » Þri 24. Apr 2012 21:31

lukkuláki skrifaði:

Ég veit það ekki, spurði ekki.
En svo er alveg spurning ef kolin eru farin hvort þeir vilji ekki bara selja nýjan startara á 100k frekar en kol á 1k. rukka svo 14k í bilanagreiningu ef ég sætti mig ekki við það...
Kannski er ég kominn í "hirtu þinn helvítis tjakk" :D

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3086
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf lukkuláki » Þri 24. Apr 2012 21:35

GuðjónR skrifaði:
lukkuláki skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
MrIce skrifaði:Ef þetta er startarinn þá mæli ég með PG þjónustunni S: 586 1260
hef farið til þeirra í nokkur skipti sem það hefur verið eikkað rafmagnsvesen á bílunum hjá mér og alltaf fín þjónusta. Mæli hiklaust með þeim, og þeir segja hreint út ef þeir geta þetta ekki / borgar sig ekki að gera við, ekkert plott hjá þeim.

Bögg samt að lenda í þessu og vonandi reddast þetta sem fyrst hjá þér Guðjón!

Takk fyrir það, spurning um að hringja í B&L kl 7:45 í fyrramálið og cancela .... draga bílinn á hinn staðinn...PG er rétt hjá.
Kannski kostar viðgerðin þar svipað og "bilanagreiningin" hjá B&L

Færðu ekki bilanagreininguna upp í viðgerðina ef þú lætur þá klára þetta ?
Hef ekki farið þarna í nokkur ár en sumir eru með þetta svoleiðis.

Ég veit það ekki, spurði ekki.
En svo er alveg spurning ef kolin eru farin hvort þeir vilji ekki bara selja nýjan startara á 100k frekar en kol á 1k. rukka svo 14k í bilanagreiningu ef ég sætti mig ekki við það...
Kannski er ég kominn í "hirtu þinn helvítis tjakk" :D

Já ha ha ha tjakkurinn hann er gamall og góður. Þetta kemur allt í ljós í fyrramálið eftir 1. kaffibollann :) :popp

Vil fá þessa gaura í úrvalið
Viðhengi
lotsocoffee.gif
lotsocoffee.gif (6.66 KiB) Skoðað 2916 sinnum
coffee1.gif
coffee1.gif (34.62 KiB) Skoðað 2906 sinnum
mg_coffeespray.gif
mg_coffeespray.gif (53.34 KiB) Skoðað 2904 sinnum
emo-coffee.gif
emo-coffee.gif (10.84 KiB) Skoðað 2904 sinnum
thbirgits_coffee.gif
thbirgits_coffee.gif (2.38 KiB) Skoðað 2905 sinnum

If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf GuðjónR » Þri 24. Apr 2012 21:51

Ég skal skella þessum inn á morgun ... 2tierd núna :sofa

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16314
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf GuðjónR » Mið 25. Apr 2012 13:47

Jæja, smá update.
Í morgun eftir fyrsta kaffibollann þá hringdi ég í B&L og spurði hvort þetta 13500 bilunargreiningar gjald myndi ganga upp í viðgerð eða hvort það yrði rukkað sér sama hvað.
Stutta svarið var, við rukkum það sama hvað!

Þannig að ég afþakkaði pent, fór og dró bílinn upp á PG þjónustuna eins og MrIce mælti með, held ég eigi ekkert eftir að sjá eftir því :happy

Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2349
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 54
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf Klaufi » Mið 25. Apr 2012 13:58

Gott dæmi um svona umboðsþjónustu, það kostar mig 500% meira að láta smyrja bílinn minn hjá umboðinu heldur en hjá öðrum viðurkenndum aðila.

Boycottum umboðin, styrkjum litla manninn :drekka

Mynd

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3843
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf Tiger » Mið 25. Apr 2012 14:04

Minn dagur var líka erfiður... Vaknaði við fuglatíst og ekki nema helvítis 17C hiti úti og gola. Fékk síðan helvítis sólina í augun þegar ég var að keyra úta golfvöll sem BTW var allt of langur og hraðinn á flötunum allt of mikill.

Síðan á leiðinni heim er PizzaHut með tómt vesen, valkvíðinn tók öll völd þar sem Boneless chickenwings var til í 5 skammtastærðum og 7 bragðtegundum....+sósunar on the side. Jú náði að ákveða mig og brunaði heim og bara til að komast að því að hitinn var kominn uppi 27C og ekkert nema sól við lauginna sem BTW var orðin hland volg og useless til sunds....

....og klukkan bara orðin 3 og nóg eftir að deginum til að fara úrsskeiðis, þannig að ég skil fullkomlega hvernig þér líður eftir þetta smá atvik þitt sem þrátt fyrir smæð sína setti leiðindar blett á annars fínan dag hjá þér elsku Guðjón minn :)

Mynd

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1258
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 141
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf Minuz1 » Mið 25. Apr 2012 14:08

Klaufi skrifaði:Gott dæmi um svona umboðsþjónustu, það kostar mig 500% meira að láta smyrja bílinn minn hjá umboðinu heldur en hjá öðrum viðurkenndum aðila.

Boycottum umboðin, styrkjum litla manninn :drekka

Þeir hjá bílaumboðunum voru að reyna að klína svona ábyrgðarklausum eins og tölvuverkstæðin hér á landi eru með.

"ef einhver annar en starfsmaður hjá okkar verkstæði svo mikið sem horfir á hlutinn þá dettur hann úr ábyrgð"

Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf gardar » Mið 25. Apr 2012 14:08

GuðjónR skrifaði:Svo varð siminn inneignarlaus, og loksins þegar ég náði að fylla á frelsið þá var sími konunnar straumlaus :face

Hvernig má það vera að fullorðinn maður sé með frelsi en ekki áskrift? :shock:

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3819
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Erfiður dagur!

Pósturaf Daz » Mið 25. Apr 2012 14:20

gardar skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Svo varð siminn inneignarlaus, og loksins þegar ég náði að fylla á frelsið þá var sími konunnar straumlaus :face

Hvernig má það vera að fullorðinn maður sé með frelsi en ekki áskrift? :shock:

Ég er með frelsi! Það er reyndar bara á einum síma sem er mest notaður í að taka við símtölum, svo kostnaðurinn við fastagjaldið var stærsti liðurinn á mánaðarreikningum. Það er svosem líklega undantekningartilfelli :D